Morgunblaðið - 12.09.2009, Page 8

Morgunblaðið - 12.09.2009, Page 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2009 FJÓRTÁN prestar sóttu um emb- ætti sóknarprests í Kársnespresta- kalli. Embættið veitist frá 1. októ- ber, en séra Ægir Fr. Sigurgeirsson lætur nú af starfi fyrir aldurs sakir. Umsækjendur eru: Ása Björk Ólafsdóttir, Eiríkur Jóhannsson, Guðrún Karlsdóttir, Gunnar Rúnar Matthíasson, Hólmgrímur Elís Bragason, Kjartan Jónsson, Magn- ús Erlingsson, Sigfús Kristjánsson, Sigrún Óskarsdóttir, Sigurður Arn- arson, Sigurður Rúnar Ragnarsson, Yrsa Þórðardóttir, Þorvaldur Víð- isson og Þórhildur Ólafs. aij@mbl.is Fjórtán sækja um Kársnes Morgunblaðið/ÞÖK Eyjar Upptökumannvirki í Vestmannaeyjum eru talin mikilvæg en þau eiga að geta ráðið við togskip og stærri báta sem gerðir eru út frá Eyjum. Eftir Sigurð Boga Sævarsson sbs@mbl.is SKÝRAST mun í næstu viku hvort útgerðar- og iðnaðarfyrirtæki í Vest- mannaeyjum komi að endur- byggingu á upptökumannvirkjum hafnarinnar þar. Bæjaryfirvöld hafa samþykkt að hefjast handa um fram- kvæmdir, enda telja þau mikilvægt að góð upptökumannvirki séu til staðar fyrir viðhald Eyjaflotans. Verkefnið verður fjármagnað af hafnarsjóði. „Sjóðurinn stendur vel og getur tekist á við stærri verkefni. Fyrir þær 300 milljónir króna, sem við höfum eyrnamerkt þessu verk- efni, værum við komin með ágæt upptökumannvirki sem gætu lyft allt að 1.200 tonna skipum, þá til dæmis togskipum og minni bátum,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Eyj- um. Skipalyftan í Eyjum hrundi og skemmdist mikið 2006. Strax í kjöl- farið hófust bollaleggingar um end- urbyggingu. Leituðu Eyjamenn til ríkis um stuðning sem reyndist ekki mögulegur vegna samkeppnissjónar- miða og EES-reglna. „Evrópureglur stóðu í vegi fyrir þátttöku ríksins. Við verðum því að takast á við verkefnið með eigin kröftum og hafnarsjóður ræður við aukna skuldsetningu með stuðningi bæjarins,“ segir Elliði sem segir Evrópureglur ekki hindra að- komu hafnarsjóðs að verkefninu. Gæti tekið upp flest skip Ýmsir möguleikar eru í stöðunni um hvernig staðið verður að endur- reisn upptökumannvirkjanna. Einn er sá að þau verði áfram í eigu hafn- arsjóðs, eða að þau verði lögð inn í sérstakt hlutafélag sem einkaaðilar kæmu að. Taki hafnarsjóður og einkafyrirtæki saman höndum gæti pakkinn orðið stærri; e.t.v. fjárfest- ing upp á 500 til 600 milljónir kr. og að þá verði reist lyfta sem geti tekið upp flest skip Eyjamanna . fyrir utan Herjólf og stór fjölveiðiskip. Saman um nýja skipalyftu  Fyrirtæki í Eyjum og hafnarsjóður samtaka en ríkisstuðningur er bannaður  Fjárfestingin í nýrri skipalyftu gæti orðið á bilinu 500 til 600 milljónir króna SIGURÐUR Magnússon, fyrrver- andi bæjarstjóri á Álftanesi, segir að stjórnleysið í bæjarfélaginu sé Margréti Jónsdóttur, formanni bæj- arráðs, ekki síst að kenna. „Margrét sleit samningaviðræð- unum og gaf ekki færi á að menn skoðuðu málin áfram þó að lítill málefnaágreiningur væri,“ segir Sigurður. „Hún stóð ekki heldur við undirskrift sína um málefna- samkomulag í sumar.