Morgunblaðið - 09.09.2009, Qupperneq 35
Menning 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2009
SÖNGKONAN Kylie Minogue stefnir að því að halda tvöfalt brúð-
kaup með systur sinni Dannii Minogue. Kylie, sem er með spænsku
fyrirsætunni Andres Velencoso, vill deila þessari stóru stund með
systur sinni í heimabæ þeirra, Melbourne í Ástralíu.
„Stelpurnar hafa grínast með það lengi að fara í kapphlaup upp
að altarinu og núna virðist það ætla að verða að veruleika.
Dannii hefur sagt vinum sínum að hana hafi alltaf dreymt um að
hafa tvöfalt brúðkaup með eldri systur sinni og þetta er í fyrsta
skipti sem systurnar hafa báðar verið í hamingjusömum sam-
böndum á sama tíma,“ segir í breska Look-tímaritinu.
Dannii á í sambandi við rúgbí-stjörnuna sem varð að fyrirsætu,
Kris Smith. Þegar hefur sést til hennar skoða brúðarkjóla en hún
mun vera hrifin að ástralska hönnuðinum Collette Dinnigan meðan
Kylie vill gamlan kjól eða kjól eftir hönnuðinn Matthew Williamson.
Hvað sem því líður er ljóst að systurnar verða huggulegar við alt-
arið og ljóst að ofansögðu að karlarnir eru líka mikið augnayndi.
Tvöfalt brúðkaup?
Dannii Minogue
TVEIR sjóðheitir, ungir leikarar
munu vera að draga sig saman sam-
kvæmt slúðurmiðlum. Leikkonan
Evan Rachel Wood er sögð eiga í
ástarsambandi við mótleikara sinn í
sjónvarpsþáttunum True Blood, Al-
exander Skarsgard.
Wood mun vera svo hrifin af
Skarsgard að hún flaug til hans á
tökustað til að geta eytt tíma með
honum.
„Evan Rachel Wood og Alexand-
er Skarsgard eru kannski par. Vin-
ur minn vinnur á tökustað mynd-
arinnar Straw Dogs sem Alexander
og Kate Bosworth leika í í Loui-
siana.
Wood flaug á staðinn á föstudag-
inn síðasta til að vera með Alexand-
er en þau hafa verið að hanga sam-
an síðan þau hittust við tökur á
True Blood. Það heyrðist til hans
tala um að eyða tíma með Wood og
hann virtist mjög spenntur fyrir
því,“ sagði einn um sambandið á
Perez Hilton-slúðurvefnum.
Einnig sást til þeirra á bæj-
arhátíð í Louisiana þar sem Wood
tók myndir með einnota myndavél.
Samband þeirra mun hafa verið að
þróast í laumi í nokkurn tíma.
Skarsgard er sagður næsta kynt-
röll Hollywood. Hann var líka ný-
lega tengdur við mótleikkonu sína í
Straw Dogs, Willan Holland. Hann
er 33 ára en Wood er 22 ára.
Ung, sjóð-
heit og
ástfangin
Alexander
Skarsgard
Evan Rachel
Wood
TÓNLEIKAR til heiðurs John
Lennon fara fram á Nasa í kvöld.
Einvalalið söngvara og hljóðfæra-
leikara stígur á svið og verða tón-
leikarnir tvískiptir. Lennonlög frá
Bítlaárunum 1963-1969 og eftir hlé
verða flutt Lennonlög frá New
York-tímabilinu 1970-1980.
Níu söngvarar koma fram:
Björgvin Halldórs, Daníel Ágúst,
Egill Ólafs, Haukur Heiðar jr.,
Helgi Björns, Ingó, Jóhann Helga,
Krummi og Stefán Hilmars. Í band-
inu verða Magnús Kjartansson á
hljómborð, Villi Guðjóns og Jón
Elvar Hafsteins á gítara, Jón Ólafs-
son á bassa og Ásgeir Óskarsson á
trommur. Kynnir á tónleikunum
verður Ólafur Páll Gunnarsson.
Tónleikarnir hefjast kl. 21. Miða-
verð er 2.900 kr. Forsala miða fer
fram á midi.is.
John Lennon Verður á Nasa í
kvöld...í anda að minnsta kosti.
Til heiðurs
Lennon í
kvöld
Kylie Minogue
Reuters