Morgunblaðið - 20.09.2009, Síða 6
6 FréttirVIKUSPEGILL
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2009
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
A
llir geta lent í peningavanda en sumir
leysa hann með vafasömum hætti.
Finnski lögfræðingurinn Juha Turu-
nen í Turku (Åbo) ákvað að ræna upp
á eigin spýtur 26 ára konu, Minnu
Nurminen, af auðugum ættum. Á fésbókarsíðu
sinni segir hann frá því daginn fyrir ránið að hann
hafi mikið að gera, mottó hans í lífinu sé: „Það er
mannlegt að skjátlast, guðdómlegt að fyrirgefa“.
Turunen hélt Minnu í gíslingu þar til búið var að
greiða lausnargjald er nam átta milljónum evra en
var handtekinn nokkrum dögum síðar.
Fáum kom í hug að þessi stillti menntamaður,
stuttur og þybbinn, með mikinn áhuga á bardaga-
íþróttum og skotfimi, væri líklegt efni í mannræn-
ingja. En fyrir fáeinum dögum var lögð fram
ákæra fyrir „gíslatöku, líkamsárás, grófa truflun á
heimilisfriði og fjárkúgun“, að sögn Ari-Pekka
Koivisto ríkissaksóknara. Turunen gæti fengið 10-
13 ára fangelsi. Í ljós hefur komið að hann hefur
stundað fölsun og fjárdrátt, líklega á árunum 2007
og 2008 en sakaskráin var hrein.
Turunen skipulagði ránið vandlega þegar í árs-
byrjun, Hufvudstadsbladet hafði eftir lögreglunni
að framkvæmdin hefði verið „fagmannleg“. Hann
keypti sér nokkru fyrir ránið tveggja herbergja
lúxúsíbúð í miðborg Turku og þar hélt hann
Minnu í gíslingu í 17 daga.
Vandlega skipulagt mannrán
Áður en hann lét til skarar skríða komst hann
yfir talsverðar upplýsingar um fórnarlambið,
hann sá að Minna var að byrja í nýju starfi og mið-
aði tímasetningar við það. Lúxusíbúðin var vel
hljóðeinangruð og engin leið að flýja, Turunen
hafði gert á henni ákveðnar breytingar til að
tryggja það. Einu tengsl stúlkunnar við umheim-
inn voru þau að lögfræðingurinn færði henni mat
og hún gat horft á sjónvarp.
Ræninginn komst inn í íbúð stúlkunnar í Töölö
auðmannahverfinu í Helsinki um hábjartan dag
27. maí í vor með því að þykjast vera póstur með
pakka. Hann keflaði hana og batt og tókst að
smygla henni út úr húsinu í stórum trékassa í
hvítum sendibil sem hann fékk lánaðan. Einhvern
veginn tókst honum að koma kassanum alla leið
upp í lúxúsíbúðina. Innan við helmingur íbúða í
húsinu var í notkun. Nokkrum dögum síðar krafði
hann ættingjana með tölvupósti og smáskilaboð-
um um lausnargjald, annars myndi Minna deyja.
Fjölskyldan skýrði yfirvöldum frá mannráninu
30. maí. og ákvað að borga en í fullu samráði við
lögregluna. Engu var ljóstrað opinberlega upp
fyrr en skýrt var frá handtöku Turunens 13. júní.
En geysilega umfangsmikil leit hófst um allt
Finnland, smávélum var bannað að fljúga yfir
suðvesturhluta landsins og borið við æfingu flug-
hersins. Einnig var höfð samvinna við önnur
ESB-ríki. Talið var brýnt að halda aðgerðunum
leyndum, ræninginn gæti annars myrt gíslinn.
Þegar féð var í höfn ók Turunen með konuna út
í skóg í Vahto, norðan við Turku, og skildi hana
þar eftir. Lögregla hafði upp á henni nokkrum
stundum seinna, Minna var ómeidd en að sjálf-
sögðu mjög hrædd og miður sín eftir þessa lífs-
reynslu. Turunen var handtekinn sama dag.
„Mannlegt að skjátlast“
Finnski lögfræðingurinn Juha Turunen átti sér fallegt mottó í lífinu en lét peningagræðgina
teyma sig út í mannrán og talið að hann verði dæmdur í minnst 10 ára fangelsi
Fangelsið Húsið í miðborg Turku þar sem Turu-
nen hélt Minnu Nurminen í glæsiíbúðinni.
