Morgunblaðið - 17.09.2009, Side 12
Nágrönnum auðmanna líður illa.
mbl.is | SJÓNVARP
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
ENGINN hefur enn verið handtek-
inn vegna tíðra skemmdaverka á
eigum þekktra einstaklinga í fjár-
málalífinu. Aðfaranótt miðvikudags
var málningu skvett á hús Karls og
Steingríms Wernerssona og Lár-
usar Welding. Í samtali við Sjónvarp
mbl.is segja nágrannar líðan slæma
vegna skemmdaverkanna.
Í gærmorgun barst fjölmiðlun enn
á ný tölvupóstur frá ónefndum ein-
staklingi sem kallar sig Skap ofsa. Í
póstinum er greint frá því að hús
Steingríms og „hjallur“ Karls hafi
verið „merkt“, Meðfylgjandi eru
myndir af húsunum.
Skemmdarverkin eru orðin all-
mörg en samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu höfuðborgarsvæðisins
eru þau öll óupplýst. Nokkrir hafa
verið boðaðir í skýrslutöku en eng-
inn handtekinn.
Lögregla tók í gær m.a. sýni af
svartri málningu sem skvett var á
hús Lárusar en hingað til hefur að-
allega verið notuð rauð og græn
málning. Sýnin verða borin saman
við málningarslettur á skóm og föt-
um fólks sem var yfirheyrt.
Eigendur eigna sem orðið hafa
fyrir barðinu á skemmdarvargi eða
-vörgum hafa að undanförnu fengið
bréf frá lögreglu þar sem þeim er
boðið að gera refsi- og bótakröfu.
Helgast það af því að ekki er hægt
að ákæra nema fyrir liggi slík krafa
frá tjónþolum.
Skemmdarverk á eignum
kaupsýslumanna öll óupplýst
Slettur Rauðri málningu var skvett
á hús Karls Wernessonar.
Málningu skvett á hús Wernerssona
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2009
VERIÐ er að leggja lokahönd á end-
urgerð skólalóðar Langholtsskóla
og hafa nemendur undanfarna daga
aðstoðað við frágang lóðarinnar.
Nemendur vinna einnig að gerð úti-
kennslustofu á skólalóðinni undir
leiðsögn heimilis- og smíðakennara.
Framkvæmdir við lóðina hafa staðið
í tvö ár og fólst verkið í að endurnýja
mestalla lóðina enda var hún orðin
úr sér gengin.
Bæta skólalóðina
KRISTJÁN Ott-
ósson hefur hlot-
ið viðurkenningu
Norræna vatns-
tjónaráðsins fyr-
ir áralangt starf
að lagnamálum
hér á landi.
Kristján var
einn aðal-
frumkvöðull að
stofnun Lagnafélags Íslands árið
1986, fyrsti formaður þess og fram-
kvæmdastjóri frá upphafi og hefur
hann verið ötull ritari í fréttabréf
þess. Það var einnig fyrir tilstuðlan
Kristjáns að Lagnakerfamiðstöð Ís-
lands var stofnuð árið 1999. Það er
ekki síst fyrir tilstuðlan Kristjáns
að fjöldi ráðstefna og fyrirlestra á
sviði lagnamála hefur verið haldinn
hér á landi.
Viðurkenning
fyrir lagnamál
Kristján Ottósson
Í GÆR, miðvikudag, var haldinn
stofnfundur hagsmunasamtaka í
þágu barna og unglinga með tal- og
málþroskaröskun.
Málþroskaröskun fylgja námserf-
iðleikar af ýmsu tagi, oftast les-
hömlur auk annars námsvanda, s.s.
í stafsetningu, ritun, málfræði eða
stærðfræði. Á síðasta ári var 146
börnum vísað í greiningu, 70
grunnskólabörnum og 76 leik-
skólabörnum.
