Morgunblaðið - 09.09.2009, Side 5
Fréttir 5INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2009
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
OLLI Rehn, stækkunarstjóri Evr-
ópusambandsins, afhenti Jóhönnu
Sigurðardóttur forsætisráðherra í
gær spurningalista sem íslensk
stjórnvöld þurfa að svara svo að
framkvæmdastjórn ESB geti lagt
mat á umsókn Íslands um aðild að
sambandinu. Össur Skarphéðinsson
utanríkisráðherra segir stefnt að því
að senda svör við spurningunum ekki
síðar en 16. nóvember svo hægt verði
að taka umsókn Íslands fyrir á leið-
togafundi sambandsins í desember.
Rehn ræddi við fjölmiðla á blaða-
mannafundi í utanríkisráðuneytinu
síðdegis í gær eftir að hafa fundað í
klukkutíma með utanríkisráðherra.
Sagði Össur að með komu Rehns
hingað til lands væri enn eitt skrefið
stigið í átt að því að hægt verði að
leggja aðildarsamning Íslands um
ESB í dóm íslenskra kjósenda.
Megintilgangur komu Rehns hing-
að til lands var að afhenda íslenskum
stjórnvöldum 300 blaðsíðna lista með
um 2000 spurningum sem stækk-
unarnefnd sambandsins óskar eftir
svörum við áður en hún metur hvort
mæla eigi með því að aðild-
arviðræður verði hafnar við Ísland.
„Þetta er létta útgáfan af spurninga-
listanum sem Svartfjallaland fékk,
sem þakka má aðild Íslands að Evr-
ópska efnahagssvæðinu,“ sagði Rehn
á fundinum. „Í spurningum Íslands
er meiri áhersla á stefnumót-
unarmálefni og kafla sem ekki taka
til EES.“ Á fundinum var Rehn
spurður hvort Króatía væri á undan
Íslandi í umsóknarferli sínu að sam-
bandinu.
Ekki keppni milli landa
„Við lítum ekki á þetta sem keppni
milli landa,“ svaraði hann en bætti
því við að það væri raunhæft að Kró-
atía gæti lokið tæknilegum samn-
ingaviðræðum við Evrópusambandið
á fyrri hluta næsta árs. Hins vegar
væri aldrei gefin upp tímasetning
fyrir mögulega aðild lands fyrr en
samningaviðræðum væri lokið.
Hvorugu landinu væri forgangs-
raðað af hálfu Evrópusambandsins.
„Innganga er eingöngu háð getu við-
komandi lands til að uppfylla skil-
yrðin fyrir ESB-aðild. Ísland upp-
fyllir öll Kaupmannahafnarskilyrðin
varðandi lýðræði og mannréttindi og
landið er aðili að EES sem tekur yfir
u.þ.b. 2/3 hluta lagaramma Evrópu-
sambandsins. Þetta þýðir, að þó að
ekkert land geti stytt sér leið inn í
sambandið, er leiðin einfaldlega
styttri fyrir Ísland en marga aðra.“
Það flýtti einnig fyrir að landið væri
hluti af Schengen-svæðinu og ætti
sér djúpar lýðræðisrætur. „Eftir að
Ísland sótti um aðild að Evrópusam-
bandinu í júlí liðu aðeins nokkrir
dagar áður en ráðherraráð Evrópu-
sambandsins bað framkvæmda-
stjórnina um að undirbúa álitsgerð
sína. Það var mikið afrek sem ég held
að megi óska sænska formanninum
til hamingju með.“
Fiskveiðar í forgrunni
Nú væri boltinn hins vegar hjá Ís-
lendingum. „Við búumst við að það
gangi greiðlega að svara spurning-
unum og að svörin verði ítarlega
unnin. Þannig fáum við áreiðanlegan
grunn til að leggja hlutlaust mat á
getu Íslands til að axla þá ábyrgð
sem aðild að Evrópusambandinu
hefur í för með sér. Þegar Ísland hef-
ur uppfyllt öll skilyrðin fyrir aðild þá
er landið meira en velkomið í sam-
bandið.“
Á Rehn var að skilja að gagn-
kvæmur skilningur væri milli ís-
lenskra stjórnvalda og fram-
kvæmdastjórnarinnar um að stefna á
að leggja mat hennar fyrir fund Evr-
ópuráðsins í desember. „Sænski for-
maðurinn hefur nefnt þann tíma-
ramma, og þó að við getum ekki
skuldbundið okkur til að fylgja hon-
um út í æsar viljum við að hægt verði
að taka næsta skref eins fljótt og
mögulegt er.“
Utanríkisráðherra hefur sagt að
stefnt væri að því að hefja aðildar-
viðræður í byrjun næsta árs. Sagði
Rehn raunhæft að Evrópuráðið tæki
afstöðu til þess strax eftir að fram-
kvæmdastjórnin hefði kynnt álits-
gerð sína. Hann vildi þó ekki svara
því hvenær raunhæft væri að Ísland
fengi inngöngu í sambandið. Inntur
eftir möguleikum Íslands til að taka
upp evru sagði hann skýrt af hálfu
ESB að forsenda þess væri að landið
gerðist aðili að sambandinu.
Rehn var spurður hvaða hindranir
væru helstar í vegi fyrir því að Ísland
yrði aðili að sambandinu og sagðist
hann þá heldur vilja kalla þær áskor-
anir. „Ákveðin málefni verða þó
óhjákvæmilega í forgrunni í þessum
umræðum, eins og t.d. fiskveiði-
stefnan og landbúnaðurinn og e.t.v.
fjármálaþjónusta. En ég er viss um
að við munum finna leiðir að við-
unandi niðurstöðu fyrir sjávarútveg-
inn á Íslandi, sem samrýmist fisk-
veiðistefnu sambandsins.“
Leið Íslands styttri en margra
Stefnt að því að svör Íslands við 2000 spurningum ESB liggi fyrir um miðjan nóvember og að hægt
verði að leggja umsóknarmat fyrir leiðtogafund í desember Ísland uppfyllir þegar mörg skilyrðanna
Morgunblaðið/Ómar
ESB Olli Rehn ræddi við blaðamenn í utanríkisráðuneytinu í gær.
Olli Rehn sagðist hafa þann
skilning að afgreiðsla Alþingis á
Icesave málinu nýlega hefði ver-
ið jákvætt skref. Spurður hvort
vísbendingar væru um að Bret-
ar og Hollendinar myndu leggja
stein í götu aðildarumsóknar Ís-
lands sagði hann að rík-
isstjórnir þessara landa hefðu
upplýst framkvæmdastjórnina
um afstöðu sína og áhyggjur af
málinu. „Það tengist EES-
samningnum á vissan hátt og
eitt skilyrði þess að halda áfram
með umsóknarferlið er að Ís-
land uppfylli EES-samninginn.“
Icesave tengist EES