Morgunblaðið - 13.06.2009, Page 2

Morgunblaðið - 13.06.2009, Page 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2009 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is MUN færri námsmenn eru án at- vinnu í sumar en óttast var. Nú hafa um 700 námsmenn sótt um atvinnu- leysisbætur fyrir næstu mánaðamót. Könnun sem Vinnumálastofnun gerði snemma í vor benti til að þús- undir nemenda reiknuðu ekki með að fá vinnu í sumar. Óformleg könnun sem Vinnu- málastofnun gerði í apríl og byrjun maí gaf til kynna að 6.000 til 7.000 skólanemendur óttuðust að fá ekki sumarvinnu. Inni í þeim tölum voru að vísu nemendur sem vitað var að hefðu ekki áunnið sér lágmarks- bótarétt með þriggja mánaða vinnu eftir sextán ára aldur. Aðrar kann- anir bentu til enn verri stöðu. „Þetta verður greinilega miklu minna en við bjuggumst við, sem bet- ur fer. Það verður engin holskefla úr þessu,“ segir Unnur Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs Vinnumálastofnunar. Námsmenn fá fyrst greitt 1. júlí, framhaldsskólanemar fyrir tímabilið frá 20. maí til 19. júní og háskóla- nemar frá 1. til 19. júní. Háskóla- nemar fá síðan greitt lengra fram á haustið en framhaldsskólanemar. Liðlega 1.400 nemar skráðu sig at- vinnulausa á vef Vinnumiðlunar. Nú hafa um 700 fylgt skráningunni eftir með því að leggja inn gögn og sækja formlega um atvinnuleysisbætur. Unnur tekur fram að inni í þeirri tölu séu framhaldsskólanemar sem ekki hafi áunnið sér lágmarksrétt. Flestir eiga þó rétt á 65-80% bótum og eru því að ljúka framhaldsskóla eða í há- skólanámi. Enn getur bæst í hópinn því vika er til stefnu. „Við höfum þá tilfinningu að miklu meiri vinnu hafi verið að hafa en reiknað var með en hún hafi komið seinna en venjulega,“ segir Unnur þegar skýringa er leitað á betra atvinnuástandi skólafólks en reiknað var með. „Atvinnurekendur virðast hafa haldið að sér höndum, al- veg til mánaðamóta. Námsmenn eru enn að fá vinnu, hafa kannski sótt um í vetur en verið í biðstöðu eða ekki fengið svör. Það er svo mikil óvissa á vinnumarkaði að stjórnendur fyr- irtækja treysta sér ekki til að gera áætlanir til langs tíma,“ segir Unnur. Þessu til viðbótar nefnir hún að sumarnámskeið háskólanna hafi dregið eitthvað úr þrýstingi á vinnu- markaðinn hjá háskólanemum. Námsmenn enn að fá vinnu  Útlit fyrir að mun færri námsmenn séu atvinnulausir í sumar en búist var við  Í stað þúsunda hafa um sjö hundruð framhaldsskóla- og háskólanemar sótt um atvinnuleysisbætur 1. júlí UM fjórtán þúsund voru í há- skólanámi á síðasta ári og um tuttugu og tvö þúsund í fram- haldsskólum, í báðum tilvikum er miðað við þá sem eru í dag- skóla. Þess ber að geta að nem- endur á fyrstu árum framhalds- skóla hafa sjaldnast áunnið sér lágmarksrétt til bóta. Meirihluti skólafólks var í óvissu um sumarstarf alveg fram á sumar. Könnun sem Stúdenta- ráð Háskóla Íslands gerði í mars benti til að tæplega 10 þúsund háskólanemar reiknuðu ekki með að fá vinnu í sumar. Ekki von um vinnu LEIKSKÓLABÖRN í Kópavogi undu sér vel við berjatínslu skammt frá Kópavogskirkju í gær. Miðað við hve skammt er liðið á sumarið má þó ætla að þorri þess sem krakkarnir tíndu hafi verið grænjaxlar. Ekki létu þau það á sig fá, heldur tíndu þá beint upp í sig eins og barna er siður. Á vit náttúrunnar í þéttbýlinu Morgunblaðið/Golli Ungviðið leikur og sér tínir ber og grænjaxla VERULEGUR meirihluti er hlynntur því að taka upp aðild- arviðræður við Evrópusambandið, ESB, eða 57,9 prósent, samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar Gall- up fyrir Morgunblaðið sem gerð var 28. maí til 4. júní. Andvígir aðild- arviðræðum eru 26,4 prósent en 15,7 prósent eru óákveðin. Fleiri konur eru mjög hlynntar aðildarviðræðum en karlar, eða 36,2 prósent á móti 22,9 prósentum. 