Morgunblaðið - 28.06.2009, Síða 33

Morgunblaðið - 28.06.2009, Síða 33
að okkar yndislega amma lifði í tæp 84 hamingjusöm ár og flest með manni, börnum og barnabörnum sem elskuðu hana af öllu hjarta. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Amma, þú hafðir svo marga kosti sem við munum ætíð sakna. Þú varst hlý og umhyggjusöm á þinn einstaka hátt enda hafðirðu alltaf haft meiri áhyggjur af okkur en sjálfri þér. Það einkenndi þig hversu hress þú alltaf varst, enda með beittan og ákveðinn húmor sem fékk okkur ósjaldan til að skella upp úr. Vinnu- semi og mikill dugnaður eru orð sem koma til hugar í sömu andrá og mað- ur hugsar til þín. Það fordæmi sem þú sýndir er hlutur sem við munum sýna okkar börnum og barnabörnum er fram líða stundir í þeirri von að þau líkist þér sem mest að þessu leyti. Menntun var þér ávallt sérstak- lega hjartfólgin líkt og þú sýndir í verki. Stuðningur þinn þegar við vor- um að mennta okkur var okkur ómet- anlegur og vonandi veistu að við vær- um ekki þar sem við erum í dag ef ekki hefði verið fyrir þig. Það veitir okkur huggun á þessum erfiðu tímum að vita til þess að andi þinn vakir ætíð yfir okkur, að vita til þess að gildi þín munu aldrei gleym- ast því þau munu lifa í gegnum af- komendur þína, að vita til þess að þú lifir af eilífu í hjörtum okkar. En eins og Samuel Butler sagði: „Til þess að deyja að fullu, verður maður ekki bara að gleyma, heldur vera gleymdur og sá er ekki gleymist er ekki dáinn.“ Amma, við söknum þín meira en nokkur orð fá lýst. Baldvin, Rúnar, Jón Atli. María Ásgrímsdóttir er horfin á braut en hún skilur eftir sig minningu sem lifir í hugum þeirra sem þekktu til hennar. María – eða Mæja – var hluti af tilveru minni til margra ára en á heimili hennar og Baldvins dvaldi ég ungur; oft frá morgni til kvölds. Hversdagshetjur á borð við Maríu Ásgrímsdóttur eru vand- fundnar – en oftar en ekki er um að ræða konur sem hafa komið upp mannvænlegum börnum og sent þau út í lífið með nesti sem dugar ævina út. María er verðugur fulltrúi kyn- slóðarinnar sem lagði grunninn að ís- lenska velferðarríkinu, sem nú á í erf- iðleikum vegna þess að menn viku af vegi, sem María og samferðarmenn hennar lögðu. María var heiðarleg kona sem ekki mátti vamm sitt vita. Hún setti hags- muni sína skör neðar en annarra – sem er eðlisþáttur sem er víkjandi nú um stundir. María var alin upp í vinnusemi og nýtni. Hún vissi að heimsins gæði koma ekki af sjálfu sér og hún lagði svo sannarlega sitt af mörkum svo engan skorti neitt á heimilinu. Árum saman starfaði hún í frystihúsi ÚA og vílaði ekki fyrir sér að ganga í erfiðustu störfin. Hún kom snemma svo aðrir hefðu nóg að gera þegar þeir mættu nokkru síðar. Hún gekk einbeitt til verks og dugnaður hennar var rómaður. Þegar ég horfi til baka sé ég ótrú- lega sterka konu sem bognaði aldrei, bað aldrei um neitt sér til handa en gaf óspart til annarra. Hennar lífsbók er skráð með stóru letri, eins og Dav- íð Stefánsson skáld sagði eitt sinn um tengdamóður hennar og ömmu mína. Mér þótti vænt um Maríu og ég má fullyrða að við náðum vel saman. Hún var vinur vina sinna. Nú er ævidegi lokið. María er gengin á vit feðra sinna og hefur án efa glaðst er hún hitti gamla sveitunga og góða kunn- ingja sem tóku á móti henni í nýjum heimkynnum. Blessuð sé minning Maríu Ás- grímsdóttur. Við í Ekrusmára 9 vottum eigin- manni, börnum, barnabörnum og öðrum ættingjum okkar dýpstu sam- úð. Áskell Þórisson. Minningar 33 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 2009 ✝ Ólafur J. Gunn-arsson fæddist á Akureyri 26. nóv- ember 1933. Hann lést á Landspít- alanum í Fossvogi 18. júní 2009. Foreldrar hans voru Pétur Gunnar Sölvason, f. 2.11. 1906 og Bjarg- ey Ólafsdóttir, f. 27.9. 1907. Ólafur kvæntist Guðlaugu Erlu Jóns- dóttur, f. 7.12. 1936. Þau slitu samvistir. Ólafur og Guðlaug eignuðust þrjú börn, þau eru: 1) Arnheiður Anna, f. 1960, gift Jóni Páli Baldvinssyni, þau eiga tvo börn; Guðlaugu Erlu, f. 1989 og Ólaf Baldvin, f. 1993. 