Morgunblaðið - 17.09.2009, Page 27
Menning 27FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2009
Það líður öllum svo
vel í kringum Reyni,
það er frábær andi í kring-
um hann … 28
»
UM þessar mundir stendur yf-
ir fjögurra kvölda námskeið í
Hafnarfjarðarkirkju sem ber
heitið „Leyndardómar forn-
aldarinnar afhjúpaðir“. Fyrsta
kvöldið er liðið en næstu þrjú
fimmtudagskvöld kl. 20 verður
sérstaklega fjallað um táknmál
og talnaspeki, bæði kristna og
tákn sem afleidd eru af kristn-
um táknum og tölum. Nám-
skeiðið er opið öllum og hentar sérstaklega vel
þeim sem ætla að sökkva sér niður í nýútkomna
bók Dans Browns, Týnda táknið. Í kvöld verður
fjallað um talnaspeki. Kennslubók námskeiðsins
er Orðabók leyndardómanna eftir sr. Þórhall
Heimisson.
Hugvísindi
Leyndardómarnir
afhjúpaðir í kvöld
Týnda táknið
Í KVÖLD verða fyrstu tón-
leikar vetrarins í tónleikaröð-
inni Tónar við hafið haldnir í
Þorlákshöfn. Hefð er fyrir því
að djasstónlistarmenn hefji
leik að hausti og í kvöld er það
gítartríóið JP3 sem leikur.
Tríóið skipa þeir Jón Páll
Bjarnason, Eðvarð Lárusson
og Ásgeir Ásgeirsson. Á tón-
leikunum í Þorlákshöfn flytja
þremenningarnir með þeim Erik og Þorgrími
mikið af þeim lögum sem finna má á plötu þeirra
JP3, sem kom út í fyrra, mest frumsamin lög eftir
þá Jón, Eðvarð og Ásgeir, en platan fékk mikið lof
gagnrýnenda. Tónleikarnir verða í Ráðhúsi Ölfuss
og hefjast klukkan 20.
Tónlist
JP3 á Tónum við
hafið í Þorlákshöfn
Jón Páll Bjarnason
JÓN Svavar Jósefsson verður
gestur Jónasar Ingimundar-
sonar á tónleikum í Salnum kl.
17.30 í dag, í tónleikaröðinni Ís-
lenskt, já takk! Tónleikaröðin
er liður í tíu ára afmælishátíð
Salarins og á hverjum fimmtu-
degi fram í október fær Jónas
til sín söngvara í fremstu röð
og kynnir íslenskar einsöngs-
perlur. Bjarki Sveinbjörnsson,
forstöðumaður Tónlistarsafns
Íslands, flytur stuttan pistil um tilurð laganna og
sýndar verða ljósmyndir af íslenskum listaverkum
úr einkasafni Þorvaldar Guðmundssonar. Dag-
skráin stendur yfir í tæpan klukkutíma og er opin
öllum meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis.
Tónlist
Jón Svavar syngur
íslenskt í dag
Jón Svavar
Jósefsson
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
MYNDLISTASKÓLINN í Reykjavík hefur fengið um 50
milljón króna styrk frá Leonardo-áætlun Evrópusambands-
ins til þess að þróa og undirbúa tveggja ára námsbrautir í
teikningu og textíl í samstarfi við Tækniskólann, fjóra er-
lenda háskóla og tvö innlend fyrirtæki. Ingibjörg Jóhanns-
dóttir skólastjóri kveðst nú bíða leyfis menntamálaráðu-
neytisins svo námið geti hafist haustið 2010.
