Morgunblaðið - 13.06.2009, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 13.06.2009, Blaðsíða 46
Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó ÓDÝRT Í BÍÓ Í REGNBO GANUM Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Sími 551 9000 750kr. 750 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - ALLA DAGA Terminator: Salvation kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára Angels and Demons kl. 2:30 - 5:30 - 8:30 B.i. 14 ára Night at the museum 2 kl. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ X-Men Origins: Wolfe... kl. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára Þú færð 5 % endurgreitt í HáskólabíóSími 462 3500 SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI 750k r. 750k r. Ó.H.T., Rás 2 -M.M.J., kvikmyndir.com -T.V., - kvikmyndir.is - S.V., MBL Vinsælasta myndiní heiminum í dag Þegar ljósin slökkna byrjar fjörið... aftur! ... og nú í stærsta safni í heimi! 750kr. Frábær ævintýra gamanmynd í anda fyrri myndar! Toppm yndin á Íslan di í da g 750kr. Vinsælasta myndin í heiminum í dag Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú b SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI Frábær teiknimynd fyrir alla fjölskylduna með íslensku tali. Þetta er hið klassíka ævintýri um Gullbrá og birnina 3 í nýrri og skemmtilegri útfærslu. SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI FRÁBÆR GAMANMYND Í ANDA WEDDING CRASHERS Ó.H.T., Rás 2 -M.M.J., kvikmyndir.com -T.V., - kvikmyndir.is - S.V., MBL SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI 750 kr almennt 600 kr börn HHH “... fínasta spennu- mynd með flottum hasaratriðum...” - V.J.V., FBL HHH „Stórbrotinn hasar.“ SV MBL HHHH – Empire Ghost of Girlfriend past kl. 5:50 - 8 - 10 B.i. 7 ára Terminator: Salvation kl. 8 - 10:10 B.i.12 ára Gullbrá og birnirnir 3 kl. 4 - 5:50 LEYFÐ Night at the museum 2 kl. 4 LEYFÐ Ghost of a Girlfriend .... kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 7 ára Gullbrá og birnirnir 3 kl. 3:30 LEYFÐ Terminator: Salvation kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12 ára Angels and Demons kl. 3 - 6 - 9 B.i. 14 ára Boat that rocket kl. 8 - 10:40 B.i. 12 ára Draumalandið síðustu sýn. kl. 4 - 6 LEYFÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2009 Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is ALLT frá því fyrsti geisladiskurinn var „rippaður“ einhvern tímann í fyrndinni hafa menn velt stafrænni dreifingu á tónlist fyrir sér. Lengst af hefur umræðan reyndar helst snúist um það hvernig koma eigi í veg fyrir tæknina frekar en hvernig megi nýta sér hana, en undanfarin misseri er eins og menn hafi loks áttað sig á því hvaða möguleikar felast í stafrænni miðlun tónlistar. Tónlist.is var hrint af stað fyrir um það bil sex árum, 30. apríl 2003, sem vefur til að selja tónlist á netinu. Framan af var aðeins íslensk tónlist til sölu á vefnum, en alltaf stóð til að selja erlenda tónlist og var reynd- ar gert en úrvalið þótti lélegt. Veðjað á rangan hest Á sínum tíma var tónlistin sem seld var á Tónlist.is með sérstaka höfundarréttarvörn og bundin við tölvuna sem hún var keypt á, en í því var stuðst við lausnir frá Microsoft, enda töldu menn líklegt að Microsoft myndi hafa betur í glímunni við Apple um tónlist- arsölu á netinu (iTunes-tónlistarbúðin var opnuð fyrir öll stýrikerfi í október 2003). Það fór þó á annan veg, Apple naut góðs af því að vera með besta spilastokkinn (iPod) og þar sem hann var samstilltur við iTunes- verslunina hafði