15,3 prósent kvenna eru mjög andvíg að- ildarviðræðum en 16,2 prósent karla. Þeir sem eru á aldrinum 35 til 44 ára eru hlynntari viðræðum en aðrir aldurshópar, en meðal þeirra er 34,1 prósent mjög hlynnt aðild- arviðræðum. Í Reykjavík eru 36,3 prósent mjög hlynnt aðildarviðræðum en 34,3 prósent í nágrannasveitarfélög- unum. Í öðrum sveitarfélögum eru 20,6 prósent mjög hlynnt viðræðum. Mests fylgis njóta aðild- arviðræður meðal þeirra sem eru með háskólapróf en meðal þeirra eru 45,3 prósent mjög hlynnt við- ræðum við ESB. Meðal þeirra sem eru með fjöl- skyldutekjur frá 800 til 999 þúsund krónur er 41 prósent mjög hlynnt aðildarviðræðum en 21,2 prósent eru mjög hlynnt viðræðum meðal þeirra sem eru með lægri fjöl- skyldutekjur en 250 þúsund. Um var að ræða netkönnun og var úrtakið 1.288 manns á öllu land- inu, 18 ára og eldri. Voru þeir valdir af handahófi úr viðhorfahópi Capa- cent Gallup. Endanlegt úrtak var 1.264 en fjöldi svarenda var 788. Svarhlutfallið er því 62,3 prósent. Spurt var: Ertu hlynnt(ur) því eða andvíg(ur) að taka upp aðild- arviðræður við Evrópusambandið? ingibjorg@mbl.is 58 prósent fylgjandi ESB-viðræðum  Andvígir viðræðum eru 26,4 prósent en óákveðnir eru 15,7 prósent aðspurðra                                   !  ! "# $ Morgunblaðið/Helgi Bjarnason „Mér hefur fund- ist sú launasetn- ing sem menn hafa búið við eng- an veginn vera eðlileg,“ segir Árni Stefán Jóns- son, formaður SFR, um drög fjármálaráðherra að frumvarpi sem kynnt voru ríkis- stjórn í gærmorgun. Samkvæmt drögunum verða laun stjórnenda op- inberra hlutafélaga og stofnana ákveðin af kjararáði og aldrei hærri en mánaðarlaun forsætisráðherra. Þau eru nú 935.000 krónur. Í samræmi við þetta koma laun ýmissa stjórnenda hjá ríkinu til með að lækka. Árni er þó jákvæður varð- andi breytinguna en hann telur launafjárhæðir í ríkisgeiranum hafa farið út í öfgar á undanförnum árum. skulias@mbl.is Enginn fái hærri laun en forsætis- ráðherra Árni Stefán Jónsson FJÓRÐA svínaflensutilfellið hefur greinst hér á landi. Hin smitaða er kona á miðjum aldri og er talið víst að hún hafi smit- ast af hjónum sem áður höfðu greinst. Þau smit- uðust í Banda- ríkjunum en kon- an smitaðist hér á landi og er það í fyrsta sinn sem flensan berst milli manna hér- lendis. Þetta seg- ir í tilkynningu frá sóttvarnalækni í gær. Líðan konunnar er góð, að sögn Haraldar Briem sóttvarnalæknis, en einkenni hennar munu vera væg. Haraldur segir að það hafi enga þýð- ingu og breyti litlu að flensan hafi nú smitast innanlands. „Þetta er eitt- hvað sem við gerðum ráð fyrir að myndi gerast,“ segir hann, en unnið verður eftir sömu viðbragðsáætlun og hingað til. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur lýst svínaflensuna heimsfaraldur. Aðgerðir hér á landi eru í tilkynn- ingunni sagðar í samræmi við skiln- ing hennar þar sem veikin sé yfir- leitt væg. skulias@mbl.is Svínaflensa greinist í fjórða sinn Haraldur Briem

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.