Morgunblaðið - 28.08.2009, Blaðsíða 28
28 | MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu
svanhvit@mbl.is
F ólk rekur upp stór augu þegar þaðsér að það á að borða næringarríkarmáltíðir og blanda saman öllum orku-efnum. Við fyrstu sýn trúir fólk ekki
að það léttist með því að borða meira en
það hefur gert en annað kemur á daginn,“
segir Björn Þór Sigurbjörnsson einkaþjálf-
ari sem hvetur viðskiptavini sína til að
borða margar og næringarríkar máltíðir yf-
ir daginn en þó lítið í einu. „Það hefur sýnt
sig ítrekað að þetta virkar. Það koma reglu-
lega til mín einstaklingar sem hafa prófað
allt og eru orkulausir allan daginn því nær-
ingin er röng af því að fólk veit ekki betur.“
Mikil skipulagning
Björn Þór talar um að viðhorfsbreytingin
sé mikil enda hafi verið mikið og markvisst
upplýsingaflæði undanfarin ár. „Áður kom
fólk mestmegnis inn á líkamsræktarstöðvar
á haustin og eftir áramót en það fólk er far-
ið að haldast lengur við. Að sama skapi eru
þessir gömlu kúrar þar sem nauðsynlegt er
að borða lítið og jafnvel bara um 1.200 hita-
einingar á dag úreltir. Fólk vill gera breytt
mataræði að lífsstíl og sem hluta af sinni
rútínu. Þessi óþolinmæði sem var loðandi
við breytingu á mataræði er að dvína því
við búum vissulega í upplýsingaþjóðfélagi
og fólk áttar sig á að þetta er hlutur sem
þarf að gerast hægt. Eins og ég set upp
mataráætlun fyrir fólk þá felur það í sér
mikla skipulagningu. Fólk borðar kannski
þrjár til fjórar máltíðir á dag en litla
skammta og þá jafnvel kartöflur, fisk og
grænmeti tvisvar sinnum á dag. Á milli
mála fær fólk sér ávöxt, skyrdós eða eitt-
hvað slíkt. Við reiknum út hitaeiningar og
næringargildi fyrir hvern og einn ein-
stakling og til þess að fylla upp í næringar-
þörf, þannig að það sé engin vanræksla í
gangi. Mataræðið er því engir öfgar því
þetta er eins heilsusamlegt og það getur
orðið en þetta felur í sér gríðarlega skipu-
lagningu.“
Margir fitna aftur eftir kúra
Björn segir að flestir geri sömu mistökin
þegar kemur að því að breyta um mataræði.
„Ef við tökum dæmi um konu sem er peru-
laga, hún fer í átak, byrjar að borða minna
og léttist hratt. Við það verður hún áfram
perulaga en bara minni pera sem er vænt-
anlega ekki það sem konan vill því þegar
hún byrjar að borða eðlilega aftur þá blæs
hún út á ljóshraða. Ég sé þetta gerast
ítrekað og þess vegna er megrunarkúr mjög
neikvætt hugtak í mínum huga. Það er
trúarbragðamataræði sem felur í sér að ein-
staklingur sleppir ákveðnum orkuefnum og
neytir meira af öðrum orkuefnum. Það kem-
ur bara niður á viðkomandi því hann tapar
vöðvamassa líkamans og það er vöðvamass-
inn sem brennir fitu. Þá er grunnbrennsla
líkamans búin að skaddast og þá er viðkom-
andi verr í stakk búinn til að takast á við
erfiðleika.“
Borða meira en léttast samt
Morgunblaðið/Heiddi
Björn Þór Sigurbjörnsson: „Megrunarkúrar eru trúarbragðamataræði sem felur í sér að ein-
staklingur sleppir ákveðnum orkuefnum og neytir meira af öðrum orkuefnum.
Það er algengt að fólk blæs út
eftir að hafa farið í megrunarkúr,
að sögn Björns Þórs Sigurbjörns-
sonar einkaþjálfara en lykillinn
að langvarandi árangri er að
borða næringarríkar máltíðir og
blanda saman öllum orkuefnum.
» Þessir gömlu kúrarþar sem nauðsynlegt
var að borða lítið og jafn-
vel bara um 1200 hitaein-
ingar eru úreltir.
Fyrir þá sem ætla að
byrja í líkamsrækt í
haust og vilja síður æfa
í tækjasalnum eru ým-
iss konar tímar góður
kostur. Þar getur fólk
prófað sig áfram og
fundið það sem því
hentar best.
Hefðbundið í bland
við nýtt
Tímataflan í World
Class verður fjölbreytt
í haust að vanda og í
boði verða hefðbundnir
vaxtarmótunartímar í
bland við jóga, spinn-
ing, palla og þær nýj-
ungar sem koma fram
hverju sinni.
Helstu nýjungar í stöðvum World Class í haust eru meðgöngujóga,
mömmutímar á fleiri stöðvum, sjálfsvarnarnámskeið fyrir unglingsstúlkur,
Michael Jackson-dansar, tímar þar sem kviðvöðvar, bakvöðvar og hreyfan-
leiki hryggjarins er sérstaklega tekinn fyrir, Crossfit og Hot Yoga. Þá verða
einnig í boði sérstakir tímar fyrir eldri aldurshópa og þroskahamlaða.
Svitnað í jóga
Hot Yoga eða heitt jóga hefur verið vinsælt meðal landsmanna en það er
byggt upp af ákveðnum samsetningum og hentar öllum. Æfingarnar eru
gerðar í upphituðum sal en hitinn gerir það að verkum að líkaminn hitnar
fyrr upp og verður þar af leiðandi sveigjanlegri og meðtækilegri til hreyf-
ingar og iðkendur komast dýpra inn í stöðurnar. Einnig gerir hitinn það að
verkum að iðkendur svitna meira en ella, húðin hreinsast og iðkendur upplifa
meiri vellíðan og endurnýjunaráhrif. Í Hot Yoga er megináherslan lögð á
hrygginn og allar stöður hugsaðar sem styrktaræfingar í kringum hann.
Lana Vogestad og Helga Kristín Gunnarsdóttir sjá um tímana en báðar hafa
þær stundað jóga í mörg ár.
Hiti og sviti Hot yoga er stundað í hituðu herbergi
þannig að líkaminn hitnar upp á skemmri tíma.
Ýmsir tímar í boði
Rannsóknir staðfesta árangur
- www.celsus.is
Engin málamiðlun í gæðum
Garðar Sigvaldason, einkaþjálfari í Sporthúsinu
Spirulina inniheldur mikið af blaðgrænu og glyccogen, því
meira glycogen sem er til staðar í líkamanum við æfingar
því betri árangur. Blaðgræna eykur súrefnisflutning í
blóðinu. Ef Spirulina er tekið inn 1/2 tíma fyrir
æfingar eða annað álag gefur það aukið þrek,
úthald og einbeitingu.
Gæðastaðall: ISO9001, ISO1401
Árangur fer
eftir gæðum
Allir mínir kúnnar eru að ná gríðarlegum góðum árangri með
mínu æfingakerfi, ég mæli hiklaust með Lifestream Spírulina fyrir
mína kúnna og þá sem vilja aukna orku úthald og meiri lífsgæði.
Reynsla mín er að Lifestream vörurnar eru fremstar í gæðum.
Fæst í apótekum, heilsubúðum og Fríhöfninni.
29 vítamín og steinefni ·18 aminósýrur
Blaðgræn · Omega · GLA fitusýrur · SOD
eitt öflugasta andoxunarensím líkamans