Morgunblaðið - 20.09.2009, Qupperneq 19
þekkta lokakafla í lífi einnar stærstu
stjörnu sem popptónlistin mun
nokkru sinni eignast.
Capitalism: A Love Story
Leikstjóri: Michael Moore.
Að þessu sinni tekur heimilda-
myndagerðarmaðurinn Moore á
máli sem er öðrum risavaxnara:
Drottnunarvald fyrirtækja yfir
hversdagslífi hins venjulega Banda-
ríkjamanns og þar af leiðandi öðrum
jarðarbúum. Nú eru sakborning-
arnir mun skeinuhættari en General
Motors og vettvangur glæpsins tals-
vert víðfeðmari en bærinn Flint í
Michigan.
Couples Retreat
Leikstjóri: Peter Billingsley. Aðal-
hlutverk: Jon Favreau, Vince Vaughn,
Jason Bateman, Malin Akerman.
Fern hjón úr miðríkjunum bregða
undir sig betri fætinum og skella sér
í frí til Karíbahafsins. Ein fara
gagngert til að bjarga hjónaband-
inu, hin ærslast á börum, í sandi og
sjó. Allt fer vel af stað uns blákaldur
sannleikurinn mjakast upp á yf-
irborðið.
Informant!
Leikstjóri: Steven Soderbergh. Aðal-
leikarar: Matt Damon, Lucas McHugh
Carroll, Eddie Jamison
Nýjasta mynd óskarsverðlauna-
leikstjórans er spaugileg ádeila um
rísandi nafn (Damon) í framleiðslu
landbúnaðarvara. Einn góðan veð-
urdag ákveður hann að leysa frá
skjóðunni um hvað er í gangi á bak
við tjöldin og öðlast með því lýðhylli.
Hann lekur staðreyndum um
græðgi og verðsamráð til alríkislög-
reglunnar, sem gleðst mjög, þangað
til það kemur í ljós að uppljóstr-
arinn er ekki allur þar sem hann er
séður.
NÓVEMBER
A Serious Man
Leikstjórar: Ethan og Joel Coen. Að-
alleikarar: Michael Stuhlberg, Rich-
ard Kind, Fred Melamed, Sari Wag-
ner, Jessica McManus.
Eftir tvær toppmyndir í röð, No
Country for Old Men (’07) og Burn
After Reading (’08), ættu Coen-
bræður að vera í góðum gír. Efnið
lofar góðu, kolsvart grín að hætti
hússins. A Serious Man færir okkur
aftur til 7. áratugarins, inn á heimili
alvarlega þenkjandi manns, nánar
tiltekið efnafræðiprófessorsins
Gopniks (Stuhlberg). En rólegheitin
eru aðeins á yfirborðinu; eiginkonan
er að yfirgefa hann; bróðir hans
virðist gróinn við sófann; sonurinn
er í eilífri skömm í skóla fyrir trúaða
gyðinga og dóttirin er ekki hótinu
skárri, því Gopnik má ekki skilja
fimmeyring eftir á glámbekk, þá er
hann kominn í duftformi upp í nas-
irnar á henni.
The Box
Leikstjóri Richard Kelly. Aðalleikarar:
Cameron Diaz, Frank Langella, James
Marsden, Gillian Jacobs.
Ungfrú Diaz og fyrrverandi X-
maðurinn James Marsden fara með
aðalhlutverkin í yfirnáttúrlegri
hrollvekju eftir költ-leikstjórann
Kelly (Donny Darko). Kassinn sem
vísað er til í titlinum er gefinn ung-
um hjónum (Diaz, Marsden) af und-
arlegum náunga (Langella) sem
verður á vegi þeirra. Hann segir
þeim að ef þau styðji á rétta talna-
röð á kassanum ljúkist hann upp og
fjárhagsáhyggjurnar hverfi eins og
dögg fyrir sólu. Böggull fylgir
skammrifi, sem kostar mannslíf.
Pandorum
Leikstjóri: Christian Alvart. Aðalleik-
arar: Dennis Quaid, Ben Foster, Cam
Gigandet, Norman Reedus, Cung Le.
Útgeimshrollur segir af tveimur
geimförum í ysta afkima himin-
geimsins. Þeir komast að því að þeir
eru ekki einir á ferð. Vakna upp við
vondan draum eftir langan of-
ursvefn og muna þá ekki nokkurn
hlut um ferðalagið og tilgang þess.
Muna ekki einu sinni hvernig þeir
komust um borð en fá smám saman
vitneskju um að eitthvað hryllilegt
hefur gerst.
Whiteout
Leikstjóri: Dominic Sena. Aðalleik-
arar: Kate Beckinsale, Gabriel Macht,
Tom Skerritt, Columbus Short.
Beckinsale fer með hlutverk lög-
reglustjóra sem hefur verið sendur
til Suðurskautslandsins til að rann-
saka lík og hugsanlegt morð sem
var framið í búðum Bandaríkja-
manna. Beckinsale þarf ekki aðeins
að fást við vetrarríki og einangrun
heldur hefur hún aðeins þrjá sólar-
hringa til að leysa málið, þá er heim-
skautanóttin skollin á.
Coco Avant Chanel
Leikstjóri: Anne Fontaine. Aðalleik-
arar: Audrey Tautou, Benoît Poel-
voorde, Marie Gillain.
Nokkrum árum eftir að faðir
hennar skilur hana eftir á mun-
aðarleysingjahæli er Gabrielle Cha-
nel búin að fá vinnu á knæpu. Pabb-
inn lætur aldrei sjá sig, Chanel
syngur og saumar á sig búninga.