Nánast engin meðferð vegna tal-
meina er í boði á Suðurlandi og
þess vegna þarf að leita til Reykja-
víkur eftir meðferð. Því fylgir veru-
legur kostnaður og vinnutap fyrir
forráðamenn. Þetta hefur haft þær
afleiðingar að fjöldi barna hefur
ekki fengið neina meðferð tal-
meinafræðings við meinum sínum.
Hagsmunasamtök
í þágu barna
landi. Við segjum öðrum að þeir
geti vissulega sótt um en að líklega
fái þeir ekki bætur. Margir hætta
þá strax við umsókn og eru þá ekki
skráðir sem atvinnulausir.“
Réttindalausir án lögheimilis
Erfitt geti verið fyrir þennan
hóp að sækja sér félagsaðstoð,
ekki síst ef þeir hafi látið undir
höfuð leggjast að skrá lögheimili
hér á landi því félagsaðstoðin er á
forræði sveitarfélaga. „Sumir
komu hingað í fulla vinnu og fengu
kennitölu en sáu ekki þörfina fyrir
að skrá lögheimili hér meðan allt
lék í lyndi. Svo reka þeir sig á –
t.d. við vinnumissi eða vegna slysa
eða veikinda sem valda því að þeir
þurfa á heilbrigðiskerfinu að halda
– og þá eru þeir réttindalausir.“
Frá janúar til júní á þessu ári
fækkaði erlendum ríkisborgurum
aðeins um 761 á landinu skv. þjóð-
skrá og í fyrra fluttust 1.621 fleiri
útlendingar til landsins en frá því.
Tilfinning manna er þó að mun
fleiri hafi í raun flutt héðan enda
er í sjálfu sér enginn sérstakur
akkur fyrir þá sem flytjast burt í
að tilkynna um flutninginn til þjóð-
skrár. Þvert á móti gætu þeir haft
hag af því að halda lögheimili hér á
landi, einmitt til að tapa ekki rétt-
indum sem þeir hafa áunnið sér
hér. Til að ná yfir það hverjir eru í
raun búsettir hér á landi er þjóð-
skrá reglulega keyrð saman við
staðgreiðsluskrár og upplýsingar
frá Tryggingastofnun. Sjáist þess
merki að erlendur ríkisborgari sé
ekki lengur á landinu er honum
sent bréf þar sem hann er beðinn
um að staðfesta dvöl sína hér. Sé
bréfinu ekki sinnt innan tilskilins
frests er litið svo á að hann sé ekki
hérlendis lengur og hann er tekinn
af þjóðskrá. Þannig skilar brott-
flutningurinn sér inn til skrárinnar
á endanum en það getur tekið
tíma. Margrét segir nokkuð um að
Alþjóðahús aðstoði fólk sem hafi
þannig verið tekið út af þjóðskrá.
Hins vegar sé gleðilegt að at-
vinnurekendur virðist reyna að
taka tillit til starfsmanna sem
koma frá löndum utan EES-
svæðisins, en vera þeirra hér er yf-
irleitt háð atvinnuleyfi sem bundið
er ákveðnum vinnuveitanda. „Um
800 manns voru í þessari stöðu og
við óttuðumst að þetta fólk myndi
streyma til okkar þegar það missti
vinnuna og uppfyllti ekki lengur
skilyrði fyrir dvalarleyfi. Hins veg-
ar hafa aðeins örfáir komið til okk-
ar vegna þessa. Við ímyndum okk-
ur að vinnuveitendurnir geri sér
grein fyrir stöðu þessa fólks og
reyni að halda því í vinnu.“
Að sögn Þóru er þó ljóst að at-
vinnuvandi útlendinga er meiri en
hjá Íslendingum. „Atvinnuleysi hjá
útlendingum hefur þó minnkað
heldur núna eins og hjá öðrum og
við fáum alltaf einhverjar afskrán-
ingar af atvinnuleysisskrá í hverri
viku. Atvinnuleysið er þó alltaf
