Morgunblaðið - 09.09.2009, Side 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur
sia@mbl.is
DÆMI eru um að afborgun náms-
lána sem greiða átti 1. september
hafi verið felld niður. Í þeim til-
vikum hefur lántaki sýnt fram á
tekjufall upp á 30% eða meira og
uppreiknaðar tekjur fyrir árið 2009
undir fjórum milljónum. Ef tekju-
fallið er á bilinu 20-30% er hægt að
sækja um lækkun. Að sögn Páls
Haraldssonar, deildarstjóra fjár-
máladeildar Lánasjóðs íslenskra
námsmanna (LÍN), hefur álagið á
skrifstofunni verið mjög mikið frá
því í endaðan ágúst, fólk hringi til
að fá upplýsingar um þær leiðir
sem eru í boði og geta gert því
kleift að kljúfa afborganirnar.
Sækja þarf sérstaklega um lækkun
eða niðurfellingu og leggja fram
staðgreiðsluyfirlit vegna 2008 og
2009 frá ríkisskattstjóra.
„Það voru sendir út um 24.000
greiðsluseðlar vegna þessarar af-
borgunar og það hefur verið
óhemju mikið hringt undanfarnar
tvær vikur. Fólk leitar leiða til að
fella niður greiðsluna, fresta henni
eða dreifa,“ segir Páll.
„Ég giska á að þetta séu 10%
sem séu að kanna hvaða mögu-
leikar eru í stöðunni,“ segir Páll en
leggur áherslu á að engar nákvæm-
ar tölur séu til yfir þetta.
Hundrað milljónir til náms-
manna á Norðurlöndum
Að sögn Hjördísar Jónsdóttur,
framkvæmdastjóra Samtaka ís-
lenskra námsmanna erlendis
(SÍNE), hafa námsmenn ekki mikið
leitað til SÍNE vegna þess að þeir
hafa þurft að hætta við að fara í
nám erlendis. Hún hefur þó orðið
talsvert vör við að fólk hætti við.
„Já, af því að úthlutunarreglurnar
hjá LÍN voru samþykktar svo seint
í vor hefur fólk hikað við að stökkva
af stað og taka skólavist og slíku,
og vita ekki hvernig lánamálin
yrðu,“ segir Hjördís.
Norræna ráðherranefndin hafði
að því frumkvæði sl. vor að veita
styrk til íslenskra námsmanna á
Norðurlöndunum vegna aðstæðna
hérlendis. Ríflega eitt hundrað
milljónum króna hefur þegar verið
úthlutað. Öllum umsækjendum sem
uppfylltu úthlutunarreglur var út-
hlutað styrk, alls 292 náms-
mönnum. „Þetta var há upphæð, 5,5
milljónir danskra króna, sem við
fengum í ár og höfum vilyrði fyrir
aftur á næsta ári,“ segir Friðrika
Harðardóttir, sérfræðingur hjá
menntamálaráðuneytinu. Flestir
námsmennirnir fengu framfærslu-
styrk í þrjá mánuði að upphæð
126.000 krónur á mánuði. „Flestir
fengu styrk vegna þess að þeir
fengu ekki vinnu yfir sumartímann,
voru að klára námið eða eitthvað
slíkt,“ segir Friðrika. 289 náms-
menn fengu þennan styrk. Gert er
ráð fyrir að framfærslustyrkir til
námsmanna á Norðurlöndum verði
auglýstir aftur á vormánuðum 2010.
Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins
annaðist móttöku og umsýslu styrk-
umsókna.
Í júní sl. voru auglýstir dvalar-
og ferðastyrkir til ungs fólks í verk-
námsgreinum sem hafði hug á að
sækja viðurkennda en ólaunaða
starfsþjálfun á Norðurlöndum í 2-6
mánuði að upphæð 126.000 krónur
á mánuði. Fimm sóttu um, þrír
uppfylltu skilyrðin og fengu styrk.
