Morgunblaðið - 20.09.2009, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.09.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirVIKUSPEGILL MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2009 Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is M ótorhjólasamtökin Hells Angels, eða vítisenglar, hafa verið tals- vert í umræðunni hér á landi undanfarið eftir að ljóst varð að mótorhjólaklúbburinn Fáfnir, sem nú hefur lagt það nafn niður, sé kominn með stöðu væntanlegs félags í samtökunum. Ríkislögreglustjóri vill banna starfsemi vít- isengla hér á landi og lagabreytingar á almennri hegningalöggjöf, sem dómsmálaráðherra hyggst leggja fyrir alþingi nú í haust kann að vera skref í þá átt. Það verður þó varla nema sam- tökin fáist skilgreind sem skipulögð glæpa- samtök. „Það er niðurstaða Europol að Hells Angels séu skipulögð glæpasamtök,“ segir Arnar Jens- sonar, tengifulltrúi Íslands hjá Europol, og eigi við samkvæmt skilgreiningu bæði Evrópusam- bandsins og Sameinuðu þjóðanna. En Ísland tekur þátt í fastaverkefni á vegum Europol sem snýst um að safna og greina upplýsingar um starfsemi mótorhjólahópa, sem talin eru ein helsta ógn skipulagðrar glæpastarfsemi í Evr- ópu. Samtök sem talin eru hafa svipaða uppbygg- ingu og vítisenglarnir eru kólumbíska mafían, sú rússneska og hin ítalska Cosa nostra. Vaxandi ofbeldi er hins vegar, að sögn Arnars, alls stað- ar aðalógnin. Fer með vopnaumsjón og öryggismál Hvort sem vítisenglar fá hins vegar skilgrein- inguna skipulögð glæpasamtök hér á landi eða ekki, verður því alla vegna seint neitað að þar séu skipulögð alþjóðleg samtök á ferð með fjölda fyrirtækja á sínum snærum. Húðflúrstof- urnar House of Pain, sem finna má víða um heim, eru t.a.m. í eigu samtakanna. Það eru líka verslanirnar Route 81 sem m.a. selja fatnað, sem og Hells Angels Motorcycle Corporation sem á réttinn að þeim merkjum sem vítisenglar ganga með. Töluvert utanumhald er einnig um mótor- hjólaklúbbanna. Þannig eru alþjóðasamtök engl- anna staðsett í Bandaríkjunum og hver einasti klúbbur, sama hvar hann starfar í heiminum greiðir tiltekið gjald til þeirra. Í Evrópu fer síð- an hollenski klúbburinn með stjórn Evrópumála, dönsku samtökin halda utan um Norðurlöndin og norski klúbburinn sér um Ísland. Regluverkið sem klúbbarnir fylgja er líka al- þjóðlegt og verður íslenski klúbburinn að beygja sig undir það eins og aðrir að sögn Arnars. Þar með talin er skipun forseta, varaforseta, gjald- kera og sérstaks vopnastjóra [e. sargent at arms] yfir klúbbnum hér heima. „Skilgreint hlutverk hans er að sjá um aga og reglu. Hann sér um refsingar innan klúbbs sem utan, öryggismál og aðgerðir gagnvart keppi- nautum og öðrum. Hann sér líka um innheimtu skulda, hótanir og eins og nafnið ber með sér þá hefur hann umsjón með vopnum því klúbbarnir eru meira og minna vopnaðir,“ segir Arnar. Fáfnir hefði heldur aldrei fengið stöðu væntanlegs vítisengla klúbbs án samþykkis al- þjóðasamtakanna. „Sú staðreynd að nýr klúbbur er settur af stað þýðir að einhver annar klúbbur hefur lagt fram tillögu á alheimsþingi samtak- anna um að Fáfnir fengi leyfi til að nota nafn Hells Angels.“ Digur verjendasjóður sem allir greiða í Á vegum alþjóðasamtaka vítisengla er enn fremur starfræktur sérstakur verjendasjóður [e. defence fund] sem allir klúbbar vítisenglanna greiða tiltekið gjald í og fyrirtækin hluta síns hagnaðar. Og verjendasjóðurinn er digur að sögn Arn- ars. „Það eru miklir peningar þarna á bak við,“ segir hann og útskýrir að allir þeir vítisenglar sem þurfi á aðstoð verjenda að halda vegna sakamáls geti sótt um framlag úr sjóðnum. Svo verður því væntanlega einnig um félaga í Fáfni lendi þeir uppi á kannt við lögin. Morgunblaðið/Sverrir Glæpasamtök eða ekki?  