Morgunblaðið - 13.06.2009, Blaðsíða 18
18 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2009
AÐALFUNDUR Búnaðarfélags
Auðkúluhrepps skorar á ríkis-
stjórnina að beita sér fyrir því að
jörðin Hrafnseyri, fæðingarstaður
Jóns Sigurðssonar, verði auglýst
laus til ábúðar sem allra fyrst.
Á Hrafnseyri eru öll skilyrði fyrir
því að þar megi reka notagott sauð-
fjárbú á vestfirskan mælikvarða við
núverandi húsakost sem vel ætti að
duga um sinn, auk þess sem stofn að
æðarvarpi er fyrir hendi.
Byggja þarf staðinn ungu fólki
með áhuga og hugsjónir í brjósti,
þannig að búskapur verði aftur
stundaður á Hrafnseyri þegar 17.
júní 2011 rennur upp, en sá dagur
er eins og kunnugt er afmælisdagur
Jóns.
Morgunblaðið/RAX
Búskap á Hrafnseyri
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
Í LOK mánaðarins verður tekið í
notkun á Eskifirði nýtt tvö þúsund
fermetra húsnæði fyrirtækisins
Egersund Ísland. Þar verður veið-
arfæragerð og nótahótel á bryggju-
kantinum innst í bænum, en Fjarða-
byggð sá um að byggja bryggju
sérstaklega fyrir fyrirtækið. Sex
metrar verða frá húsgafli, yfir
bryggjuna að skipshlið og auk þess
var dýpkað fyrir framan veiðar-
færagerðina þannig að þar er nú 10
metra dýpi á stórstraumsfjöru.
Kostnaður við byggingafram-
kvæmdir verður um 400 milljónir
króna.
Fimmtán manns vinna hjá Eger-
sund Ísland, sem er íslenskt fyr-
irtæki, en að meirihluta í eigu
norska fyrirtækisins Egersund
Trawl. Tveir Íslendingar eiga í fyr-
irtækinu, þeir Guðjón Margeirsson
og Stefán Ingvarsson, fram-
kvæmdastjóri og netagerðarmeist-
ari. Netagerðin hefur undanfarin ár
verið til húsa í rúmlega þúsund fer-
metra húsnæði, sem á sínum tíma
var kallað „húsið á sléttunni“ á
Eskifirði.
Nýja húsnæðið er byggt við enda
þess gamla og opnað á milli, þannig
að aðstaða fyrirtækisins verður á
um 3.200 fermetrum. Í nýja hús-
næðinu er vegghæð 12 metrar og 15
metrar upp í mæni. Alls verður að-
staðan í 120 metra löngu húsnæði,
en til samanburðar má nefna að góð-
ur fótboltavöllur er 105 metra lang-
ur.
Fullir bjartsýni
„Við erum fullir bjartsýni og
sjáum ekki ástæðu til annars meðan
menn fá að sækja sjóinn,“ segir
Stefán Ingvarsson. „Hér fyrir aust-
an hefur kreppan ekki gert vart við
sig á sama hátt og víða annars stað-
ar, álverið breytti miklu.“
Nýja húsnæðið skiptist í tvö rými.
Netagerð og viðgerðir verða í öðru
rýminu, en geymsla eða svokallað
nótahótel í hinu. Aðspurður um þörf
á slíku hóteli segir Stefán Ingvars-
son að stöðugt fleiri nýti sér þessa
þjónustu, enda hafa fyrirtækin al-
mennt ekki yfir svo góðu húsnæði að
ráða fyrir þessi verðmæti.
Egersund hefur sérhæft sig í
þjónustu við uppsjávarflotann og er
vel staðsett miðað við veiðar t.d. á
síld, loðnu, kolmunna og makríl.
Fyrirtækið sinnir þó einnig öðrum
verkefnum. Meðal viðskiptavina fyr-
irtækisins má nefna Eskju, Sam-
herja, Gjögur, Síldarvinnsluna, HB
Granda og Ísfélagið.
Nótahótel og netagerð á kantinum
Fyrirtækið Egersund Ísland á Eskifirði tekur í notkun nýtt tvö þúsund fermetra húsnæði Kostn-
aður við byggingaframkvæmdirnar verður um 400 milljónir króna Bjartsýni í stað kreppunnar
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Stórhuga Aðstaða Egersund á Eskifirði gjörbreytist með stærra húsi og
nýrri bryggju. Stefán Ingvarsson, framkvæmdastjóri, í forgrunni.