Nafnið fær hún af lagi sem hún
syngur á hverju kvöldi merð systur
sinni. Hún fær tækifæri til að
skemmta og hanna búninga fyrir
ríka og fræga fólkið og þegar hún
kynnist breska auðjöfrinum og að-
alsmanninum Arthur Capel fer
lukkuhjólið að snúast fyrir alvöru.
Þessi franska mynd byggist á sjálfs-
ævisögu goðsagnarinnar.
A Christmas Carol
Leikstjóri Robert Zemeckis. Að-
alraddir: Jim Carrey, Gary Oldman,
Colin Firth.
Að þessu sinni fæst Zemeckis við
hið sígilda Jólaævintýri Dickens og
það er náttúrlega ekki nema um
einn mann að ræða til að fara með
hlutverk Skröggs, sem er Jim Car-
rey. Leikarinn lætur ekki þar við
sitja heldur leikur hann draugana
þrjá í þessari tölvuteiknuðu/leiknu
Disney-mynd sem er unnin með
svipaðri tækni og Bjólfskviða.
The Imaginarium of
Doctor Parnassus
Leikstjóri: Terry Gilliam. Aðalleikarar:
Heath Ledger, Christopher Plummer,
TomWaits, Johnny Depp, Jude Law.
Í nýjustu mynd Gilliams sláumst
við í hópinn með farandsýningu
Dr. Parnassus (Plummer), náunga
sem seldi sál sína djöflinum á
augnabliki breyskleikans. Launin?
Doktorinn ræður yfir ímyndunar-
afli manna. Gjaldið? Djöfullinn
eignast sál dóttur Parnassusar
þegar hún verður fullveðja. Og nú
nálgast 16. afmælisdagurinn óð-
fluga. Þessari nýjustu mynd leik-
stjóra Monty Python-gengisins
hefur verið afar vel tekið á kvik-
myndahátíðum.
The Twilight Saga: New Moon
Leikstjóri: Chris Weitz. Aðalleikarar:
Kristen Stewart, Robert Pattinson
Aðdáendur blóðsugusagnabálks-
ins sem kenndur er við Ljósaskiptin
fá annan kafla kvikmyndabálksins í
snemmbúna jólagjöf. Hér segir af
áframhaldandi ástarævintýri stúlk-
unnar Bellu (Stewart) og blóðþyrst-
um elskhuga hennar úr kirkjugarð-
inum, hinum leyndardómsfulla
Cullen (Pattinson).
ÍSLENSKT
HAUST OG VETUR
Eins og fram kom í grein í Morg-
unblaðinu sunnudaginn 13. sept-
ember er metfjöldi íslenskra bíó-
mynda við það að koma fyrir
almenningssjónir. Alls eru það 13
myndir sem verða frumsýndar í
haust og vetur og kennir ýmissa
grasa. En sem fyrr segir má lesa allt
um þær í fyrrgreindu eintaki. Að
endingu vil ég geta tveggja mjög
forvitnilegra og umtalaðra mynda,
The Road og Bad Lieutenant: Port
of Call New Orleans. Þegar þessar
línur eru skrifaðar er enn óákveðið
hvort þær verða frumsýndar í haust
eða fljótlega eftir áramótin.
Hjónafrí Fern hjón fara í frí í Karíbahafinu. Allt fer vel af stað uns blákaldur
sannleikurinn mjakast upp á yfirborðið. Meðal leikenda er Vince Vaughn.
Blóðsuga Megan Fox er andsetin í
gaggó. Handrit skrifar Diablo Cody.
Logandi Stúlkan sem lék sér að eldinum skartar Noomi Rapace. Þeir sem
sáu fyrstu myndina renna örugglega grun í hvað þessi hefur að geyma
19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2009
Tannlæknar!
Vilhelmína tannsmiður
er komin aftur til starfa.
Aðal-starfssvið:
Krónu- og brúarsmíð
með eða án málms.
Vegmúla 2, s: 822 5321
Blátunna
AR
GH
!0
90
9
Breytt tilhögun
í sorphirðu!
Nánari upplýsingar hjá hvoru sveitarfélagi fyrir sig:
Bláskógabyggð: www.blaskogabyggd.is/sorpmal eða þjónustumiðstöð í síma 486-8726.
Grímsnes- og Grafningshreppur: www.gogg.is eða áhaldahús í síma 892-1684.
BLÁSKÓGARBYGGÐ
Frá og með 1. október 2009 hefst tunnuhirðing sorps frá heimilum í Bláskóga-
byggð og Grímsnes- og Grafningshreppi. Þá verða heimilissorpgámar fjarlægðir af
opnum svæðum í sveitarfélögunum. Samhliða verða breytingar á móttökusvæðum
úrgangs í Bláskógabyggð, en móttökusvæði úrgangs í Grímsnes- og Grafnings-
hreppi verður áfram á Seyðishólum.
Frá og með 1. október 2009 verða í Bláskógabyggð tvær móttökustöðvar fyrir
úrgang, að Lindarskógum 10-14 á Laugarvatni og Vegholti 8 í Reykholti. Einnig
verður opið sameiginlegt móttökusvæði sveitarfélaganna fyrir úrgangs að Heiðar-
bæ, Þingvallasveit, yfir sumarmánuðina. Öðrum móttökustöðvum í sveitarfélaginu
verður lokað.
Móttökustöðvar sveitarfélaganna verða opnar á ákveðnum tímum, gerð verður
krafa um flokkun úrgangs og allur úrgangur sem ekki ber úrvinnslugjald verður
gjaldskyldur.
Kynningafundir verða haldnir sem hér segir:
21. september kl. 20.00 í Tjaldmiðstöðinni á Laugarvatni
22. september kl. 20.00 í Félagsheimilinu Borg í Grímsnesi
23. september kl. 20.00 í Félagsheimilinu Aratungu í Reykholti
28. september kl. 20.00 í Þjónustumiðstöðinni á Þingvöllum.