Vítisenglar eru alþjóðleg samtök með alþjóðleg lög sem gilda myndu hér á landi  Eru með sérstakan verjendasjóð sem allir félagar samtakanna geta sótt um styrki úr Aðgangur bannaður Liðs- mönnum vítisengla á Norður- löndunum hefur ítrekar verið synjað um landvistarleyfi hér á landi við komuna til Keflavíkur. HELLS Angels Motorcycle Cor- poration er alþjóðlegt fyrirtæki í eigu samtaka vítisengla sem á rétt- inn á öllum þeim merkjum sem fé- lagar í samtökunum fá að ganga með. Filthy few er eitt þessara merkja, en einungis fáeinir útvaldir hljóta það. „Það merki fá þeir að ganga með sem drepa einstaklinga eða fremja mjög alvarlega líkams- meiðingar fyrir klúbbinn,“ segir Arnar. „Ef þeir væru spurðir út í merkið myndu þeir vissulega neita því að hafa drepið einhvern, en merkingin er engu að síður vel þekkt.“ Nokkrir tugir félaga vítisengl- anna á Norðurlöndunum bera merkið. Í þeim hópi eru nokkrir þeirra sem komið hafa hingað til lands til að undirbúa inngöngu Fáfnis í samtökin, en sem vísað var frá við komuna til Keflavík- urflugvallar. Filthy few Það eru ekki allir vítis- englar sem fá að bera þetta merki. Merki fyrir þá sem drepa ÁHRIF frá brotastarfsemi fé- lagasamtaka á borð við vítisengl- ana eru að sögn Arnar meiri í minni samfélögum en þeim stærri. Það sanni dæmi frá Austur- Evrópu þar sem klúbbar vít- isengla hafa náð að breiðast hratt út undanfarin ár. Arnar bendir þá á að ástandið sé orðið að rótgrónu samfélags- vandamáli í Danmörku. Á Íslandi sé málið hins vegar enn á upp- hafsreit og því gæti það reynst viðráðanlegt ef gripið væri í taumana strax. Hefur meiri áhrif í minni samfélögum Félagsheimili Húsakynni Fáfnis. ÁTTA Evrópuríki meta starfsemi Hells Angels sem ógn við þjóðaröryggi og ellefu Evrópulönd til viðbótar skil- greina ógnina á næsta stigi fyrir neðan, þ.e. sem svæð- isbundna. Ógnin við þjóðaröryggi felst í því að samtökin eru talin stjórna mansali, fíkniefnaviðskiptum og vopna- smygli. „Notkun skotvopna eykst og morðum fjölgar þar sem þessir klúbbar fá að dafna,“ segir Arnar. Hann bendir á að á einu Norðurlandanna sýni nýlegar tölur að 94% meðlima vítisengla þar í landi eigi að baki sakaferil í alvarlegum brotum. „Þá erum við að tala um morð, alvarlegar líkamsmeiðingar, nauðganir, alvarleg fíkniefnamál og peningaþvætti.“ Bannaðir í Kanada Í Kanada hafa dómstólar ítrekað úrskurðað að vítis- englarnir séu skipulögð glæpasamtök og bannað starf- semi þeirra. Svipuð þróun á sér nú stað í Þýskalandi, en þar í landi hefur ofbeldi í kringum starfsemi samtakanna aukist gríðarlega síðustu þrjú ár. Þýskir dómstólar og innanríkisráðherrar einstaka sambandslanda þýska ríkisins hafa líka bannað samtökin, m.a. í Hamborg og þá er félögum bannað að bera einkennismerki vítis- englanna í Brandenburg þar sem þau þykja verulega ögrandi. Það eru ekki hvað síst tengsl vítisenglanna við hægri öfgasamtök á borð við nýnasista sem vekja áhyggjur í Þýskalandi og raunar víða. Danir leita sömuleiðis leiða til að hefta starfsemi vítisenglanna þar í landi, enda hefur mikið verið um átök undanfarin ár í Dan- mörku milli vítisengla og annarra hópa, oft innflytj- enda. Komið hefur til um 130 skotbardaga undan- farin ár í Danmörku þar sem 51 hefur særst og sex látið lífið. Í Hollandi töpuðu yfirvöld hins vegar nýlega ára- langri baráttu fyrir hollenskum dómstólum fyrir því að fá vítisenglana úrskurðaða sem skipulögð glæpa- samtök. „Niðurstaða hæstaréttar var að vafi var talinn á að svo væri,“ segir Arnar. Erfitt getur verið að hindra starfsemi samtakanna þegar þau einu sinni séu farin að starfa í landinu. „Spurningin er alls staðar sú sama: Eru þetta skipu- lögð glæpasamtök, eða eru þetta samtök manna sem fremja afbrot?“ Þeir lögfræðingar sem taka að sér að verja vítisengla fyrir dómstólum halda því síðara fram – það sé á ábyrgð einstaklingsins fremji hann afbrot. Afstaða Europol er hins vegar önnur – vítisenglarnir séu skipu- lögð glæpasamtök, með skipulag sambærilegt því sem tíðkast hjá rússnesku, kólumbísku og ítölsku mafíunni. Á ábyrgð einstaklingsins? ostur Ríkur af mysupróteinum Bra gðg óð nýju ng 9% aðeins Prófaðu nýja braðgóða Fjörostinn, fituminnsta kostinn í ostaúrvali dagsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.