Morgunblaðið - 17.09.2009, Qupperneq 14
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
Í ARABARÍKINU Dubai óðu menn
milljarðana í mjóalegg og uppbygg-
ingaráformin voru mest í ætt við æv-
intýrin í Þúsund og einni nótt. Þar
bar „Heiminn“ hæst en nú er hann
sokkinn ef svo má segja í ragnarök-
um kreppu og peningaleysis.
„Heimurinn“ er fjöldi tilbúinna
smáeyja í líki ýmissa þjóðlanda en
saman mynda þær síðan heimsálf-
urnar. Á eyjunum átti að byggja
glæsivillur eins og þær gerast bestar
og selja þær fína, fræga og umfram
allt ríka fólkinu.
„Heimurinn er liðinn undir lok.
Hann er bara rústir einar. Að vísu
má tala um eina eyju í byggð. Hún er
í eigu sjeiksins í Dubai en hinar eru
bara grjóthrúgur,“ sagði fasteigna-
sali í Dubai breska blaðinu The Tim-
es. Sjeikinn, Mohammed bin Rashid
al-Maktoum, sem er jafnframt for-
sætisráðherra í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum, segist viss um, að
betri tíð sé í vændum í fjármálum
ríkisins og opinberlega hefur hann
ekki hætt við neitt af sínum stórkost-
legu byggingaráformum, aðeins
slegið þeim á frest.
Sum þeirra eru raunar fullkláruð,
til dæmis skíðabrekkur í alpalands-
lagi innanhúss og sjö stjörnu hótel.
Uppgangurinn í furstadæmunum
hófst á síðasta áratug þegar þar
fundust olíulindir en þær verða upp-
urnar innan 20 ára. Olíutekjur svara
nú ekki nema til 6% af landsfram-
leiðslunni.
„Heimsendir“ í Dubai
Lúxusævintýri
sem endar líklega
með gjaldþroti
Fagra veröld Svona átti Heimurinn að líta út. Fjöldi smáeyja í líki einstakra
þjóðlanda og lúxusíbúðirnar áttu að laða að ríkt fólk hvaðanæva að.
14 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2009
Borgartún 31 • 105 Reykjavík • www.fjarfesting.is
fjarfesting@fjarfesting.is
TI L LE IGU – Vegmúli 2
Til leigu skrifstofu- og verslunarhúsnæði við Vegmúla 2 í Reykjavík, þar sem
SPRON var til húsa. Húsið er allt nýinnréttað á glæsilegan hátt. Ýmsar stærðir í
boði t.d. 129 fm, 150 fm og 438 fm. Nánari upplýsingar veita Gunnar í síma
693-7310 eða Hilmar í síma 896-8750.
Óskar Þór Hilmarsson, löggiltur fasteignasali
Opið mán.-fös. kl. 9-17
NÁIST ekki samkomulag á loftslagsráðstefnunni í Kaup-
mannahöfn í desember, mun það flýta fyrir „heilsufars-
hörmungum“ um allan heim. Kemur það fram í áskorun,
sem 18 stór læknasamtök hafa látið frá sér fara.
Læknarnir segja, að fátækt fólk í hitabeltinu muni
fyrst verða fyrir barðinu á afleiðingum loftslagsbreyting-
anna en þær muni að lokum ná til alls heimsins. Fellibylj-
ir, þurrkar eða flóð munu leika mörg svæði illa, draga
mun úr matarframboði og aðgangi að hreinu vatni og alls
kyns sjúkdómar, malaría, beinbrunasótt og margir fleiri,
munu herja á fólk sem aldrei fyrr og ekki bara í hitabelt-
inu, heldur líka í tempruðu beltunum. Þá eru ótaldar af-
leiðingar hærra sjávarborðs.
Ráðstefnan í Kaupmannahöfn verður dagana 7. til 18.
desember og er vonast til, að þar verði lögð drög að lofts-
lagssáttmála, sem leysi af hólmi Kýótó-sáttmálann frá
1997. Undirbúningsviðræður hafa þó ekki gengið vel og
er óttast, að lítil samstaða verði í þessu máli, kannski því
brýnasta, sem menn hafa staðið frammi fyrir. svs@mbl.is
Vara við heilsu-
farshörmungum
Óttast lítinn árangur í lofts-
lagsmálum í Kaupmannahöfn
Reuters
Áföllin Flóð, þurrkar og aðrar náttúruhamfarir munu
aukast og valda stórauknum flóttamannastraumi.
ÞAÐ er hægt að láta óánægju sína í ljós með ýmsum
hætti en belgískir bændur höfðu þennan háttinn á í gær
þegar þeir mótmæltu lágu mjólkurverði. Þá helltu þeir
niður eða dreifðu einni milljón lítra yfir akur við borg-
ina Ciney. Búist er við, að ESB-ríkin ákveði fljótlega
nýtt lágmarksverð á mjólkinni.
