Morgunblaðið - 12.09.2009, Side 2

Morgunblaðið - 12.09.2009, Side 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2009 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is 18% ALLRA Ís- lendinga yfir fer- tugt eru með langvinna lungnateppu (LLT). Þetta kom fram í erindi sem Karl Andersen, sérfræðingur í lungnasjúkdóm- um, hélt á Tóbaksvarnaþingi. 9% fólks yfir fertugt eru með verulega skerðingu. Rannsóknir á dauðs- föllum árið 2007 leiddu í ljós að hægt er að rekja 95% dauðsfalla Ís- lendinga til þessa sjúkdóms. Karl sagði að sjúkdómurinn hefði mikil áhrif á asmasjúklinga. Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is TÓBAKSVARNAÞING Lækna- félags Íslands samþykkti í gær ályktun þar sem lagt er til að nikótín og tóbak verði skilgreint sem ávana- og fíkniefni. Þingið lagði til að sölu tóbaks yrði hætt í matvöruversl- unum og bensínstöðvum fyrir árslok 2010 og hætt yrði að selja það í sölu- turnum árið 2012. Þingið vill að Ísland marki þá stefnu að verða fyrsta landið í heim- inum til að taka tóbak úr almennri sölu. Magnús Jóhannsson, læknir og prófessor, sagði á þinginu að öll rök hnigju að því að skilgreina nikótín sem ávana- og fíkniefni. Notendur væri afar háðir efninu, þeir mynd- uðu þol gegn efninu, reykingamönn- um reyndist erfitt að hætta og reyk- ingar leiddu til ótímabærs dauða fjölda manns. Tóbaksvarnaþingið ályktaði að það væri ólíðandi að daglega ánetj- uðust 2-3 ungmenni nikótíni hér- lendis. Aðgerðirnar ættu ekki síst að beinast að því að minnka nýliðun reykingamanna. Samfélagslegur kostnaður við reykingar hefur verið metinn um 30 milljarðar. Stefán Þorvaldsson hjartalæknir benti á að ef gera ætti þá kröfu að reykingamenn borguðu sjálfir fyrir kostnaðinn sem stafaði af reykingum þyrfti verð á sígarettupakka að fara úr 800 kr. í um 3.000 krónur. Þingið samþykkti ályktun þar sem segir að stefnt skuli að því að útsöluverð á tóbaki standi undir samfélagskostnaði við neyslu þess. Tóbak verði skilgreint fíkniefni Læknar vilja að Ísland verði fyrst landa til að taka tóbak úr almennri sölu Morgunblaðið/RAX Tóbaksvarnaþing Telur ólíðandi að daglega ánetjist 2-3 ungmenni nikótíni. MIKIÐ úrhelli var víða á Suðurlandi í gær. Í Mýrdal rauf áin Klifandi skörð í varnargarð og veg upp í Fellsmörk vegna vatnavaxta. Nokkrir bílar voru í sumarhúsa- byggð í Fellsmörk og voru þeir sem þar dvelja því tepptir, að sögn Jón- asar Erlendssonar í Fagradal. Ófært varð yfir Krossá á leiðinni inn í Þórsmörk en einnig var mikill vöxtur í öðrum ám á því svæði. Ragnheiður Hauksdóttir, staðar- haldari í Húsadal, sagði að lækir væru þar orðnir að stórfljótum. Varar lögreglan á Hvolsvelli veg- farendur, sem ætla að leggja á há- lendisleiðir um helgina, við færð á svæðinu og hvetur fólk til að athuga með færð áður en lagt er af stað. Ljósmynd/Jónas Erlendsson Flóð Kindur komust í sjálfheldu þegar ár flæddu yfir bakka sína. Vatnavext- ir miklir á Suðurlandi Vegir og varnar- garðar rofnuðu DUGLEGA rigndi á þessa litríku ungfrú í mið- bænum í gær, eins og svo marga Íslendinga, þótt hún hafi reyndar skýlt sér með þar til gerðri regnhlíf. Fleiri Íslendingar mættu að ósekju nýta sér það ágæta þarfaþing. Haustlægðirnar byrja nú að ganga ein af ann- arri yfir landið. Veðurstofan varaði í gærkvöldi við stormi suðaustanlands og á annesjum en