Morgunblaðið - 13.06.2009, Blaðsíða 31
Umræðan 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2009
Í Lofi lyginnar eftir
Þorleif Halldórsson
segir að lygin sjálf sé
þeirrar skoðunar, að
enginn geti án hennar
verið. Formaður
Vinstri grænna, Stein-
grímur J. Sigfússon,
er líka þeirrar skoð-
unar, að enginn geti
án hans verið. En get-
ur þjóðin verið án
þessara tveggja þátta: Steingríms
og lyginnar? Hann hefur margoft
verið staðinn að ósannindum hina
síðustu daga í umræðum á Alþingi.
Hef ég höfðað til ráðherraábyrgð-
ar hans án árangurs. Alvarlegasta
lygi formanns Vinstri grænna úr
sjálfum ræðustól Alþingis á dög-
unum varð í umræðum í aðdrag-
anda þess að hinni „glæsilegu“
lausn Icesave-deilunnar var slengt
framan í þingheim. Hann var
spurður af formanni Framsókn-
arflokksins, Sigmundi Davíð Gunn-
laugssyni, hvort frétta væri að
vænta af þessu risavaxna máli.
Fyrirspurn Sigmundar Davíðs var
svohljóðandi og er hún tekin orð-
rétt úr skjölum Alþingis: Frú for-
seti. Getur hæstv. fjármálaráð-
herra upplýst þingið um stöðu
mála í viðræðum við
bresk stjórnvöld
vegna Icesave-
reikninganna og hvort
rétt sé að til standi að
undirrita einhvers
konar samkomulag við
bresk stjórnvöld jafn-
vel á morgun og ef
ekki á morgun, hve-
nær þá og hvað í slíku
samkomulagi felist
eða hvað ráðherrann
gerir ráð fyrir að í því
muni felast?
Steingrímur J. Sigfússon var til
svars: „Það er verið að reyna að
koma í gang formlegum samninga-
viðræðum en þær eru ekki hafnar
heldur eru könnunarþreifingar eða
könnunarviðræður í gangi. Ég held
að ég geti fullvissað hv. þingmann
um að það standi ekki til að ganga
frá einhverju samkomulagi á
morgun eða einhverja næstu daga
og áður en til slíks kæmi yrði að
sjálfsögðu haft samráð við utanrík-
ismálanefnd og aðra þá aðila sem
þingið hefur haft til að fylgjast
með framvindu þessara mála.
Staða málsins er sú að það eru
könnunarviðræður eða könn-
unarþreifingar í gangi.“
Höfum í huga hér, að þessi orð
falla miðvikudaginn 3. júní, í ár,
ekki í fyrra! Þingheimi var tjáð að
„verið væri að reyna að koma í
gang formlegum viðræðum“,
„könnunarþreifingar“, „könn-
unarviðræður í gangi.“ Leið nú
dagurinn tíðindalaus. En viti menn
– á fundi utanríkismálanefndar
tæpum tveimur sólarhringum síðar
eru kynnt drög að samningi við
Breta og Hollendinga um lausn
Icesave-deilunnar. Og eiginlegar
samningaviðræður voru ekki farn-
ar af stað. Það verður að segja
fjármálaráðherra til hróss, að hann
er ekki lengi að hnoða saman
samningi um stærsta hagsmuna-
mál Íslendinga á síðari tímum.
Innan við tvo sólarhringa tók það
hann – eða var það svo? Að sjálf-
sögðu ekki. Ráðherra sagði ósatt
úr ræðustóli Alþingis og fór létt
með það. Er þetta sá heiðarleiki
og gegnsæi sem Steingrímur J.
Sigfússon og hans fólk boðuðu í
kosningabaráttunni? Þjóðinni væri
betur borgið án hans og lyginnar.
Lygin er lygileg,
Steingrímur
Eftir Vigdísi
Hauksdóttur »En getur þjóðin
verið án þessara
tveggja þátta: Stein-
gríms og lyginnar?
Vigdís Hauksdóttir
Höfundur er þingmaður Framsókn-
arflokks.
DREIFING og út-
þynning byggðar á
höfuðborgarsvæðinu
veldur Reykvíkingum
æ meiri vanda, auk-
inni fyrirhöfn og til-
kostnaði og skerðir
þjónustu á sífellt fleiri
sviðum. Alvarlegasta
dæmið eru almenn-
ingssamgöngurnar
sem virðast vera í
andarslitrunum. Til
þess að almenningssamgöngur í
Reykjavík geti staðið undir nafni
þarf íbúafjöldi á ha að nálgast
þann sem er í evrópskum borgum.
Þróunin hefur lengi verið í hina
áttina. Enn verra tekur við utan
borgarmarkanna. Víðátta höf-
uðborgarsvæðisins er slík að París
kæmist þar fyrir og fámenni á ha
gerir þjónustu fyrirtækis eins og
Strætó bs svo dýra að það rís ekki
undir henni. Annað sorglegt dæmi
eru örlög Laugavegarins, elstu og
merkustu verslunargötu landsins.
Smárinn í Kópavogi var reistur til
höfuðs Laugavegi, Kringlunni og
annarri verslun í Reykjavík. Ein
afleiðingin varð margföldun bíla-
flotans, fyrirsjáanlegt hreyfing-
arleysi fjöldans, offita og aðrir lífs-
stílssjúkdómar. Korputorg verkar
eins. Skipulagsóreiðan á höf-
uðborgarsvæðinu, óðabílisminn og
byggingarbólan eiga stóran þátt í
efnahagshruninu og það væri verð-
ugt verkefni fyrir dugandi hag-
fræðinga að reikna út samfélags-
skaðann af undanlátssemi
stjórnmálamanna við bílaumboðin,
ágeng fasteignafélög og bygging-
arverktaka. Ég ætla að nefna tvö
glæný dæmi um almannafyrirtæki
og þjónustu sem er horfin úr höf-
uðborginni vegna útþynning-
arstefnunnar, íbúum til óhagræðis
og aukins kostnaðar.