2) Hafþór, f. 1964, kvæntur Ásthildi Lóu Þórsdóttur, þau eiga tvo syni, Þór Símon, f. 1990 og Bjarka Pál, f. 1996. 3) Bjargey, f. 1972. Ólafur ólst upp á Akureyri þar sem hann lauk barna- skólanámi. Sextán ára fór hann á sjóinn og starfaði til sjós næstu árin. Hann fór í Stýrimannaskólann og útskrifaðist árið 1963. Hann starfaði svo til sjós næstu ár- in þar til heilsan gaf sig en fór svo að sinna leiguakstri sem varð hans aðalstarf upp frá því. Ólafur hóf golfiðkan árið 1968 og var það hans aðaláhugamál upp frá því. Hann tók þátt í mörgum mótum og vann til fjölda verð- launa. Útför Ólafs fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Ég á aldrei eftir að gleyma afa Óla og það eru margar góðar og gildar ástæður fyrir því. En eitt af því sem við áttum saman var enski boltinn og stuðningur okkar við Arsenal-liðið. Síðan ég fór að fylgjast með fótbolta, fyrir u.þ.b. fimm árum, höfum ég, bróðir minn og pabbi fengið að koma heim til hans allavega tvisvar í viku til að horfa á enska boltann. Alltaf vorum við velkomnir og okkur til mikillar gleði var hann alltaf með skáp fullan af nammi og gosi. Honum fannst líka gaman að æsa okkur upp og hann náði oftast að kveikja vel í mér og litla bróður mínum og gat lát- ið okkur rífast og pexa yfir leiknum eins og við ættum lífið að leysa, og öskra af reiði og gleði. Þetta var samt allt í góðu, við fórum alltaf allir glaðir heim, nema kannski þegar Arsenal tapaði sem gerðist kannski aðeins of oft á síðasta tímabilinu okkar saman. Ég á eftir að sakna þessara stunda einsog ég veit ekki hvað. Ég veit samt að hann mun gleðjast með okkur þeg- ar við loks náum takmarkinu okkar. Það er margt annað sem ég gæti sagt ykkur frá, afi var mjög góður maður og hann vildi alltaf allt fyrir okkur gera. Hann kom oft í viku til okkar, ýmist til að spjalla eða borða. Hann var einnig mikill golfari og það má nánast segja að hann hafi golfað fram að síðasta dag. En fótboltinn er það sem ég á helst eftir að tengja við afa minn hann Óla það sem eftir er af mínu lífi, og þegar við hittumst á himnum get ég aftur farið að tala við hann um fótbolta og það verður sko gaman. Takk fyrir allt, afi Óli, það var svo sannarlega frábært að eiga þetta mörg ár og þetta marga fótboltaleiki með þér. Þinn vinur, Þór Símon. Elskulegur vinur minn, Ólafur Gunnarsson, er látinn. Hann lézt á 76. aldursári, eftir erf- ið veikindi. Ég fluttist ásamt dóttur minni á Hraunbraut 10 í Kópavogi fyrir rúm- um 20 árum, þar sem Óli bjó ásamt fjölskyldu sinni. Mér og konu hans varð fljótt vel til vina og seinna varð Óli einnig góður vinur minn og dóttur minnar. Þau hjón voru okkur afar trygg og mættu ætíð til okkar við ýmis tíma- mót í okkar lífi. Það voru ófá skipti, sem við borð- uðum með þeim hjónum. Þá urðu gjarnan heitar umræður um það sem var efst á baugi þá stundina. Óli var glæsilegur maður, prúð- menni, hjartahlýr og gat verið skemmtilega stríðinn, en það var allt á góðum nótum og stutt í húmorinn. Óli var mikill áhugamaður um golf. Mér er minnisstætt að fyrir tveimur árum fékk hann hjartaaðgerð frestað til hausts til þess að geta notið golf- sins yfir sumarið. Vinátta okkar jókst með árunum og betri nágranna hef ég ekki átt. Ég þakka þér, Óli minn, fyrir að vera vinur okkar mæðgna og gleðst yfir því að hafa þekkt þig. Andleg auðlegð manns vex við að kynnast fólki eins og þér. Við Ásrún Hildur sendum fjöl- skyldunni kærar kveðjur. Kolbrún Ósk Óskarsdóttir. Ólafur J. Gunnarsson ✝ Sigríður Kr.Johnson fæddist á Melstað á Seltjarn- arnesi 24. október 1908. Hún lést á heim- ili sínu, Flókagötu 61, Reykjavík, fimmtu- daginn 11. júní sl. Foreldrar hennar voru Sigríður Jó- hannsdóttir frá Lambastöðum á Sel- tjarnarnesi og Krist- inn Jónsson, lyfja- fræðingur, frá Mýrarholti við Bakk- astíg. Systkini Sigríðar samfeðra: Soffía