Morgunblaðið - 09.09.2009, Page 15
Daglegt líf 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2009
Í DAG, 9. SEPTEMBER, er alþjóð-
legur dagur þar sem vakin er sérstök
athygli á fósturskaða af völdum
áfengis (FASD-dagurinn). En af
hverju dagurinn í dag? Það er til þess
að undirstrika mikilvægi þess að
barnshafandi konur neyti ekki áfeng-
is þá 9 mánuði sem meðgangan
stendur yfir.
Áhrif áfengis á fóstur hafa verið
rannsökuð umtalsvert og sífellt
kemur betur í ljós hvernig það skað-
ar fóstrið. Áfengisneysla á með-
göngu eykur líkur á fósturláti, fyrir-
burafæðingu og andvana fæðingu.
Áfengisneysla getur haft víðtæk
áhrif; heilkenni fósturskaða af völd-
um áfengis sem kallast FASD – ,,Fe-
tal Alcohol Spectrum Disorders“.
Heilkennið var fyrst greint árið 1973
og er áætlað að 1-2 börn af hverjum
1.000 á heimsvísu fæðist með ein-
kenni. Einkennin eru líkamleg van-
sköpun, vaxtarskerðing og röskun á
starfsemi miðtaugakerfisins. Rann-
sóknir benda til þess að jafnvel lítið
magn áfengis á meðgöngu geti vald-
ið ýmsum taugasálfræðilegum ein-
kennum, sem geta birst sem athygl-
isbrestur, lítill félagsþroski, ofvirkni,
námsörðugleikar og málhamlanir,
en skaðlegu einkennin koma ekki
endilega fram fyrr en barnið kemst á
skólaaldur. Ekki er munur á því
hvort drukkinn er bjór, léttvín eða
sterkara áfengi, vínandinn í öllum
þessum drykkjum hefur sömu áhrif
og getur skaðað fóstrið.
Meðgönguskeið
Ekki er vitað með vissu hversu
mikið magn áfengis er skaðlegt, né á
hvaða skeiði meðgöngunnar fóstrið er
í mestri hættu. Fóstrið er í hættu alla
meðgönguna. Best er að drekka aldr-
ei áfengi á meðgöngunni, og komast
þannig algjörlega hjá þeirri hættu
sem fylgir neyslu áfengis. Þótt kona
hafi neytt áfengis fyrstu vikur með-
göngunnar, áður en hún gerði sér
grein fyrir að hún var með barni, er
ávallt ávinningur af að hætta að
drekka strax. Ávinningur er á öllum
stigum meðgöngunnar og hver áfeng-
islaus dagur gefur barninu betri
möguleika á heilbrigðum þroska.
Ástæða er til að hvetja til aukinnar
meðvitundar og umræðu um skaðleg
áhrif áfengis, ekki síst vegna þess að
rannsóknir sýna að áfengisneysla
kvenna á barneignaaldri fer vaxandi.
Hollráð um heilsuna
Áfengi getur
skaðað fóstur
Í HNOTSKURN
» Jafnvel lítið magn áfengisgetur skaðað fóstrið.
» Ekki er munur á því hvortdrukkinn er bjór, léttvín
eða sterkara áfengi, vínandinn í
öllum drykkjunum hefur sömu
áhrif og getur skaðað fóstrið.
Rafn M. Jónsson verkefnisstjóri áfeng-
is- og vímuvarna, í samvinnu við ljós-
mæður Miðstöðvar mæðraverndar.
Tenglar
Frekari upplýsingar um heilkenni
fósturskaða af völdum áfengis má
m.a. fá hjá Miðstöð mæðravernd-
ar og ljósmæðrum.
www.heilsugaeslan.is/
pages/1940
www.lydheilsustod.is/frettir/
avvr/nr/2845
Reuters
Börn Mikilvægi er að barnshafandi
konur neyti ekki áfengis þá níumán-
uði sem meðgangan stendur yfir.
Til þess að menn geti kallað sighagyrðinga með sanni þurfa
þeir auðvitað að setja saman hátta-
lykil – og það skammlaust. Pétur
Stefánsson smíðaði háttalykil sem
stranglega er bannaður templurum
undir yfirskriftinni „Háttatal hið
nýja“. Hér eru birtar valdar vísur
úr því og byrjað á ferskeyttri,
frumhentri:
Mæða dvínar, lífgast lund,
léttir böli amans.
Hressir vínið hal og sprund
helst til ástargamans.
Þá ferskeytt (víxlhent):
Fátt mig gleður annað en
áfengt vín að drekka.
Úr mér kveður kurr og slen,
kvíða, brýnur, ekka.
Dverghent:
Drengir kveða kátum rómi
kíminn söng,
Aldrei brestur okkar sómi
öls við föng.
Gagaraljóð:
Enn er við mig konan köld,
kergjufull að brúka þras.
Ætla ég því út í kvöld
elskan mín og fá mér glas.
Stafhent:
Enn er mér í anda rótt,
ýmislegt þó geri ljótt.
Enginn finnur í mér beyg
ef að ég á vodkafleyg.
Braghent (samrímað):
Gakktu æ í geði hress um gleðivegi.
Góðir siðir glatast eigi.
Glaðværð vex í sterkum legi.
Afhent:
Gerir Bakkus gjarnan mönnum glaðar
stundir,
líkt og regn sem grænkar grundir.
Stúfhent:
Mína ævi, meðan sól og máni skín,
mun ég bergja brennivín.
VÍSNAHORN pebl@mbl.is
Af áfengu háttatali
Á laugardag nk. standa verslanirnar
Barnavörur, ISbambus, Kindaknús,
Krútt, Montrassar, Snilldarbörn,
Tamezonline og Þumallína fyrir tau-
bleiumarkaði í versluninni Maður lif-
andi við Borgartún kl. 11-17. Sams-
konar markaður var haldinn í
síðasta mánuði og mæltist mjög vel
fyrir og var því ákveðið að end-
urtaka leikinn.
Hvert barn notar að meðaltali um
6.000 bréfbleiur á bleiutímabilinu.
Notkun taubleia er því góð fyrir um-
hverfið auk þess að spara heim-
ilunum veruleg útgjöld.
Taubleiumarkaður
Skipta máli Taubleiur er góðar fyr-
ir umhverfið og budduna.