Morgunblaðið - 13.06.2009, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 13.06.2009, Blaðsíða 45
Menning 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2009 Landnámssetrið í Borgarnesi 437 1600 | landnamssetur@landnam.is BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið) Fös 19/6 kl. 20:00 Ö Lau 20/6 kl. 20:00 Sun 21/6 kl. 16:00 Ö Sun 12/7 kl. 16:00 Sun 26/7 kl. 16:00 Tvær Grímur 2008 - Besta leikkonan - Besta handritið BANDIÐ BAK VIÐ EYRAÐ (HVÍTISALUR) Fim 18/6 tónleikar kl. 21:00 Ö 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Söngvaseiður (Stóra sviðið) Sannleikurinn (Stóra sviðið) Ekki missa af Djúpinu, aðeins þrjár sýningar eftir! Við borgum ekki (Nýja sviðið) Uppsetning Nýja Íslands. Söngvaseiður. Sala hafin á sýningar í haust. Djúpið (Litla sviðið) Munið afslátt fyrir viðskiptavini Vodafone! Lau 20/6 kl. 19:00 stóra svið Lau 27/6 kl. 19:00 stóra svið Fös 3/7 kl. 19:00 stóra svið Lau 11/7 kl. 19:00 stóra svið Lau 13/6 kl. 14:00 U Lau 13/6 kl. 18:00 Ný aukasU Sun 14/6 kl. 16:00 U Fös 4/9 kl. 19:00 U Lau 5/9 kl. 19:00 Ö Sun 6/9 kl. 19:00 Ö Mið 9/9 kl. 19:00 U Fim 10/9 kl. 19:00 Ö Fös 18/9 kl. 19:00 Ö Lau 19/9 kl. 19:00 U Fim 18/6 kl. 20:00 Fös 19/6 kl. 20:00 Sun 21/6 kl. 20:00 Lau 13/6 kl. 19:00 Ö Sun 14/6 kl. 20:00 Ö Fim 18/6 kl. 20:00 GREASE – Vinsælasti rokksöngleikur allra tíma! Lau 13/6 kl. 20:00 3.sýn U Sun 14/6 kl. 16:00 4. sýn Ö Lau 20/6 kl. 16:00 5. sýn U Sun 21/6 kl. 16:00 6.sýn Ö Fös 26/6 kl. 20:00 7.sýnÖ Lau 27/6 kl. 20:00 8.sýnÖ Sun 28/6 kl. 16:00 9.sýnÖ Loftkastalinn hefur opnaðaftur eftir nokkurt hlé ínýuppgerðu húsnæði viðSeljaveginn. Opnunarsýn- ingin var engin önnur en söngleik- urinn Grease sem var fyrst frum- sýndur í litlu leikhúsi í Chigago 1971. Sagan af Danny og Sandy er mörg- um kunn, stelpa hittir strák, þau verða ástfangin en þora ekki að láta tilfinningar sínar í ljós vegna skóla- félaga sinna. Boðskapurinn er svo sem ekki upp á marga fiska, saklaus og prúð stúlka breytist í glamúrgellu til að falla í kramið hjá hinum. Ekki uppbyggilegt þema. Hins vegar er skemmtigildi söngleiksins talsvert enn í dag, einkum vegna tónlistar- innar sem margir kannast við. Sýning Selmu Björnsdóttur á Grease heppnaðist ágætlega. Sýn- ingin er kraftmikil á köflum, leik- gleðin er allsráðandi og fjörið mikið. Með aðalhlutverkin, Danny og Sandy, fara Bjartur Guðmundsson og Ólöf Jara Skagfjörð. Bjartur er nýútskrifaður úr leiklistardeild LHÍ og er þetta fyrsta hlutverk hans sem atvinnuleikari. Hann hefur sterka sviðsframkomu og fór vel með hlut- verk sitt. Ólöf Jara hefur nokkra reynslu af söngleikjum en hún hefur tekið þátt í nokkrum með Versl- unarskóla Íslands. Einnig hefur hún tekið þátt í undanúrslitakeppni Evr- óvisjón. Ólöf hefur fallega rödd og hentaði vel í hlutverk Sandyar. Leik- ur hennar var hógvær en tókst með ágætum. Stjarna kvöldsins var þó Unnur Ösp Stefánsdóttir. Það var greinilegt að þarna var vön leikkona á ferð. Hún var einstaklega kraftmikil sem hin spillta