Morgunblaðið - 28.08.2009, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 28.08.2009, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ | 29 Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu svanhvit@mbl.is Þ að er ekki alltaf nauðsynlegtað kaupa sér kort á líkams-ræktarstöð til að hreyfa sigog styrkja. Oft er hægt að nýta heimilið og umhverfið þar í kring til að hreyfa sig. Gunnhildur Hinriks- dóttir, íþróttafræðingur og starfs- maður Íþróttafræðaseturs Háskóla Íslands á Laugarvatni, segir að í raun sé sáraeinfalt að æfa sig á margan hátt heima hjá sér og nota jafnvel sína eigin líkamsþyngd til að gera alls kyns æfingar. „Það er alltaf gott að fara út að ganga eða hlaupa sem styrkir hjarta- og æðakerfið en þá er nauð- synlegt að eiga góða skó. En ef æfing- in á að vera innanhúss er til dæmis hægt að sippa eða gera uppstig, ef við- komandi á stöðugan koll eða er með stiga heima hjá sér.“ Vatnsflaska í stað lóða Áður en fólk byrjar að hreyfa sig sem hefur ekki hreyft sig í lengri tíma er nauðsynlegt að fara yfir gátlista, að sögn Gunnhildar en gátlistann má sjá hér til hliðar. „Fyrir styrktaræfing- arnar er skynsamlegt að fjárfesta í einhverjum lóðum, frá 1-8 kg til að geta gert alhliða styrktaræfingar. Hins vegar er líka hægt að nota eitt- hvað í stað lóða, eins og til dæmis lítraflösku sem er fyllt af vatni eða eitthvað slíkt. Þá þarf hins vegar að passa að hafa sömu þyngd í báðum höndum, svo lengi sem meiðsl séu ekki til staðar. Sé viðkomandi kannski meiddur í annarri öxlinni þarf að byrja endurhæfinguna með minna þeim megin. Svo er mjög mikilvægt að passa líkamsbeitinguna í öllum æf- ingum. Með allar standandi æfingar þarf að passa að læsa ekki hnjánum heldur að hafa þau ögn bogin, spenna bak- og kviðvöðva og síðan að anda í réttum takti, þegar þyngdinni er lyft þá er andað frá sér en þegar þyngdin er lækkuð niður þá er andað að sér,“ segir Gunnhildur og talar um að það sé líka þægilegt að eiga teppi, þunna tjalddýnu eða jógadýnu. „Ef á að gera kvið- eða bakæfingar er gott að þurfa ekki að liggja á gólfinu.“ Byrja rólega Gunnhildur segir að vissulega fái fólk meira út úr því að æfa á líkams- ræktarstöðvum því þar er hægt að fara í fleiri tæki og lyfta þyngri lóðum en hvað varði almenna heilsu og að styrkja sig geti leikfimi heima verið mjög góð sem fyrsta skref. „Ef fólk er að hefja æfingu eftir langt hvíldar- tímabil er mikilvægt að byrja rólega og ekki gleypa allan heiminn í einu lagi. Ef fólk meiðist eða fær mikla strengi eða álíka þá leiðir það frekar til þess að maður hætti við í stað þess að halda áfram að hreyfa sig. Það er því betra að byrja rólega með minni þyngdir og vinna sig upp.“ Líkamsrækt á heimilinu Gunnhildur Hinriksdóttir: „Ef fólk er að hefja æfingu eftir langt hlé er mikilvægt að byrja rólega og ekki gleypa allan heiminn í einu lagi.“ Það getur hentað vel að hreyfa sig heima og ýmis- legt sem má nota til að gera æfinguna árangurs- meiri, eins og vatns- flöskur, teppi og stiga. Þó þarf að varast að fara of hratt af stað og nauðsyn- legt er að passa upp á sig. Svarið annaðhvort já eða nei við eftirfarandi spurningum: ● Hefur læknirinn þinn ein- hvern tíma sagt þér að þú eig- ir við hjartavandamál að stríða OG að þú ættir aðeins að stunda hreyfingu sem læknir hefur mælt með? ●Finnurðu fyrir verk í brjósti þegar þú hreyfir þig/reynir á þig? ●Á síðastliðnum mánuði, hef- urðu fundið fyrir verki í brjósti án þess að hafa hreyft þig/reynt á þig? ●Missirðu jafnvægið vegna svima eða áttu það til að missa meðvitund? ●Hefurðu verki/vandamál í beinum eða liðum (t.d. bak, hné, mjaðmir) sem gætu versnað við breytta/aukna hreyfingu? ●Hefurðu ávísun frá lækni á lyf vegna blóðþrýstings- eða hjartavandamáls? ●Er einhver önnur ástæða fyrir því að þú ættir ekki að hreyfa þig/reyna á þig? Ef einhverri af ofantöldum spurningum er svarað játandi mæla Samtök íþrótta- og heilsufræðirannsókna í Bandaríkjunum (Am- erican College of Sports Medicine) með að þú ræðir við lækninn þinn áður en þú byrjar að hreyfa þig í meiri mæli en þú hefur verið að gera. Þó getur vel verið að þú getir stundað hvaða hreyfingu sem þú vilt, svo lengi sem þú byrjar hægt og byggir þig rólega upp. Ef öllum spurningunum er svarað neitandi ætti að vera óhætt fyrir þig að fara að hreyfa þig í mun meiri mæli en þú ert van- ur/vön. Þó er alltaf gott að byrja hægt og byggja sig rólega upp. Gátlisti vegna hreyfingar Líkamsrækt Það er vel hægt að hreyfa sig heima fyrir en þó þarf að fara varlega af stað. Leikfimisalir Tækjasalur Sundlaug Spa Meðferðir Nudd Snyrtistofa Nýbýlavegi 24, Kópavogi | 511 2111 | www.meccaspa.is Leikfimi Morgunþrek Pilates Nýr lífsstíll Vaxtamótun Salsafjör Teygjutímar Göngur Tækjasalur Gleym -þér- ei Leikfimi og heilsurækt fyrir konur á öllum aldri í fallegu og notalegu umhverfi Námskeið hefjast 7. sept. Kynningarvika er frá 7. til 12. sept. Prufutímar eru í boði alla vikuna. Haust á fjöllum Grill- og haustlitaferð í Bása Leyndardómar Kerlingarfjalla - jeppaferð Hellar við Miklafell og Hverfisfljót Skráning í síma 562 1000

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.