Morgunblaðið - 28.08.2009, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 28.08.2009, Blaðsíða 8
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu svanhvit@mbl.is H inn 21. september hefstnámskeið hjá Nordica Spasem er fyrsta sinnar teg-undar á Íslandi og ber nafnið Tpi golffitness. „Þetta er í fyrsta sinn sem golfíþróttin tengist svona inn í líkamsræktarheiminn hér á landi. Það hefur alltaf verið ágætt fyrir kylfinga að stunda líkamsrækt en það hefur verið ómarkvisst og ekki hnitmiðað,“ seg- ir Gunnar Már Sigfússon, þjálfari hjá Nordica Spa. „Námskeiðið gerir kylfingum kleift að bæta styrk, lið- leika og hreyfanleika líkamans í gegnum sérhannað námskeið. Allir fara í gegnum líkamlega greiningu og síðan er útbúin æfingaáætlun sem er sérsniðin að þörfum hvers og eins. Námskeiðið er því fyrir kylfinga sem vilja bæta líkamlegt úthald og þol, bæta hreyfanleika, liðleika og styrk og auka kraftinn í sveiflunni.“ Ný æfingaraðferð Titleist Performance Institute, eða Tpi, er nokkurs konar skóli þar sem má finna stærsta samansafn af golftengdum heilsu- og æfingar- upplýsingum í heiminum í dag en Tpi golffitness er byggt á nám- skeiði frá skólanum. Námskeiðið er því samsett af upplýsingum um golfíþróttina frá helstu sérfræð- ingum golfheimsins, hvort sem það eru golfkennarar, styrktarþjálfarar, sjúkraþjálfarar, læknar eða at- vinnuspilarar að sögn Gunnars Más. „Tpi er með námskeið allan ársins hring, ég er kominn með tvær gráður í þessum skóla og fæ þriðju gráðuna í september og er þá fullnuma í þessu námi. Það eru mörg hundruð manns í Skandinavíu með fyrstu eða aðra gráðuna en bara einn annar sem er með allar þrjár gráðurnar. Á námskeiðinu er því kennd algjörlega ný æfingar- aðferð sem er árangur samstarfs gríðarlega margra.“ Betra líkamlegt form kylfinga Gunnar Már talar um að síðustu ár sé það meira áberandi að kylf- ingar hugi að líkamlegu hliðinni við golf. „Kylfingar eru farnir að átta sig á að það er sama hversu marga bolta þeir slá eða fara í marga golf- kennslutíma, ef þeir geta ekki snúið öxlunum eða mjaðmirnar eru stífar þá verður sveiflan aldrei betri en líkaminn er. Það má oft sjá van- kanta hjá fólki, ef það er að slá til hægri eða vinstri eða nær ekki nógu mikilli lengd þá er það oft út af einhverjum líkamlegum kvillum. Námskeiðið er því fyrst og fremst hugsað út frá þessum líkamlegu kvillum. Ef fólk hefur brotnað, lent í hnémeiðslum eða annað þá reynir líkaminn að aðlaga sig breyttum að- stæðum og þá er algengt að fólk sé með skertan styrk eða hreyfanleika sem getur komið beint niður á golf- inu. Í raun er þetta byggt upp með það í huga að finna hvort það sé skertur styrkur eða hreyfanleiki, hvar það er nákvæmlega og taka síðan á því með æfingum og teygj- um. Það hafa allir helstu kylfingar heimsins nýtt sér þetta fyrir löngu og líkamlegt form kylfinga hefur batnað stórkostlega með árunum og þeirri vitneskju að líkamlegt form skiptir gríðarlegu máli í sveiflunni.“ Mælanlegur árangur Á námskeiðinu er Nordica Spa í samstarfi við golfskólann Progolf sem rekur einnig Bása sem er æf- ingasvæði fyrir kylfinga. „Æfing- arnar sjálfar fara fram á Nordica Spa en þátttakendur fara í sveiflu- greiningu hjá Progolf í fyrstu vik- unni og aftur í lokin svo hægt sé að sjá nákvæmlega hvað hefur gerst hjá kylfingnum, hvernig hann stendur og hvort sveiflan hafi tekið einhverjum framförum. Námskeiðið er byggt upp á mælanlegum ár- angri þannig að fólk sjái svart á hvítu með myndbandi að það slær betur, kemst aftar og nær meiri krafti,“ segir Gunnar Már og bætir við að það séu tólf sveiflueinkenni sem langflestir kylfingar eru að kljást við að laga hjá sér. „Tpi hef- ur gert rannsóknir á þessum ein- kennum og komist að því að það eru frá 25-70 prósent allra kylfinga sem berjast við þessi sömu vanda- mál einhvern tímann á golf- tímabilinu. Þetta eru algeng sveiflu- einkenni og námskeiðið tekur á öllum þessum 12 sveiflueinkennum með líkamlegum æfingum.“ Betri sveifla með réttri líkamsrækt Morgunblaðið/Kristinn Tpi golffitness Ólafur Már Sigurðsson, skólastjóri Progolf, Gunnar Már Sigfússon, þjálfari hjá Nordica Spa, og Brynjar Eldon Geirsson, PGA golfkennari. Líkamlegir kvillar geta háð kylfingum þannig að það hafi áhrif á leik þeirra í golfi. Tpi golffitness er námskeið sem hefur ekki verið haldið á Íslandi áður en miðar að því að auka hreyfanleika, liðleika og styrk kylfingsins sem skil- ar sér svo í betri sveiflu. »Námskeiðið er byggtupp á mælanlegum árangri þannig að fólk sjái svart á hvítu með myndbandi að það slær betur og kemst aftar. 8 | MORGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.