Morgunblaðið - 21.05.2009, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 21.05.2009, Blaðsíða 32
32 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2009 Sudoku Frumstig 2 8 5 1 2 7 6 2 1 5 9 7 4 4 8 7 8 6 7 1 1 3 9 6 6 4 1 3 4 7 5 9 3 7 5 8 2 1 8 3 1 2 7 5 9 8 6 3 5 6 4 7 9 5 8 7 3 4 8 9 3 6 1 9 2 8 7 5 2 5 8 1 7 4 6 3 9 9 1 6 5 2 3 4 8 7 4 7 3 9 6 8 2 5 1 7 9 2 4 8 6 5 1 3 6 8 1 3 9 5 7 4 2 5 3 4 7 1 2 8 9 6 8 6 5 2 3 9 1 7 4 3 2 7 8 4 1 9 6 5 1 4 9 6 5 7 3 2 8 7 6 9 2 1 8 3 4 5 5 1 4 7 9 3 2 8 6 3 2 8 6 5 4 7 9 1 9 8 7 3 6 1 4 5 2 1 3 2 5 4 9 6 7 8 4 5 6 8 2 7 9 1 3 6 4 3 9 8 5 1 2 7 2 9 5 1 7 6 8 3 4 8 7 1 4 3 2 5 6 9 6 9 3 1 5 4 8 7 2 7 5 1 3 8 2 9 6 4 2 4 8 7 9 6 5 3 1 4 1 2 8 3 7 6 9 5 9 3 5 6 2 1 7 4 8 8 7 6 9 4 5 1 2 3 1 2 4 5 7 9 3 8 6 5 8 9 2 6 3 4 1 7 3 6 7 4 1 8 2 5 9 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er fimmtudagur 21. maí, 141. dagur ársins 2009 Orð dagsins: Ég lít svo á, að ekki séu þjáningar þessa tíma neitt í sam- anburði við þá dýrð, sem oss mun op- inberast. (Rm. 8, 18.) Víkverji sá fyrir tilviljun fyrriþáttinn af bresku sjónvarps- myndinni 1066 The Battle for Middle Earth sem sýnd var á Can- nel 4 í vikunni. Í miðjum þætti tók Víkverji eftir stæðilegum manni sem honum þótti hreint ótrúlega líkur Ólafi Darra Ólafssyni leikara. Morg- unblaðið upplýsti síðan í gær að Ólafur Darri og félagi hans Björn Thors hefðu farið með stór hlutverk í myndinni. x x x Ólafur Darri og Björn léku vík-inga sem börðust í liði Har- aldar harðráða við Stamford Bridge. Í myndinni mætast Ólafur Darri og hermaður í liði Haraldar Godw- insonar konungs á brúnni þar sem orrustan er háð. Ólafur Darri drap hann léttilega og sömu örlög hlaut hver hermaðurinn á fætur öðrum. Þegar Ólafur Darri var búinn að drepa u.þ.b. 20 manns klifraði einn andstæðingur hans undir brúna og rak spjót í gegnum brúargólfið upp í Ólaf Darra. Þessu gat hann ekki var- ist. x x x Það verður ekki sagt að sjón-varpsmyndin bregði neinum hetjuljóma á stríðsátök. Smábænd- um og vinnufólki er att út í orrustur. Skylmingarnar eru hvorki langar né hetjulegar. Árið 1066 markaði djúp spor í sögu Englands. Menn Haraldar Godwinarsonar háðu erfiða orrustu við víkinga og náðu með þrautseigju að sigra. Þegar þeir sem eftir lifðu voru að kasta mæðinni bárust fréttir af því að Vilhjálmur hertogi af Norð- mandí hefði gengið á land við Hast- ings. Herinn flýtti sér til móts við innrásarherinn. Hermenn Haraldar voru þreyttir og sárir en höfðu þó lengi vel í fullu tré við menn Vil- hjálms. Hann hafði á endanum sigur með klókindum en einnig skiptu öfl- ugar bogaskyttur hans miklu máli. Vilhjálmur varð þar með konungur yfir Englandi. Allar tilraunir til inn- rásar í England síðan hafa runnið út í sandinn. Nokkrum sinnum hefur þó verið háð borgarastyrjöld í land- inu. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 meyr, 4 grísk- ur bókstafur, 7 minnist á, 8 innheimta, 9 tjón, 11 nöldra, 13 lof, 14 þukla á, 15 auðmótuð, 17 geð, 20 spor, 22 árás, 23 bál, 24 ílátið, 25 gabba. Lóðrétt | 1 háðsbros, 2 fóstrið, 3 hluta, 4 þref, 5 laumuspil, 6 stéttar, 10 hindra, 12 kraftur, 13 mann, 15 þræta, 16 huldumenn, 18 dásemd- arverk, 19 tilbiðja, 20 veit margt, 21 úrkoma. