Morgunblaðið - 20.09.2009, Page 20
20 Knattspyrna
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2009
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
E
nda þótt hann verði
hundrað og fimmtíu ára
mun Emmanuel Adeba-
yor aldrei taka annan
eins sprett. Það var
engu nær en sinnepi hefði verið
sprautað upp í óæðri endann á hon-
um. Raunar má gera því skóna að
ekkert spendýr hafi runnið slíkt
skeið frá því klárinn Sörli forðaði
Skúla gamla undan fári þungu um
árið – og hann var ferfættur. Glumr-
uðu Skúla skeifurnar um eyru.
Eða eins og Grímur gamli Thom-
sen orðaði það í vísu:
Rann hann yfir urðir eins og örin
eða skjótur hvirfilbylur þjóti.
Ennþá sjást í hellum hófaförin,
harðir fætur ruddu braut í grjóti.
Sörli var að forða húsbónda sínum
undan fjandaflokki. Hvað gekk
Adebayor til? Hann var að fagna
marki fyrir hina nýju vinnuveit-
endur sína í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu, Manchester City, gegn
þeim gömlu, Arsenal, á Borgar-
leikvanginum í Manchester.
Eftir að hafa skallað knöttinn með
tilþrifum í netið tók Adebayor á rás
yfir völlinn endilangan, svo vind-
urinn sat eftir. Skeiðinu lauk með
því að hann rann nokkrar bíllengdir
á hnjánum og staðnæmdist fyrir
framan stuðningsmenn aðkomuliðs-
ins. Svo sem við var að búast froðu-
felldu þeir af bræði og allnokkrir
spruttu upp úr sætum sínum, reiðu-
búnir að jafna sakirnar við Tógó-
manninn. Óvígur her öryggisvarða
skarst hins vegar af aðdáunarverðri
fimi í leikinn og bjargaði lífi og lim-
um. Einn öryggisvörður varð fyrir
hnjaski í látunum.
Gjörningnum lauk síðan með því
að Kolo Touré, sem fór sömu leið og
Adebayor í sumar, mætti löður-
sveittur á vettvang og dró félaga
sinn spriklandi í burtu.
Skaðar ímynd knattspyrnunnar
Ýmsum var brugðið, þeirra á með-
al Richard Scudamore, fram-
kvæmdastjóra úrvalsdeildarinnar.
Hann fordæmdi skrípalætin og sagði
atvik af þessu tagi skaða ímynd úr-
valsdeildarinnar og knattspyrn-
unnar í heild. „Við viljum að fyrir-
sagnir blaðanna snúist um aðra og
jákvæðari hluti,“ sagði hann.
Adebayor var augljóslega tauga-
spenntur þennan dag og viður-
kenndi eftir leikinn að tilfinning-
arnar hefðu borið sig ofurliði.
Hann baðst velvirðingar á
fagninu.
Oft er von á uppákomum
þegar leikmenn mæta sínum
gömlu félögum en ástandið
var óvenju eldfimt að þessu
sinni enda verður seint sagt að
aðdáendur Arsenal hafi borið
Adebayor á höndum sér.
Það er gömul saga og ný að
stuðningsmenn knattspyrnuliða
móðgist – jafnvel heiftarlega – út í
leikmenn þegar þeir ákveða að söðla
um og leggi fæð á þá upp frá því. Það
sem gerir samband Adebayors við
stuðningsmenn Arsenal óvenjulegt
er sú staðreynd að hluti þeirra hafði
þegar snúið við honum baki meðan
hann skrýddist ennþá búningi fé-
lagsins.
Honum var raunar vel tekið þegar
hann kom frá Mónakó í ársbyrjun
2006 og umsvifalaust gefið nafnið
„Litli Kanu“ vegna þess hvað hann
er sláandi líkur Nígeríumanninum
Nwankwo Kanu sem gerði garðinn
frægan hjá Arsenal á árum áður.
Ekki líkaði Adebayor það illa enda
er Kanu fyrirmynd hans á velli.
Kappinn fór heldur hægt af stað
hjá Arsenal en sprakk út með látum
veturinn 2007-08 og gerði þrjátíu
mörk fyrir félagið – í öllum regnbog-
ans litum. Í manna minnum hafa að-
eins tveir aðrir miðherjar Arsenal
rofið þann múr, Ian Wright og
Thierry Henry.
Eins og í fjósi
Eigi að síður felldi lítill hópur
stuðningsmanna félagsins sig ekki
við Adebayor, þótti hann latur, auk
þess sem hann hlýtur að hafa sett
heimsmet í rangstæðum meðan
hann var á Highbury og síðar Em-
irates-leikvanginum.
