Morgunblaðið - 12.09.2009, Page 24

Morgunblaðið - 12.09.2009, Page 24
24 Daglegt lífVIÐTALIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2009 S vanhildur Hólm Valsdóttir hefur verið ráðin fram- kvæmdastjóri þingflokks sjálfstæðismanna. Hún kveður því fjölmiðla- starfið en hún var dagskrárgerð- arkona á Stöð 2 og starfaði áður á RÚV. Það er nóg að gerast í lífi Svan- hildar en hún og eiginmaður hennar, fjölmiðlamaðurinn. Logi Bergmann Eiðsson, eiga von á barni í mars næstkomandi. Umræða á röngum nótum „Það var ekki auðveld ákvörðun að kveðja því ég hef mikla ástríðu fyrir fjölmiðlastörfum. En maður má ekki leyfa sér að staðna og verður stund- um að taka undir sig stökk og prófa eitthvað nýtt,“ segir Svanhildur. „Mér fannst ég vera að staðna svolítið í starfi og tók mér nokkurra mánaða frí frá starfinu á Stöð 2 til að ljúka laganámi. En svo uppgötvaði ég að mig langaði ekki að snúa strax aftur í svona vinnu, reka hljóðnema upp í fólk og spyrja: Hvað finnst þér um Icesave-samninginn? Mér fannst þjóðfélagsumræðan vera orðin þreytandi og á röngum nótum. Allir voru reiðir og allt var sagt vera að fara fjandans til. Það er orðið nánast ómögulegt að taka viðtal við einhvern þeirra sem tengist hruninu. Það kemur enginn vel út úr því. Sigmar Guðmundsson ræddi við Hreiðar Má Sigurðsson í Kast- ljósþætti um daginn. Sigmar reyndi að taka málefnalegt viðtal við mann- inn, í stað þess að berja hann til blóðs með naglaspýtu í beinni, og mörgum þótti það ekki par fínt þótt efnislega hefði örugglega ekkert meira komið út úr slíku viðtali. Hrunið var slæmt og það eru margir í sárum eftir það en ég er ósátt við margt sem gerðist síðasta vetur. Siða- og kurteisisreglum, sem við iðkum dags daglega í samfélagi okkar, var kippt úr sambandi. Allt í einu þótti eðlilegt að koma illa fram við fólk, segja hvað sem var um það eða þess nánustu. Það var líka orðið réttlætanlegt að skemma eigur ann- arra, ráðast á Alþingi og berja lög- reglumenn. Það er einmitt á erfiðleikatímum sem við þurfum virkilega á því að halda að regluverkið standi. Þá er mikilvægt að hugsa: Allt sem þér vilj- ið að aðrir menn gjöri yður, það skul- uð þér og þeim gjöra. Ég hef saknað rökhyggju og kurteisi. Sem betur fer virðist þetta aðeins vera að lagast, fólk er til dæmis farið að gagnrýna þá sem fara að heimilum manna í skjóli nætur og ata hús og bíla þeirra og fjölskyldna þeirra rauðu lakki. Við þurfum að fá einhverja nið- urstöðu í þessi mál til að geta haldið áfram. Við verðum að treysta rétt- arríkinu til að leiða þessi mál til lykta. Við verðum líka að treysta því að þeir sem hafa brotið af sér hljóti sína refs- ingu en dómstóll götunnar á ekki að sjá um að refsa þeim. Það er ekki heift og hefnigirni sem kemur okkur út úr þessu erfiða ástandi. Ef skip er að sökkva þá er líklegast að sá sem heldur ró sinni og hugsar skyn- samlega komist af en ekki sá sem hleypur gargandi fram og aftur um þilfarið og hótar að drepa skipstjór- ann og stýrimanninn.“ Fannst þér fjölmiðlar kannski ýta undir reiðina? „Í fjölmiðlum var mikið rætt um reiðina og stundum fannst mér hún notuð til réttlætingar á ýmsu sem við SVANHILDUR HÓLM VALSDÓTTIR, FRAMKVÆMDASTJÓRI ÞINGFLOKKS SJÁLFS Gamaldags íhald Morgunblaðið/Kristinn Nýtt starf „Maður má ekki leyfa sér að staðna og verður stundum að taka undir sig stökk og prófa eitthvað nýtt.“ Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.