Nú er opið fyrir umsóknir um sams
konar styrki til 15. september. Iðan
fræðslusetur annast umsýslu og af-
greiðslu umsókna.
„Þetta var mjög gott framtak,
hjálpaði mörgum,“ segir Hjördís
um styrkina.
Fólk hikar við að taka stökkið
Margir leita til Lánasjóðs íslenskra námsmanna með spurningar um dreifingu eða niðurfellingu
afborgana Færri umsóknir um lán vegna náms erlendis Námsmenn á Norðurlöndum fá styrk
Ef lántaki hjá LÍN getur sýnt fram
á tekjufall er mögulegt að fella
niður afborgun. Námsmenn hafa
sumir frestað námi erlendis. 100
milljónir hafa verið veittar í styrki
til nema á Norðurlöndunum.
! "
#
$%
& & ' ' ( ( )
BERGLIND Sunna Stefánsdóttir ætlaði sér í nám í Árós-
um í haust. Ýmsar ástæður urðu þó til þess að hún hætti
við og stóran þátt í frestun námsins átti staða krónunnar.
Námið er lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna,
en fyrir tveimur árum kostaði það, eðli málsins sam-
kvæmt, helmingi minna en núna. „Ég ætlaði í nám í við-
burðastjórnun, en það eru námsgjöld,“ segir Berglind, „og
þessar óhagstæðu aðstæður spiluðu óneitanlega inn í. Ég
er samt ekki búin að ákveða hvort ég fer út næsta haust,
það er ennþá inni í myndinni.“ Berglind hefur ekki stund-
að nám á háskólastigi hérlendis en hún lauk stúdentsprófi
árið 2008 og hefur unnið í Hinu húsinu síðan. „Ég fann
ekkert hérna heima sem heillaði mig,“ segir hún.
Námið sem hún ætlaði í er kennt í einkaskóla. „Ég hef
líka verið að safna mér peningum með því að vinna hérna í
Hinu húsinu, en námsgjöldin fyrir þrjú ár eru rúmar tvær
milljónir bara fyrir námið sjálft. Þá er eftir að lifa; borga
matinn og leigja íbúð,“ segir Berglind.
Sitja uppi með miklar skuldir
Hún nefnir að tveir vinir hennar hafi farið utan í dýrt
nám, þrátt fyrir stöðu krónunnar. „Þeir gera það nátt-
úrlega meðvitandi um að þeir munu sitja uppi með miklar
skuldir.“ Annar fór í tölvuteiknun til Bandaríkjanna og
hinn fór í gervigreindarnám í Skotlandi. „Þetta er mjög
dýrt nám og þau horfa upp á margar milljónir á ári, en
ákváðu samt að fara út. Það er samt sárt að vita til þess að
fyrir tveimur árum kostaði þetta nám helmingi minna
en það gerir í dag,“ segir Berglind.
Í vetur ætlar hún að vinna í Hinu húsinu og sækja
um skóla næsta vor. „Mig hefur líka langað að fara í
smáferðalag um heiminn, en setti það líka í bið. Von-
andi tekst mér samt að gera það á þessu skólaári.“
Berglind kveðst verða vör við að félagar hennar hiki
jafnvel við að fara í nám. „Það eru margir sem langar
að prófa að fara út, en eru hikandi við það. Þessir tveir
vinir mínir sem fóru út í sitt dýra nám ákváðu að skella
sér af því að þá langaði svo mikið í akkúrat þetta. Þeir
eru samt búnir að vinna eins og brjálæðingar og
reyndu að selja dótið sitt til að eiga fyrir brotabroti af
námskostnaðinum. Vissulega er fólk sem veigrar sér
við að fara í nám úti en það eru líka margir sem fara út
og vinna, bara af því að þeir vilja ekki vera hérna,“ seg-
ir Berglind. Hún segir viðhorf félaga sinna ekkert endi-
lega breytt til langrar framtíðar. „Nei, en það eru
margir sem fara í skóla bara til að fara í skóla. Það er
erfitt að fá vinnu og margir fara í háskólann bara til að
prófa eitthvað. Svo er viðkomandi ekkert endilega allt-
af ánægður með það.“ Berglind segir einhverja taka
þann pólinn í hæðina að reyna að sleppa því að taka
námslán. „Samt finnst mér alveg merkilega margir
taka námslán. Þá til að geta farið að leigja, það er
kannski alveg eðlilegt á þessum aldri að vilja aukið
sjálfstæði.“
Morgunblaðið/Heiddi
Námsmaður Berglind Sunna Stefánsdóttir hefur ekki lagt drauminn um nám í viðburðastjórnun á hilluna heldur
ætlar hún að sækja um í vor. Óhagstæðar aðstæður áttu þátt í ákvörðun um að fresta námi.