„Aðdragandinn er orðinn langur. Stjórn Myndlistaskól-
ans hefur rætt það lengi, að það þurfi að huga að námi, þar
sem aðferðum og tækni í vinnubrögðum er gefinn meiri
gaumur en í listnámi, eins og það hefur verið að þróast. Við
teljum þetta því áhugaverða viðbót við almennt náms-
framboð. Í þessu námi verður efnið og aðferðirnar ákveðinn
kjarni, ásamt kraftmikilli og öflugri hugmyndavinnu.“
Sterk tengsl við atvinnulífið
Þróun námsbrautanna verður nátengd samstarfsaðilum í
atvinnulífinu, m.a. fatahönnunarfyrirtækinu Steinunni á
textílbraut og tölvuleikjaframleiðandanum CCP á teikni-
braut. „Með þessu viljum við búa til nám sem hefur mjög
skýra tengingu í atvinnuvegina og skoða hvað sé mikilvægt
fyrir fyrirtækin, en reyna líka að halda því nógu opnu til að
það gagnist þeim sem vilja nýta sér það í persónulega list-
sköpun. Reynsla grannþjóðanna sýnir að menntun af þessu
tagi leiðir til þess að litlum og meðalstórum fyrirtækjum
fjölgar, fyrirtækjum sem eru með 5-15 starfsmenn og greiða
góð laun.“
Að sögn Ingibjargar er mikilvægt að námsbrautirnar
verða skilgreindar á fjórða þrepi íslensks gæðastaðals
námsbrauta, og skapa því brú sem ekki hefur verið til staðar
áður, úr listnámsbrautum framhaldsskólanna yfir í há-
skólanám. Nemendur ljúka því diploma prófi af brautunum
og geta bætt við sig námi við samstarfsskóla Myndlistaskól-
ans á háskólastigi til að ljúka BA-prófi ef þeir kjósa, en BA-
námið er á fimmta þrepi. „Það hefur sýnt sig við námsbraut
okkar Mótun – leir og tengd efni, sem líka er á fjórða þrepi,
að við höfum getað búið til það gott nám að háskólarnir sem
við störfum með, hafa metið það sem ígildi fyrstu tveggja
ára sinna til BA-prófs. Það er alveg nýtt hér á Íslandi að
þessi brú úr starfstengda náminu inn í háskólana sé til.“
Efnið og aðferðin í forgrunni
Myndlistaskólinn í Reykjavík þróar nýjar námsbrautir í teikningu og textíl
í samvinnu við fyrirtæki Nýr valkostur í listnámi á Íslandi, segir skólastjórinn
Teikning Nemendur undirbúningsdeildar Myndlistaskólans í módelteikningu. Ingibjörg Jó-
hannsdóttir skólastjóri vonar að nýju námsbrautirnar í skólanum geti hafist næsta haust.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
Í SUMAR tóku tveir af sex kórum
Langholtskirkju, Gradualekór
Langholtskirkju og Graduale nobili,
þátt í kórakeppnum erlendis og
unnu ýmist til gull-, silfur- eða
bronsverðlauna í öllum flokkum sem
þeir kepptu í. Kórarnir eru burð-
arvirkið í listalífi Langholtskirkju að
sögn Jóns Stefánssonar kantors.
„Kór Langholtskirkju verður með
tónleika í nóvember þar sem við
flytjum íslensk og norræn verk sem
hafa verið samin fyrir kórinn eða
vegna hans,“ segir Jón. Kórinn var í
samstarfi við John Høybye, tónskáld
og stjórnanda Tritonus-kórsins í
Danmörku, og Kára Bæk, sem
stjórnar kammerkórnum Skýrák í
Færeyjum, og á þremur árum hitt-
ust kórarnir þrisvar í löndunum
þremur og með ný verk sem samin
voru hverju sinni, sérstaklega fyrir
samstarfið. „Við syngjum þau bestu
á tónleikunum og fleira.“
Jóhannes í tvöföldum kvartett
Jón segir erfitt að halda fólki í
bænum yfir páska þegar hefð er fyr-
ir stærstu tónleikum kirkjunnar.
„Ég fékk klikkaða hugmynd, því ég
sætti mig ekki við það að kirkjukór
geti ekki verið með tónleika á föstu-
daginn langa. Ég ætla því að gefa
kórfélögum tækifæri til að spreyta
sig á því að komast í tvöfaldan kvart-
ett, sem á að flytja Jóhannesar-
passíuna eftir Bach með lítilli kamm-
ersveit. Ég er líka bjartsýnn á að
kórfélagarnir verði líka einsöngv-
arar, fyrir utan guðspjallamanninn
sem Þorbjörn Rúnarsson syngur.
Það er mikill spenningur fyrir þessu
í kórnum.“
Í maí verður Berlínarmessan eftir
Arvo Pärt þungamiðja vortónleika
kórsins en Pärt er í hópi virtustu
tónskálda samtímans.
Á sunnudagskvöldið verður tíu
ára afmæli Noack-orgelsins í Lang-
holtskirkju fagnað með tónleikum
Björns Steinars Sólbergssonar, þar
sem hann leikur verk eftir Mendels-
sohn og Bach, og í kjölfarið, kl. 12.15
á hádegi alla næstu viku, verða org-
eltónleikar í kirkjunni, þar sem org-
elnemar leika, og er aðgangur
ókeypis á hádegistónleikana. „Tón-
leikarnir eru opnir öllum, en við höf-
um boðið skólana í kring sérstaklega
velkomna.“
Söngtónleikar verða í kirkjunni 8.
nóvember. „Þá syngja Dísella Lár-
usdóttir og Garðar Thór Cortes
saman. Eivør Pálsdóttir verður með
tónleika í janúar, – bara ein með gít-
arinn sinn og í febrúar leikur Lára
Bryndís Eggertsdóttir Pétur og úlf-
inn í orgelútsetningu Matthíasar
Wegers. Kammerkór Norðurlands
verður líka með tónleika í febrúar.“
Jón segir tónleika í mars, þar sem
ungi baritónsöngvarinn Andri Björn
Róbertsson syngur, verða mjög
spennandi. „Kiri te Kanawa tekur
hann með sér út um allt, og hefur
boðið honum að syngja með sér á
tónleikum í Japan í vetur.“ Þess ber
að geta að Andri Björn er alinn upp í
kórstarfi Langholtskirkju.
