Morgunblaðið - 28.08.2009, Side 27

Morgunblaðið - 28.08.2009, Side 27
Markmið námsins er að auka gæðin í þjálfun og skapa betur menntaða starfstétt sem vinnur faglega og í góðu samstarfi við aðra fagaðila eins og sjúkraþjálfara eða íþróttaþjálfara. Í náminu eru meðal annars tekin fyrir grunn- fög eins og vöðva- og hreyfifræði, lífeðlisfræði, sálfræði og þjálffræði. Þá er lögð mikil áhersla á verklega kennslu en þjálffræði kemur inn á það sem gert er í æfingasalnum. Sú námsgrein snýst fyrst og fremst um greiningu á ástandi Eftir Maríu Ólafsdóttur maria@mbl.is M ikilvægt er að fólk fari eftir æfinga-kerfi sem hentar því persónulegaog þar geta einkaþjálfarar hjálpaðfólki að stíga fyrstu skrefin. Við gerð æfingakerfa er nauðsynlegt að þjálfari skoði líkamsstöðu, jafnvægi, stöðugleika, heilsufarssögu og dagleg störf. Þetta tryggir að þjálfunin sé rétt sett upp fyrir hvern og einn og valdi ekki óþægindum eða jafnvel meiðslum. Nauðsynlegt aðhald „Það er góð hugmynd að leita til einkaþjálf- ara, sérstaklega til að læra hvernig maður á að beita sér rétt til að forðast það að gera mistök. Fyrsta skrefið er einfaldlega að byrja og sumir eiga hreinlega erfitt með það. Sumir leita til einkaþjálfara í einn mánuð og ætla að taka þjálfunina með trukki en gefast síðan upp. Því myndi ég frekar mæla með því að gera samning til lengri tíma, til dæmis þriggja mánaða, og hitta þjálfarann ört í upphafi og síðan öðru hvoru á lengra tímabili. Þannig fær maður nauðsynlegt eftirlit og aðhald en getur um leið byggt sig rólega upp. Þetta þarf líka ekki að vera svo dýrt, ef maður kaupir sér aðstoð einka- þjálfara öðru hvoru,“ segir Einar Einarsson, þjálffræðikennari í ÍAK einkaþjálfaranámi Keilis, en hann er með M.Sc.-gráðu í heilbrigð- istæknifræði og B.Sc.-gráðu í sjúkraþjálfun. Sérsniðið æfingakerfi ÍAK einkaþjálfaranámið er eins árs nám þar sem fagleg menntun einkaþjálfara er tryggð. þar sem segja má að leitað sé markvisst að veik- leikum viðkomandi. Skoðun og greining er gerð á líkamsástandi hvers og eins með þar til gerð- um prófum og í framhaldinu er búið til æf- ingakerfi sem er sérsniðið að þörfum hvers og eins. Þar er leitast við að lagfæra veikustu hlekkina ásamt því að styrkja líkamann. Þjálf- arinn raðar æfingunum upp með það að mark- miði að líkaminn nái jafnvægi og líkamsstaðan jafnist þannig að fólki líði betur og nái betri ár- angri. „Þjálfun er í raun og veru ekkert einföld þar sem standa þarf rétt að henni og nemendur leggja hart að sér til að ná góðum árangri. Einkaþjálfun hefur lengi verið starfsgrein án löggildingar starfsheitis og það er eitthvað sem ráða mætti bót á með stöðluðu námi. Þetta myndi auðvelda fólki að velja einkaþjálfara þar sem það veit betur hvaða menntun og reynslu þjálfarinn hefur að baki og hvort hún nýtist því,“ segir Einar. Æfingakerfi fyrir hvern og einn Morgunblaðið/Eggert Persónubundið Einar segir mikilvægt að búa til æfingakerfi sem hentar hverjum og einum. Silfurdrengirnir Einar Einarsson, þjálffræðikennari hjá Keili, að störfum með landsliðsmönnum í handbolta en hann segir að þjálfun sé í raun og eru ekkert einföld þar sem standa þarf rétt að henni og nemendur þurfa að leggja hart að sér til að ná góðum árangri. Þegar hausta tekur nota margir tækifærið til að breyta lífsstíl sínum og byrja að hreyfa sig reglulega. Þá er gott að hafa einhvern innan handar sem hvetur mann áfram og fylgist með árangri. MORGUNBLAÐIÐ | 27 AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Betra loft betri líðan Airfree lofthreinsitækið Byggir á nýrri tækni sem eyðir • Frjókornum, ryki og myglusveppi • Vírusum og bakteríum • Gæludýraflösu og ólykt • Er hljóðlaust og viðhaldsfrítt • Tilvalið á heimilið og á skrifstofuna Hæð aðeins 27 cm ÍS L E N S K A S IA .I S S F G 42 04 0 04 .2 00 8 Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | www.veggsport.is Stöðvaþjálfun 3 sinnum í viku Skokk – spinning – tækjasalur 2 sinnum í viku Áhersla : Þol – Styrkur – Liðleiki – Mikil brennsla Vikulegar mælingar og ráðleggingar um mataræði Tímar: kl.6:30 | 7:45 | 9:30 Upplýsingar og skráning í síma 577-5555 HÖRKU ÁTAKSNÁMSKEIÐ Hörku átaksnámskeið er að hefjast í Veggsport 5 vikna námskeið - 5 sinnum í viku Hentar konum jafnt sem körlum Kennari er Nadja

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.