Morgunblaðið - 09.09.2009, Page 28
28 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2009
Fólk
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
SPENNUTRYLLIRINN Reykjavík Whale
Watching Massacre hefur verið valinn inn á
Screamfest-hrollvekjuhátíðina sem haldin verð-
ur í Hollywood í Bandaríkjunum, dagana 16. til
25. október næstkomandi. Hátíðin, sem er haldin
árlega, er mest sótta hrollvekjuhátíðin vestan-
hafs, og hefur meðal annars verið kölluð Sun-
dance-hátíð hrollvekjanna. Að sögn Ingvars
Þórðarsonar, framleiðanda myndarinnar, er
þetta mikið tækifæri fyrir hana, enda ekki sjálf-
sagt mál að komast á hátíðina. Þangað komi
mikill fjöldi fólks sem vilji kaupa réttinn til að
sýna hrollvekjur um allan heim og því óskandi
að RWWM veki athygli. En þótt áhugi sé á mynd-
inni erlendis var aðsókn að henni hér á landi
nokkuð dræm um helgina, rétt rúmlega 2.000
manns sáu hana þessa fyrstu sýningarhelgi. Til
samanburðar sáu rúmlega 6.600 manns teikni-
myndina Up á sama tíma. „Það segir sig sjálft að
auðvitað vill maður alltaf meiri aðsókn. En
myndin heldur sér vel, það var til dæmis jafngóð
aðsókn í gær [á mánudag] og á laugardaginn,“
segir Ingvar. Þá hefur vakið athygli að myndin
hefur hlotið fremur slæma dóma, tvær stjörnur í
Fréttablaðinu, eina og hálfa í DV og tvær og
hálfa hér í Morgunblaðinu. „Ég vil ekkert vera
að bauna á gagnrýnendur en þetta sýnir mikla
vanþekkingu á þessari tegund kvikmynda. Það
sem þeir virðast ekki fatta er að Sjón gerir grín
að öllum svona myndum. En auðvitað hafa menn
rétt á sínum skoðunum,“ segir Ingvar að lokum.
Fara á mest sóttu hrollvekjuhátíð Bandaríkjanna
Blóðugt Slær RWWM í gegn vestanhafs?
Mikið hefur verið ritað og rætt á
erlendum tískusíðum um Iceland
Fashion Week sem fram fór í
Reykjanesbæ um síðustu helgi.
Fjölmargir hönnuðir hættu við að
taka þátt í sýningunni þar sem þeir
töldu aðbúnað afar slæman, og
fluttu sýninguna yfir á Nasa.
Á vefsíðunni Techfluff.tv segir
meðal annars: „Hönnuðirnir töldu
að sýningarpallurinn, sem var sett-
ur saman úr brettum með vatni frá
styrktaraðilanum Icelandic Glacial
water, væri ljótur og myndi
skemma fyrir hönnuninni og gera
allar ljósmyndir ljótar,“ segir með-
al annars á síðunni. Einn hönnuður-
inn hafi svo lýst því sem svo að það
að taka þátt í sýningunni hefði ver-
ið eins og að borða kavíar upp úr
klósettskál. Einn rúmenskur hönn-
uður hafi þó ákveðið að taka þátt í
sýningunni, auk þriggja íslenskra.
Einn hönnuðanna sem hættu við,
Lizzy Peters, skrifar langa skýrslu
á bloggsíðu sína og segir hún farir
sínar alls ekki sléttar. Sjá má færsl-
una á lizzypeters.nl/blog.
Að borða kavíar
upp úr klósettskál
Að vera með Facebook-síðu er
upphaf og endir alls hjá Íslend-
ingum, í dag er tilvera þín í veröld-
inni ekki staðfest nema þú sért á
Facebook, þá ertu fyrst fædd/ur.
Því hefur einhver aðdáandi stór-
söngvarans Geirs Ólafssonar fund-
ið sig knúinn til að koma karlinum á
Facebook að honum forspurðum,
svona til að láta vita að hann er til.
Aðdáendur virðast hafa verið fegn-
ir að sjá hann á Facebook því hann
á þegar 554 vini. Þeir hljóta samt að
hafa orðið fyrir vonbrigðum því lít-
ið er upp úr vinskap við Geir að
hafa; tvær myndir og tónleika-
tilkynning síðan í desember 2008.
Geir „hinn eini sanni“ Ólafsson
hefur því látið það orð berast að
hann sé ekki með Facebook-síðu og
sú sem er til staðar sé búin til af
óprúttnum náunga úti í bæ í hans
nafni.
Lítið upp úr vinskap
við Geir Ólafs að hafa
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
Í KJÖLFAR bankahrunsins síðast-
liðið haust bárust fréttir af því að
Ian Anderson, leiðtogi Jethro Tull,
vildi halda hér einskonar samstöðu-
tónleika með íslensku þjóðinni.
Landinn tók því vel, eins og sést
meðal annars af því að þegar varð
uppselt á tvenna tónleika Andersons
og félaga í Háskólabíói 11. og 12.
september næstkomandi.
Ian Anderson er ekki að koma
hingað í fyrsta sinn og hann hefur
komið oftar en Jethro Tull; hann
eyddi hluta úr sumarfríi sínu á Ís-
landi á síðasta ári, enda segist hann
kunna einkar vel við sig hér.
