Morgunblaðið - 28.08.2009, Side 12
12 | MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@mbl.is
Þ etta byrjaði allt saman þeg-ar ég fór að æfa hunda fyr-ir björgunarsveitirnar íkringum árið 2001. Ég hef
verið með kort í líkamsræktarstöð í
mörg ár án þess að vera sérlega
dugleg en maður verður að finna
þá hreyfingu sem hentar manni
best. Af því að ég er hrifin af úti-
vist hreifst ég mjög af starfinu með
björgunarsveitinni og því að vera
að flækjast um fjöll og firnindi,
annaðhvort í jeppaferðum eða
gönguferðum. Það er mikil vinna
að þjálfa hundinn og svo þarf mað-
ur að halda sér í ágætis formi sjálf-
ur, geta gengið á fjöll og haldið út
lengri leitir því hundurinn fer yfir
stórt svæði og bíður ekkert eftir
manni. Ég er engin fjallageit en
hef ferðast ansi víða og að mínu
mati eigum við fallegasta land í
heimi. Það er líka einstakt að geta
farið í gönguferðir og fyllt á vatns-
brúsann sinn í næsta læk, nokkuð
sem þekkist ekki annars staðar,“
segir Kristín sem starfar með
Björgunarsveit Hafnarfjarðar og
Leitarhundum Slysavarnafélagsins
Landsbjargar.
Öflugur gönguhópur
í vinnunni
Í sumar gekk Kristín Fimm-
vörðuháls með gönguhópnum ÚT
en hann stofnaði hún ásamt vinnu-
félaga sínum. Sífellt fleiri hafa
bæst í hópinn sem upprunalega var
hugsaður til að fólk hittist og gengi
öðru hvoru en gönguáhuginn hefur
smitað út frá sér og er nú gengið
innanbæjar á hverju miðvikudags-
kvöldi. „Við fórum í byrjendaferð
yfir Fimmvörðuháls og stýrðum 40
manna hópi yfir hálsinn. Þetta var
afar skemmtileg ferð enda auðveld
ferð sem allir eiga að geta lagt upp
í. Hún er ekki erfið sem slík en
nokkuð löng en við gengum í róleg-
heitum. Ég hef farið þessa leið
nokkrum sinnum og finnst hún allt-
af jafn skemmtileg enda landslagið
á þessum slóðum mjög marg-
breytilegt. Þegar maður fer í svona
ferðir upplifir maður samstarfs-
fólkið allt öðruvísi og fólk sem
þekkist ekki neitt endar kannski á
að verða samferða meirihlutann af
leiðinni,“ segir Kristín.
Sjósund, júdó
og jiu jitsu
Kristín lætur göngur um fjöll og
firnindi ekki duga heldur æfir hún
einnig brasilískt jiu jitsu í Jiu jitsu-
skólanum í Hafnarfirði fjórum sinn-
um í viku. Hún byrjaði þar á nám-
skeiði fyrir tveimur árum í gracie
jiu jitsu sem byggist eingöngu á
sjálfsvörn og því að geta varið sig.
Í fyrra var hún síðan hvött til að
taka þátt í Íslandsmeistaramóti
sem hún og gerði og varð Íslands-
meistari í opnum flokki kvenna. Til
að æfa sig fyrir mótið í ár æfir
Kristín einnig júdó til að æfa sig á
því að koma andstæðingnum í gólf-
ið en jiu jitsu er gólfglíma sem
byggist á því að ná andstæðingnum
í gólfið og glíma við hann þar.
Þannig notar hún því júdó í upp-
hafi keppninnar og skiptir síðan yf-
ir í brasilískt jiu jitsu. Hún segist
hvergi vera hætt að reyna fyrir sér
í mismunandi íþróttum og hreyf-
ingu og prófaði síðast sjósund fyrir
nokkrum vikum sem hún segir nú
vera orðið vikulegt þema. „Það er
svo gott að geta kúplað sig út með
hreyfingu að loknum vinnudegi og
losa sig við spennuna eftir daginn.
Að lokinni æfingu getur maður síð-
an komið heim og verið maður
sjálfur án þess að tala um vinnuna
því maður er búinn að ná sér nið-
ur,“ segir Kristín.
Göngugarpur og jiu jitsu-meistari
Morgunblaðið/Eggert
Göngugarpur Útivera og gönguferðir eru fastir liðir hjá Kristínu Sigmarsdóttur en hún æfir hunda fyrir björgunarsveitir.
Það er ekki annað hægt
að segja en Kristín Sig-
marsdóttir hreyfi sig
nóg. Bæði stundar hún
jiu jitsu og júdó auk
þess að þjálfa
björgunarsveitahunda.
» Á́ður hafði ég
verið með kort í
líkamsræktarstöð í
mörg ár án þess að
vera sérlega dugleg
en maður verður að
finna þá hreyfingu
sem hentar manni
best.
Atorkusamir Kristín heldur sér í góðu formi til að geta haldið í við hundana.
Í yfir 30 ár hafa Íslendingar notað heilsuvörur úr smiðju A. VOGEL með góðum
árangri. Einhver þekkasta heilsuvara hans er án efa Echinaforce sólhatturinn.
ECHINAFORCE ER ÁN EFA EIN ÞEKKTASTA HEILSUVARA HEIMS!
Rannsóknir sýna klárlega að Echinaforce
dregur úr kvefi og flensueinkennum.
Echinaforce fæst í töfluformi og sem mixtúra.
Brjóstsykur með sólhatti og furunálum
er bakteríudrepandi og góður gegn kvefi.
Fæst í heilsubúðum, apótekum og
matvöruverslunum