Morgunblaðið - 09.09.2009, Qupperneq 21
Minningar 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2009
Hólmfríði og fjölskyldunni allri okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Erla Ólafsson og Þórir S. Gröndal.
Mikill öðlingur er í dag kært kvadd-
ur og honum þökkuð leiðsögnin að
lokinni vegferð. Gæfumaður í þess
orðs fyllsta skilningi, farsæll í lífi og
starfi, alls staðar til sóma heima og
heiman.
Ingvi S. Ingvarsson fyrrverandi
sendiherra og ráðuneytisstjóri utan-
ríkisráðuneytisins vann þjóð sinni af
alúð á nær fjögurra áratuga löngum
ferli í utanríkisþjónustunni. Sam-
starfsmennirnir voru orðnir fjölmarg-
ir þegar upp var staðið og allir sem
einn litu á árin með Ingva sem gæfuár
í sínu lífi. Ingvi var vel menntaður og
glöggur embættismaður, en skemmti-
legast af öllu var að skyggnast á
manninn á bak við metorðin, per-
sónuna sem varpaði ljóma á embætt-
in. Það var galdri líkast að sjá hve allt
var í öruggum höndum hjá Ingva og
hvernig hann virkjaði samstarfsfólkið
til góðra verka. Einhvern veginn
gerðist það eins og hendi væri veifað
að allt féll í ljúfa löð þar sem hann kom
að verki og honum tókst að hámarka
afköstin um leið og hann lét sér afar
annt um samstarfsfólkið og vellíðan
þess. Ég stríddi honum stundum á því
að hann væri eins og Gromyko gamli,
utanríkisráðherra Sovétríkjanna til
margra ára, en um hann var sagt að
hann gengi milli regndropanna. Það
er nær sanni að segja um Ingva að
hann hafi spennt upp ósýnilega regn-
hlíf og látið dropana falla á hana en
ekki sig.
Ingvi var glæsilegur maður, mér
fannst hann líkastur kvikmynda-
stjörnu úr svarthvítu myndunum, há-
vaxinn, myndarlegur og laglegur.
Ekki spillti fremur alvarlegt yfir-
bragð, þó stutt væri í kímnina og það
að hann tók hverjum og einum sem
raunverulegum jafningja og tranaði
sér hvergi fram. Hann var að mörgu
leyti á undan sinni samtíð hvað lífsstíl
varðaði, því hann þaulskipulagði frí-
tímann og fann sér ný viðfangsefni í
hverju spori. Í Stokkhólmi stóð sendi-
herrabústaðurinn á sjávarlóð og ekki
var Ingvi fyrr kominn þangað en hann
gerði sér lítið fyrir og byggði þar höfn,
lærði að sigla skútu, keypti sér bát og
sigldi svo sæll og glaður með Hólm-
fríði konu sinni og dótturinn Bergljótu
um skerjagarðinn fagra.
Í Kaupmannahöfn stóð stærðarinn-
ar húsbíll á lóð bústaðarins. Fjöl-
skyldan lagðist í ferðalög um hina
lágu Danmörku, en Hólmfríður sagði
seinna að þeim hefði ekki fundist að
þau gætu lifað og starfað í landi með
því að þekkja bara höfuðborgina.
Heimkominn tók Ingvi sig til og
veiddi í soðið, alltaf tókst honum að
standa í stafni og gera lífið skemmti-
legt.
Eftirlifandi eiginkona Ingva, Hólm-
fríður G. Jónsdóttir, sér nú á bak
æskuástinni sinni, besta vini sínum og
lífsförunauti á langri lífsins göngu.
Þessi fallega, greinda kona tók virkan
þátt í störfum manns síns í 63 ár og
var jafnræði með þeim hjónum og
gagnkvæm, djúp virðing. Það var ekki
bara gaman að vera með þeim, heldur
gefandi og lærdómsríkt. Saman sköp-
uðu þau andrúmsloft trausts og trú-
verðugleika hvar sem þau komu. Þau
nutu ævikvöldsins saman hér heima
og litu sátt til baka yfir farinn veg.
Síðasta ferðin hans Ingva var farin í
sumar í faðmi fjölskyldunnar sinnar,
þess kærasta sem hann átti. Það var
vel við hæfi og í anda mannsins að
vera í faðmi fjölskyldunnar í sinni síð-
ustu ferð, umvafinn dýrgripunum sín-
um, eiginkonu, dóttur og barnabörn-
um og sjá Snæfellsjökul í síðasta sinni.
Ingvi veiktist skömmu eftir heim-
komu og lést nokkrum vikum síðar
eftir skamma sjúkdómslegu.
Við sem eftir lifum þökkum vel-
gjörðarmanni okkar samfylgdina.