Námsgagnastofnun
á Heimsenda
Snemma í apríl átti ég erindi við
Námsgagnastofnun sem sl. 20 ár
hefur verið til húsa að Laugavegi
166. Ég kom að læstum dyrum. Á
næstu hæð í húsinu er Skipulags-
stofnun og þangað fór ég í von um
að einhver starfsmaður vissi hvers
vegna væri lokað hjá nábýlingnum.
Svarið var að stofnunin væri flutt,
enginn vissi hvert. Kona í af-
greiðslunni fann þó hið nýja heim-
ilisfang og það reyndist vera Vík-
urhvarf 3 í Kópavogi. „Rétt hjá
hesthúsahverfinu Heimsenda, ef
þú veist hvar það er,“ sagði hún
svo eftir að hafa rýnt í kortin í
Símaskránni.
Ég ákvað að erindi mitt væri
ekki nægilega brýnt til þess að ég
færi á Heimsenda fyrir það, ég
myndi reyna að leysa málið eftir
öðrum leiðum.
Grunnskólar í Reykjavík eru 44
að tölu en 9-10 í Kópavogi. Flutn-
ingur Námsgagnastofnunar úr
miðborg Reykjavíkur upp í heiða-
lönd Kópavogs gengur gegn hags-
munum yfirgnæfandi meirihluta
skólanna og annarra viðskiptavina.
Hann er til þess fallinn að auka
erfiði og hindra persónuleg sam-
skipti kennara og skólastjórnenda
við starfsfólk þeirrar stofnunar
sem framleiðir obbann af náms-
gögnum íslenskra skólabarna.
Sýslumaðurinn í
Reykjavík ómyndugur
Í byrjun júní þurfti dóttir mín,
sem er námsmaður erlendis, að
sækja um endurnýjun á vegabréfi
sínu. Seinast þegar fjölskyldu-
meðlimur átti sambærilegt erindi
við Sýslumanninn í Reykjavík (Út-
lendingastofnun) var afgreiðslan í
Skógarhlíð 6, skammt frá gatna-
mótum Snorrabrautar og Hring-
brautar. Nú reyndist Sýslumað-
urinn í Kópavogi hafa yfirtekið
útgáfu vegabréfa af
embættinu í Reykja-
vík og höfuðborg-
arbúum er vísað á
Dalveg 18 í nágranna-
sveitarfélaginu. Þang-
að er illfært nema á
einkabíl.
Ég varð að keyra úr
miðbæ Reykjavíkur,
þar sem ég bý, langa
og krókótta leið um
villugjörn úthverfi
sveitarfélags sem ég
greiði ekki skatta til
og vænti engrar þjón-
ustu af, uns við römbuðum á stað-
inn. Hjá sýslumanninum í Kópa-
vogi var þröng á þingi og í
anddyrinu mætti ég reykvískum
hjónum sem ég þekki, öskureiðum
yfir óhagræðinu. Ég var í líkum
ham, en dóttir mín reyndi að að-
stoða ráðvilltan útlending sem
skildi ekki þær litlu leiðbeiningar
sem stóðu til boða.
Sýslumaðurinn á Akranesi hefur
umboð dómsmálaráðherra og Þjóð-
skrár til þess að gefa út vegabréf,
sýsli í Borgarnesi, Búðardal,
Hólmavík, Akureyri, embættin í
þorpum og bæjum um allt land, en
Sýslumaðurinn í Reykjavík er
sviptur umboðinu. Hann er orðinn
undirtylla hjá Sýslumanninum í
Kópavogi. Hvar er sú höfuðborg í
víðri veröld, önnur en Reykjavík,
þar sem íbúarnir geta ekki fengið
útgefið vegabréf hjá yfirvöldum?
Skipulag sem
leiðir til hruns
Byggingaræðið sem upphófst í
Smáranum í Kópavogi og glórulaus
samkeppnin um íbúa og stofnanir
fámennrar þjóðar kemur nú í bakið
á okkur með margvíslegum hætti.
Fyrst var herjað í verslunargeir-
anum en í kreppunni reynir Kópa-
vogur að krækja í almannaþjón-
ustu ríkisins með undirboðum á
húsnæði sem annars stæði autt.
Smára-stefnan hefur valdið of-
þenslu á öllu höfuðborgarsvæðinu
og níðþungar byrðar offjárfesting-
anna velta nú yfir íbúana eins og
aurskriða. Samtök um betri byggð
hafa um tíu ára skeið varað við
þessari þróun en því miður talað
fyrir daufum eyrum. Nú sitjum við
öll í skuldafeninu, hvort sem við
tókum lán eða ekki. Við tilheyrum
þjóð sem glataði áttum í neysluæði
og ofáti, oflæti og drambi sem er
falli næst. Þjóð sem neitaði að
horfast í augu við að fyrr eða síðar
kæmi að skuldadögum og henni
yrði réttur reikningurinn. Við
skipulögðum óheyrilega dýra borg
og bæi með sóun lands og auð-
linda, okkar jafnt sem annarra
þjóða, og lífsstíl sem leiðir til
hruns.
Skipulagt
fyrir hrunið
Eftir Steinunni
Jóhannesdóttur
»Höfuðborgarsvæðið
er skipulagt fyrir
hrun. Níðþungar byrðar
offjárfestinganna velta
yfir íbúana eins og aur-
skriða
Steinunn
Jóhannesdóttir
Höfundur er rithöfundur.
Fréttir
í tölvupósti