Rizzo sem á sér þó við- kvæmar hliðar. Álfrún Örnólfsdóttir var skemmtileg sem hin óþolandi Patty og leiklistarneminn Sigurður Þór Óskarsson var eftirtektarverður sem Doody. Magnús Jónsson er allt- af flottur á sviði. Aðrir leikarar og dansarar stóðu sig vel og gaman að sjá ný andlit á sviðinu eins og hinar nýútskrifuðu Maríu Dalberg og Mar- íu Þórðardóttur. Dansatriðin voru vel útfærð af systrunum Guðfinnu og Birnu Björnsdætrum, söngurinn þéttur en hins vegar var hljóðið ekki gott. Stundum heyrðist hvorki í lægstu tónum söngvaranna né orðaskil í lög- um. Á köflum virtist sem hljóðnem- arnir væru eitthvað vanstilltir. Þetta þarf að laga. En hljóðfæraleikarar stóðu sig með mikilli prýði. Gesta- leikur Friðriks Ómars Evró- visjónstjörnu kom skemmtilega á óvart og vakti mikla lukku í salnum. Leikmynd Brian Pilkingtons var einföld og hugvitsamleg. Sviðið var nýtt til hins ýtrasta, nóg pláss fyrir dansatriðin en samt nógu lítið til að minni atriði fengju notið sín. Búningar Maríu Ólafsdóttur voru mjög í anda tímabilsins. Strákarnir í leðri og með brilljantín en stelpurnar í litríkum kjólum, hver með sínu sniði eftir persónueinkennum hlutverk- anna. Sýningin er ekki gallalaus en Selma Björnsdóttir kann augljóslega að virkja leikgleði hinna ungu leik- ara. Grease er kraftmikil og fjörug sýn- ing sem á örugglega eftir að heilla ungu kynslóðina nú sem endranær. Gæjar og stælpíur Loftkastalinn Grease eftir Jim Jacobs og Warren Casey Leikarar: Bjartur Guðmundsson, Ólöf Jara Skagfjörð, Álfrún Örnólfsdóttir, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Víðir Guð- mundsson, Walter Grímsson, Aðalbjörg Árnadóttir, Magnús Jónsson, María Dal- berg, María Þórðardóttir, Ævar Þór Benediktsson, Hjördís Lilja Örnólfs- dóttir, Sigurður Þór Óskarsson, Ásta Bærings, Aðalsteinn Kjartansson, Þor- leifur Einarsson og Friðrik Ómar Hjör- leifsson. Hljómsveit: Benedikt Brynleifsson, Ósk- ar Guðjónsson, Róbert Þórhallsson, Vignir Stefánsson og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson sem einnig sá um hljóm- sveitarstjórn. Leikmynd: Brian Pilkington Búningar: María Ólafsdóttir Ljósahönnun: Jón Þorgeir Kristjánsson Dansar: Birna og Guðfinna Björnsdætur Hljóðhönnun: Bjarni Bragi Þýðing: Veturliði Guðnason Leikstjórn: Selma Björnsdóttir INGIBJÖRG ÞÓRISDÓTTIR LEIKLIST Svalur Bjartur Guðmundsson sem Danny. „Hann hefur sterka sviðsframkomu og fór vel með hlutverk sitt.“ Saga hljómsveitarinnar Skefyllir ríflega hálfan annanáratug, allt frá því hjáver-katríóið Skárren ekkert hóf að leika saman sér til gamans og fljótlega öðrum líka. Uppúr henni spratt síðan Ske og hefur orðspor sveitarinnar vaxið jafnt og þétt, allt frá því fyrsta plata sveitarinnar, Life, Death, Happiness and Stuff, kom út 2002. Önnur platan, Feelings Are Great, kom út 2004 og loks er þriðja skífan komin út. Sveitin á sér fjölmarga aðdáendur og það mun gleðja þá að fá nýju plötuna í hend- ur, því hún inniheldur margt af því besta sem sveitin hefur sent frá