Hann lifir í hjörtum okkar og er og
verður klassísk fyrirmynd hins góða
diplómats sem vinnur þjóð sinni mikið
gagn.
Sigríður Á. Snævarr, sendiherra
Ég man greinilega þegar ég hitti
Ingva fyrst í Menntaskólanum á Ak-
ureyri fyrir hartnær 70 árum. Hann
vakti alls staðar athygli. Óvenju há-
vaxinn, fríður sýnum og föngulegur.
Það var eitthvað í fasi hans, sem skap-
aði traust og heilindi. Ingvi var ágæt-
ur námsmaður og hvers manns hug-
ljúfi. Hann valdist því til forystu fyrir
okkur bekkjarsystkinunum og var
valinn umsjónarmaður skólans í
sjötta bekk.
Ingvi kvæntist árið 1946 Hólmfríði
Guðlaugu Jónsdóttur, hinni ágætustu
konu. Dóttir þeirra er Bergljót Krist-
ín, uppeldisfræðingur og kennari.
Eftir menntaskólaárin skildi leiðir
eins og gengur. Ingvi lagði stund á
viðskiptafræði við Háskóla Íslands,
en lauk hagfræðinámi frá Háskólan-
um í Glasgow 1949 og framhaldsnámi
frá London School of Economics.
Sem ungur maður gegndi Ingvi ýms-
um störfum, en fljótlega réðst hann til
utanríkisþjónustunnar og starfaði þar
síðan allan sinn starfsferil. Gegndi
hann ýmsum þýðingarmestu störfum
þjónustunnar. Var t.d. skrifstofustjóri
í utanríkisráðuneytinu og síðar ráðu-
neytisstjóri, sendiherra og fasta-
fulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum,
sendiherra í mörgum löndum, m.a.
Bandaríkjunum. Allt þetta sýndi
hvers trausts og virðingar hann naut.
Seinustu árin höfum við bekkjar-
systkinin frá MA, sem útskrifuðumst
vorið 1945, hist reglulega. Ingvi hafði
forystu um þetta og lét sér einkar
annt um að rækja forna vináttu. Nú
þegar hann fellur skyndilega frá er
hans sárlega saknað. Það er vissulega
stórt skarð höggvið í bekksögnina, en
lífið heldur áfram og við þökkum for-
sjóninni fyrir að hafa átt langa og frá-
bæra samleið með höfðinglegum
sómamanni.
Við sendum Hólmfríði og fjölskyld-
unni innilegar samúðarkveðjur.
Tómas Árnason.
Það var traust og þétt handtak
Ingva S. Ingvarssonar, þáverandi
ráðuneytisstjóra, og úr andlitsdrátt-
um hans mátti vel greina ákveðni, al-
úð og hvatningu, þegar hann bauð
mig velkominn til starfa í utanríkis-
þjónustunni á vordögum 1983. Þess-
ara eiginleika hans fékk ég notið æ
síðan sem og úr nægtabrunni ráða
hans og hlýju. Svipaða sögu hefur það
starfsfólk utanríkisþjónustunnar sem
naut samferðar hans að segja. Við
drúpum höfði í miklu þakklæti.
Ingvi átti langan og farsælan
starfsferil í utanríkisþjónustunni allt
frá því þegar hann hóf þar störf árið
1956 og þar til hann kvaddi þann
starfsvettvang fyrir aldurs sakir í árs-
lok 1994. Hann gegndi margvíslegum
ábyrgðar- og trúnaðarstörfum heima
og erlendis, sem ráðuneytisstjóri og
sendiherra Íslands í New York,
Stokkhólmi, Washington, D.C. og
Kaupmannahöfn. Í öllum sínum störf-
um ávann hann sér einstakt traust og
orðsporið var ávallt á sömu nótum og
getið er hér að framan. Ingvi lagði
mikla rækt við hvaðeina sem hann tók
sér fyrir hendur, menn og málefni, og
í löngum og tíðum störfum sínum sem
yfirmaður varð hann í senn vinur og
samherji undirmanna sinna. Hann
var opinskár og ákveðinn en lagði allt-
af áherslu á að sjónarmið annarra
nytu sín. Með þessum hætti varð ein-
att málefnalega tekið á hlutum og
allrar sanngirni gætti í niðurstöðum.
Þannig náði hann árangri í eigin
störfum og þeirra sem störfuðu með
honum og aldrei stóð á hvatningu
hans og aðstoð í ólíklegustu málum,
oftar en ekki erfiðum. Engum duldist
að Ingva var sérstaklega umhugað
um velferð samstarfsfólks síns og í öll
skipti eftir að leiðir okkar á starfs-
vettvangi skildi og fundum okkar bar
saman spurði hann fyrst um hagi
mína og minna.
