Morgunblaðið - 28.06.2009, Page 6

Morgunblaðið - 28.06.2009, Page 6
6 FréttirVIKUSPEGILL MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 2009 Jeffrey D. Sachs og ein bóka hans.  JEFFREY D. Sachs, einn þekkt- asti hagfræðingur Bandaríkjanna, heldur því fram að mesta áskorun mannkyns á næstu áratugum sé að tryggja þeim 9 milljörðum sem muni byggja jörðina um miðja þessa öld viðunandi lífsskilyrði. Aðspurð hvort hún taki undir þetta kveðst Vandana Shiva sam- mála þessu stöðumati. Hún sé hins vegar ósammála þeirri kenningu Sachs, sem lögð sé fram í bók hans The End of Po- verty, að leiðin út úr fátæktargildr- unni sé fólgin í sköpun meiri verð- mæta, jafnvel þótt það feli í sér eyðileggingu náttúruverðmæta. „Hann dregur einnig þá röngu ályktun að leggja þurfi niður hefð- bundinn landbúnað til að tryggja vöxt og slá á fátækt,“ segir Shiva. Hún heldur áfram og segir að í huga Sachs sé ekki hægt að vinna að þróunarmarkmiðum í gegnum landbúnað eða þróun fæðufram- leiðslukerfa. Sú ályktun sé röng. Þá sýni hrunið fram á að sú ályktun hagfræðinga að framþróun hvíli nær eingöngu á auðsköpun kauphalla, ekki umgengni við nátt- úruauðæfi, sé á villigötum. Þess ber að geta að í næstu bók sinni, Common Wealth, leggur Sachs megináherslu á ábyrga stjórn auðlinda, nokkuð sem Shiva tekur undir að beri að hafa í huga í samhengi þessarar gagnrýni. Mannfjöldasprengjan mesta áskorunin Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is Heimurinn stendur frammifyrir þríþættum vanda.Loftslagsbreytingarógna vistkerfunum. Jarðefnaeldsneyti er að ganga til þurrðar – og þar með sú ódýra olía sem knúið hefur neyslubyltinguna. Og samanlagt verður þetta til að magna þriðja vandamálið, mikinn næringarskort í fátækum ríkjum. Á þennan veg hefur indverska baráttukonan Vandana Shiva bók sína Soil Not Oil, sem er öðrum þræði rökstuðningur fyrir breyttum landbúnaðarháttum þar sem sjálf- bærni og hagsmunir fátækustu þegnanna eru settir í öndvegi. Það leynir sér ekki að Shiva, sem er heimsþekktur baráttumaður fyrir umhverfisvernd í þróunarríkjunum, er ástríðufull í baráttu sinni. Sú ástríða skín í gegn í bók henn- ar sem er hörð en jafnframt nokkuð einhliða ádeila á framgöngu stórfyrirtækja í þriðja heiminum og viðleitni olíurisa til að seinka aðgerð- um í loftslagsmálum. Ekki er víst að allir Indverjar, svo dæmi sé tekið, muni fallast á að al- þjóðavæðingin hafi einvörðungu orð- ið til ills í þessu fjölmenna landi. Hugað verði að gæðum landsins Sú ályktun að í orku- og loftslags- vandanum felist tækifæri til nýsköp- unar og umbóta á lífsskilyrðum fá- tækra er síður umdeild, ekki síst ákall hennar um að sjálfbærni skuli tryggð með því að huga að gæðum jarðvegs. Gefum henni orðið: „Níu prósenta hagvöxtur á Ind- landi byggist á því að þvinga smá- bændur til sjálfsvígs, að slíta rætur þjóðflokka við land þeirra til að ryðja fyrir námum, verksmiðjum og sérstökum efnahagssvæðum og því að menga árnar,“ (Soil Not Oil, 134). Shiva gagnrýnir einnig ásælni stórfyrirtækja í einkaleyfi á mat- jurtum. Slíkt sé uppi á teningnum á Indlandi, þar sem fyrirtækin reyni að slá eign sinni á sameiginleg gæði. Því liggur beinast við að spyrja hana út í baráttuna gegn erfðabreyttum matvælum og hvort hún telji að and- stæðingar þeirra muni hafa sigur. „Leyfðu mér að orða svarið við spurningunni á þennan veg: Ég held að við höfum unnið stríðið um fræin, ef svo má að orði komast, af því að fremstu vísindamennirnir í sam- eindalíffræði halda því nú fram að þessi tækni hafi mistekist. Ef það eina sem hægt er að ná fram eftir tveggja áratuga rannsóknir eru tvær gerðir uppskeru [...] er ljóst að ekki hefur tekist að afreka mikið. Þessi uppskera hefur sett bændur í vanda. Á Indlandi hafa 200.000 bændur framið sjálfsvíg, flestir á svæðum þar sem farið hefur fram ræktun á erfðabreyttri baðmull. Við höfum því haft betur í hinum vísindalega ágreiningi, jafnframt því að hafa unnið afgerandi siðferðis- legan sigur, með því að sýna fram á að það er rangt að allt fræ sé í hönd- um fárra stórfyrirtækja.