Nám erlendis kostar helmingi
meira en fyrir tveimur árum
„Það er ekkert langt síðan gengi dönsku
krónunnar var 13 krónur. Munurinn er
því gríðarlegur á því að hafa fengið
50.000 danskar krónur fyrir 13 krónur
þá eða 24 krónur núna. Þetta er auðvit-
að veruleg skuldaaukning,“ segir Hlöð-
ver Bergmundsson, deildarstjóri lána-
deildar LÍN. Hann segir sjáanlega
fækkun í umsóknum námsmanna um lán
vegna náms erlendis. „Við höfum núna
tilfinningu fyrir því að það sé fækkun
meðal umsækjenda, erlendis sérstak-
lega,“ segir hann en tekur fram að færri
umsækjendur séu einnig á Íslandi miðað
við í fyrra. Í tölum sem LÍN tekur saman í
september ár hvert sést að umsækj-
endur eru nú færri en á sama tíma í fyrra
og meiri hlutfallsleg fækkun er hjá
námsmönnum erlendis, allt að 25%.
„Hvort það er til að vera og þá sér-
staklega hjá námsmönnum erlendis vil
ég ekki fullyrða um að svo stöddu, en
margt bendir þó til þess,“ segir Hlöðver.
„Þess ber þó að gæta að umsóknar-
frestur er rúmur eða til 15. janúar nk.,
sem er sami umsóknarfrestur og var í
fyrra, og því spurning hvort nemendur
séu seinir að sækja um,“ segir hann.
Sjáanleg fækkun í umsóknum
Heimsferðir bjóða nú einstakt tilboð á
síðustu flugsætunum til Costa del Sol
15. september í 11 nætur. Þú kaupir 2
flugsæti en greiðir aðeins fyrir 1. Við
bjóðum þér fjölbreytta gistingu, m.a.
góð íbúðahótel meðan á dvölinni sten-
dur. Ath. heimflug 26. september er frá
Jerez (rútuferð frá Malaga til Jerez tekur
um 3 klst.).
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt
til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Verð frá kr. 29.990
Flugsæti með sköttum, m.v. 2 fyrir 1
tilboð15. september í 11 nætur.
Netverð á mann.
Gisting frá kr. 3.700 m.v. 2-4 í herbergi /
stúdíó / íbúð á "stökktu tilboði". Netverð
á mann pr. nótt.
Aukalega m.v. 2-4 í stúdíó / íbúð á Timor
Sol eða Aguamarina kr. 900 (á mann pr.
nótt).Aukalega m.v. 2-4 í íbúð á
Principito Sol kr. 1.800
(á mann pr. nótt).
Ótrúlegt tilboð - Allra síðustu sætin!
Costa del Sol
15. september
frá kr. 29.990
Heildarfjöldi umsókna um
lán hjá LÍN vegna náms er-
lendis var árið
2009-2010
6.015
2008-’09
7.376
2007-’08
7.041
2006-’07
7.107