Sumarið 2008 var Adebayor þrá-
faldlega orðaður við erlend stórlið,
svo sem AC Milan og Barce-
lona, en eftir japl, jaml
og fuður ákvað hann að
verða um kyrrt á Em-
irates. Óvild-
armönnum hans í
röðum aðdáenda
Arsenal fjölgaði til
muna við þetta en
það er jafnan illa séð
þegar sparkendur
gefa öðrum liðum
undir fótinn.
Hluti vall-
argesta baulaði á hann strax í fyrsta
leik um haustið og ýmsir voru áfram
í kýrlíki allt fram á vorið. Hvort sem
það var af þeim sökum eða öðrum
var Adebayor aðeins skugginn af
sjálfum sér á liðnu tímabili.
Í ljósi þess sem á undan var geng-
ið kom ekki sérstaklega á óvart að
Adebayor skyldi vera seldur frá Ars-
enal í sumar. Hitt var óvæntara að
Manchester City skyldi verða fyrir
valinu en fyrir lá að hinir nýríku blá-
stakkar væru líklegir til að blanda
sér í baráttuna við stórveldin fjögur
um efstu sætin í úrvalsdeildinni. Það
er önnur saga.
Adebayor má eiga það að hann
lýsti því aldrei opinberlega yfir að
hann vildi fara frá Arsenal og þegar
hann var genginn í raðir City fullyrti
miðherjinn að frumkvæðið
hefði komið frá félaginu. Það
væri í fjárþröng og því
væri tilboð City, um 25
milljónir sterlingspunda,
of gott til að hafna því. Á
Adebayor var að skilja
að hann væri að gera Ars-
enal greiða. Menn geta
haft sína skoðun á
þeirri túlkun en athygli vekur að
Arsenal situr enn á sjóðnum sem
hlóðst upp við söluna á Adebayor og
Touré.
Þáttur stuðningsmannanna
Farið hefur fé betra, sögðu stuðn-
ingsmenn Arsenal og fylgdu Adeba-
yor úr hlaði með fúkyrðum. Það var
því deginum ljósara að upp úr gæti
soðið þegar endurfundirnir fóru
fram í Manchester um liðna helgi.
Hermt er að stuðningsmenn Ars-
enal, sem voru í miklum minnihluta
á vellinum, hafi látið aursletturnar
ganga yfir Adebayor þegar í upp-
hitun fyrir leikinn. Síst dró af þeim
þegar leið á miðdegið. Minnst af því
sem þeir höfðu til málanna að leggja
er tækt á prenti og hafa þeir m.a.
verið sakaðir um kynþáttafordóma.
Harry Redknapp, knattspyrnu-
stjóri Tottenham Hotspur, staldraði
við þetta í vikunni. Enda þótt hann
bæri ekki blak af hegðun Adebayors
sagði hann stuðningsmenn Arsenal
ekki geta skorast undan sinni
ábyrgð. „Það er ekki auðvelt að leika
knattspyrnu undir stöðugum sví-
virðingum.“
Það er líka
önnur hlið á
málinu. Sýndi
Adebayor ekki
hinum nýju
stuðnings-
mönnum sínum –
sem hann hefur lof-
að í hástert – lítilsvirð-
ingu með því að fagna
markinu fyrir framan
aðdáendur Arsenal? Varð
hatrið ástinni yfirsterkari?
Alltént var hnefaleikafröm-
uðinum Ricky Hatton, sem fylgir
City að málum, ekki skemmt. Hann
gerir sér grein fyrir því að Adebayor
troði illsakir við Arsenal en það rétt-
læti ekki framkomu af þessu tagi.
Varasamt geti verið að ögra áhorf-
endum á kappleikjum. „Hann á skil-
ið að fá skömm í hattinn,“ segir Hat-
ton.
Óuppgerðar sakir?
Adebayor var ekki bara með aðdá-
endur Arsenal á sálinni, heldur virt-
ist hann einnig eiga óuppgerðar sak-
ir við sína gömlu liðsfélaga.
Einhverjar tæklingar voru vafasam-
ar – í báðar áttir. Þannig gerði Nick-
las Bendtner, miðherji Arsenal, til-
raun til að búta Adebayor í tvennt í
eigin vítateig – en missti marks.
Frægt var þegar Adebayor sló hann
í leik á White Hart Lane í janúar
2008 svo sá á nösum. Daginn eftir
baðst hann velvirðingar á þeim
verknaði en enginn velkist í vafa um
að litlir kærleikar hafa verið með
þeim félögum síðan.