enginn roð við fyrirtækinu. Að sama skapi kom líka í ljós að fólk var ekki sátt við þær hömlur sem settar voru á notkun á stafrænni tónlist, að tónlistina væri aðeins hægt að spila á einni tölvu eða einum spilastokki og í mörgum tilfellum væri ekki hægt að spila hana ef maður sagði upp áskriftinni. Gott dæmi um það er allir þeir sem keyptu sér tónlist í vefverslun Micro- soft sem ekki gátu spilað hana lengur þegar Microsoft lagði verslunina niður. Erlend tónlist í boði Tónlist.is hefur tekið mið af þessari þró- un, meðal annars hvað varðar höfundarrétt- arvörnina, því hún var afnumin í maí 2007, og eins hefur fyrirtækið tekið æ meira tillit til iPod-notenda og auðveldað þeim að hlaða því sem þeir kaupa inn í iTunes. Nú síðast tók vefurinn enn stórt skref því þá var til- kynnt að fyrirtækið hefði gert samning um sölu á tónlist frá helstu útgáfufyrirtækjum heims, Universal, SonyBMG, Warner og EMI, auk þess sem tónlist frá fjölmörgum smærri fyrirtækjum verður einnig fáanleg. Að sögn Engilberts Hafsteinssonar er samn- ingurinn rammasamningur og smáfyrirtækj- unum fjölgar sífellt sem aðilar eru að hon- um, en nú er svo komið að hálf þriðja milljón laga er nú fáanleg í vefverslun Tónlist.is að meðtöldum um 50.000 íslenskum lögum. Engilbert segir að það hafi verið mikið framfaraspor þegar höfundarréttarvörn hafi verið tekin af lögum á tónlist.is og þá hafi til að mynda orðið gríðarleg söluaukning á tón- list, hún hafi líklega tvöfaldast, en getur þess þó að ekki sé alveg öll tónlist án slíkrar verndar, því það sé nokkuð sem eigendur höfundarréttar ákveði sjálfir. „Þannig er mikið af tónlistinni frá Warner enn læst og líka plötur ýmissa listamanna, en ríflega 97% tónlistarinnar eru án höfundarétt- arvarnar.“ Streymið er málið Spurður um notkun á versluninni segir Engilbert að obbi tekna fyrirtækisins komi af svokölluðu streymi, en þá geta áskrif- endur streymt tónlist yfir netið og í tölvur sínar eða farsíma. Meðalaldur notenda segir hann hærri en aðstandendur fyrirtækisins hafi búist við; um þriðjungur sé yngri en 20 ára, þriðjungur á aldrinum 20 til 30 ára og þriðjungur eldri en þrjátíu ára. Að mati Engilberts er tónlist.is vel sam- keppnishæf við aðrar tónlistarverslanir á netinu, enda hafi menn einsett sér að halda verðinu niðri eins og hægt væri á meðan hamfarirnar í gjaldeyrismálum ganga yfir. „Það er lítil sem engin framlegð af erlendu tónlistinni sem stendur, en við erum þó ekki að tapa á henni og á meðan svo er hækkum við ekki verðið.“ Milljónir laga á Tónlist.is  Tónlist.is semur um sölu á erlendri tónlist til niðurhals  2,5 milljónir laga í boði, þar af 50.000 innlend Ný plata Black Eyed Peas, The E.N.D., kom út sl. mánudag. Í iTunes vefversluninni, sem er lokuð fyrir Íslendingum, kostar The E.N.D. 10,99$, sem samsvarar 1.414 kr. Hvert lag kostar 1,29$ sem samsvarar 166 kr., Boom Bo- om Pow líka. Á Tónlist.is kostar hvert lag 199 kr., utan eitt (Boom Boom Pow) sem kostar 399 kr. (út- gefandi ákveður verð á stökum lögum). Platan öll kostar 1.990 kr. (Ef platan væri fáanleg hér á landi myndi hún kosta um 2.999 kr.). Í vefverslun HMV tónlistarbúðakeðjunnar bresku, kostar hvert lag af The E.N.D. 166 kr. (líka Boom Boom Pow), en platan öll 1.476 kr. Til frekari samaburðar þá kostar Ágætis byrjun Sigur Rósar 899 kr. á Tónlist.is og hvert lag 99 kr., en 1.281 hjá iTunes og lagið þar 127 kr. Hjá HMW kostar platan 1.457 kr. og hvert lag 145 kr. Ódýrast í Ameríku

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.