HANNA Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri
skemmti sér hið besta þegar hún ásamt borgar-
fulltrúum aðstoðaði við að leggja lokahönd á
tyrfingu Lækjartorgs í gær. Tilefnið var upphaf
verkefnisins Bjarta Reykjavík sem Reykjavíkur-
borg stendur fyrir í sumar. Hanna Birna sagði
að með verkefninu vilji Reykjavíkurborg leggja
áherslu á að borgarbúar fái notið miðborginnar.
Þegar líða tekur á sumarið verða hinir ýmsu við-
burðir í gangi sem tengjast Bjartri Reykjavík,
m.a. verður Hljómalindarreiturinn á Laugaveg-
inum gerður að fallegu torgi og þar verður starf-
ræktur útimarkaður um helgar í sumar. Hljóm-
skálinn mun öðlast nýtt hlutverk í sumar því þar
verður opnuð veitingasala á þjóðhátíðardaginn.
Verkefnið Bjarta Reykjavík fór af stað í gær með tilheyrandi gleði
Morgunblaðið/Golli
Brosandi borgarstjóri tyrfir Lækjartorg
Eftir Halldóru Þórsdóttur
halldorath@mbl.is
FASTEIGNAMAT íbúða hækkar
um 2,5% að meðaltali á næsta ári.
Minnst er hækkunin á höfuðborg-
arsvæðinu, um 1,2%, en mest á Suð-
urnesjum, um 13,2%. Heildarmat
allra fasteigna lækkar um 0,3%,
mest lækka sumarbústaðir og at-
vinnuhúsnæði, um 5% og 6%.
Matið byggir á nýju reiknilíkani
Fasteignaskrár Íslands sem tekur
mið af verðlagi í febrúar sl. og ýms-
um eiginleikum íbúða, allt frá stað-
setningu og stærð í fjölda herbergja
og hreinlætistækja. Þannig breytist
almennt verðlag í vissum hverfum
meira en í öðrum.
Á Íslandi eru 122 þúsund íbúðir á
skrá. Samanlagt fasteignamat þeirra
er 2.755 milljarðar króna en verður
2.824 milljarðar króna. Af þessum
íbúðum hækkaði mat á 67 þúsundum
eða 55%, en matið lækkaði á 55 þús-
undum íbúða. Í tilkynningu Fast-
eignaskrár segir að mat á stærri og
verðmætari íbúðum hækki að jafnaði
meira en mat á smærri og verðminni
eignum.
Nýja matið hefur verið í undirbún-
ingi í tvö ár og er talið endurspegla
markaðsvirði betur. Þykir það stað-
fest með samanburði og greiningu á
fasteignaviðskiptum bæði fyrir og
eftir að draga fór úr umsvifum og
makaskipti fasteigna hófu að aukast.
Hver fasteign er nú metin árlega í
ljósi kaupsamninga um sambæri-
legar eignir. Matið er byggt á yfir 44
þúsund kaupsamningum frá janúar
2004 til apríl 2009.
Fasteignaeigendur fá tilkynninar-
seðil um nýtt mat í næstu viku og
frestur til athugasemda er til 24. júlí.
Nýtt og hækkað fasteignamat
endurspegli markaðsvirði
Mat á íbúðum hækkar um 2,5% á landsvísu Atvinnuhúsnæði lækkar um 6%
36 $ -&,* & ' $.$&(
&$
:. ' (@1$.-
&* &
+$.$&A*(
. &
%
*$& B $&-6&
; $* &(&1"=
* &
#& 1 &
*$& B
&.$&
1 &1@&.$& B =&
ÞAÐ veltur alveg
á hverju sveitar-
félagi fyrir sig
hvort og þá
hvernig verður
brugðist við
þessum breyt-
ingum,“ segir
Halldór Hall-
dórsson, bæj-
arstjóri á Ísafirði
og formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Ákvörðun um fasteignagjöld verð-
ur tekin í lok ársins við gerð fjár-
laga, en fasteignamatið hækkaði
einna mest á Vestfjörðum.
Halldór kveðst hafa talið breytta
hugmyndafræðina á bak við matið
skynsamlega þegar hún var kynnt.
Mikil óánægja hafi ríkt með fast-
eignamatið eins og það var.
Óvíst hvort
álögur breytist
Halldór
Halldórsson