Ekki er unnt að minnast Ingva S.
Ingvarssonar án þess að geta eigin-
konu hans og lífsförunautar um rúm-
lega sex áratuga skeið, Hólmfríðar G.
Jónsdóttur. Í samheldni sinni og
stuðningi hvort við annað voru þau
hjón einstaklega öflugir fulltrúar Ís-
lands og mikill sómi fór af. Á sama
hátt og Ingvi var Hólmfríður alltaf
reiðubúin með ráð og stuðning til
hverra þeirra sem til hennar leituðu.
Þannig varð hún sterkur og ómiss-
andi hlekkur í starfssveit utanríkis-
þjónustunnar.
Um leið og við yljum okkur við hlýj-
ar minningar kveðjum við drengskap-
armann, náinn samstarfsmann og vin
með dýpsta þakklæti og virðingu og
biðjum góðan Guð að styrkja Hólm-
fríði, dótturina Bergljótu og fjöl-
skyldu, og biðjum hann að blessa
minningu Ingva S. Ingvarssonar.
Benedikt Jónsson,
ráðuneytisstjóri.
Fleiri minningargreinar um Ingva
S. Ingvarsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir og systir,
JÓNÍNA HELGA GÍSLADÓTTIR,
Strikinu 12,
Garðabæ,
lést í Holtsbúð Garðabæ mánudaginn 31. ágúst.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju fimmtudaginn
10. september kl. 15.00.
Torfi Jónsson,
Guðrún Inga Torfadóttir,
Sigrún Gerða Gísladóttir,
Páll Leifur Gíslason.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ALIDA OLSEN JÓNSDÓTTIR,
Hafnarfirði,
lést á heimili sínu mánudaginn 31. ágúst.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstu-
daginn 11. september kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarstofnanir.
Ómar Kjartansson, Ragnheiður Blöndal,
Súsanna Kjartansdóttir, Jakob Halldórsson,
Kjartan Kjartansson, Ásta Lára Sigurðardóttir,
Sigríður Kjartansdóttir,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför okkar ástkæru móður, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
JÓNÍNU ÁGÚSTSDÓTTUR,
áður Dalbraut 18,
Reykjavík.
Ragnhildur Ásmundsdóttir, Árni Arnþórsson,
Óskar Már Ásmundsson,
Þráinn Ásmundsson, Guðbjörg Árnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
INGIBJÖRG HALLGRÍMSDÓTTIR,
Hólavegi 26,
sem andaðist á Heilbrigðisstofnun Skagfirðinga
miðvikudaginn 2. september, verður jarðsungin frá
Sauðárkrókskirkju föstudaginn 11. september
kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlega bent á Heilbrigðisstofnun
Skagfirðinga.
Esther H. Skaftadóttir,
Sigríður Skaftadóttir,
Anna Skaftadóttir, Birgir Sigurðsson,
Margrét Skaftadóttir, Haukur Matthíasson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær sonur minn,
ARI GUNNAR ÁSGRÍMSSON,
Hátúni 10,
Reykjavík,
lést á Kumbaravogi þriðjudaginn 1. september.
Útförin fer fram í kyrrþey.
Fyrir hönd aðstandenda,
Bára Sigríksdóttir.
✝
Okkar ástkæri sambýlismaður, faðir, sonur, bróðir,
mágur og frændi,
KJARTAN KÁRI FRIÐÞJÓFSSON,
búsettur í Osló,
sem lést föstudaginn 14. ágúst, var jarðsettur í
Osló föstudaginn 4. september.
Minningarathöfn verður haldin í Fossvogskapellu
fimmtudaginn 10. september kl. 15.00.
Aroon Kirakiat,
Kristin Helene Kjartansdóttir Bergtun,
Kjetil Andreas Kjartansson Bergtun,
Friðþjófur Max Karlsson, Ásdís Jónasdóttir,
Ástríður S. Valbjörnsdóttir, Árni Ingi Garðarsson,
Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir, Jóhann H. Ragnarsson,
Jónas G. Friðþjófsson,
Sigurður Andri Sigvaldason,
Elín Bríta Sigvaldadóttir,
Birta Marlen Lamm,
Maximilian Klimko.
✝
Ástkær móðir, tengdamóðir, systir og amma,
ELSE ÞORKELSSON,
Funafold 48,
Reykjavík,
sem lést miðvikudaginn 2. september, verður
jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn
11. september kl. 13.00.
Björn Sigurðsson,
Einar Sigurðsson, Sigrún Guðmundsdóttir,
Pétur Sigurðsson, Jóhanna Ólafsdóttir,
Elna Rathje
og ömmubörn.