“ Þá bendir Sigurður á að útlit sé fyrir jákvæða niðurstöðu á árs- reikningi 2009. Margrét sleit samstarfinu BANKARNIR Société Générale, BNP Paribas og ING munu hafa um umsjón með fjármögnun bygg- ingar álversins í Helguvík. Bank- arnir munu leiða verkefna- fjármögnun vegna framkvæmdanna á alþjóðlegum lánamörkuðum, að því er segir í tilkynningu frá Norð- uráli. Segir þar að samkvæmt nýgerð- um stöðugleikasáttmála hafi ríkis- stjórn Íslands samþykkt að greiða götu þegar ákveðinna stórfram- kvæmda og að kappkostað verði að engar hindranir verði af hálfu stjórnvalda í vegi þeirra eftir 1. nóvember. Ragnar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Norðuráls, segir í til- kynningu að fyrirtækið hafi átt ár- angursríkt samstarf við þessa banka vegna fjármögnunar allt frá árinu 1997 og þeir sýni Helguvík mikinn áhuga. „Það er hart lagt að okkur úr öllum áttum að þessari framkvæmd miði áfram vegna þeirra starfa sem hún mun skapa og þeirra jákvæðu áhrifa sem hún mun hafa á íslenskt efnahagslíf. Ágúst F. Hafberg, forstöðu- maður samskipta hjá Norðuráli, segir að samningagerðin hafi tekið langan tíma, en það hafi greitt götu fyrirtækisins að það er alþjóðlegt og framleiðir vöru fyrir al- þjóðamarkað. Þá hafi verið ómiss- andi að hafa gert fjárfesting- arsamning við ríkið vegna álversins fyrr á árinu. onundur@mbl.is Helguvík fjármögnuð  Þrír erlendir bankar munu sjá um fjármögnun fram- kvæmda  Fjárfestingarsamningur við ríkið skipti miklu UPPÁKOMA varð í gærdag í flug- skýli Landhelgisgæslu Íslands áður en haldið var á TF-LIF að Gufuskál- um, þar sem fram fór æfing alþjóða- björgunarsveitar Slysavarnafélags- ins Landsbjargar. Til stóð að tveir starfsmenn Kastljóss fengju að fara með þyrlunni – ásamt öðrum frá Morgunblaðinu til að fylgjast með æfingunni. Skömmu fyrir flug urðu orða- skipti milli forstjóra Gæslunnar og starfsmanna Kastljóss sem urðu til þess að þeir síðarnefndu hurfu á braut. Upp úr krafsinu kom að for- stjórinn, Georg Lárusson, hafði sagt að sér væri það ekki sérstök ánægja að þeir færu með þyrlunni, sökum umfjöllunar Kastljóss um umdeilda ráðningu þyrluflugmanns. Flýgur ekki glaður með Kastljósfólk Matvælaeftirlit Reykjavíkur hef- ur ekki fundið nein merki um að hrossakjöti, svínafitu eða kartöflumjöli sé blandað saman við nautgripa- hakk án þess að getið sé um slíkt á pakkningum. Matvælaeftirlit Reykjavíkur aflaði í gær upplýsinga um málið en að sögn starfsmanns eftirlitsins er út- lit fyrir að fullyrðingar þessa efnis hafi byggst á sögusögnum. onundur@mbl.is Grunar ekki brot á matvælalöggjöfinni Hakk Engar vís- bendingar um brot. GÍSLI Marteinn Baldursson, Sjálf- stæðisflokknum, hefur verið skip- aður formaður umhverfis- og sam- gönguráðs Reykjavíkurborgar. Hann tekur við af Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur borgarfulltrúa en Gísli varð formaður ráðsins eftir kosningar 2006 og aftur 2008. Gísli nýr formaður samgönguráðs STÖÐ 2 sport hefur tryggt sér réttinn til að sýna leikina sem Eiður Smári Guðjohnsen spil- ar í 1. deild í Frakklandi. Sjónvarpsstöðin fór í viðræður við frönsku stöðina Canal plus strax og ljóst varð að Eiður gengi til liðs við Mónakó. Að sögn Hilmars Björnssonar, sjónvarpsstjóra Stöðvar 2 sport, gefur Canal plus út dagskrá þrjár vikur fram í tímann. Núna liggur fyrir að fyrsti leikurinn með Eiði verður sýndur á sunnudagskvöldið klukkan 19, þegar Mónakó mætir París SG. Þá liggur fyrir að sýndir verða leikir Mónakó gegn Nice laugardaginn 19. september og St. Etienne laugardaginn 26. sept- ember. Hilmar segir að leikur Mónakó og París SG á morgun verði aðal- leikur umferðarinnar hjá Canal plus, svo ljóst sé að Eiður verði strax í sviðsljósinu í sínum fyrsta leik með Mónakó . sisi@mbl.is Sýna leiki Eiðs Smára Eiður Smári Guðjohnsen

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.