Morgunblaðið - 28.08.2009, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 28.08.2009, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ | 31 Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu svanhvit@mbl.is Þ etta er algjörlega nýtt enreyndar er galvanic-tækninekki ný því hún hefur veriðnotuð í meðferðir á snyrti- stofum í fjölda ára. Það er hins vegar nýtt að hægt sé að fá svip- aða meðferð með einu litlu tæki,“ segir Guðrún Kristjánsdóttir hjá Nu Skin á Íslandi en Nu Skin er að selja Galvanic Spa sem er tæki sem hægt er að nota heima í stofu og fá húðmeðferð á einungis 10-15 mínútum. „Tækið les húðtýpuna og aðlagar sig þannig hverri húðtýpu. Með tækinu eru notuð ákveðin gel sem eru annað hvort mínus- eða plúshlaðin. Tækið og gelin virka saman með því að djúphreinsa og styrkja húðina en það má sjá greinilegan mun eftir tíu mínútna meðferð. Munurinn á húðinni er ekki varanlegur í þeim skilningi að hægt sé að gera þetta einungis einu sinni heldur er þetta meira eins og að fara í ræktina, það þarf að viðhalda góðum árangri.“ Einfalt að nota Guðrún talar um að til að sýna viðskiptavinum hvernig tækið virki þá geri þau jafnan prufu á hálfu andliti viðkomandi. „Munurinn sést strax en við viljum sýna fólki svart á hvítu hver árangurinn er. Vissu- lega eigum við líka fullt af mynd- um þar sem árangur sést en fólk er almennt hætt að treysta slíkum myndum enda ýmislegt hægt að gera í Photoshop. Oft er það þann- ig að annar helmingur andlitsins lyftist upp en við sjáum helst mun á öldrunareinkennum, pokum í kringum augum, línum og hrukk- um,“ segir Guðrún og bætir við að það sé mjög einfalt að nota tækið. „Við erum með kennslu fyrir fólk og mjög góðar íslenskar leiðbein- ingar. Það þarf smáþjálfun í að nota tækið til að byrja með en í raun er þetta óskaplega einfalt og það er ekki nauðsynlegt að vera sérfræð- ingur eða snyrtifræðingur til að nota tækið. Það að tækið lagar sig að húðinni gerir það mjög einfalt í notkun og það pípir kannski á mis- jafnan hátt í andliti og á bringu sem merkir að misjafnan straum þarf á þau svæði. Það getur líka breyst eftir árstíðum hve mikinn straum þarf á hvert svæði því húð okkar breytist vitanlega.“ Virkar á öldrunarensím Guðrún talar um að mælt sé með því að nota tækið tvisvar sinn- um í viku fyrstu 4-6 vikurnar og svo einu sinni í viku til að halda því við. „Það eru útskiptanlegir hausar á tækinu og hægt er að fá einn haus fyrir andlit, einn haus fyrir líkamann og svo framvegis. Tækið er líka mjög gott fyrir nudd og hefur verið notað í gegnum tíð- ina sem nuddtæki. Við erum líka með sérstakan haus fyrir hár- svörðinn sem hefur verið mjög vin- sælt. Það hentar bæði fyrir þá sem hafa misst hárið eða fyrir karl- menn eða konur sem hafa fengið blettaskalla eða mikla þynningu á hári. Svo er mismunandi gel eftir svæðum en í gelunum er efni sem heitir ageLOC. Í stuttu máli upp- götvuðu vísindamenn ensím sem hægt er að mæla í fólki og það fannst bara í eldra fólki. Ensímið er því kallað öldrunarensím en það myndast á ákveðnum aldri og age- LOC stöðvar framleiðslu þessa ensíms.“ Húðmeðferð heima í stofu Morgunblaðið/Heiddi Guðrún Kristjánsdóttir: „Tækið og gelin virka saman með því að djúphreinsa og styrkja húðina en það má sjá greinilegan mun eftir tíu mínútna meðferð.“ Með Galvanic Spa er hægt að fá húðmeðferð heima í stofu á nokkrum mínútum en söluaðilar tækisins segja greini- legan mun eftir notkun þess. Í geli sem notað er með tækjunum er efni sem ku stöðva fram- leiðslu öldrunarensíms. »Eftir notkun tæk-isins sjáum við einna helst mun á öldrunar- einkennum, pokum í kringum augun, línum og hrukkum. Litlum krílum fer oft að leiðast heima við þegar þau eru búin að vera veik í nokkra daga. Þá er um að gera að reyna að skemmta þeim og eiga til dæmis til nóg af litabókum sem þau geta dundað sér við að lita í. Séu börnin rúm- föst er sniðugt að leyfa þeim að horfa á eitthvað skemmtilegt í ein- hvern tíma en svo kannski lesa fyrir þau inni á milli. Passa þarf að barnið borði vel en matinn má útfæra á skemmtilegan hátt til að lífga upp á daginn og eins að leyfa barninu að fá eitthvað af uppá- haldsmatnum sínum. Leiðinda veikindi Börnunum finnst ekki gaman að vera veik heima of lengi. Lítil og veik kríli www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Fæst í apótekum Rodalon® – alhliða hreingerning og sótthreinsun • Fyrir baðherbergi og eldhús • Eyðir lykt úr íþróttafatnaði • Vinnur gegn myglusveppi • Fjarlægir óæskilegan gróður • Eyðir fúkka úr tjöldum Tilbúið t il notkun ar! vigtarradgjafarnir.is 865-8407 Sjá nánar á www.vigtarradgjafarnir.is Íslensku Vigtarráðgjafarnir Hefur þú viljann, þá hef ég uppskriftina … Lærðu að borða hollan og góðan mat og taktu á aukakílóunum 5 kíló á 5 vikum! HÓMÓPATÍAN HEIM - NÝJUNG Á ÍSLANDI! Hómópatísk bráðaþjónusta og heildræn meðferð á netinu. Kynntu þér málið á www.heilsuhondin.is Heilsuhöndin HVEITIKÍM Náttúrulegt fæðubótaefni Hveitikím er ein næringarríkasta fæðutegund sem fyrirfinnst. Það inniheldur 23 næringarefni. Hveitikím inniheldur 28 gr af protín hverjum 100 gr sem er meira en fyrirfinnst í mörgum kjötvörum og er járnríkasta fæða sem fyrirfinnst. Hveitikím hefur reynst vel til að halda líkamanum í topp formi. Það er mikið notað í mataræði íþróttamanna til að byggja upp þol.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.