Kórarnir bera starfið uppi
Tónlistarveturinn í Langholtskirkju hefst á sunnudag þegar
Björn Steinar Sólbergsson leikur verk eftir Mendelssohn og Bach
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jón Stefánsson Í Langholtskirkju starfa sex kórar: Krúttakórinn, Kórskól-
inn, Graduale futuri, Gradualekórinn, Graduale nobili og Kór Langholts-
kirkju. Eldri kórarnir hafa allir unnið til verðlauna í keppnum bestu kóra.
AÐEINS degi
eftir að nýjasta
spennusaga Dans
Browns, The Lost
Symbol, kom út er
hægt að nálgast
sjóræn-
ingjaútgáfu af
henni á netinu.
Transworld-
bókaútgáfan hef-
ur vitneskju um hina ólöglegu útgáfu
og er að vinna í því að fá hana fjar-
lægða. „Bókin er fáanleg á nokkrum
sjóræningjasíðum. Við erum ekki
ánægð með það en enn sem komið er
er þetta aðeins bandaríska útgáfan,“
sagði Alison Barrow, útgáfustjóri hjá
Transworld, og bætti við að útgáfan
væri að vinna í því að biðja síðurnar
um að taka út hina ólöglegu útgáfu.
The Lost Symbol kom út á þriðju-
daginn og strax í gærmorgun var
hægt að fá hana halaða niður í gegn-
um netið við mikla ánægju bókaorma
sem þökkuðu vel fyrir sig í at-
hugasemdakerfunum á síðunum.
Annars virðist þetta hafa lítil áhrif
á sölu bókarinnar sem rýkur úr búð-
arhillum í orðsins fyllstu merkingu.
Ólöglegur
Dan Brown
The Lost Symbol á
sjóræningjasíðum
Dan Brown
ALESSANDRA Mussolini, barna-
barn ítalska einræðisherrans Benitos
Mussolinis, hefur hótað lögsókn verði
kvikmyndin Francesca sýnd um alla
Ítalíu í næsta mánuði. Myndin hlaut
mikið lof gagnrýnenda á kvik-
myndahátíðinni í Feneyjum og verð-
ur sýnd á Alþjóðlegu kvikmyndahá-
tíðinni í Reykjavík sem hefst í dag.
Ein persóna kvikmyndarinnar,
aldraður Rúmeni, nefnir Alessöndru
á nafn í myndinni og kallar hana
„Mussolini-hóru“ sem vilji láta drepa
alla Rúmena. Alessandra sagði árið
2007 að allir Rúmenar sem byggju á
Ítalíu væru glæpamenn og vakti
mikla hneykslan fyrir. Hún er ítalsk-
ur stjórnmálamaður á hægrivængn-
um og fyrrverandi leikkona. Hún vill
að samtalið, þar sem hún er kölluð
hóra, verði klippt úr myndinni.
Frumsýna á myndina í október á
Ítalíu en hætt var við tvær sýningar á
henni í Feneyjum.
Mussolini á
móti mynd
Samstarfsfyrirtæki Myndlistaskólans í
Reykjavík að nýju námsbrautunum,
Steinunn og CCP, leggja mikið af mörk-
um til samstarfsins, og segir Ingibjörg
skólastjóri það mjög hvetjandi að heyra
að atvinnulífið kalli á fleira fólk með
þessa menntun. „Steinunn Sigurðar-
dóttir hefur sagt að hún sjái mikla mögu-
leika fyrir sig og sitt fyrirtæki í náminu
sem boðið verður upp á, en líka fyrir
textílheiminn almennt, og að það séu mörg
svið þar sem við gætum haft eitthvað að
segja. Hilmar Veigar Pétursson í CCP hef-
ur líka sagt um tölvuleikjateikningu, að
það sé minna mál að kenna fólki á forritin
en hann geti ekki kennt fólki að teikna og
þróa þann myndheim sem hans framleiðsla
byggist á. Slíka þekkingu þurfi fólk að
hafa til að vinna þá vinnu. Þar kemur að
okkur að bjóða upp á námið sem til þarf.“
Fyrirtækin kalla á þekkinguna