“ – Geturðu vikið nánar að þessu? „Árið 1987 sat ég ráðstefnu fyrir- tækja sem í dag stjórna markaðnum með líftækni, erfðaverkfræði á sviði matvælaframleiðslu og notkunar efnavara í landbúnaði. Þetta eru fyrirtæki sem eiga einkaleyfi fyrir fræ, fyrirtæki á borð við Monsanto. Á ráðstefnunni var sagt að fyrir- tækin sem hefðu yfir að ráða mestu af erfðabreyttu lífrænu efni og flest- um einkaleyfum á þessu sviði, myndu hafa betur. Þau hafa verið í kapphlaupi allar götur síðan [...] Núna vilja sex stórfyrirtæki fá einkaleyfi á genum sem gagnast við ræktun sem stendur af sér loftslags- breytingar. Þau geta hins vegar ekki búið til slík fræ, þar sem þau hafa fjölbreytta eðliseiginleika, en það besta sem þau hafa afrekað er að kalla fram einstaka eðliseiginleika.“ Fyrirtækin í hættulegri stöðu Shiva heldur áfram og fer afar hörðum orðum um þessa viðleitni sem hún segir geta sett stórfyrir- tækin í hættulega stöðu, ef upp kæmu hörmungar. Hún telur að samtökum sínum hafi tekist að sýna fram á að tilraunir fyrirtækjanna séu siðferðislega rangar. Sjálf hafi hún unnið þrjú dómsmál sem lúta að einkaleyfum með fræ, en eitt helsta baráttumál hennar er einmitt að tryggja að jurtir sem öldum saman hafa verið notuð til matar og lækn- inga á Indlandi verði í almannaeigu. Þróunarjafnan endurskoðuð Shiva hefur einnig látið til sín taka í umræðum um vatnsskort, auk þess að vera höfundur bókarinnar Water Wars: Privatization, Pollution and Profit, sem kom út fyrir sjö árum. „Á málþingi sem tímaritið The Economist stóð fyrir á netinu nýver- ið var ég kosin sigurvegari í rökræð- um um kosti þess og galla að einka- væða vatnsauðlindir,“ segir Shiva. „Sex af hverjum tíu sem greiddu atkvæði eftir rökræðurnar töldu að ég hefði haft betur. Hrunið er að leiða til viðhorfsbreytingar á Wall Street. Vatni er misdreift um jörð- ina. Skorturinn sem við stöndum frammi fyrir er hins vegar mann- gerður og tengist því að vatn hefur ekki verið sett í þróunarjöfnuna.“ – Hvað áttu við? „Græna byltingin í landbúnaði, sem svo hefur verið nefnd, felur í sér tíföldun á því vatnsmagni sem þarf til matvælaframleiðslu. Ef sú vatnssóun sem tæknivæddur land- búnaður hefur haft í för með sér yrði tekin með í reikninginn yrði litið svo á að hann fæli í sér sóun á náttúru- auðæfum. Ein afleiðing „grænu bylt- ingarinnar“ er þannig sú að hún hef- ur átt þátt í að mjög hefur gengið á grunnvatnsstöðuna. Á sumum svæð- um þarf að fara niður á 1.000 metra dýpi til að sækja vatn [...] Einkavæð- ing á vatni er engin lausn á vatns- vandanum. Það þarf að tryggja að vatn sé í almannaeigu.“ Shiva telur að lokum að taka þurfi hið olíufreka fæðudreifingarkerfi síðustu áratuga til endurmats. „Um þessar mundir má rekja fjórðung losunar gróðurhúsaloftteg- unda til landbúnaðar. Hver sá sem telur að þetta sé nútímaleg tækni er tveimur áratugum á eftir tímanum. Hin raunverulega græna bylting er handan við hornið.