Morgunblaðið - 13.06.2009, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 13.06.2009, Qupperneq 41
Velvakandi 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2009 Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand VINSAMLEGAST TAKIÐ AF YKKUR SKÓNA ÉG ELSKA ÞESSI JAPÖNSKU HLAÐBORÐ ÉG HEF ALDREI SÉÐ LOFTHRÆTT SKÝ ÁÐUR ÉG KALLA Á KRAFT SNJÓPÚKANNA! HÉR MEÐ NOTA ÉG ÞANN KRAFT SEM MÉR ER VEITTUR TIL AÐ GEFA ÞÉR LÍF! LIFÐU! LIFÐU! LIFÐU! RRGHH! HRÓLFUR, VILTU FARA ÚT Í BAKARÍ OG KAUPA BRAUÐ HANDA OKKUR? GET ÞAÐ EKKI EDDI FÉKK SKÓFLUNA MÍNA LÁNAÐA AF HVERJU GETUR ÞÚ ÞAÐ EKKI?!? JÆJA, LALLI... BEITAN ER KOMIN Á KRÓKINN. NÚ ER BARA AÐ KASTA AGH! ÞÚ HEFUR EKKI GERT ÞETTA ÁÐUR, ER ÞAÐ NOKKUÐ? NÁÐU BARA Í HNÍF ÉG LOFAÐI M.J. AÐ ÉG MYNDI MÆTA Á FRUMSÝNINGUNA HENNAR Í KVÖLD EF ÞÚ SENDIR GODERO TIL SAKSÓKN- ARANS ÞÁ VEIT ÉG AÐ HANN KJAFTAR JÁ, ÞAÐ MÁ Í ÞAÐ MINNSTA LÁTA Á ÞAÐ REYNA EN AF HVERJU ERTU AÐ SÓA TÍMA ÞÍNUM TALANDI VIÐ SMÁGLÆPAMENN? TALANDI UM TÍMA... ÉG VERÐ AÐ DRÍFA MIG! Æ, NEI! ÉG MAN EKKI AF HVERJU ÉG VAR SETTUR Á BIÐ... AUMINGJA JÓN ER AÐ VERÐA GAMALL Iðnaðarmenn sem starfa við byggingu Leirvogshverfis í Mosfellsbæ eru hér að taka sér kærkomna hvíld frá vinnu og hvíla lúin bein. Morgunblaðið/Eggert Stund milli stríða Opnar kirkjur í Kjalarnessprófasts- dæmi sumarið 2009 Á HÉRAÐSFUNDI Kjalarnessprófasts- dæmis 11. mars sl. kynnti Arthúr Farest- veit hugmynd sína að sameiginlegu verkefni allra safnaða þjóðkirkj- unnar í prófastsdæm- inu er hann kallaði „Opnar kirkjur sum- arið 2009.“ Hugmyndin snýst um að prestar og sóknarnefndir skipu- leggi leiðsögn um kirkjur í prófastsdæm- inu í sumar þar sem leiðsögumaður er til staðar sem getur kynnt kirkju, kirkjubúnað og kirkjustað fyrir gestum og gangandi frá 15. júní til 15. ágúst. Búist er við miklu ferða- sumri innanlands og ætti þessi þjón- usta að verða mörgum ferðalöngum kærkomin. Markmiðið er að gefa sem flestum tækifæri til þess að skoða og fræðast um þessar perlur Íslands og þann fjársjóð sem kirkj- urnar í Kjalarnessprófastsdæmi eru. Héraðsfundur samþykkti að hrinda þessu verkefni í framkvæmd. Nú hafa leiðsögumenn verið ráðnir og verkefnið gangsett. Útbúinn hef- ur verið kynningarbæklingur um verkefnið handa ferðamönnum með stuttum upplýsingum um þær kirkjur sem verða opnar, m.a. upp- lýsingum um opnunartíma. Bækl- ingurinn er bæði á ensku og ís- lensku. Þar má einnig finna kort af öllum kirkjum í Kjalarnessprófasts- dæmi. Bæklingurinn liggur frammi í öllum kirkjum í prófastsdæminu og á helstu ferðaþjónustustöðum. Í inngangsorðum bæklingsins rit- ar dr. Gunnar Kristjánsson prófast- ur meðal annars: Kjal- arnessprófastsdæmi er víðlent og fjölmennt enda eitt af stærstu prófastsdæmum lands- ins. Þar gefur að líta flestar gerðir íslenskra kirkna og það segir sína sögu að flestar þeirra eru