Reuters
Bændur segjast fá lítið fyrir sinn snúð
Mótmæltu með milljón lítrum
MIKIL umræða
og deilur eru nú í
Noregi um niður-
stöðu þingkosn-
inganna á mánu-
dag en borgara-
flokkarnir fengu
49.000 atkvæði
umfram þá
flokka, sem
standa að rauð-
grænu ríkis-
stjórninni. Hún fékk samt fleiri
þingmenn kjörna.
Borgaraflokkarnir fengu samtals
1.327.486 atkvæði en ríkisstjórn-
arflokkarnir 1.278.327 og að
margra mati er skipting þingsæt-
anna því ólýðræðisleg og röng.
Um þetta er nú mikið rætt og sér-
staklega á netinu.
Þar halda þó sumir því fram, að
fyrrnefndar atkvæðatölur séu ekki
réttar. Í þeim sé til dæmis alveg
sleppt fylginu við Rauða flokkinn,
kommúnískan smáflokk, sem þó
fékk 36.096 atkvæði í kosningun-
um. Að þeim meðtöldum munar
13.010 atkvæðum á fylkingunum til
hægri og vinstri.
Þá er raunar ekki allt talið því að
16 aðrir flokkar buðu fram. Af
þeim fékk flokkur eftirlaunaþega
flest atkvæði, 11.886, og flokkur
Græningja 9.262. Síðan koma þrír
flokkar með fylgi á bilinu 2.300 til
5.300 atkvæði en aðrir undir 1.000.
Sá flokkur, sem nýtur minnstrar
tiltrúar, er Norska lýðveldis-
sambandið. Það fékk 54 atkvæði og
galt afhroð frá kosningunum 2005
þegar það fékk 92. svs@mbl.is
Norðmenn deila
hart um skiptingu
þingsætanna
Styðst Stoltenberg
við minnihluta?
BRESKA leikaranum og uppistand-
aranum Eddie Izzard er margt til
lista lagt. Hann er til dæmis ágætur
hlaupari og í gær lauk hann við að
hlaupa vegalengd, sem svarar til 43
maraþonhlaupa, á 51 degi.
„Eddie á hlaupum“ hét uppá-
koman og áheitin, sem söfnuðust,
rúmlega 41 millj. ísl. kr., renna öll
til góðgerðarmála. Hljóp hann yfir
Bretland frá norðri til suðurs og
var fagnað vel er hann lauk hlaup-
unum í London í gær. Var hann þá
heldur illa til reika, með blöðrur á
iljum, búinn að missa einhverjar tá-
neglur og verkjaði í allan skrokk-
inn. Ánægjan bætti það allt upp og
hann notaði tækifærið til að til-
kynna, að hann vildi setjast á þing,
breska þingið eða Evrópuþingið, í
framtíðinni. svs@mbl.is
Lagði að baki 43
maraþon á 51 degi
AFGANAR bera
lítið sem ekkert
traust til stjórn-
valda, ríkisstjórn-
ar Hamids Karza-
is forseta, vegna
mikillar spilling-
ar. Stafar lands-
mönnum ekki síð-
ur hætta af henni
en talibönum.
Kom þetta fram í vikunni hjá
Michael Mullen, forseta bandaríska
herráðsins, á fundi með hermála-
nefnd öldungadeildarinnar.
Mullen tók undir fullyrðingar um,
að þótt Bandaríkjastjórn sendi millj-
ón hermenn til Afganistans, myndi
það engu breyta um lögmæti ríkis-
stjórnar Karzais í augum afgansks
almennings. Kvaðst hann hafa mikl-
ar áhyggjur af víðtæku svindli í for-
setakosningunum nýverið en kosn-
ingaeftirlitsmenn Evrópusam-
bandsins sögðu í gær, að um hálf
önnur milljón eða fjórðungur allra
atkvæða í þeim hefði hugsanlega
verið fölsuð. svs@mbl.is
Karzai er
vaxandi
vandamál
Litlu betri talibönum
Hamid Karzai
ÞÝSKA stjórnin
samþykkti í gær
að taka frá stór
svæði í sjónum
undan norður-
strönd landsins
fyrir vindmyllu-
búgarða. Eiga
þeir að sjá átta
milljónum þýskra
heimila fyrir raf-
magni.
Á svæðunum, sem eru í 12 til 200
km fjarlægð frá Norðursjávar-
ströndinni, er gert ráð fyrir 22 vind-
myllubúgörðum og þremur í Eystra-
salti. Wolfgang Tiefensee,
samgönguráðherra Þýskalands,
sagði, að þetta væri liður í að afla
30% raforkunnar með endurnýj-
anlegum hætti en allt í allt er stefnt
að því að koma upp 40 vindmyllubú-
görðum við Þýskaland með 2.500
vindmyllum.
Búist er við, að þessi raforkufram-
leiðsla verði komin í 25.000 mega-
wött 2030 og veiti 30.000 manns at-
vinnu. svs@mbl.is
Þýskur vind-
mylluskógur
Skemmtileg sjáv-
arsýn eða hvað?