“ Lífríkið undirstaða auðs  Baráttukona fyrir sjálfbærni og félagslegu réttlæti í þróunarlöndunum telur grænu bylt- inguna hafa leitt til gífurlegrar vatnssóunar  Gagnrýnir tilraunir til að einkavæða fræ Reuters Strit Indverskir landbúnaðarverkamenn sá í hrísgrjónaakur í síðustu viku. » Milljarður manna býr við skort á hreinu vatni » Draga má úr sóun vatns í landbúnaði » Vatnsauðlind Íslands er sú mesta í heimi „Frjósamt land er takmarkað. Sér- hver hagfræðingur skilur að land er vara sem getur aðeins hækkað í verði. Ef til vill er tæpur þriðjungur af yfirborði jarðar ræktanlegur. Hlutfallið er þó umdeilt. Það yrði til dæmis aldrei samþykkt að ryðja Amazon-skóginn fyrir ræktun,“ segir Luca Montanarella, yfirmað- ur jarðvegsupplýsinga hjá rannsóknamiðstöð framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins, um baráttuna um frjósamt ræktarland. – Því er spáð að um miðja öldina verði íbúafjöldi jarðar kominn í 9 milljarða. Er raunhæft að allt þetta fólk muni geta tileinkað sér neyslumynstur Vesturlandabúa? „Það fer eftir því hvað það borð- ar. Ef mannhafið borðar einfalda fæðu, svo sem pasta, hrísgrjón, salat og tómata þá er án nokkurs vafa til nóg land. Þróunin er hins vegar sú að með auknum efnum neytir fólk meira próteins, svo sem í kjöti og mjólkurvörum, sem krefst margfalt meira landrýmis, vatns og næringarefna. Fullyrða má að ef þeim fjölg- ar mikið sem taka upp slíka neysluhætti verði ekki til nóg land.“ – Má að sama skapi ætla að ört vaxandi millistétt Asíu geti tileinkað sér neyslumynstur okkar? „Já, en það yrði á kostnað auk- inna þjáninga þeirra bágstödd- ustu. Ríkir myndu þá fá nóg að borða, hinir ekki. Ég er hins vegar ekki svartsýnn. Sú stund mun renna upp að alþjóðasamfélagið gengur til samninga um það hvern- ig unnt er að tryggja öllum jarð- arbúum nægan aðgang að mat. Fólk verður að skilja samhengið í fæðuframboði jarðar.“ – Hvað er til ráða? „Ég tel að ef verslunin væri frjálsari og markaðirnir opnari, einkum með landbúnaðarvörur, þá yrði auðveldara að fella saman framboð og eftirspurn með heil- brigðari hætti. Ýmsar þjóðir og stórfyrirtæki eru nú að flytja hluta af matvælaframleiðslu sinni til fá- tækari landa, meðal annars með því að kaupa þar upp ræktunarlönd í stórum stíl. Slíkt væri í raun óþarft ef versl- un með matvæli milli landa væri frjálsari. Það eru 1,6 milljarðar bænda í heiminum en aðeins 50 milljónum þeirra tekst að selja vörur sínar, langflestir búa við sjálfsþurftarbúskap.“ – Mun neyslumynstrið í Evrópu breytast að frumkvæði ESB? „Fólk breytir lífsháttum sínum þegar það skilur að það getur lifað lengra og betra lífi með heilbrigð- ari lífsháttum. Ég trúi ekki að nálg- un vandans ofan frá geri gagn.“ Montanarella víkur því næst að nauðsyn traustra upplýsinga um jarðveg og landgæði sem hann vildi sjá í sama farvegi og hjá milli- ríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar. Ekki til hamborgarar fyrir alla Luca Montanarella  VANDANA Shiva fæddist í ríkinu Uttarak- hand á Norður- Indlandi í nóv- ember 1952. Hún er eðlis- fræðingur að mennt – dokt- orsritgerð henn- ar var á sviði skammtafræði – og afkastamikill höfundur vísindagreina. Á níunda áratugnum setti hún af stað samtökin Navdanya til að berj- ast fyrir verndun líffræðilegrar fjölbreytni og lítur svo á að hún deili Lennon-Ono-friðar- verðlaununum, sem hún hlaut í fyrra, með þeim. Hún hefur skrifað fjölda bók sem komið hafa út hjá South End Press. Þarf að stórauka fæðuframleiðsluna Vandana Shiva Einstakt tækifæri fyrir 14-15 ára unglinga CISV hefur verið starfandi á Íslandi í tæp 30 ár og sent yfir 1.000 þátttakendur út um allan heim. Við erum með laus pláss fyrir tvo stráka í unglingaskipti til Klagenfurt í Austurríki. Unglingaskiptin hefjast 9. júlí standa yfir í fjórar vikur, tvær vikur í hvoru landi og dvelja krakkarnir inn á heimilum jafnaldra sinna. Þann 9. júlí kemur 8 manna hópur frá Austurríki og þann 23. júlí fara svo báðir hóparnir saman til Austurríkis og dvelja þar í tvær vikur við leik og störf. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu félagsins www.cisv.org<http://www.cisv.org>, www.cisv.is<http://www.cisv.is>, á netfanginu cisv@cisv.is eða í síma 863 6966 (Edda)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.