friðaðar. Og hvort sem það eru timburkirkjur frá nítjándu öld, stein- hlaðnar kirkjur frá átjándu og nítjándu öld – eða steinsteyptar kirkjur frá tuttugustu öld, þá hafa þær allar sögu að segja. Margar þeirra eru vel búnar gripum og bún- aði frá ýmsum tímum, eftir innlenda og erlenda handverksmenn og lista- menn. Það er því áhugavert að nema staðar og kynnast trúarmenningu þjóðarinnar í sögu og samtíð með því að heimsækja þessar kirkjur. Kjalarnessprófastsdæmi býður ferðamönnum upp á leiðsögn á ís- lensku og erlendum tungumálum þar sem ferðamaðurinn fær kynn- ingu á kirkjunum og búnaði þeirra en einnig á umhverfi þeirra og sögu. Það er von allra sem að þessu verkefni standa að sem flestir nýti sér þetta tækifæri í sumar og njóti vel. Þórhallur Heimisson. Húslyklar í óskilum Lítið veski með húslyklum í fannst við Flatirnar í Garðabæ fimmtudag- inn 11. júní. Upplýsingar í síma 899- 4520.      Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Óvissuferð 18. júní, brottför kl. 12.45 frá Aflagranda. Bólstaðarhlíð 43 | Skálholtshringurinn farinn þriðjudaginn 23. júní kl. 13 frá Ból- staðarhlíð. Kaffiveitingar í hótel Hvíta. Skráning og greiðsla fyrir föstudaginn 19. júní. Upp.í s. 535-2760. Allir vel- komnir. Félagsheimilið Gjábakki | Krummakaffi kl. 9 og Hana-nú ganga kl. 10. Félagsstarf eldri borgara í Mosfellsbæ | Kvennahlaup/ganga frá Hlaðhömrum verður þriðjudaginn 16. júní kl. 14. Bolir eru afhentir á staðnum og eru komnir á skrifstofu félagsstarfsins á Hlaðhömrum sem er opin kl. 13-16. Félagsstarf Gerðubergi | Alla virka daga er fjölbreytt dagskrá kl. 9-16.30. Mánudaginn 15. júní er Kvennahlaup ÍSÍ, upphitun hefst kl. 12.30. Þorvaldur Jóns- son með harmonikkuna o.fl. Marta Guð- jónsdóttir, varaborgarfulltrúi, ræsir hlaupið kl. 13. Þriðjudaginn 16. júní er ferðalag í Stykkishólm, skráning á staðn- um og í s. 575-7720. Hraunbær 105 | Farið verður í óvissu- ferð fimmtudaginn 18. júní. Lagt af stað frá Hraunbæ kl 13. Skráning á skrifstofu eða í síma 411-2730 í síðasta lagi 16. júní. Hraunsel | Mánudaginn 15. júní er hálfs- dags ferð til Árborgar, farið í Skálholt og komið við á Eyrarbakka. Dansað verður í Hraunseli 17. júní. Hæðargarður 31 | Listasmiðja, morg- unkaffi, gönuhlaup, gáfumannakaffi, há- degisverður, síðdegiskaffi, myndlist- arsýning Erlu og Stefáns, skráning hafin í hláturjóga sumarsins. Félagsvist alla mánudaga kl. 13.30. Hópar sem vilja starfa á eigin grundvelli velkomnir. Uppl. í Ráðagerði 411-2790. Norðurbrún 1 | Kaffihlaðborð 17. júní kl. 3, allir velkomnir. Spjall, blöðin, kaffi og meðlæti á kreppuverði. Heitur matur í hádeginu. Félagsvist á miðvikudögum kl. 14, nema á 17. júní. Ókeypis handmennt í júní og hand- og myndmennt í ágúst. Sími 411-2760. Þórðarsveigur 3 | Salurinn opinn kl. 9.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.