Morgunblaðið - 28.08.2009, Side 10
10 | MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@mbl.is
A uður Ingibjörg Konráðs-dóttir miðlar nú af sínumviskubrunni og heldurfróðleg og skemmtileg
námskeið í matreiðslu á fljótlegum
og hollum réttum. Einnig getur
hún komið í heimahús og galdrað
þar fram holla rétti fyrir mat-
argesti.
„Ég er kokkur og bakari og
starfaði sem slíkur lengi vel en
þessar sætu kökur freistuðu mín
aldrei heldur var kökugerðin frekar
eitthvað skemmtilegt sem maður
vann með, eins og leir. Mér leið líka
ekkert vel með að gefa fólki óholl-
ustu og fann þegar ég skipti yfir í
heilsustaðina að mér fannst
skemmtilegra að gefa fólki holl-
ustumat sem ég vissi að myndi gera
því gott. Á heilsustöðunum fann ég
mig algjörlega og það er ákveðin
hugsjón hjá mér að vilja láta fólki
líða vel eftir að hafa borðað hollan
mat hjá mér,“ segir Auður sem
starfað hefur á veitingastöðunum
Grænum kosti, Á næstu grösum og
Manni lifandi.
Eldar í heimahúsum
Auður segir allar tegundir af
grænmeti í uppáhaldi hjá sér og þá
helst ferskt og lífrænt grænmeti. Nú
á tímum sé mikilvægt að fólk styðji
við íslenska framleiðslu svo ekki sé
talað um lífræna. Hún segir Íslend-
inga vera mjög duglega að prófa
nýja hluti en um leið séu margir
hræddir við að prófa svona elda-
mennsku og þar komi hún til sög-
unnar og geti miðlað fólki af reynslu
sinni. Námskeiðin eru tvíþætt en
annars vegar getur fólk sótt styttri
námskeið sem byggjast á fyrirlestri
og sýnikennslu þar sem fólk fær
létta máltíð að lokum og uppskriftir
til að taka með sér heim. Hins vegar
er lengra námskeið fyrir þá sem
vilja elda sjálfir og spreyta sig á
uppskriftum undir leiðsögn og endar
það námskeið með sameiginlegu
borðhaldi. Þá vinnur Auður nú að
því að fá ýmsa gesti tengda ólíkum
þáttum matargerðar í heimsókn á
námskeiðin og fólk fær smá gjafa-
körfu til að taka með sér heim. Fólk
getur líka fengið Auði í heimahús og
þá er hún búin að elda mestmegnis
fyrirfram en heldur auk þess létta
sýnikennslu og spjallar um mat-
reiðsluna. Fólk fær síðan uppskriftir
til að taka með sér heim og getur
setið saman í rólegheitum á meðan
Auður gengur frá eftir matinn.
Þessa þjónustu fór Auður af stað
með í sumar og segir hana hafa
fengið mjög góð viðbrögð og reynst
skemmtilega.
Frábært íslenskt
rótargrænmeti
„Ég kenni fólki að elda grænmet-
isrétti en allir þeir réttir geta verið
annað hvort aðalréttir eða meðlæti
með kjöt- og fiskréttum. Sjálf er ég
mjög hrifin af rótargrænmeti þessa
dagana og nú er til fullt af frábæru
slíku íslensku grænmeti í versl-
unum. Annars er mexíkanskur og
ítalskur matur alltaf í uppáhaldi hjá
mér auk þess sem mér finnst gaman
að taka hefðbundna rétti og gera þá
hollari,“ segir Auður. Hún lærði
matreiðslu á Hótel Holti og bakstur
og skreytingar í Johnson & Wales
University, R.I. Hún hefur starfað
víða erlendis meðal annars á The
Ritz Carlton í Boston og í Carber-
ry’s Bakery and Coffee House í
Boston.
Byggborgarar
3 msk ólífuolía
200 gr bygg, soðið
1 lítil bökunarkartafla, soðin, kæld
og stöppuð
4 meðalstórar gulrætur, rifnar
6 meðalstórir sveppir, saxaðir
3 vorlaukar, smátt skornir
½ rauð paprika, smátt söxuð
2 hvítlauksrif, smátt saxað
1 tsk cummin
1 tsk turmeric
Sjávarsalt og pipar eftir smekk
Aðferð: Blandið öllu vel saman og
smakkið til með sjávarsalti og pipar.
Mótið klatta og bakið í ofni á 190°C í
12 mínútur á hvorri hlið.
Ofnsteikt rótargrænmeti
Notið hvaða rótargrænmeti sem
hugurinn og maginn girnist. Í þessu
tilfelli notaði ég einstaklega girni-
legar kartöflur. Ég mæli með ís-
lenskum kartöflum sem eru sæl-
gæti á þessum árstíma.
Aðferð: Grænmetinu er velt upp úr
góðri olíu og sjávarsalti og rósmaríni
stráð yfir. Bakað í ofni við 190°C í ca
30 mín.
Kartöfluréttur Íslenska grænmetið má nota í ýmsa ljúffenga rétti með lítilli fyrirhöfn. Hollir borgarar Saman verða bygg og grænmeti herramannsmatur.
Kökurnar freistuðu aldrei
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hugsjónakona Auði finnst skemmtilegast að elda hollan mat handa fólki.
Auður Ingibjörg Konráðs-
dóttir tók mataræðið í
gegn fyrir 17 árum þar
sem hún var komin með
ofnæmi. Auður sem er
lærður bakari og kokkur
sneri þá við blaðinu og
gerðist grænmetisæta.
Nú undir lok sumars taka við falleg
síðsumarkvöld þar sem farið er að
rökkva og haustið liggur í loftinu.
Þá er tilvalið að fara í frískandi
kvöldgöngu sér til heilsubótar og
jafnvel skreppa í sund ef veðrið er
stillt. Á eftir er síðan gott að hafa
það notalegt heima við, kveikja á
kerti og hringa sig undir teppi í
stofusófanum.
Hressandi Göngutúr er góð líkams-
rækt sem flestir geta stundað.
Notaleg
kvöldganga
Ingibjörg
Gummi
Talya
Örn
Anouk
www.yogashala.is - sími 553 0203
reykjavík
Leiðin til þín
Ashtanga vinyasa yoga Yogaflæði Heitt yoga Hatha yoga - rólegir tímar Byrjendanámkeið Opnir tímar Yoga nidra - djúpslökun
til
að s
tunda yoga
Þú þarft e
kki
að geta þetta
Heilbrigður lífstíll
Frír prufutími