það veður gekk hratt niður í nótt og olli litlum sem engum vandræðum. Þótt ekki sé enn mikil hætta á ferðum vegna vatnavaxta er sjálfsagt að hafa það í huga á haustin hvort niðurföll eru opin og þakrennur í lagi. Ekki skiptir öllu máli hve mikið vatn fellur til jarðar, ef það á greiða leið til sjávar. Regnhlífar og hlý föt sigrast á rigningunni Morgunblaðið/Ómar Haustið bankar upp á í dvínandi dagsbirtu 18% fólks 40 ára og eldri eru með lang- vinna lungateppu LÖGREGLAN í Borgarnesi hand- tók í gær þrjá Litháa eftir að starfs- fólk Hagkaupa í bænum hafði sam- band og gaf upp bílnúmer þeirra. Starfsfólkinu þótti mennirnir grun- samlegir og reyndist grunur þess á rökum reistur. Mennirnir reyndust vera með sérstakan búnað til að komast út úr verslunum með varning án þess að þess yrði vart. Í fórum þeirra fannst einnig þýfi sem þeir gátu ekki gert grein fyrir. Þar að auki reyndist í bílnum stolið GPS-staðsetningartæki en í það höfðu mennirnir skráð heimil- isföng ýmissa verslana víðs vegar um landið. Keyrðu á milli og stálu Eftir Þröst Emilsson og Önund Pál Ragnarsson TÖLUVERÐ uppstokkun er fyr- irhuguð í utanríkisþjónustunni á næstu mánuðum. Benedikt Jónsson, sem verið hefur ráðuneytisstjóri í utanrík- isráðuneytinu, tekur við sendi- herrastöðu í London 1. október næstkomandi, samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins. Sá fyrirvari er þó hafður á að enn á eftir að fá staðfestingu frá yfirvöldum þar í landi á að af stöðuveitingunni geti orðið, eins og venja er í alþjóða- samskiptum. Benedikt á að baki víðtæka reynslu í utanríkisþjónustunni en áður en hann tók við embætti ráðuneytisstjóra var hann m.a. sendiherra Íslands í Moskvu og fastafulltrúi og sendiherra hjá al- þjóðastofnunum í Genf. Nýr ráðuneytisstjóri utanríkis- ráðuneytisins í stað Benedikts verður Einar Gunnarsson en hann hefur undanfarin ár gegnt ábyrgð- arstöðum í utanríkisþjónustunni, á aðalskrifstofu og sendiskrifstof- unum í Brussel og Genf. Var Einar m.a. starfsmannastjóri og síðast skrifstofustjóri yfir viðskiptasamn- ingum. Sverrir Haukur Gunnlaugsson, núverandi sendiherra í London, fer í aðra stöðu hjá utanríkisþjónust- unni 1. október. Fleiri sendiherrum verður skák- að til innan utanríkisþjónustunnar fram til áramóta. Breytingarnar tengjast samkvæmt heimildum Morgunblaðsins undirbúningi að- ildarviðræðna Íslands um ESB. Þá munu samkvæmt heimildum að minnsta kosti sex sendiherrar hverfa úr utanríkisþjónustunni á næstu 12 mánuðum. Ekki mun þó ætlunin að skipa nýja sendiherra, enda margir sendiherrar fyrir án sendiráða. Tilfærslur hjá Össuri  Talsverð uppstokkun er á döfinni í utanríkisþjónustunni  Ráðuneytisstjóri verður sendiherra Íslands í London BÆJARSTJÓRN í Garði ákvað í gær að hafna beiðni lóðareig- enda um að bær- inn keypti aftur af þeim lóð, með öllu sem á henni er, það er að segja húsgrunni og sökkli. Lóðin sem um ræðir er í nýju hverfi með tugum lóða, en þetta er sú eina þar sem eigendur eru farnir af stað með framkvæmdir, að sögn Ásmundar Friðrikssonar bæjarstjóra. Bæjar- stjórn hafnaði beiðninni til þess að forðast að skapa fordæmi, enda fleiri lóðir í bænum sem eins er ástatt um. onundur@mbl.is Garður kaupir ekki lóð með húsgrunni til baka af eiganda Grunnur Víða eru hús hálfbyggð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.