Morgunblaðið - 21.05.2009, Blaðsíða 28
28 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2009
Benedikt
Bjarni
Kristjánsson
✝ Benedikt BjarniKristjánsson
fæddist í Reykjavík
26. september 1935.
Hann lést 7. maí
2009.
Benedikt Bjarni
kvæntist 17. febrúar
1958 Bergþóru Gunnbjörtu Krist-
insdóttur, f. 17. febrúar 1933. Börn: 1)
Svava, f. 16. des. 1954, gift Guðmundi
Birgi Salómonssyni, þau eiga þrjú börn
og þrjú tengdabörn, barnabörn eru þrjú
og eitt á leiðinni. 2) Ágúst, f. 10. maí
1956, kvæntur Sigríði Margréti Sigurð-
ardóttur, þau eiga þrjú börn og tvö
tengdabörn og eitt barnabarn. 3) Gréta,
f. 2. des. 1958, gift Kristjáni Knútssyni,
þau eiga fimm syni. 4) Ásta, f. 4 maí
1960, gift Sigmari Arnari Steingríms-
syni, þau eiga þrjú börn og tvö tengda-
börn.
Benedikt Bjarni var bifreiðarstjóri hjá
SVR og Bifreiðastöðinni Bæjarleiðum.
Útför Benedikts Bjarna fór fram frá
Árbæjarkirkju 18. maí, í kyrrþey.
Meira: mbl.is/minningar
Árni Elfar
✝ Árni Elfar fædd-ist á Akureyri 5.
júní 1928. Hann lést
5. apríl 2009 og var
jarðsunginn í kyrrþey
8. apríl.
Meira: mbl.is/
minningar
Minningar á mbl.is
✝ Halldór DavíðBenediktsson
fæddist á Hólmavaði
í Aðaldal 9. febrúar
1929. Hann andaðist
9. maí síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Jónasína Halldórs-
dóttir, f. 15. október
1895, d. 8. nóvember
1968, og Benedikt
Kristjánsson, f. 25.
nóvember 1885, d.
27. september 1968.
Halldór Davíð
kvæntist 5. júlí 1952
Jónasína, f. 15. október 1961,
maki Einar Axel Gústavsson,
Anna Soffía, f. 14. febrúar 1967,
sambýliskona Hildur Þórð-
ardóttir, og Ester, f. 17. sept-
ember 1969, maki Sigurður Lárus
Sigurðsson. Halldór Davíð og
Matthildur eiga 17 barnabörn og
10 barnabarnabörn.
Fyrst bjuggu Halldór og Matt-
hildur á Húsavík en fluttu til
Vestmannaeyja árið 1960, en
fluttu aftur til Húsavíkur árið
1977. Halldór Davíð lærði bak-
araiðn og vann lengi við þau
störf, var kokkur til sjós í átta ár
en vann síðan í 19 ár við laxeld-
isstöðina á Laxamýri og var þar
til 67 ára aldurs.
Halldór Davíð var jarðsunginn
frá Húsavíkurkirkju 16. maí, í
kyrrþey.
Meira: mbl.is/minningar
Matthildi Zophonías-
dóttur, f. á Lækn-
esstöðum á Langa-
nesi 22. nóvember
1928. Börn þeirra
eru: Arnþrúður
Rannveig, f. 28. apr-
íl 1950, maki Sig-
urður Grétar Benón-
ýsson, Ólafía
Guðrún, f. 8. júní
1953, maki Páll Þór
Engilbjartsson, Hall-
dór Benedikt, f. 20.
ágúst 1950, maki
Linda Sigurlásdóttir,
Það er komið kvöld og við afi sitj-
um við eldhúsborðið í Urðargerð-
inu. Ég lítil skvísa, þreytt og útitek-
in eftir sólríkan dag á Húsavík og
við erum að drekka ískalda mjólk
og borða súrt slátur og tala saman
um daginn og veginn. Já, afi gamli
búinn að koma litlu stelpunni sinni
upp á súrt slátur og var það okkar
sameiginlega uppáhald, þetta var
okkar stund. Þessi minning er ljós-
lifandi fyrir mér þegar ég hugsa um
afa og það er margs að minnast.
Það var gaman að tala við afa, hann
hafði frá svo mörgu að segja og svo
kryddaði hann sögurnar hikstalaust
til að gæða þær meiri ævintýrablæ.
Pabbi varaði mig nú eitt skiptið við
honum í gríni þegar ég var að fara
eitt sumarið ein til ömmu og afa á
Húsavík. Hann sagði mér að vera
ekkert að trúa honum því hann ætti
jú til að hagræða aðeins sannleik-
anum. Með þetta veganesti fór ég
upp í flugvélina og afi sækir mig
svo á flugvöllinn. Á leiðinni til
Húsavíkur fer hann að segja mér
sögur og staðhætti til að drepa tím-
ann. Ég, minnug orða pabba, sagði
við afa að pabbi hefði sko sagt mér
að trúa ekki orði sem hann segði.
