Morgunblaðið - 28.08.2009, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 28.08.2009, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ | 23 Eftir Maríu Ólafsdóttur maria@mbl.is É g var keppniskona í sundi þegar ég varstelpa, byrjaði að æfa sund 11 ára göm-ul og var komin í landsliðið 14 ára. Síð-an þá hafa íþróttir verið mjög stór partur af mínu lífi en ég menntaði mig líka á því sviði og er menntaður íþróttakennari frá Íþróttakennaraskólanum á Laugarvatni. Þegar ég hóf námið hætti ég að keppa en hafði þá keppt bæði heima og erlendis með fínum árangri. Meðal annars setti ég fyrsta Íslands- metið sem var sett í Laugardalslauginni og laugin á því sérstakan stað í minningunni og er mér afar kær,“ segir Lóló. Mjúk hreyfing sem eykur þol Lóló segir líkamsræktina nú vera orðna lífs- stíl hjá mjög mörgum og fólk sinni henni mun jafnar yfir árið og detti ekki út úr líkamsræktarstöðvum eins og áður þótt það stundi ef til vill meiri útiveru yfir sumarið. Þetta hafi breyst í gegnum árin en utandyra sé orðið vinsælt að synda enda sundið mjög góð hreyfing og þægileg. Lóló starfar sem einka- þjálfari hjá World Class en hún hefur einnig haldið skriðsundsnámskeið öðru hvoru yfir árið eftir eftirspurn. „Skriðsund er mjög hollt sund og góð og mjúk hreyfing fyrir líkamann sem ekki reynir á liði og eykur mjög þrek og úthald fyrir utan hversu vel sundið mótar líkamann og gefur langa fallega vöðva. Ég fæ til mín fólk samkvæmt læknisráði sem er slæmt í til dæmis herðum og baki eða hnjám. Því er bent á að synda ekki bringusund heldur frekar skriðsund og það hefur borið góðan árangur. Á árum áður var bringusundið í forgangi í skólum og fólk sem er 30 ára og upp úr náði því margt hvað aldrei almennilega tökum á skriðsundinu eða tækninni til að geta notað hana. Skriðsund er mikið tæknisund og til að geta notað skriðsund- ið eins og mann langar til þarf maður að kunna þessa tækni,“ segir Lóló sem sjálf fer daglega í laugina til að synda og slaka svo á og skrafa í heita pottinum á eftir. Hún segir sundinu fylgja ólýsanleg vellíðan þar sem hún endurnærist á líkama og sál með góðum sundspretti og spjalli. Í hverjum hópi eru um 10 manns og er nám- skeiðið alls átta skipti. Að rækta líkama og sál „Viðhorf fólks og meðvitund um reglulega líkamsrækt hefur aukist gríðarlega þótt alltaf megi gera betur. Það vantar ekki upplýsinga- flæðið og fólk getur alls staðar fengið upplýs- ingar varðandi mataræði og hreyfingu svo það er bara spurning að nýta sér það. Ekki veitir af á þessum tímum að rækta sál og líkama og fólk er sannarlega að vanda sig að hugsa vel um sig í þessu slæma árferði því auðvitað förum við létt- ar út úr því ef við erum sátt við okkur sjálf og nærum okkur rétt á líkama og sál,“ segir Lóló. Skriðsund eykur þol og úthald Líkamsrækt hefur alltaf verið partur af lífi Matthildar Guð- mundsdóttur, eða Lólóar eins og hún er betur þekkt. Hún kennir meðal annars skrið- sund og segir sundið hafa góð áhrif á bæði líkama og sál. Morgunblaðið/Heiddi Kærar minningar Lóló sló fyrsta Íslandsmetið sem slegið var í sundi í Laugardalslauginni. KRAFTGANGA Í ÖSKJUHLÍÐ • Frískt loft eykur ferskleika • Útivera eykur þol Alhliða líkamsþjálfun jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna Boðið verður upp á tvenns konar tíma. Byrjendatímar og tímar fyrir þá sem eru vanir líkamsþjálfun. Haust- og vetrarstarfsemi hefst þann 1. september nk. sjá tímatöflu á kraftganga.is Skráning og fyrirspurnir sendist á netfangið kraftganga@kraftganga.is eða í síma 899 8199. Frekari upplýsingar á www.kraftganga.is Safapressur hafa verið mjög vin- sælar um nokkurra ára skeið og kannski ekki að furða þar sem fólk er sífellt að verða upplýst- ara um nauðsyn þess að borða vel af grænmeti og ávöxtum dag- lega. Það eru ýmsir kostir við það að eiga safapressu og hún getur sérstaklega nýst vel á barnmörg- um heimilum. Það getur verið erfitt að fá sum börn til að borða grænmeti og ávexti en það er mun auðveldara að fá þau til að drekka alls kyns ljúffenga safa. Það þarf ekki að fylgja sögunni að í safanum sé spínat, appelsína og gulrætur, eða eitthvað álíka hollt. Þegar fjárfest er í safapressu er mikilvægt að huga að stærð mótorsins þar sem hann segir til um hve vel gengur að vinna hrá- efnið. Vissulega getur pressa með stóran mótor verið hávær en kostirnir eru hins vegar að hægt er að setja mikið í hana og jafnvel ávexti í heilu lagi. Safaríkir safar Gulrótarsafi Það er hægt að nota alla mögulegt grænmeti til að búa til safa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.