Morgunblaðið - 28.08.2009, Side 20

Morgunblaðið - 28.08.2009, Side 20
20 | MORGUNBLAÐIÐ Eftir Maríu Ólafsdóttur maria@mbl.is G enginn verður síðastiáfangi Laugavegarins fráEmstrum og niður í Þórs-mörk en það er Ferðafélag Íslands sem stendur fyrir göngunni þann 19. september. Farið verður að morgni úr Reykjavík og ekið inn á Emstrur og að skálunum sem eru við Fremri-Emstruá. Á ánni var vígð göngubrú haustið 1978 sem hefur reyndar skemmst í flóðum og þurft að reisa hana við. Sumarið 1979 var búið að skapa aðstöðu til göngu um Laugaveginn en farar- stjóri ferðarinnar, Kristján M. Baldursson, var meðal þeirra sem gengu leiðina það sumar. Þægileg haustlitaganga „Aðalleiðin liggur um Almenninga sem er gamalt afréttarsvæði en þar hefur ekki verið rekið sauðfé í ein 20 ár sem hefur hlíft því fyrir beit. Svæðið er því kjarri og gróðri vaxið og gróðursælasti áfangi Laugaveg- arins. Gengið er með nesti til dags- ins en gangan tekur um sex til sjö tíma og er endað í Skagfjörðsskála í Langadal í Þórsmörk með tilheyr- andi hátíðartilbrigðum og góðri grillveislu. Þetta er þægileg ferð og engar fjallgöngur þar sem leiðin liggur frekar niður í móti en reynd- ar þarf að vaða Þröngána þannig að fólk þarf að hafa með sér vaðskó. Á sunnudagsmorgni er síðan hægt að fara í morgungöngu um svæðið enda nóg af gönguleiðum í Þórs- mörk. Þarna er kominn haustlita- tíminn sem er kannski einn skemmtilegasti tíminn í Þórsmörk og víða í óbyggðum þar sem hita- stigið er orðið lægra og kulið hreinsar loftið og gerir útsýnið tær- ara. Þessa göngu vilja allir prófa sem stunda gönguferðir eða komast á bragðið. Laugavegurinn er með mögnuðustu gönguleiðum af þessu tagi og má segja að hún sé ein helsta og þekktasta gönguleið á milli skála sem er stikuð í óbyggð- um þó það finnist nú fleiri. Hún er líka orðin heimsfræg því það eru ekki síður margir erlendir ferða- menn sem ganga þessa leið en sjálf- ur er ég í forsvari fyrir Trex hóp- ferðamiðstöðina og við höfum í mörg ár skipulagt gönguferðir um Laugaveginn fyrir útlendinga sem hafa notið vinsælda,“ segir Kristján. Ekki fyrir of miklar áskoranir Kristján hefur ætíð gengið Laugaveginn á þremur dögum, frá Landmannalaugum niður að Álfta- vatni, þaðan niður á Emstrur og loks niður í Þórsmörk sem hann segir alltaf hafa verið einn af sínum uppáhaldsstöðum. Hann segir að í sinni útivist og gönguferðum sé hann lítið fyrir að setja sér áskor- anir eins og fólk hafi gjarnan gert í seinni tíð. Hann vilji setja skil á milli þeirra sem noti gönguferðir sem þjálfun og þeirra sem frekar vilji staldra við reglulega og njóta náttúrunnar enda tengist göngu- ferðir og útivera alls kyns áhuga- málum eins og náttúrunni og gróðri, jarðfræði, minjum og sögu. Hann hefur alltaf reynt að kynnast nýjum stöðum og segist nú í sumar hafa uppgötvað suðurhluta Vest- fjarðanna, Reykhólasveitina og firð- ina í Barðastrandarsýslunum sem kjörið göngusvæði enda mikil náttúruparadís með fallegri nátt- úru. Gönguskíði á veturna „Það er sífellt að koma nýtt fólk inn í félagið og nægur áhugi fyrir hendi. Allt mögulegt er hægt að gera í tengslum við göngur og mér finnst til dæmis spennandi að fara í þemaferðir. Hægt er að stunda gönguferðir allt árið en sjálfur tek ég reyndar fram gönguskíðin á vet- urna. Gönguferðir yfir vetrartímann byggjast auðvitað á því að vera við öllu búinn. Mikilvægt er að leita sér upplýsinga á meðan fólk er að öðl- ast reynslu og fara vel af stað þannig að fólk verði ekki hvekkt. Grunnþættir eru skórnir ásamt góð- um hlífðar- og regnfatnaði, hafa með sér nesti og heitt á brúsa og velja sér leið af skynsemi sem fólk telur sig ráða við,“ segir Kristján. Í 30 ára göngu á Laugaveginum Leiðsögumaður Kristján á göngu hjá Stórahver í Krýsuvík ásamt tíkinni Klemmu. Ótal margir göngugarpar hafa gengið Laugaveginn sem orðin er ein vinsæl- asta gönguleið landsins. Í september verður því fagn- að að 30 ár eru liðin síðan leiðin var gengin skipulega í fyrsta sinn. » Allt mögulegt er hægt að gera í tengslum við göngur og mér finnst til dæmis spennandi að fara í þemaferðir. Vel hirtar tennur hafa mikið með hraustlegt og fallegt útlit að gera. Mikilvægt er að fara til tannlæknis öðru hvoru til að láta skoða tennurnar og sérstaklega ef grunur er um að eitthvað sé að. Ógrynni er til af mismunandi tann- burstum og best fyrir hvern og einn að velja þann sem hentar viðkomandi best og skipta reglulega um bursta þegar hann er orðinn úr sér genginn. Tannþráður og tannstönglar ættu líka aldrei að vera langt undan og hægt að hafa tann- stöngla í vasanum eða veskinu til að hreinsa úr tönnunum að loknum matmálstíma. Síðan er að bursta tennurnar vandlega kvölds og morgna og sumir kjósa líka að nota munnskol. Hraustar tennur Fallegt bros Miklu skiptir að hirða tennurnar vel. • Hjarta og æðakerfi • Kólesteról í blóði • Blóðþrýsting • Liði • Orkuflæði líkamans • Minni og andlega líðan • Námsárangur • Þroska heila og miðtaugakerfi fósturs á meðgöngu • Rakastig húðar Í fitusýrum er að finna undirstöðefni sem eru okkur lífsnauðsynleg á sama hátt og prótín, vítamín, steinefni o.fl. Udo‘s Choice fæst í apótekum og heilsubúðum Lífsnauðsynlegar fitusýrur á hverjum degi! Udo's choice 3•6•9 olíublandan er fullkomin blanda af lífsnauðsynlegum fitusýrum sem byggja upp ónæmiskerfið og hafa áhrif á: Rólegt og mjúkt jóga Morgunjóga kl. 10, þriðjudaga og fimmtudaga Endurnærandi jóga Hádegisjóga kl. 12.10, þriðjudaga og fimmtudaga Hatha/ kripalujóga og Kundalinijóga Síðdegisjóga kl. 17.15, mánud., þriðjud. og fimmtudaga Maggý Elínbet Mecca Spa | Nýbýlavegi 24, Kópavogi | 821 7482 | yogamedmaggy@simnet.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.