Morgunblaðið - 20.09.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Smurbrauð
m/hangikjöti
og kaffi
499,-
einfaldlega betri kostur
Komdu og njóttu
góðra veitinga
©
IL
V
A
Ís
la
n
d
20
0
9
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-19 s: 522 4500 www.ILVA.is
EFTIR Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
„NÆRTÆKARA sýnist að huga að
sérstakri deild innan Héraðsdóms
Reykjavíkur þar
sem tekin yrðu
fyrir mál frá sér-
stökum saksókn-
ara, og sem
dæmdi jafnframt
önnur efnahags-
brot,“ segir
Ragna Árnadótt-
ir dómsmálaráð-
herra um þær
hugmyndir sem
fram hafa komið opinberlega að
koma upp sérdómstól, sem tæki fyr-
ir dómsmál sem upp kunna að koma
í kjölfar bankahrunsins. Ragna seg-
ir að hugmyndin um sérdómstól
væri vissulega rökrétt framhald af
því að sett var á fót sérstakt emb-
ætti saksóknara vegna bankahruns-
ins. Slíkt yrði dýrt og því nauðsyn-
legt að huga að fleiri kostum.
Aðspurð hvort raunhæft sé að
ætla að leggja til meira fé til dóm-
stólanna miðað við aðstæður í þjóð-
félaginu telur Ragna óhjákvæmilegt
að líta til aðstæðna hverju sinni.
Stofnunum á vegum dómsmálaráðu-
neytisins sé gert að skera niður í ár
og á næsta ári, og eru dómstólar
þar ekki undanskildir.
„Dómstólar virðast anna mála-
fjöldanum í dag, þótt álagið sé mjög
mikið, en dómstólar vara við því að
það geti breyst – þeir raunar segja
að það muni breytast. Við getum
státað af mjög skilvirku réttarkerfi,
þar sem ekki fer mikið fyrir töfum á
málsmeðferð fyrir dómstólunum.
Mikið átak hefur verið lagt í að
vinna upp málahala og vilja menn
eðlilega ekki sjá afturför í þeim efn-
um. Ef það breytist verður að taka
með í reikninginn að of löng máls-
meðferð, það er tafir í réttar-
kerfinu, er afar óheppileg fyrir
þjóðfélagið og getur þar að auki
verið mannréttindabrot,“ segir
Ragna.
Hún segir að fulltrúar dómstól-
anna hafa komið að máli við sig og
lýst áhyggjum sínum vegna aukins
málafjölda. Þar nefni menn, auk
sakamála, einkum fjölgun einka-
mála vegna ýmissa gjaldþrotamála
og ágreiningsmála vegna hrunsins.
Dómstólar sjái því fram á aukið
álag, bæði héraðsdómstólar og
Hæstiréttur.
Sérdeild er nærtækari
Ráðherra telur nærtækara að sérdeild innan Héraðsdóms Reykjavíkur fjalli um
afleiðingar bankahrunsins en sérdómstóll Dómstólarnir sjá fram á mikið álag
» Dómstólar anna málafjöldanum í dag
» Óttast að ástandið breytist til hins verra
» Tafir eru óheppilegar fyrir þjóðfélagið
Ragna Árnadóttir
ÚRSLIT í hugmyndaleitinni „Glaðari gaflar“
voru kunngjörð í gær. Mjög margar tillögur bár-
ust um veggverk á húsgafla í Reykjavík og verða
þrjár þeirra styrktar um 300 þúsund krónur
hver. Verðlaunahugmyndirnar eru mjög frum-
legar. Ein gerir ráð fyrir að sjónpípum verði
komið fyrir á húsgöflum. Önnur gerir ráð fyrir
að stálvírar verði strengdir milli tveggja gafla á
lóðum húsa sem hafa verið fjarlægð og vírarnir
teikni „strúktúr“ horfinna húsa. Sú þriðja gerir
ráð fyrir að veggurinn verði málaður í þeim stíl
sem hver og einn hefur áhuga á.
GLAÐARI GAFLAR LÍTA DAGSINS LJÓS
Morgunblaðið/Kristinn
MIKLAR og kröftugar haustrigningar voru 2007 og 2008
og segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur líklegt að
sami háttur verði á þetta haustið og að svipuð tíð haldist
til 10. október og jafnvel lengur.