hlutfallslega meira meðal erlendra
ríkisborgara en íslenskra.“
Morgunblaðið/Ásdís
Atvinnuleysi Langflestir erlendra ríkisborgara á atvinnuleysisskrá störfuðu í byggingariðnaði. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Fóta sig í íslenskri kreppu
Minna ber á fjárhagsvandræðum innflytjenda hérlendis en á fyrri hluta ársins
1.652 erlendir ríkisborgarar á atvinnuleysisskrá en ekki eru allir skráðir
Margrét segir að á vissan hátt geti verið auðveldara
fyrir ákveðinn hóp útlendinga að láta enda ná sam-
an en marga aðra. „Áður var mikið rætt um að út-
lendingar byggju margir saman í húsnæði og ég veit
núna um nokkur tilvik þar sem atvinnulausir ein-
staklingar búa saman og hjálpast þannig að.“
Þá hafi fjölgun orðið á byrjendanámskeiðum í ís-
lensku, bæði vegna þess að fólk sé enn að flytjast
til landsins en einnig geti verið að innflytjendur
sem ekki hafi komist áður á námskeið nýti nú tím-
ann í atvinnuleysinu. „Ég hef líka heyrt að EES-
borgarar sem eiga nokkuð greiðan aðgang að skóla
séu að byrja í námi.“ Þannig virðist margir innflytjendur vera að fóta
sig í kreppunni smám saman. „Mér finnst að þeir reyni, líkt og Íslend-
ingarnir, að haga seglum eftir vindi til að komast í gegn um þetta.
Margir hafa sagt við mig að þeir vilji ekki fara heim þótt á móti blási
hér, heldur taka þátt í uppbyggingu þjóðfélagsins aftur.“
Vilja taka þátt í uppbyggingunni
Margrét
Steinarsdóttir
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
ÚTLENDINGAR hérlendis hafa
smám saman verið að fóta sig í
kreppunni en þeim hefur fækkað
sem snúa sér til Alþjóðahúss
vegna fjárhagsvandræða. Atvinnu-
leysi er þó enn meira meðal er-
lendra ríkisborgara en hjá Íslend-
ingum.
Að sögn Margrétar Steinars-
dóttur, framkvæmdastjóra Al-
þjóðahúss, hefur aukin upplýs-
ingagjöf um úrræði lánastofnana
vegna greiðsluerfiðleika orðið til
þess að fleiri úr hópi innflytjenda
nýti sér þau. „Fregnir af slíku
breiðast líka tiltölulega fljótt út um
innflytjendasamfélagið og það hef-
ur eflaust skilað sér líka.“
Þá hafi borið á að þeir sem fóru
á sínum tíma úr landi eftir að hafa
misst vinnu hafi snúið aftur. „Oft
virðist vera auðveldara fyrir þetta
fólk að vera hér á bótum en at-
vinnulaust í heimalandinu,“ segir
hún en í lok ágúst voru 1.652 er-
lendir ríkisborgarar á atvinnuleys-
isskrá hjá Vinnumálastofnun.
Að sögn Þóru Ágústsdóttur,
verkefnisstjóra Eures-miðlunar-
innar, eru langflestir þeirra á ein-
hverjum bótum, sem geta verið allt
frá 10-100%. „Viðkomandi þarf að
hafa unnið í þrjá mánuði í a.m.k.
25% starfi til að eiga bótarétt á Ís-
EFNAHAGSBROTADEILD ríkis-
lögreglustjóra varar við atvinnu-
auglýsingu sem birtist í Morgun-
blaðinu dagana 19. og 29. ágúst og
8. september, undir yfirskriftinni
„Job opportunity“. Þeim er svara
auglýsingunni er sendur tékki til að
skipta í íslenskum bönkum og
senda andvirðið til Nígeríu. Lög-
reglan telur víst að þessir tékkar
séu falsaðir og því verðlausir. Fölsun Auglýsingin sem birtist.
Varað við atvinnuauglýsingu