Morgunblaðið - 12.09.2009, Qupperneq 46
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2009
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„ÉG hef alltaf haft mjög mikinn áhuga á tísku
og hjólabrettum svo ég ákvað að gera götufatn-
að bæði fyrir brettaiðkendur og aðra sem vilja
vera í svölum fötum,“ segir fatahönnuðurinn
Þorbjörn Einar Guðmundsson sem ásamt Davíð
Eldar Baldurssyni hannar fatnað fyrir stráka
undir merkinu Dreamcatcher Clothing. „Þegar
ég og Davíð ákváðum að setja eigin línu á lagg-
irnar skellti ég mér í skóla og lærði eitthvað inn
á fatahönnun og fór svo í myndlistarnám. Ég er
núna í háskólanámi í margmiðlunarfræði,“ segir
Þorbjörn en fyrstu flíkurnar komu á markað
fyrir rúmum þremur árum. „Okkur fannst
vanta meiri fjölbreytni fyrir stráka, það voru
allir í sömu merkjunum svo við vildum bæta úr
því.“
Rokkaður vetur
Hingað til hefur Þorbjörn saumað allt sjálfur
en þeir koma til með að fjöldaframleiða þetta
erlendis þegar fram líða stundir. Dreamcatcher
Clothing-línan samanstendur af bolum, peys-
um, húfum, klútum og alls konar fylgihlutum
fyrir stráka. Fötin hafa fengist í Noland í
Kringlunni og eru Þorbjörn og Davíð að vinna í
að koma þeim í fleiri búðir hérlendis og erlendis.
Þorbjörn og Davíð sýndu á Iceland Fashion
Week sem fór fram um síð-
ustu helgi og var það fyrsta
samsýningin þeirra í fata-
hönnun. „Sýningin var við
Reykjavíkurhöfn og heppn-
aðist ágætlega. Við tókum
líka þátt í hönnunarkeppni
Bacardi sem fór fram í
tengslum við tískuvikuna.
Þar var nokkrum hönnuðum boðin þátttaka og
við vorum einu strákarnir,“ segir Þorbjörn.
„Við fengum tvær vikur til að hanna kjól sem
við gerðum úr leðurlíki, pallíettum, tjulli og
fjöðrum. Ég var í um tuttugu tíma að gera pilsið
eitt og sér því ég þurfti að sauma hverja fjöður á
fyrir sig,“ segir Þorbjörn. Þeim gekk vel í
keppninni og enduðu í öðru sæti. Ætlar
hann þá ekkert að fara að hanna á stelpur?
„Það gæti vel farið svo,“ svarar hann
sposkur.
Spurður út í brettatísku komandi vetrar
segir Þorbjörn hana vera rokkaða. „Í sum-
ar voru það skærir litir en nú í vetur
er allt rokkað, svart, slitið og með
rokkuðum prentum.“
Þótt Þorbjörn sé ekki í
rokkinu er hann jafnliðtækur
í að skapa tónlist og föt. „Ég
er búinn að vera að smíða tón-
list í um tíu ár undir nafninu
Basic B og er líka í raftónlist-
arhljómsveit sem kallar sig
Nutrasweet. Við höfum verið
að spila víða og vorum einmitt
að gefa út nýtt remix sem
KDeluxe frá LA gerði fyrir
okkur, það má nálgast á
Myspace,“ segir hann að
lokum.
Hönnuðurinn og tónlistarmaðurinn Þorbjörn Einar Guðmundsson hann-
ar götufatnað fyrir stráka Selur undir merkjum Dreamcatcher Clothing
Keppni Þorbjörn lenti í öðru sæti með leður-
líkiskjól sem fyrirsætan hans bar vel.
Heimasíðan www.dreamcatcherclothing.com
verður opnuð bráðlega.
www.myspace.com/nutrasweetmusic
Fyrir þá sem vilja vera í svölum fötum
Sýning Berleggjaðar fyr-
irsætur sýna hönnun Þor-
björns á Reykjavíkurhöfn.
Töffaralegir
Bolirnir í Drem-
catcher Clothing
eru öðruvísi.
2 VIKUR Á TOPPNUM
Í BANDARÍKJUNUM!
ÓTRÚLEG UPPLIFUN Í 3D
ATH! EKKI SÝND Í 3D Í BORGARBÍÓI
*Andkristur er ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA **Ljósár kl. 6 - Leikstjórinn kynnir myndina.
HÖRKUSPENNANDI MYND UM METNAÐARFULLAN
BLAÐAMANN SEM TEKUR Á SIG SÖK Í MORÐMÁLI
TIL ÞESS EINS AÐ UPPLJÓSTRA UM HINN SVIKULA
SAKSÓKNARA MARTIN HUNTER(MICHEAL DOUGLAS)
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef
ÓDÝRT
Í BÍÓ
Í REGNBOGANU
M 750kr. TILBOÐSVERÐ550 KR Á SÝNINGAR MERKTAR RAUÐU
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG REGNBOGANUMSÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
Þú færð 5%
endurgreitt
í HáskólabíóSími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
The Final Destination kl. 8 og 10 (Kraftsýning kl. 10) B.i. 16 ára
Inglorious Bastards kl. 10 (Kraftsýning kl. 10) B.i. 16 ára
Time Travelers Wife kl. 6 B.i. 12 ára
Stelpurnar okkar kl. 4 - 6 LEYFÐ
The Goods kl. 8 B.i. 14 ára
Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 4 (300 kr.) LEYFÐ
Beyond Reas. Doubt kl. 8 - 10:20 B.i.16 ára Andkristur* - Enskt tal/ótextuð kl. 6 B.i.18 ára
September issue kl. 4 - 6 - 8 LEYFÐ Sána - Enskur texti kl. 4 - 6 B.i.16 ára
Inglorious Bastards kl. 10 B.i.16 ára Ljósár - Enskur texti kl.4 -6** LEYFÐ
The Time Traveler´s ... kl. 8 B.i.12 ára Queen Raquela - Enskur texti kl. 10 B.i.14 ára
Norður - Enskur texti
kl. 4 -
8 - 10:15
LEYFÐ
Beyond Reasonable Doubt kl. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20 750 kr B.i.16 ára
G.I. Joe kl. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20 750 kr B.i.12 ára
Taking of Pelham 123 kl. 5:30 - 8 - 10:30 750 kr B.i.16 ára
Karlar sem hata konur kl. 6 - 9 750 kr B.i.16 ára
Night at the Museum kl. 3:30 300 kr LEYFÐ
Ice Age (enskt tal) kl. 3:40 300 kr LEYFÐ