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 útkjálkar, 8 pækil, 9 pokar, 10 kóp, 11 lands, 13 agnar, 15 falls, 18 strit, 21 kot, 22 lætur, 23 ólmir, 24 snakillur. Lóðrétt: 2 tekin, 3 jálks, 4 loppa, 5 askan, 6 spil, 7 þrír, 12 díl, 14 get, 15 fólk, 16 látin, 17 skrök, 18 stóll, 19 rimmu, 20 tæra. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 g6 3. c3 Bg7 4. d4 cxd4 5. cxd4 d5 6. e5 Rh6 7. h3 Rc6 8. Rc3 O-O 9. Bb5 Bf5 10. Bxc6 bxc6 11. O-O f6 12. He1 Rf7 13. Bf4 g5 14. Bh2 Rh8 15. Re2 Be4 16. Rd2 Rg6 17. Rg3 f5 18. Rb3 f4 19. Rxe4 dxe4 20. Rc5 Dd5 21. Rxe4 Rh4 22. Db3 Dxb3 23. axb3 h6 24. Rc5 Rf5 25. He4 Hfd8 26. Re6 Hd7 Staðan kom upp í atskákkeppni landsliðs Asera gegn nokkrum af öfl- ugustu stórmeisturum heims sem fór fram fyrir skömmu í Bakú í Aserbaíd- sjan. Heimsmeistarinn fyrrverandi, Vladimir Kramnik (2759) frá Rúss- landi, hafði hvítt gegn heimamanninum Gadir Guseinov (2659). 27. Bxf4! Kf7 svartur hefði einnig tapað eftir 27… gxf4 28. Hxf4. 28. Rc7! Hxd4 29. Hxd4 Rxd4 30. Rxa8 gxf4 31. Hxa7 Bxe5 32. Hb7 Re6 33. b4 Bxb2 34. Rb6 Kf6 35. Rc8 og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Reglan í reynd. Norður ♠10984 ♥K85 ♦K986 ♣D2 Vestur Austur ♠DG532 ♠ÁK76 ♥G106 ♥97432 ♦Á7 ♦10 ♣765 ♣Á83 Suður ♠-- ♥ÁD ♦DG5432 ♣KG1094 (17) Sagnbaráttan. Makker innrammaðs manns fer með húsbóndavaldið og tekur einn pressu- ákvarðanir, sögðum við í gær. Hvernig er hægt að nota slíka sagnreglu við borðið? Lítum á: Austur gefur og opnar á 1♥. Suður stekkur í 2G til að sýna lág- litina og vestur segir 3♥. Hvað á norður að gera? Hann er utan gegn á hættu. Í reynd stökk norður í 5♦ í pressu- tilgangi. Honum þótti einsýnt að A-V væru á leið í 4♥ og vildi gera þeim erfitt fyrir. Sem er verðugur tilgangur, en virkaði ekki vel hér: suður bjóst við betri spilum og hækkaði í slemmu. Norður átti að láta 4♦ duga, því inn- ákoman á 2G er blæðandi, getur verið sterk, veik, eða allt þar á milli. Hlutverk norðurs var þvert á móti að sýna sitt rétta eðli – ramma sig inn með lýsandi sögn og gera makker að húsbónda framvindunnar. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Láttu ekki værðina ná svo sterk- um tökum á þér að þú hafir ekki dug í þér til að vinna þau verk sem þarf að vinna. Temdu þér meiri tillitssemi í samskiptum. (20. apríl - 20. maí)  Naut Leitaðu leiða til að bæta aðstæður þínar og afköst í vinnunni. Láttu þetta þér að kenningu verða án þess þó að gerast mannafæla. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Það er með ólíkindum hvernig hlutirnir geta stundum gengið upp eins og af sjálfu sér. En allt í hófi! (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Viljirðu búa við áframhaldandi vel- gengni máttu í engu slaka á. Mundu bara að það er vandaverk að velja sér vini og þeim þarf svo að sinna, ef vináttan á að haldast eitthvað. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Nautið heldur sínu striki í ótil- greindum viðskiptahugleiðingum og myndi alveg þiggja fjárfesti í augnablik- inu. Taktu á móti nýjum tæknilausnum með jákvæðum huga. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Það eru alltof margir möguleikar í boði á svona degi þar sem allt gengur. Fólki þykir gott að vinna með þér núna. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú hugsar mikið um tilgang lífsins þessa dagana. Og það á að leggja allar kröfur til hliðar, nema þær sem maður gerir til sjálfs sín. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Sumar gjörðir fullnægja sjálfsálitinu. Auðvitað er alltaf skemmti- legra þegar ekkert kemst upp á milli þín og elskunnar þinnar. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú ert í aðstöðu til að gagn- rýna, verður jafnvel beðinn um það og færð borgað fyrir. Ekki fallast á nokkurn hlut í dag og ekki skrifa undir samninga. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Léttar samræður virðast búa yfir meiri tilfinningadýpt en endranær. Tilkynntu alheiminum óskir þínar skýrt og skorinort, og mundu að þær munu lík- lega rætast. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Stundum er nauðsynlegt að gera sjálfum sér eitthvað til góða, eitt- hvað óvænt og öðruvísi. Vertu öðruvísi, því eins og Írarnir segja: „Sá sem slúðrar með þér, slúðrar um þig.“ (19. feb. - 20. mars) Fiskar Gleymdu því sem ekki gekk upp hjá þér á síðasta ári. Láttu til skarar skríða svo vandinn verði úr sögunni. Stjörnuspá 21. maí 1962 Tékkneskum manni var vísað úr landi fyrir að reyna „að múta íslenskum flugmanni til njósna á Keflavíkurvelli“ að sögn Morgunblaðsins. 21. maí 1983 Ásmundarsafn, safn Ásmund- ar Sveinssonar myndhöggvara við Sigtún í Reykjavík, var formlega opnað. Sex árum áð- ur gaf listamaðurinn Reykja- víkurborg safnið eftir sinn dag. 21. maí 1994 Sturla Friðriksson lagði til í grein í Lesbók Morgunblaðs- ins að Íslendingar veldu holta- sóley sem þjóðarblóm. Í kjöl- far þess var ákveðið að velja hana sem þjóðhátíðarblóm 1994. Áratug síðar var holta- sóley valin þjóðarblóm í at- kvæðagreiðslu. 21. maí 1997 Þrír Íslendingar komust á tind Mount Everest, hæsta fjalls heims, sem er 8.848 metrar, kl. 7.15 að íslenskum tíma. Þetta voru Björn Ólafsson, Einar K. Stefánsson og Hall- grímur Magnússon. Tilkynn- ing þeirra til félaganna sem biðu í grunnbúðunum var svo- hljóðandi: „Við komumst ekki hærra.“ Ferðin á tindinn tók þrettán klukkustundir og ferðin niður fimm klukku- stundir. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… GUÐNÝ Helga Björnsdóttir, bóndi á Bessastöðum í Húnaþingi vestra, er fertug í dag og hún hóf fögnuðinn í gærkvöldi þegar hún fór ásamt bónda sínum að sjá sýninguna Mr. Skallagrímsson í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Eftir sýninguna eyddu þau nóttinni í Hótel Hamri. Á Bessastöðum eru þau með 30 kýr en hestabú- skapur er stundaður þar líka. „Maðurinn minn er mest í hrossunum,“ segir Guðný Helga en þegar blaðamaður náði tali af henni var hún einmitt í miðjum klíðum að þjálfa hesta. Eftir nóttina í Hamri ætla þau að dóla sér heim í rólegheitunum og í kvöld er fjör framundan. „Það verður grillveisla fyrir þreytta sauðfjárbændur í nágrenni okkar og ættingja,“ segir Guðný Helga og hlær þegar hún er spurð hvort hún vonist eftir góðu veðri. „Maður grillar bara í skjóli, við þekkjum það alveg. Það er yfir- leitt blíða suður undir vegg.“ Sauðburði er ekki lokið í sveitum landsins á þessum tíma og Helga Guðný rifjar upp að oft hafi afmælisdagurinn týnst í miðjum sauð- burði þegar hún var yngri. „Maður fékk svona mismikið af lömbum í afmælisgjöf,“ segir hún og hlær við upprifjunina. sia@mbl.is Guðný Helga Björnsdóttir er fertug í dag Skallagrímsson og Hamar Nýirborgarar Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.