Morgunblaðið - 21.05.2009, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.05.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2009 Til alvarlegrar skoðunar  Menntamálaráðuneytið mat mál Fornleifastofnunar Íslands þannig að rétt væri að vekja athygli viðeigandi stofnana á því  Háskóli Íslands segir að gripið verði til viðeigandi aðgerða ef tilefni gefst til Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur sia@mbl.is „Við höfum brugðist við. Þegar Fram- kvæmdasýsla ríkisins vakti athygli okkar á málinu lögðumst við yfir það og í raun og veru má segja að þetta heyri ekki undir okkur,“ segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra um málefni Fornleifastofnunar Ís- lands (FSÍ) sem sagt var frá í Morg- unblaðinu í gær. Talið er að FSÍ beiti siðferðilega og lagalega hæpnum að- ferðum til að viðhalda markaðsráð- andi aðstöðu á sviði fornleifaupp- graftrar á landinu. „Þess vegna sendum við þetta bréf til Samkeppn- iseftirlitsins annars vegar og hins veg- ar til Háskóla Íslands og óskum eftir að kannað sé hvort þetta stangist á við starfsskyldur starfsmanna HÍ,“ segir Katrín og bætir við: „Þannig að við tökum á málinu og komum því áfram.“ Þannig sé vakin athygli viðeigandi stofnana á málinu. „Við mátum það þannig.“ Ákvörðun um málefni Adolfs Friðrikssonar og Orra Vésteinssonar segir Katrín að liggi hjá HÍ. Orri er dósent við HÍ og Adolf var til ársins 2007 stundakennari við skólann. Orri og Adolf eru stjórnarmenn í FSÍ og Adolf er auk þess forstöðumaður. Háskóli Íslands sendi í gær frá sér yfirlýsingu um málið þar sem m.a. segir að það sé til „alvarlegrar skoð- unar“. Þá segir: „Rétt er að taka fram að engin formleg tengsl eru á milli Há- skóla Íslands og Fornleifastofnunar. Gögn Framkvæmdasýslunnar fela í sér ábendingar um að tilgreindir starfsmenn Háskólans kunni að hafa sýnt framkomu eða háttsemi sem ekki sé í samræmi við starfsskyldur þeirra sem kennara við skólann. Mál þetta er til alvarlegrar skoðunar innan skólans að því marki sem það lýtur að honum. Verið er að afla upplýsinga frá þeim starfsmönnum Háskólans sem nefndir eru í gögnum frá Framkvæmdasýsl- unni og rætt hefur verið við nemanda skólans sem nefndur er í gögnunum. Þegar athugun málsins er lokið verður gripið til viðeigandi aðgerða af hálfu Háskólans ef tilefni verður til.“  Yfirlýsing Adolfs Friðrikssonar | 8 Í HNOTSKURN »Páll Gunnar Pálsson, for-stjóri Samkeppniseftirlits- ins, segir gagnaöflun standa yf- ir. Ekki er hægt að segja til um hvenær rannsókn lýkur. Málinu verður þó flýtt eins og kostur er. »Almennt eru viðurlög viðbrotum á samkeppnislögum sektir og eftir atvikum fyrirmæli um breytingar á starfsemi. METAN hefur hækkað um 4 krónur á áfyllingarstöðinni við Bíldshöfða í byrjun mánaðarins. Rúmmetrinn kostar nú 98 kr. Björn H. Halldórsson, fram- kvæmdastjóri Sorpu, segir að verðið hafi verið hækkað til að halda í við verðlag. Nefnir hann að lán sem tek- in hafa verið vegna uppbygging- arinnar séu í erlendri mynt og hafi það hækkað tilkostnað. Verðið hefur verið 94 krónur frá því í fyrravor. Björn vekur athygli á því að met- anið sé vel samkeppnishæft við bensín. Á vef Metan hf. kemur fram að kaup á einum rúmmetra af norm- al metani samsvari því að keyptur væri bensínlítri á 87,50 kr. Bensín er sem kunnugt talsvert dýrara en það eða yfir 160 krónur lítrinn. Metanið hækkar um 4 kr. Rúmmetrinn í 98 kr. ÞRÍR Danir duttu í lukkupottinn