f. 23. apríl 1919, d. 15. janúar 1990 og Vilhelm f. 4. júlí 1920. Sigríður gekk í Verslunarskóla Íslands og útskrifaðist þaðan með verslunarpróf vorið 1928. Eftir verslunarprófið hóf Sigríður störf hjá O. Johnson og Kaaber og starfaði þar í 10 ár eða þar til hún giftist. Eiginmaður Sigríð- ar var Karl Johnson, bankamaður í Bún- aðarbanka Íslands, f. 12. september 1905 d. 22. júní 1939. Börn þeirra eru: Kristinn f. 1935 og Ágústa f. 1939. Eftir lát manns síns starfaði Sigríður á skrifstofu Hótel Ís- lands þar til það brann í febrúar 1944. Ævistarf hennar var síðan við skrifstofu- og gjaldkerastörf hjá H. Ólafsson og Bernhöft, en þar starf- aði hún í rúm 40 ár. Sigríður var jarðsungin frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík 19. júní. Það er sagt að „Fátt er svo með öllu illt, að ekki boði nokkuð gott“. Þó svo að það hafi verið ógæfa fyrir marga þegar Hótel Ísland brann árið 1944 þá verður það að játast að það boðaði mikla gæfu fyrir fyrirtækið H. Ólafsson & Bernhöft sf. Á Hótel Íslandi hafði starfað ung og efnileg kona, Sigríður Kr. Johnson, sem við þetta missti vinnu sína en hóf nú störf hjá H. Ólafsson & Bernhöft skömmu seinna og starfaði þar sleitulaust í rúma fjóra áratugi eða fram til ársins 1988 þegar hún varð 80 ára. Sigríður eða Sigga eins og við kölluðum hana hafði kynnst eigend- um fyrirtækisins er þau störfuðu saman hjá Ó Johnson & Kaaber um hríð nokkrum árum áður. Hún vann í bókhaldi fyrirtækisins og var gjald- keri þess lengst af. Þetta var á þeim tíma sem allt bókhald var handskrif- að og tæknin var ekki farin að létta mönnum verkið. Skriftin þurfti að vera læsileg og áferðarfalleg sem segja má að nálgast hafi list. Þessum kostum var Sigga gædd í ríkum mæli ásamt því að vera afar nákvæm í verki og einstaklega talnaglögg. Hún var afbragðs starfskraftur sem ávallt bar hag fyrirtækisins fyrir brjósti og sýndi það svo sannarlega í verki. Samhliða starfinu hjá fyrirtækinu mynduðust sterk vináttubönd ekki bara við hana sjálfa heldur einnig við börn hennar Ágústu og Kristin sem aldrei nokkurn skugga bar á. Nú þegar komið er að kveðjustund vil ég og fjölskylda mín þakka þau forréttindi að hafa átt samstarf með henni og fengið að njóta starfskrafta hennar um svo langt skeið. Við vilj- um þakka henni tryggðina við fyr- irtækið og hennar góðu vináttu. Börnum hennar, Ágústu og Kristni, sendum við okkar innilegustu sam- úðarkveðjur og biðjum Guð almátt- ugan um að varðveita þau og styrkja. Ólafur Haukur Ólafsson og fjölskylda. Sigríður Kr. Johnson                          ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, LILJA M. PETERSEN, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 1. júlí kl. 15.00. Birna Jónsdóttir, Jóhann R. Björgvinsson, Sigurður Jónsson, Dagný Guðmundsdóttir, Guðný Jónsdóttir, Leó G. Torfason, Hans Pétur Jónsson, Alda Björk Sigurðardóttir, Guðrún M. Jónsdóttir, Hörður Ragnarsson og fjölskyldur. ✝ Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi, GUÐMUNDUR HALLDÓR ATLASON fyrrv. flugumsjónarmaður, Boðagranda 7, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju mánudaginn 29. júní kl. 15.00. Lárus Atlason, Nanna Guðrún Zoëga, Atli Helgi Atlason, Ingibjörg Gréta Gísladóttir, Dóra Elín Atladóttir Johnsen, Birgir Bárðarson og frændsystkini. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, RAGNA KLARA BJÖRNSDÓTTIR, Blikahólum 2, Reykjavík, sem andaðist föstudaginn 19. júní, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 30. júní kl. 15.00. Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, Kristján Jónsson, Guðbjörn Karl Ólafsson, Guðný Ólöf Þorvaldsdóttir, Þorbjörg Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Steinsmiðjan MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík • sími 587 1960 • www.mosaik.is MIKIÐ ÚRVAL AF LEGSTEINUM OG FYLGIHLUTUM Sendum myndalista Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.