„Þegar kreppan skall síðan á af
fullum þunga langaði mig að sýna Ís-
lendingum vinahót og nota líka tæki-
færið og skreppa í stutta heimsókn,
en ég er einmitt að skipta um hlut-
verk núna, ef svo má segja, var að
ljúka löngum Jethro Tull-túr og er
að gíra mig upp í sólóferð um Bret-
land og Bandaríkin.“
Að þessu sögðu þá leggur And-
erson áherslu á að hann sé alls ekki
að fara að halda einhverja líknar-
tónleika og þaðan af síður að hann sé
að sýna einhverja meðaumkvun:
„Ég er ekki þannig, ég er bölvaður
þrjótur og nískupúki og vil alls ekki
að menn haldi að ég sé eitthvert
gæðablóð,“ segir hann með þunga og
ég sé fyrir mér ygglibrúnina, en
reyndar spillir hann heldur stemn-
ingunni með því að skella upp úr.
Eins og Anderson nefnir er hann
nú að gera sig kláran fyrir tónleika-
ferð um Bandaríkin og Bretland og
er að æfa upp hljómsveit sem spila
mun með honum í þeirri ferð, en til
stendur að leika talsvert af nýrri
tónlist í ferðinni. Hann ætlar þó ekki
að bjóða upp á það prógramm hér á
landi. „Ég spila þau lög sem fólk
langar til að heyra,“ segir hann og
bætir svo við glaðbeittur: „Ég nota
örugglega hljóðprufurnar fyrir tón-
leikana til að æfa nýju lögin, svo þeir
sem vilja heyra eitthvað nýtt verða
að mæta á þær.“
Dísa treður upp
Það ber til nýjunga á þessum tón-
leikum að tónlistarkonan Bryndís
Jakobsdóttir, Dísa, mun troða upp
með Anderson og félögum, syngja
með honum í einhverjum lögum, en
einnig hyggst hann taka lög eftir
hana. Hann lýsir því svo að hann hafi
langað að kynnast nánar íslenskri
tónlist og þá sé ekkert betra en að
vinna með íslenskum tónlistar-
mönnum.
„Ég fór á YouTube og leitaði að ís-
lenskri tónlist og þar fann ég Dísu.
Mér fannst það reyndar merkilegt
að íslenskir strákar virðast allir vera
að spila þungarokk, en stelpurnar
eru að gera mun forvitnilegri hluti
fyrir minn smekk, þær eru til-
raunaglaðari og ævintýragjarnari.
Vonandi á Dísa eftir að læra eitthvað
af því að troða upp með gömlum rör-
um eins og okkur, en ég á örugglega
eftir að læra sitthvað af að spila með
henni.“
Ég er ekkert gæðablóð
Ian Anderson heldur tvenna tónleika í Háskólabíói Hyggst flytja
lög eftir Dísu með henni Langaði að sýna Íslendingum vinahót
Íslandsvinur Ian Anderson er enginn mannvinur að eigin sögn, en hann
safnar þó fé fyrir Vildarbörn og Fjölskylduhjálp Íslands.
INNSETNING listakonunnar
Hrafnhildar Arnardóttur í glugga
Macy’s á 34th Street við Broadway í
New York verður afhjúpuð á morgun.
„Innsetningin mín heitir „Then they
arrived at glacial speed“. Hún er búin
til úr skúlptúrum eftir mig sem heita
„Hairy Moon“ og „White Wedding“
og svo er ég með veggfóður allan
hringinn á bakvið. Þetta er stillimynd
en tunglið snýst og fólk á að hugsa
um á hvaða hraða það er sjálft, ég er
að búa til útópískan draumaflótta,“
segir hún um verkið. Macy’s er önnur
mesta stórverslun heims og er Hrafn-
hildur með einn af stærri gluggunum
á 34th Street sem mörgþúsund
manns ganga framhjá á hverjum
degi. „Það er fullt af fólki sem fer
framhjá þessum glugga og með því að
vera hér nær maður til þeirra sem
maður næði annars ekki til.“
Innsetningin verður uppi til 27.
september og er hluti af árlegri hátíð
Macy’s, Art Under Glass, í samstarfi
við Alliance Francais. Ásamt Hrafn-
hildi sýna tíu franskir og amerískir
listamenn í Macy’s. ingveldur@mbl.is
Útópískur
draumaflótti
White Wedding Postulínshestur, skreyttur hvítum fléttum, á að túlka drauminn um fullkomleika.
Hrafnhildur Arnardóttir er með inn-
setningu í glugga Macy’s í New York
Eins og fram kemur hér til hlið-
ar segist Ian Anderson vera
bölvaður þrjótur og nískupúki
og að heimsókn hans hingað til
lands sé fyrst og fremst honum
sjálfum til skemmtunar.
Rétt er þó að halda því til
haga að allur ágóði af tónleik-
unum í Háskólabíói í næstu viku
rennur til fjölskyldna Vild-
arbarna og Fjölskylduhjálpar Ís-
lands að hans ósk. Gera má ráð
fyrir að nokkuð muni safnast í
ljósi þess að þræluppselt er á
hvora tveggju tónleikana.
Örlátur nískupúki