og skiptu fyrsta vinningi og ofurpotti Víkingalottósins á milli sín í gær, þar sem ofurtalan var ein af aðaltöl- unum. Vinningurinn var 1.940 millj- ónir og fær hver þeirra jafnvirði 647 milljóna íslenskra króna í sinn hlut. Heppinn íslenskur áskrifandi var hins vegar með allar tölurnar í réttri röð í Jókernum og fær hann 2 millj- ónir í vinning. Danir duttu í lottólukkupott LEIKSKÓLINN Skógarborg hélt upp á 40 ára af- mæli sitt í gær. Boðið var upp á tónlistaratriði, myndlistarsýningu og veitingar. Í skólastarfinu er helst lögð áhersla á að hafa barnið í brennidepli; tilfinningalegt styðjandi umhverfi, skapandi starf, lesþroska, ritmál og stærðfræðilega hugsun. Skógarborg tók til starfa 7. júlí árið 1969 og var til að byrja með í litlu húsi við Klifveg. Árið 2006 fluttist leikskólinn í nýtt húsnæði í Efstalandi 28. Í leikskólanum eru á bilinu 50-53 börn sem njóta nálægðarinnar við náttúruparadísina í Foss- vogsdal. Fjörutíu ára afmæli fagnað með pomp og prakt Barnið í brennidepli á Skógarborg Morgunblaðið/Heiddi Bjartari tímarFangaðu ljósið og færðu stofuna út í sumar Lambo Lounger 69.900,- einfaldlega betri kostur 30 % af slá ttu r af öll um Si len ce dý nu m Lambo Lounger. NÝTT. Garðsófi. Ø165cm. Innifalið í verði er sessa og 5 púðar.69.900,- einfaldlega betri kostur laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-19 s: 522 4500 www.ILVA.is Skoðaðu hann á www.ILVA.is NÝRSUMARBÆKLINGUR NÝTT KORTATÍMABIL „ÞEIR voru fegnir að sjá okkur,“ segir Bjarni Guð- mundsson, stýrimaður á Núpi sem bjargaði tveimur sjó- mönnum af Herdísi SH 145 út af Patreksfirði snemma í gærmorgun. Eldur kom upp í bátnum og komust sjó- mennirnir í gúmbjörgunarbát. Herdís SH sökk þegar Núpur var að búa sig undir að taka bátinn í tog. Herdís SH er sex brúttólesta bátur sem gerður var út frá Rifi og voru tveir menn um tvítugt á bátnum. Þeir voru á handfæraveiðum út af Blakksnesi, sunnan við Patreksfjörð. Ásbjörn Óttarsson, útgerðarmaður og fað- ir annars skipverjans, segir að sjómennirnir hafi verið á skaki, þegar þeir urðu varir við að reykur kom út um loftop á lúkarnum. Þá hafi verið kominn það mikill eldur og reykur að þeir hafi ekki komist í talstöð eða síma til að kalla eftir hjálp og ekki getað náð í flotbúninga sem geymdir voru inni, aðeins náð að ræsa neyðarsendi. Þeir hafi losað björgunarbátinn sem var uppi á stýrishúsinu en eldurinn hafi verið byrjaður að teygja sig í hann. Fram kom á neyðarskeytinu hvaða bátur ætti í hlut og staðsetning. Þegar skipverjar svöruðu ekki kalli stjórn- stöðvar Landhelgisgæslunnar var kallað eftir aðstoð. Núpur var sjö mílur frá og sáu skipverjar reyk og að neyðarblysi var skotið á loft. Þyrla Landhelgisgæsl- unnar var einnig kölluð út. Mennirnir voru upp undir klukkutíma í bátnum. Birta BA skutlaði þeim í land á Patreksfirði og þar tók lög- reglan skýrslu um atburðinn. Von var á þeim heim seint í gærkvöldi. „Þetta er vissulega slæmt. Við gerðum þennan bát út yfir sumartímann. Strákarnir missa vinnuna. En það er guðsgjöf að þeir skyldu bjargast,“ segir Ásbjörn og vill koma á framfæri þakklæti til allra sem komu að björg- uninni. helgi@mbl.is Komust í björgunarbátinn  Tveimur ungum sjómönnum bjargað eftir að eldur kom upp í bát þeirra  Gátu ekki tekið með flotbúninga eða síma Morgunblaðið/Alfons Á siglingu Herdís SH 145 sökk eftir að eldur kom upp.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.