Aumingja afi vissi líklega ekkert
hvernig hann átti að bregðast við
þessari ungu ákveðnu dömu öðru-
vísi en með hlátri.
Ég gleymi aldrei heimsóknunum
í laxeldisstöðina þar sem afi vann,
það voru ævintýraferðir. Það var
spennandi fyrir litla stelpu að kíkja
ofan í kör full af fiski og seiðum.
Hann lét ekki hundrað spurningar
slá sig út af laginu heldur afgreiddi
með þolinmæði og ég man enn eftir
skrýtnu fiskilyktinni úr laxeldis-
stöðinni.
Halldór Davíð
Benediktsson
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIRRÝ HULDA JÓHANNSDÓTTIR,
lést þriðjudaginn 5. maí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á SOS
barnaþorpin.
Sigríður J. Sigurðardóttir, Gunnhildur B. Hauksdóttir,
Margrét Geirsdóttir, Stefán Georgsson,
Geir Þór Geirsson, Elva Dögg Gunnarsdóttir
og barnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÁSTA SIGRÍÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir þriðjudaginn 19. maí.
Guðjón Ólafsson, Hildur Gunnarsdóttir,
Ragnar Ólafsson, Jóhanna G. Z. Jónsdóttir,
Anna Margrét Ólafsdóttir, Birgir Eðvarðsson,
Ásta Björg Ólafsdóttir, Jón Ingiberg Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn,
LENNART PERSSON,
lést í Malmö mánudaginn 18. maí.
Bera Nordal.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma,
GUÐRÍÐUR Ó. ERLENDSDÓTTIR,
Aðallandi 6,
Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut
þriðjudaginn 19. maí.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn
26. maí kl. 13.00.
Gísli Guðmundsson,
Jóhanna V. Gísladóttir, Andrew B. Nobel,
Guðmundur Gíslason, Hanna Steinunn Ingvadóttir,
Erlendur Gíslason, Kristjana Skúladóttir
og ömmubörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi, sonur og bróðir,
JÓHANN INGI REIMARSSON,
Írabakka 16,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn
2. maí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum hlýhug og vináttu á erfiðum tímum.
Sigurlína A. Halldórsdóttir,
Dagbjartur Ingi Jóhannsson, Penny Ormston,
Rúna Lind Jóhannsdóttir,
Anna Sigrún Birgisdóttir,
Alexander Brynjar Róbertsson,
Erna Hartmannsdóttir, Hörður Sumarliðason,
Heiða Björk Reimarsdóttir, Magnús Karlsson,
Kristín Helga Reimarsdóttir, Sigurvin Einarsson,
Linda Sólveig Reimarsdóttir, Rúnar Guðjónsson,
Reimar Charlesson, Björg Hjálmarsdóttir.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ANNA MARÍA GUÐMUNDSDÓTTIR
BACHMANN,
Grænumörk 5,
Selfossi,
lést á Sjúkrahúsi Suðurlands sunnudaginn 17. maí.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Ingi Kr. Stefánsson, Valgerður Jóna Gunnarsdóttir,
Fjóla Bachmann, Vígsteinn Gíslason,
Guðlaug Bachmann, Þórhallur Árnason,
Rósa Bachmann, Sigurgeir Aðalsteinsson,
Inga Lára Bachmann, Ólafur Haraldsson,
Jónína Bachmann, Eyþór Geirsson,
Halldór Bachmann, Hanna Guðbjörg Birgisdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar,
JÓNA S. JÓNASDÓTTIR,
Akralandi 1,
andaðist á Landspítala Landakoti sunnudaginn
10. maí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hennar.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Guðni P. og Kristján Kristjánssynir.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
MATTHILDUR JÓNSDÓTTIR,
Granaskjóli 11,
Reykjavík,
sem lést miðvikudaginn 13. maí, verður jarðsungin
frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 22. maí
kl. 15.00.
Ingunn Ívarsdóttir,
Valdís Ragnheiður Ívarsdóttir, Viðar Stefánsson,
Herdís Ívarsdóttir, Ingi Þór Vigfússon,
Ívar Ívarsson, Árný Sigríður Jakobsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
✝
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
vegna andláts og útfarar móður okkar, tengda-
móður og ömmu,
ÞYRIAR EYDAL,
Gilsbakkavegi 7,
Akureyri.
Þökkum Tónlistarskólanum á Akureyri fyrir þann
virðingarvott sem henni var sýndur á útfarar-
deginum. Kærar þakkir til starfsfólks lyfjadeildar
Sjúkrahúss Akureyrar fyrir frábæra umönnun Þyriar og nærgætni og
hlýju í okkar garð.
Þyri Guðbjörg Björnsdóttir,
Elinborg Björnsdóttir,
Lars Erik Schilling,
Anna María Schilling.