Einar segir að undanfarin þrjú sumur, þ.e. frá 2007,
hafi verið tiltölulega þurrt suðvestan- og vestanlands.
Veðurlagið hafi síðan breyst upp úr miðjum ágúst og
lægðagangur verið ríkjandi fram eftir hausti. Veðrið hafi
reyndar ekki alltaf verið eins en mynstrið svipað. Mikill
atgangur hafi verið í lægðunum og í fyrra hafi þær verið
sérstaklega vatnsþrungnar, en sú hafi ekki verið raunin í
haust, þrátt fyrir marga blauta daga.
Líklega tilviljun
„Mér finnst líklegast að þetta sé tilviljun,“ segir Einar.
Hann bendir á að í rúman áratug hafi verið hlýr sjór í
kringum Ísland og í Norður-Atlantshafinu og því mætti
gera því skóna að hlýrri sjór en venjulega ætti talsverðan
þátt í að móta stöðu hæða og lægða. „En veðurfar á þess-
um 10 árum hefur verið með ýmsum hætti.“
Einar segir að framundan verði sunnan- og suðvest-
anvindáttir ríkjandi með suðaustanáttarívafi en þegar frá
dragi gæti austanstæðari vindur orðið ofan á. Hann segir
að þetta sé í samræmi við þriggja mánaða spána fyrir
september til nóvember þar sem gert var ráð fyrir
ríkjandi suðlægum áttum og lægðagangi.
steinthor@mbl.is
Veðurlagið endurtekur
sig næstu vikurnar
Morgunblaðið/Frikki
Rok og rigning Enginn er verri þótt hann vökni, en ekki
er beint sandalaveður framundan ef að líkum lætur.
Einar Sveinbjörnsson gerir
ráð fyrir blautri tíð áfram
TAFLFÉLAG
Bolungarvíkur
gengst fyrir
fyrsta alþjóðlega
skákmótinu í Bol-
ungarvík næstu
daga. Teflt verð-
ur frá sunnudegi
til fimmtudags og
er gert ráð fyrir
18 þátttakendum,
þar af þremur
stórmeisturum og fimm alþjóðlegum
meisturum.
Guðmundur Daðason, formaður
TB, segir að tilgangurinn með
mótinu sé fyrst og fremst að gefa
ungum og efnilegum skámönnum
tækifæri til þess að ná áfanga að al-
þjóðlegum titlum, en helsti bakhjarl-
inn er Útgáfufélagið Sögur ehf.
Þekktir skákmenn
TB er með starfsstöðvar bæði fyr-
ir vestan og sunnan og fyrir það tefla
meðal annars stórmeistararnir Jó-
hann Hjartarson, Jón L. Árnason og
Þröstur Þórhallsson. Á meðal ann-
arra liðsmanna má nefna Jón Viktor
Gunnarsson, Braga Þorfinnsson,
Dag Arngrímsson og Stefán Krist-
jánsson.
Stigahæsti maður mótsins er Nor-
munds Miezis frá Lettlandi með
2.558 stig. Daninn Jakob Vang Glud
er með 2.476 stig og Henrik Dani-
elsen, meistari á Skákþingi Íslands
sem haldið var í Bolungarvík á dög-
unum, er þriðji. steinthor@mbl.is
Meistarar
tefla fyrir
vestan
Formaður Guð-
mundur Daðason
Alþjóðlegt skákmót
haldið í Bolungarvík
RÍKISSTJÓRNIN hefur gefið
Landsvirkjun grænt ljós á að hefja
framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun
við Þjórsá.
Áætlanir gera ráð fyrir að uppsett
afl Búðarhálsvirkjunar verði 80-85
MW. Fjárfestingin hefur verið talin
geta kostað u.þ.b. 25 milljarða kr.
Ljóst er að ekki verður ráðist í svo
stórt verkefni nema fyrir liggi samn-
ingar um sölu á raforku frá virkjun-
inni. Ekki virðist vera skortur á
áhugasömum kaupendum. | 26
25 milljarða
stórvirkjun