Morgunblaðið - 28.06.2009, Síða 44
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 2009
á allar 3D sýningar merktar með grænu850 krrSPARBÍÓ
SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
SÝND M
EÐ
ÍSLENS
KU OG
ENSKU
TALI
SÝND Í KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
FLOTTASTA
HASARMYND
SUMARSINS
Frá leikstjóranum Michael Bay ásamt
stórleikurunum Shia LaBeouf, John Torturo
og kynþokkafyllstu leikkonu heims Megan Fox „STÆRRI, FYNDNARI, FLOTTARI ...EF ÞÚ FÍLAÐIR FYRSTU MYNDINA,
ÞÁ ÁTTU EFTIR AÐ DÝRKA ÞESSA!“
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
/ ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI
TRANSFORMERS 2 kl. 1D - 4D - 7D - 10D POWERS. KL. 7 10 DIGITAL
THE HANGOVER kl. 2 - 4 - 6D - 7 - 8D - 9:10- 10:20D 12 DIGITAL
CORALINE 3D m. ísl. tali kl. 23D - 43D L 3D DIGTAL
TRANSFORMERS 2 kl. 2D - 5D - 8D - 11D - Powersýning kl. 11 10 DIGTAL STAR TREK XI kl. 10:20 10
TRANSFORMERS 2 kl. 2 - 5 - 8 - 11 - Powersýning kl. 11 LÚXUS VIP STÍGV. KÖTTURINN m. ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 L
THE HANGOVER kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 8:10 - 8:30 - 10:20 - 10:30 - 11 12 HANNAH MONTANA kl. 1:30 - 3:40 L
MANAGEMENT kl. 5:50 - 8 10 MONSTER VS. ALIENS m. ísl. tali kl. 1:30 L
ADVENTURELAND kl. 3:40 - 5:50 12
S
ama má náttúrlega segja
um íslenska músík;
stundum er bara eins og
það sé ekkert nýtt í gangi
en síðan óforvarandis er
ekki þverfótað fyrir frábærum
hljómsveitum. Þannig endurnýjun á
sér stað með Dönum nú um stundir
og skynsamlegt að kíkja aðeins á
nokkrar forvitnilegar sveitir.
Það hefur áður komið fram hér að
ein besta rokksveit Norðurlandanna
er áróska hljómsveitin Under Byen.
Sú hefur gefið út þrjár breiðskífur,
Kyst (1999), Det er mig der holder
træerne sammen (2002) og Samme
stof som stof (2006). Tónlistin en til-
raunakennd og krefjandi með fram-
úrskarandi söngkonu, Henriette
Sennenvaldt. Sveitin hefur gengið í
gegnum talsverðar mannabreyt-
ingar undanfarið, en er nú önnum
kafin við upptökur á nýrri plötu sem
kemur út á næsta ári.
Choir of Young Believers var ein
af þeim sveitum sem mesta athygli
vöktu á Spot-hátíðinni í síðasta mán-
uði. Jannis Noya Makrigiannis leiðir
sveitina, semur lög, syngur og leikur
á fjölda hljóðfæra. Tónlistin er ný-
bylgjukennd, léttpoppuð með snún-
um útsetningum. Fyrir stuttu kom
út skífan This Is For The White In
Your Eyes.
Það má eiginlega kalla The Willi-
am Blakes Flaming Lips Dana, því
hljómsveitunum svipar óneitanlega
talsvert saman. Þeir félagar eru ekki
að fela það heldur því fyrsta plata
hljómsveitarinnar heitir Wayne
Coyne. Dear Unknown Friend kom
svo út fyrir skemmstu, mikið fjör og
skemmtan. Jannis Noya Makrigi-
annis syngur eitt lag á skífunni, sem
er líka besta lagið.
Fyrsta breiðskífa Oh No Ono var
ekki ýkja spennandi og því nennti ég
varla að hlusta á plötu númer tvö,
Eggs, sem kom út í vor. Fáar plötur
hafa þó komið eins skemmtilega á
óvart á árinu, því hún er gríðarlega
fjörug og skemmtileg skífa, eins-
konar nútíma poppsýra sem minnir
ekki svo lítið á Of Montreal. Söng-
urinn er mjög sérkennilegur svo
ekki sé meira sagt.
Mig grunar að Kellermensch hafi
byrjað sem harðkjarna- eða dauða-
rokkband, en síðan snúið sér að létt-
ari músík sem er þó býsna þung.
Óhætt er að mæla með útgáfu sveit-
arinnar á Neil Young-lummunni
Don’t Let It Bring You Down, en þó
er skemmtilegra að heyra hana
glíma við eigið efni. Geggjuð tón-
leikasveit.
Undanfarin ár hafa ýmsar hljóm-
sveitir tekið upp nýrómantíska
háttu, spila raftónlistarlegt rokk
með eilítið kuldalegum hljóm. When
Saints Go Machine heitir dönsk
sveit sem stendur framarlega í slíku,
aðallega fyrir söngvarann sem er
með einkar geðþekka rödd, minnir
einna helst á ástsjúkan David Bowie.
Danska bylgjan
Þó menn séu allir af vilja gerðir, iðulega spiluð dönsk
músík á Rás 2 og Airwaves-bændur hafi verið dug-
legir að flytja inn danskar sveitir þá virðist lítill
áhugi fyrir slíku hér. Eflaust ræður þar einhverju að
dönsk músík hefur verið heldur klén undanfarin ár,
lítil endurnýjun í gangi og lítið að gerast almennt.
Bodebrixen Galsapopp kryddað djassi og billegum tölvuhljóðum.
Kellermensch Geggjuð tónleikasveit.
TÓNLIST Á SUNNUDEGI
Árni Matthíasson