Morgunblaðið - 17.09.2009, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 17.09.2009, Qupperneq 20
20 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2009 ✝ HólmfríðurHelgadóttir fæddist á Glæsivöll- um í Miðdölum 7. mars 1921. Hún lést á líknardeild Landa- kots 8. sept. síðast- liðinn. Foreldrar Hólm- fríðar voru Helgi Bjarni Jónsson, f. 1881 í Áskoti í Mela- sveit, d. 1943, og Jósefína Sigurð- ardóttir, f. 1892 á Dönustöðum í Lax- árdal, d. 1971. Systur Hólmfríðar voru Guðrún, f. 1914, d. 2000, Kristín, f. 1918, d. 2005, Hall- dóra, f. 1922, d. 1993, og Þrúður f. 1925, d. 2005. Árið 1922 flutti fjölskyldan til Vestmannaeyja og bjó á Sólvangi við Kirkjuveg. Frá unga aldri dvaldi hún öll sumur í Eystri-Hól í V-Landeyjum og má segja að þar hafi verið hennar annað heimili og fjölskyldan í Hól var henni mjög náin alla ævi. Hólmfríður giftist árið 1957 Kristjáni Fr. Kristjánssyni, f. 27.8. 1903 í Hvammi í Dýrafirði. Hann lést árið 1971. Þau voru barnlaus en Kristján átti af fyrra hjónabandi fjögur börn: Bergljótu, f. 1928, d. 1945, Birgi, f. 1929, Rósinkrans, f. 1933, og Klöru Sjöfn, f. 1935. Eftir lát Kristjáns hélt Hólmfríður heimili með systur sinni Halldóru þar til hún lést 1993. Hólmfríður bjó lengst af í Reykjavík þar sem hún stundaði ýmis störf en endaði starfsferil sinn á röntgendeild Borgarspítala 1993. Útför Hólmfríðar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag, 17. september, kl. 13. Meira: mbl.is/minningar Amma Fríða var ömmusystir okk- ar en hún var samt amma okkar. Frá því að við munum eftir okkur bjuggu amma Dóra og amma Fríða saman í Bólstaðarhlíðinni. Þær voru báðar órjúfanlegur hluti tilveru okkar jafn- vel þótt Helgi ætti erfitt með að muna nöfnin á þeim. Hann kallaði þá ömmu Fríðu alltaf „hina“, sagði „er Hin heima“ og vildi helst alltaf tala við hana. Þegar við gistum hjá þeim var reglan sú að Þóra gisti í herbergi ömmu Dóru en Helgi hjá ömmu Fríðu á bláum bedda, sem kallaðist „varamannabekkurinn“. Hann var alltaf færður upp að rúmi ömmu Fríðu og morguninn eftir var Helgi litli kominn í holuna fyrir ofan ömmu Fríðu og hún nærri því á bekkinn. Í seinni tíð, þegar við komum í kaffi og hjónabandssælu til ömmu Fríðu, settumst við í eldhúskrókinn og skoðuðum með henni vegginn sem var þakinn póstkortum sem vinir og ættingjar höfðu sent henni. Maður gat ferðast í huganum um allan heim- inn með því að skoða þessi kort á milli þess sem við spjölluðum við hana. Amma Fríða hafði mjög ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og lá ekki á skoðun sinni ef henni þótti eitthvað betur mega fara. Hún inn- rætti okkur að tala ekki illa um aðra og tók jafnan málstað þess sem á hallaði í samræðunum, jafnvel þegar hún var í raun sammála okkur. Amma Fríða var ótrúlega liðug og þótti ekkert leiðinlegt að vera spurð að því í heldri borgara leikfimi hvort hún hefði æft fimleika þegar hún var yngri. Við munum eftir því þegar hún sat við sjónvarpið og lyfti annarshug- ar annarri löppinni beinni upp að nefi. Oft gleymdum við því sem var að gerast í sjónvarpinu og fylgdumst frekar með ótrúlegum liðleika þess- arar konu sem komin var hátt á ní- ræðisaldur. Ömmu