Morgunblaðið - 12.09.2009, Page 20

Morgunblaðið - 12.09.2009, Page 20
20 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2009 Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is Bein fjármunaeign erlendra lög- aðila á Íslandi jókst alls um 97,2 milljarða króna, eða níu prósent, á síðasta ári. Flestir þeirra erlendu fjárfesta sem eiga fjármuni hérlendis eru hins vegar í reynd eignarhalds- félög, mestmegnis skráð í Hol- landi og Lúxemborg, í eigu ís- lenskra aðila og bera nöfn á borð við Exista B.V., Egla Invest B.V., FL Group Holding Nether- lands B.V., Oddaflug B.V., Gaum- ur Holding S.A. og Samson Glo- bal Holding S.a.r.l. Félög sem þessi áttu síðan verðmætustu eignirnar sem fengust í íslensku viðskiptalífi fyrir hrun. Þegar hlutabréfamarkaðurinn á Íslandi hrundi með bankakerfinu síðastliðið haust hefði það átt að hafa mikil neikvæð áhrif á eignir þessara erlendu félaga hérlendis, enda hafa þau tapað megninu af hlutabréfaeign sinn í því hruni. Það var raunin með félög skráð í Hollandi en fjármunaeignir þeirra á Íslandi drógust saman um 269,4 milljarða króna á síðasta ári. At- hygli vekur hins vegar að bein fjármunaeign félaga frá Lúx- emborg og Belgíu hefur aukist um 318 milljarða króna á milli ára, eða um tæp 60 prósent. Því virðist sem hundruð millj- arða króna hafi verið flutt frá Lúx- emborg og Belgíu til Íslands á síð- asta ári. Ekki hefur þó orðið vart við að þeir fjármunir hafi ratað í fjárfestingar í íslensku viðskipta- lífi. Eign erlendra félaga á Íslandi jókst 2008  Eignir lögaðila á Íslandi, sem staðsettir eru í Hollandi, drógust saman um 269 milljarða króna  Hins vegar jókst bein fjármunaeign lögaðila í Lúxemborg og Belgíu um 318 milljarða í fyrra      ! "   # $  %&' (  )* +  ,- ./   0/ 1  23 #4 5 , #) 6  7                                                         Þetta helst ... ● GENGI krónunnar veiktist um 0,3% í gær og stóð gengisvísitalan í 234 stig- um. Bandaríkjadalur er 124,24 krónur, evran er 181,29 krónur, pundið 207,40 krónur og danska krónan er 24,356 krónur. Velta með skuldabréf í Kauphöllinni nam um 7,5 milljörðum krónum. Mest lækkuðu ríkisskuldabréf á gjalddaga 2019 og 2025. Gengi krónunnar lækkar ● AÐILAR höfðu samband við Kaupás og lýstu yf- ir áhuga á að kaupa verslanir Nóatúns. Fengu þeir gögn um verslanirnar en ekkert varð af fyr- irhugaðri sölu. Nóatún er ekki í formlegu söluferli, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins. Nóatún á sér langa sögu sem nær allt aftur til 1960, þegar Jón Júlíusson, stofnandi Nóatúns, keypti verslunina Þrótt í Samtúni. Jón Helgi Guðmunds- son, oft kenndur við Byko, keypti Kaupás árið 2003 og eignaðist þá allar verslanir Nóatúns. thorbjorn@mbl.is Fjárfestar áhugasamir um verslanir Nóatúns Jón Helgi Guðmundsson ● ÖSSUR hefur nú verið skráður í dönsku Kauphöllina í rúma viku og hef- ur gengið vel. „Þetta er rökrétt skref í þróun fyrirtækisins. Það er alveg ljóst að gjaldeyrishöftin eru þess valdandi að það er ekki hægt að bjóða alþjóð- legum fjárfestum upp á það að lokast hér inni með sína fjármuni,“ segir Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar. Aðspurður segir hann að Össur sé ekki á leið úr Kauphöllinni á Íslandi, enda hafi tvíhliða skráning félagsins verið ákveðin lausn. thorbjorn@mbl.is Össuri gengur vel í dönsku Kauphöllinni Íslandi því fyrirtækið óttist geðþóttaákvarðanir stjórnvalda. Ofurseldir velvilja stjórnvalda „Við erum komnir í þá stöðu að við erum algjörlega ofurseldir velvilja stjórnvalda. Við erum að gera eitt- hvað sem er ekki hagkvæmast fyr- irtækinu, þó það sé löglegt,“ segir Jón. Hann vísar til þess að fyr- irtækið stundi ekki aflandsviðskipti með gjaldeyri, þrátt fyrir að vera með 80 prósent tekna sinna í er- lendri mynt og falla þar með undir undanþágureglu Seðlabankans. „Við vitum ekki hverjum við þjónum“ Össur nýtir sér ekki undanþágu frá gjaldeyrishöftunum Morgunblaðið/Heiddi Össur „Við erum að gera eitthvað sem er ekki hagkvæmast fyrirtækinu,“ segir forstjórinn, en fyrirtækið á rétt á undanþágu sem það nýtir sér ekki. Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is „VIÐ vitum eiginlega ekki hverjum við þjónum. Þetta er óeðlilegt ástand. Það eru einhver óljós tilmæli til okkar að stunda ekki þessi gjald- eyrisviðskipti og núna erum við bún- ir að kaupa gjaldeyri hér innanlands fram að áramótum, án þess að nýta bestu mögulegu kosti, þó þeir séu löglegir,“ segir Jón Sigurðsson, for- stjóri Össurar. Eftir að gjaldeyrishöftunum var komið á laggirnar til að sporna við erlendu útflæði gjaldeyris og styrkja gengi íslensku krónunnar hafa margir stórir útflytjendur verið með sérstaka undanþágu frá reglunum. Álfyrirtækin hafa samningsbundnar undanþágur sem eiga rætur að rekja til fjárfestingarsamnings sem Alusu- isse (nú Alcan) gerði við íslenska rík- ið árið 1966 en í honum var ákvæði um gjaldeyrisfrelsi. Fyrirtæki sem hafa meira en 80 prósent af tekjum og gjöldum í erlendri mynt eiga þess kost að fá undanþágu frá reglunum. Fjörutíu og fjögur fyrirtæki njóta í dag slíkrar undanþágu. Jón Sigurðs- son segir að Össur kaupi gjaldeyri á Í HNOTSKURN »Seðlabankinn kallaði full-trúa 20 stærstu útflutn- ingsfyrirtækjanna á sinn fund til þess að ræða undanþágur þeirra frá höftunum. »Voru það vinsamleg til-mæli bankans til þeirra að þau létu af aflandsviðskiptum með gjaldeyri, þó fyrirtækin hefðu til þess heimild. RÍKISSJÓÐUR mun að lágmarki halda fimm prósenta hlut í Íslandsbanka en erlendir kröfuhaf- ar geta eignast allt að 95 prósent hlut í bankanum. Áður var gert ráð fyrir að bankinn yrði alfarið í eigu erlendra kröfuhafa. „Það er samkomulag um öll helstu efnisatriði og það er bara verið að ganga frá skjalagerð,“ segir Þorsteinn Þorsteinsson, formaður samninga- nefndar íslenska ríkisins í samningaviðræðum við skilanefndir föllnu bankanna, um uppgjörssamn- ing ríkisstjórnarinnar við skilanefnd Glitnis vegna eigna sem færðar voru úr Glitni yfir í Íslands- banka í kjölfar bankahrunsins. Nýlega náðist samkomulag um uppgjörssamn- ing milli Nýja og gamla Kaupþings og að sögn Þorsteins er samkomulagið um Íslandsbanka mjög svipað því í öllum helstu efnisatriðum. Efnisatriði samkomulags skilanefndar Kaup- þings og ríkissjóðs hafa ekki verið gerð opinber að öðru leyti en því að kröfuhöfum Kaupþings býðst að eignast allt að 87 prósent í Nýja Kaupþingi. thorbjorn@mbl.is Ríkið eigi 5 prósent Kröfuhafar Glitnis geta eignast 95% í Íslandsbanka Morgunblaðið/Heiddi Áfangi Þorsteinn Þorsteinsson segir ríkisstjórn- ina hafa lagt áherslu á að klára samningana. EMBÆTTI sér- staks saksóknara hefur nú hafið formlegt sam- starf við Serious Fraud Office (SFO), sem er sérstök stofnun hliðsett efna- hagsbrotadeild bresku lögregl- unnar sem rann- sakar meiriháttar efnahagsbrot. „Þetta verður m.a skipti á upplýs- ingum og aðstoð við réttarbeiðnir. Þetta eru góð tíðindi,“ segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksókn- ari. Samkomulag um samstarf er afrakstur fundar sem Ólafur, Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara, og tveir starfsmenn embættisins áttu í gær í Lundúnum með Richard Alderman, forstjóra SFO og öðrum starfsmönnum stofnunarinnar. „Við fengum jákvæðar móttökur og það var lagður grunnur að víðtæku samstarfi,“ segir Ólafur. Á þriðjdagsmorgun sl. fóru þau Ólafur, Joly og starfsmenn embætt- isins til Lúxemborgar á fund með þeirri deild lögreglunnar í Lúx- emborg sem sér um beiðnir um gagnkvæma réttaraðstoð milli ríkjanna. Jafnframt funduðu þau með saksóknara efnahagsbrota í Lúxemborg og sérstökum rann- sóknardómurum. thorbjorn@mbl.is Hefja samstarf við SFO Ólafur Þór Hauksson Funduðu líka með saksóknara í Lúx 89:  89:  %%% (&& )&*+ ,&*'   89: : -"+ %' ,&*$ ,&*$   +; 0) $)< "-+' '-&( )&*' )&*'   =3,> +?: #-& #-+'$ ,&*# ,&*#   89:  89: (& (%& )* &*&   ● Heildarvelta kreditkorta í ágústmán- uði var 23,7 milljarðar króna sam- anborið við 28,6 milljarða króna á sama tíma í fyrra og er þetta 17,2 % sam- dráttur milli ára, samkvæmt nýbirtum hagtölum Seðlabanka Íslands. Heildarvelta kreditkorta dróst saman um 1,2 % í ágúst miðað við mánuðinn á undan. Debetkortavelta var í ágúst 34,7 milljarðar króna og dróst saman um 3,8 % frá fyrri mánuði og um 4,2% milli ára. guna@mbl.is Fólk dró úr notkun greiðslukorta í ágúst Bein fjármunaeign í fyrirtæki þýðir að fjárfestir eða félag á hlutdeild í hlutafé þess. Einnig er hrein lánastaða gagnvart fyr- irtæki skoðuð. Fjárfestir, til dæmis félag í Lúxemborg, sem veitir lán til dótturfyrirtækis í öðru landi, til dæmis á Íslandi, eykur fjármunaeign sína á sama hátt og um hlutafjárframlag væri að ræða. Lánið telst þá til beinnar fjármunaeignar. Þegar fjárfestir á 10% eða stærri hlut í fyrirtæki er um beina fjárfestingu að ræða. Sé hluturinn minni telst hann til verðbréfaeignar. Bein fjármunaeign

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.