sér. Fyrst vekur athygli hversu kostulega Hösk- uldur Ólafsson vex jafnt og þétt sem söngvari. Upphafslagið „Know by now“ hljómar næstum eins og inngangs- lag eða æfing til að koma honum í gírinn, einföld laglína með einnar línu texta sem Höskuldur syngur af innlifun. Það er dramatík í loftinu og hún næstum leikræn, sándið er þyngra en oftast áður og tónninn er glettilega vel gefinn strax í upphafi. Í framhaldinu renna fjölmörg af- bragðslög. „Boxer“ hljómar sumpart eins og George heitinn Harrison hefði samið flott lag fyrir bresku sveitina Muse til flutnings, „Jum- per“ er feikigott enda viðlagið lunkin endurvinnsla á viðlaginu í „Pride (In The Name of Love)“, hvort heldur það er meðvitað eður ei; „What can come of this?“ er eitt allra besta lag plötunnar, minnir á úrvals amerískt þjóðlagarokk og þar á Höskuldur sérlega fínan sprett sem söngvari. Loks er ekki annað hægt en að dást að hinu yndislega lagi „Grace“ sem leiðir hlustandann á vit hádegis- kokteila á Hawaii. Er þá aðeins fátt eitt upp talið. Það hefur löngum verið aðall þeirra Ske-leggja (endalaust hægt að leika sér með þetta nafn!) að kunna að blanda saman margs konar hljóðum, ef ekki hljóðheimum, og komast listavel frá því; það er ef- laust arfur frá því í árdaga Skárren ekkert sem hafði jafnan kámugan gleðigraut af alþjóðlegri stuðmúsík á spilaskránni. Listin að hræra í hljóð- rænt hanastél hefur gengið Ske í arf, svo ekki er um að villast. Fag- mennskan ágerist með hverju skref- inu sem sveitin tekur í útgáfu og sá tónlistarunnandi mun vandfundinn sem ekki hefur gaman af þessari frá- bæru plötu – sem ber þar af leiðandi sannarlega nafn með rentu. Ske – Love For You Allbbbbn JÓN AGNAR ÓLASON TÓNLIST Dramatísk skemmtun ÞRIGGJA manna dómstóll í Afr- íkuríkinu Malaví hefur úrskurðað bandarísku söngkonunni Madonnu í hag í máli sem hún höfðaði eftir að dómari á lægra dómsstigi hafnaði umsókn hennar um að fá að ættleiða þriggja ára stúlku frá landinu. Þetta kemur fram á fréttavef BBC. Forseti dómsins, Lovemore Munlo, segir dómarana hafa horft til þess hversu mikinn áhuga Madonna hafi sýnt á að aðstoða munaðarlaus börn í landinu og þess að það sé stúlkunni Chifundo „Mercy“ James, fjögurra ára, fyrir bestu að Ma- donna ættleiði hana. „Við teljum að það verði betur hugsað um Chifundo James af er- lendum kjörforeldrum sem munu veita henni ást og umhyggju, segir hann og bætir því við að með ætt- leiðingunni verði stúlkunni einnig tryggður fjárhagslegur stöðugleiki. Í úrskurði dómaranna segir að fyrri úrskurður í málinu hafi verið byggður á þröngri túlkun gamalla laga en í þeim er kveðið á um að út- lendingar þurfi að hafa búið í land- inu í átján mánuði til að fá að ætt- leiða barn þaðan. Madonna fékk undanþágu frá um- ræddum lögum er hún ættleiddi drenginn David Banda frá Malaví ásamt fyrrum eiginmanni sínum. REUTERS Sátt Madonna og David þegar þau heimsóttu líffræðilegan föður hans. Sigur Madonnu staðfestur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.