Fríðu þótti fátt leiðinlegra en að fara í verslunarleiðangur. Í ein- um slíkum leiðangri til London stofn- uðu hún og góð vinkona hennar, Ju- dith, alþjóðlegan klúbb sem nefndur er „Beint í æð“. Aðaltilgangur klúbbsins var að létta lundina eftir langdregna verslunarferð og koma blóðflæðinu aftur af stað með réttum meðulum. Margir hafa gengið í klúbbinn eftir því sem árin hafa liðið, enda augljóslega þörf fyrir hann. Við héldum lengi vel að amma Fríða hefði verið algjör engill þegar hún var lítil. En kvöld eitt, eftir viku- lega slátur- og grjónagrautsmáltíð með Stellu, vinkonu hennar, kom í ljós að þær höfðu báðar verið ansi uppátækjasamar. Þær rifjuðu upp ýmis prakkarastrik, sem okkur þótti mjög fyndið að heyra um. Eitt dæmi um það var að stela spariskóm eldri frænku og hlaupa í þeim niður að höfn með frænkuna á harðaspretti á eftir. Við erum þakklát fyrir þann tíma sem við áttum með ömmu Fríðu. Við munum sakna hennar og minnast með hlýjum hug. Þóra og Helgi. Þegar Helgi Jónsson (1881-1943) og Jósefína Sigurðardóttir kona hans (1892-1971) fluttust af Vesturlandi til Vestmannaeyja með þær dætur sínar sem þá voru fæddar bjó þar fyrir Magnús Jónsson (1875-1946), bróðir Helga og afi undirritaðrar. Náið og gott samband var milli þeirra bræðr- anna og barna þeirra. Magnús minnt- ist Helga í bréfi til Þorbjarnar bróður þeirra 23. maí 1943: „Helgi bróðir okkar dó í vetur. Hann hafði lengi verið alveg ósjálfbjarga, en alveg heill sálarlega, prýðilega greindur, fróður um margt og minnugur allt til hins síðasta.“ Um fjölskyldu Helga segir Magnús í bréfinu: „Ekkja hans, Jósefína Sigurðardóttir, er mesta dugnaðarkona. Hefir hún nú alllengi verið vökukona á sjúkrahúsinu og stelpurnar allar í atvinnu. Ein þeirra er nú komin til Reykjavíkur. Þær eru allar gerfilegar og virðast vel gerð- ar.“ Nærri má geta að ekki hefur líf fjölskyldunnar verið dans á rósum í viðureign við heilsuleysi og erfiðleika kreppuáranna, en aldrei sá þess merki að þeir erfiðleikar hefðu sett mark sitt á Hólmfríði. Í æsku minni í Vestmannaeyjum voru dætur Helga okkur nákomnar, og þá einkum þær Fríða og Dóra, frænkur og eldri syst- ur í senn, enda yngri en flest frænd- fólk af þeirri kynslóð. Þær voru eft- irminnilegar saman, háar, beinvaxnar og glæsilegar, hlýlegar í viðmóti og gamansamar á kyrrlátan hátt. Eftir að Fríða giftist og settist að í Reykjavík, á menntaskólaárum mín- um, var gott að leita til hennar um gistingu og annað. Sambandið hélst í gegnum árin og ég gat sannreynt það á síðustu vikum hennar að hún var sannarlega alveg heil sálarlega til loka eins og faðir hennar, tók því sem við blasti með reisn og æðruleysi. Um leið og ég þakka Fríðu frænku alla velvild hennar og góðar samveru- stundir langar mig að ljúka þessum kveðjuorðum með upphafserindun- um úr erfiljóði sem Magnús afi orti eftir Helga bróður sinn. Þau eiga eins vel við Hólmfríði dóttur hans: Að kveldi dags er hvíldin hollust þeim, sem hrjáður er, og vinnulúnum kærst að koma heim, er kraftur þverr. Þótt árdagssólin sveipi hugarlönd, oft síðla dags ber skugga lífs á strönd. Það heyrist skammt, er hnipið fölnar blað á hélunótt, og þó að látinn legstað berist að, er lifði hljótt. En orðstír góður ekki ferst í hyl, hann ómar hér og bak við dauðans þil. Unnur Alexandra Jónsdóttir. Að eiga sér góðar fyrirmyndir í líf- inu er öllum afar mikilvægt. Fríða frænka, eins og hún var alltaf kölluð, var og verður mín fyrirmynd í mörgu. Oftar en talið verður hef ég sagt eftir að hafa verið með Fríðu: „Svona vil ég vera.