Í haldi Juha Turunen leiddur
inn í réttarsal í Helsinki í liðinni
viku. Hann huldi andlitið með
hvítri peysu og er sagður hafa
iðrast í varðhaldinu.
AÐSTANDENDUR Minnu hafa lagt
sig fram um að vernda hana fyrir
ónæði í kjölfar málsins; það hefur
tekist svo vel að fjölmiðlar hafa
ekki birt neina ljósmynd af henni.
Móðir Minnu er Hanna Nurmi-
nen, sennilega auðugasta kona
Finnlands, eignmaður hennar er
bóndi, Jaakko Nurminen. Eignir
Hönnu eru sagðar nema 39,5 millj-
ónum evra, um 7,1 milljarði ísl. kr.
Faðir hennar var Pekka Herlin sem
stofnaði risafyrirtækið Kone sem
frægt er um allan heim fyrir fram-
leiðslu á lyftum, sjá má Kone-
lyftur í mörgum húsum á Íslandi.
Um 32.500 manns um allan heim
vinna hjá Kone.
Hanna Nurminen er að vísu tals-
maður stjórnar fyrirtækisins en
hún hefur ekki tekið þátt í deilum
fjögurra systkina sinna, Antti,
Ilkku, Niklas og Ilonu, um arfinn
eftir Herlin sem lést 2003. Hann
arfleiddi með leynd á banabeði
sínum elsta son sinn, Antti, að
helmingi hlutabréfanna í Kone.
En þrjú af systkinunum and-
mæltu erfðaskránni og lauk deil-
unni fyrir tveim árum með því að
hluti samsteypunnar, Cargotec,
var seldur og andvirðinu skipt
milli hinna systkinanna. Hanna á
áfram hlut í báðum fyrirtækjunum
en hin þrjú neita að hafa nokkuð
saman við Antti að sælda framar.
Deildu hart um Kone-milljarðana
Antti Herlin Hanna Nurminen
Ekki hefur verið skýrt frá því
hver greiddi beinlínis lausn-
argjaldið, átta milljónir evra, um
1.500 milljónir ísl. kr., í litlum seðl-
um. Tekist hefur að endurheimta
nær allt féð, það fannst á ýmsum
stöðum í Turku en án aðstoðar
Turunens.
Ræninginn faldi seðlana á mörg-
um stöðum en alls er talið að bunk-
inn hafi vegið um 100 kíló. Talið er
að hann hafi flutt peningana á reið-
hjóli í bílageymslu en týnt hluta af
því á leiðinni.
Turunen virðist ekki hafa skort
fé, tekjur hjónanna 2007 voru alls
70.000 evrur, um 13 milljónir ísl. kr.
Ekki eru vísbendingar um miklar
skuldir eða slæmar fjárfestingar.
Faldi lausn-
arféð víða
í Turku
Falið Bílahúsið í Turku, iðnaðarmenn rák-
ust á seðlahrúgu og létu lögreglu vita.
Mannræning-
inn og lögfræð-
ingurinn Juha
Turunen er 44
ára góðborgari í
úthverfinu Pa-
attinen í Turku,
kvæntur og á
þrjú lítil börn en
er ekki sér-
staklega mann-
blendinn. „Þetta er ágætis fjöl-
skylda,“ sagði einn nágranninn.
„Hann virtist vera ósköp venjuleg-
ur fjölskyldufaðir.“ En orðrómur
er um að skilnaður hafi verið í
nánd.
Ekkert í fari ræningjans eða
hegðun benti samt til þess að neitt
væri að. Turunen fór á skólahá-
tíðir með börnunum og rabbaði við
grannana.
Turunen hefur m.a. verið vinsæll
fyrirlesari við háskólann í Turku,
sérgreinin var fyrirtækjaréttur en
hann vann auk þess að stjórn-
unarverkefnum fyrir stofnunina.
Hann var í framboði til borg-
arstjórnar fyrir jafnaðarmenn
haustið 2008 en sló ekki í gegn; fá-
ir muna yfirleitt eftir honum á
þeim vettvangi.
„Þetta er
ágætis
fjölskylda“
Juha Turunen
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Einnota latex hanskar –
ópúðraðir. Verð: 690 kr.