“ Fyrst man ég eftir að hafa sagt þetta þegar ég var unglingur og fékk að gista hjá Fríðu í Reykjavíkurferð. Einn daginn kom ég að henni við tiltekt. Hún virtist í sólskinsskapi og söng hástöfum vin- sælasta dægurlag þess tíma. Þetta þótti mér vægast sagt mjög óvenju- legt því þetta var í mínum huga leið- indaverk og ekkert til að gleðjast yf- ir. En Fríða sagði að þegar hún þyrfti að gera það sem henni þætti leiðin- legt væri um að gera að finna leið sem gerði hlutina léttari og hún valdi að syngja sig í gegnum verkin. Hvatti hún mig til að finna mína leið til þess. Þetta hef ég reynt eftir bestu getu en það versta er að ég er hálflaglaus og tiltektin því enn leiðindastarf hjá mér. Ég hef þó fundið mína leið við önnur störf. Þökk sé Fríðu. Eitt af því sem ég hef markvisst tekið upp eftir Fríðu er að taka öllum tilboðum um samverustundir með fjölskyldunni skilyrðislaust. Öllum í fjölskyldunni hefur alltaf þótt meira en sjálfsagt að Fríða væri með okkur í einu og öllu. Þegar hringt var í Fríðu – oft með afar stuttum fyrir- vara – og henni boðið með þótti mér aðdáunarvert hversu auðvelt hún átti með að drífa sig af stað. Það þurfti aldrei að dekstra hana. Hún var alltaf til í tuskið og skipti engu hvort um var að ræða útilegur, sumarbústað- arferðir, utanlandsferðir, hávaðasöm barnaafmæli, skemmtigöngur eða fjölskylduboð. Oft var Fríða langelst í þessum samverustundum en var samt eins og unglingur og gerði ýmislegt sem fáum á hennar aldri dytti hug að framkvæma. Til dæmis kom hún í útilegur með „unglingaútbúnað“ – aðeins tjald, dýnu og vökva, hún synti í ísköldum ám, sýndi okkur heljarstökk, gekk á fjöll svo fátt eitt sé talið. En þó að Fríða hafi alltaf verið mér og mínum einstaklega hjálpleg og tilbúin til aðstoðar hvað sem á gekk hikaði hún ekki við að segja manni til syndanna og sagði þá gjarnan: „Þetta finnst mér asnalegt!“ með mjög ákveðinni og sérstakri áherslu á asnalegt. Þá vissum við að best væri að skipta um áætlun. Í erfiðum veikindum síðasta árið stóð Fríða sig eins og hetja. Hún var æðrulaus og alltaf söm við sig. Fyrir aðeins nokkrum dögum var verið að ræða berjatínslu við sjúkrabeð henn- ar. Sagði hún að líklegast þyrfti hún að sleppa berjatínslu þetta árið – en þó væri aldrei að vita. Eins og alltaf – til í hvað sem var. Ég mun sakna þess mjög að geta nú ekki lengur skroppið í kaffi til Fríðu frænku og fengið góð ráð, knús og klapp. Við fjölskylda mín sendum Fríðu Sigrúnu, Bjössa, Þóru, Helga og öðr- um aðstandendum innilegar samúð- arkveðjur. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Guðrún Kristinsdóttir. Látin er í hárri elli Hólmfríður Helgadóttir, eða öllu heldur Fríða frænka eins og við kölluðum hana. Hún var hinn fasti punktur í tilveru okkar frændsystkina sem ólumst upp í Vestmannaeyjum þegar komið var til höfuðborgarinnar. Alltaf var húsa- skjól að finna hjá henni, sama hvern- ig á stóð, og tók hún jafnan á móti okkur af miklum hlýhug og gestrisni. Það var ekki lítið átak og ferðalag að flytja frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur laust eftir miðja síðustu öld. En sem fyrr var leitað til Fríðu frænku um húsaskjól fyrstu dagana eftir komuna til höfuðborgarinnar og þar til húsnæði var til reiðu í Hjúkr- unarskóla Íslands. Þannig var ástatt fyrir mér þegar ég var að hefja nám í hjúkrun og á þeim tíma styrktust þau bönd á milli okkar sem héldust síðan. Allt fas og framkoma Fríðu ein- kenndust af ró og yfirvegun. Hjálp- semi og gestrisni voru ríkir þættir í fari hennar og hafði það veruleg áhrif á þá sem hana umgengust. Nú hefur hún fengið hvíldina eftir langt líf en hjá okkur lifir minningin um einstaka konu og sérlega góða frænku. Við sendum ættingjum hennar innilegar samúðarkveðjur vegna fráfalls hennar. Þórunn og Finnur. Við systurnar kynntumst Fríðu þegar hún giftist Kristjáni föður- bróður okkar. Kristján var í miklu uppáhaldi hjá okkur og því vorum við ekki alveg vissar um það hvort við myndum tapa frænda eða græða frænku og var því eftirvæntingin mikil. Það kom þó fljótt í ljós að Fríða bætti líf okkar allra í fjölskyldunni og var Stjána góður lífsförunautur. Þau hjónin bjuggu í næsta ná- grenni, og við systur gátum því heim- sótt þau hvenær sem okkur lysti. Það var markvert við þessar heimsóknir að okkur var alltaf boðið inn í stofu og þar sest niður og rætt við okkur stelpurnar, spilin tekin fram og kom- ið fram við okkur eins og við værum fullorðið fólk. Oft gistum við hjá þeim þegar for- eldrar okkar voru erlendis og var Fríðu eiginlegt að spjalla við börn og hafa ofan af fyrir þeim. Okkur er minnisstætt að hún hjálpaði okkur við heimavinnu og saumaskap. Þær voru líka ófáar stundirnar þar sem hún sat með okkur og söng barnavís- ur Stefáns Jónssonar. Fríða var ekki frænka okkar í eiginlegum skilningi en var þó alltaf kölluð Fríða frænka og í miklu uppáhaldi hjá okkur öllum í fjölskyldunni. Við banalegu móður okkar var Fríða okkur og henni stoð og stytta. Vitum við að móðir okkar kunni að meta þá hjálp sem hún veitti. Við er- um afar þakklátar fyrir allan þann stuðning. Vinátta okkar hefur styrkst með árunum og við þökkum fyrir allar yndislegu minningarnar sem við eig- um um hana. Birna Einarsdóttir og Auður Inga Einarsdóttir. Í dag kveðjum við elsku frænku okkar, hana Fríðu. Þessi ljúfa og fal- lega sál hafði mikil og góð áhrif á alla í kringum sig. Fríða frænka var alltaf til staðar fyrir okkur, fylgdist með öllum í fjölskyldunni og bar hag okk- ar fyrir brjósti. Við þökkum þér allar yndislegu stundirnar þegar þú komst í heim- sókn til Eyja. Oft var spjallað saman langt fram á nótt og þú sagðir okkur sögur frá æsku þinni. Við systkinin minnumst Fríðu fyrir allt það góða sem hún lét okkur í té í gegnum allt okkar líf. Ferðirnar frá Eyjum til Reykjavíkur á okkar bernskuárum eru ógleymanlegar. Fríða tók alltaf á móti okkur með opnum örmum og dekraði við okkur á allan hátt. Elsku Fríða, nú er slokknað á síð- asta ljósinu frá Sólvangi, þín er sárt saknað af okkur öllum. Að lokum þökkum við vináttu, gæsku og velvild í okkar garð í gegnum lífið. Elsku Fríða Sigrún, Bjössi, Þóra og Helgi, við vottum ykkur innilega samúð okkar. Hvíl í friði, elsku Fríða okkar. Kristrún, Hildur, Dóra, Magnús, Halldór og fjölskyldur. Hólmfríður Helgadóttir ✝ Ingibjörg ElínAðalsteinsdóttir var fædd 19. apríl 1927. Hún lést 10. september 2009 á Dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Grund. Foreldrar hennar voru þau Aðalsteinn Pálsson, skipstjóri og útgerðarmaður frá Hnífsdal, f. 3.7. 1891, d. 11.1. 1956 og fyrri kona hans Sigríður Pálsdóttur, húsfreyja frá Hnífsdal, f. 28.11. 1889, d. 12.10. 1930. Síðari kona Aðalsteins var Elísabet María Jón- asdóttir, húsfreyja og hús- mæðrakennari frá Hnífsdal, f. 21.6. 1893, d. 15.4. 1978. Systkini Ingibjarg- ar Elínar eru: Páll, skipstjóri og útgerð- armaður í Grimsby, Englandi, f. 1916, d. 1970, Össur, járn- smiður og fyrrver- andi kaupmaður, f. 1919, Sigríður lyfja- fræðingur, f. 1921, d. 2003, Guðbjörg, hús- freyja og fyrrverandi bankaritari, f. 1926 og Jónas Aðalsteinn hæstarétt- arlögmaður, f. 1934. Hinn 3. mars 1962 giftist Ingi- björg Elín Sigurði Hallgrímssyni vélstjóra, f. 18.3. 1921, d. 10.4. 2003. Sonur þeirra er Hallgrímur, f. 19.12. 1963, hann dvelur á sam- býlinu Grundarlandi 17, Reykjavík. Sigurður átti tvær dætur frá fyrra hjónabandi, Rannveigu, f. 1953 og Maríu, f. 1954. Ingibjörg Elín gekk í gagn- fræðaskóla, lærði hattasaum í Hattabúð Reykjavíkur og útskrif- aðist frá Iðnskólanum í Reykjavík með meistarapróf í hattasaumi. Hún var í Húsmæðraskólanum á Hallormsstað í 2 ár og síðar dvaldi hún í Danmörku og lærði postu- línsmálun. Útför Ingibjargar Elínar fer fram frá Neskirkju í dag kl. 15. Ingibjörg Elín Aðalsteinsdóttir, móðursystir mín, verður jörðuð í dag í Hólavallakirkjugarði. Ella frænka, eins og hún var jafnan köll- uð, var einn af föstu punktunum á uppvaxtarárum okkar systkina og myndaði hlekk á milli kynslóðanna. Sögur af bernsku þeirra systra, Ellu Siggu og Dúddu, og þeim tæki- færum sem ungum konum bauðst á árunum upp úr stríðinu um miðja síðustu öld eru forvitnilegar fyrir kynslóðirnar sem á eftir koma. Nám við húsmæðraskóla þótti sjálf- sagt, en líka nám sem stuðlaði að sjálfstæði þeirra og jók möguleika þeirra á vinnumarkaðnum. Eftir giftingu þótti þó tilheyra að fara af vinnumarkaðnum og vinna innan veggja heimilisins. Ella var mjög handlagin, nam postulínsmálun í Kaupmannahöfn og hattagerð í Hattabúð Reykjavík- ur. Framleiðsla átti vel við hana, hún lét sér ekki nægja að gera eitt stykki, heldur bjó til hluti fyrir alla í kringum sig. Hattar í fjölbreyti- legum útgáfum komu eins og af færibandi til stórfjölskyldunnar og vina. Eftir að hún stofnaði fjöl- skyldu höguðu örlögin því þannig að hún var mikið heima við og sinnti sínum nánustu og sínum hugðarefn- um. Ella flutti í þjónustuíbúð hjá DAS í Hafnarfirði fyrir nokkrum árum og undi hag sínum vel í ná- munda við Össur bróður sinn. Fyrir tæpu ári flutti hún á hjúkrunar- heimilið Grund, þar sem vel var annast um hana. Sigríður Finsen. Ingibjörg Elín Aðalsteinsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.