Allt var þetta þó núningur og
hjóm hjá broti Adebayors á Robin
van Persie í síðari hálfleik. Það leit
hreint ekki vel út þegar Tógómað-
urinn steig á andlit síns gamla fé-
laga.
Ekki stóð á viðbrögðum frá van
Persie. Hann sendi frá sér yfirlýs-
ingu fljótlega eftir leik þar sem
hann harmaði „glórulaust og mein-
fýsið“ brot Adebayors á sér. Kvaðst
Hollendingurinn ekki í nokkrum
vafa um að Adebayor hefði ætlað að
meiða sig. Svona yfirlýsingar eiga
sér fá fordæmi, allra síst þegar
gamlir samherjar eiga í hlut.
Mark Clattenburg dómari sá ekki
atvikið en lýsti því yfir eftir að hafa
skoðað það á myndbandi að hann
hefði vikið Adebayor af velli hefði
hann séð það. Enska knattspyrnu-
sambandið ákærði leikmanninn í
kjölfarið og að vel athuguðu máli
ákvað City að taka ekki til varna.
Það þýðir að Adebayor fer sjálf-
krafa í þriggja leikja bann fyrir
brotið á van Persie. Það kemur svo í
ljós á næstu dögum hvort refsing
hans verður þyngd vegna fagnsins.
Hundraðasti maðurinn
Kómísk orðaskipti fóru fram milli
knattspyrnustjóra félaganna,
Marks Hughes og Arsène Wenger, í
vikunni en sá fyrrnefndi er á því að
engin illska hafi verið í broti Adeba-
yors á van Persie. Wenger er á öðru
máli. „Ef þið spyrjið hundrað menn
munu 99 segja að brotið hafi verið
mjög ljótt. Hundraðasti maðurinn
væri Mark Hughes,“ sagði hann.
Wenger viðurkenndi að hann
hefði verið „furðu lostinn og
hneykslaður“ á óvild leikmannsins í
garð Arsenal.
Viðskipti Adebayors og van Per-
sies hafa gefið vangaveltum þess
efnis að sitthvað hafi verið rotið í
herbúðum Arsenal á umliðnum
misserum byr undir báða vængi.
Orðrómur hefur lengi verið um
flokkadrætti og að „afríska klíkan“
með Adebayor og Touré í broddi
fylkingar hafi verið orðin heldur
frek til fjörsins. Þess vegna hafi
þeir verið seldir. Út spurðist á lið-
inni sparktíð að Touré yrti ekki á fé-
laga sinn í vörninni, William Gallas.
Ekki virtist þó fara illa á með
Adebayor og leikmönnum Arsenal,
hvorki fyrir leik né eftir, og í leik-
hléi gátu þeir Cesc Fàbregas varla
slitið hendurnar hvor af öðrum.
Kolo Touré kvartaði þó undan því
eftir leikinn að Arsenal-menn hefðu
sýnt Adebayor tómlæti.
Hlífði fjöri sjálfs sín miður
Það er synd og skömm að Emm-
anuel Adebayor skuli nú fara í leik-
bann. Hann hefur verið hamramm-
ur í upphafi leiktíðar, skorað í öllum
fjórum leikjum City til þessa. Tógó-
maðurinn á samt örugglega eftir að
reynast hinum heiðbláu drjúgur í
vetur læri hann af reynslunni og
hafi hemil á tilfinningum sínum.
Sörli var ekki til frásagnar eftir
Skúlaskeiðið. Klárinn hlífði fjöri
sjálfs sín miður og með blóðga leggi,
brostin lungu á bökkum Hvítár féll
hann dauður niður. Enda þótt
Adebayor væri móður eftir sitt
skeið, hélt hann velli. Og varð ekki
meint af – líkamlega. Það gæti á
hinn bóginn reynst þrautin þyngri
að reisa orðsporið upp frá dauðum.
Yfir urðir eins og örin
Hann er frábær knattspyrnumaður. Um það er engum blöðum að fletta. Meiri áhöld eru um lundarfarið, eins og sparkelskir um
víðan völl urðu vitni að um liðna helgi. Að launum uppskar hann þriggja leikja keppnisbann sem gæti orðið enn lengra. Emm-
anuel Adebayor, miðherji Manchester City, hefur sannarlega stolið senunni í ensku knattspyrnunni á fyrstu vikum leiktíðarinnar.
Reuters
Adeskeið Emmanuel Adebayor lýkur sprettinum mikla fyrir framan froðufellandi stuðningsmenn Arsenal á Borg-
arleikvanginum í Manchester. „Það eru takmörk fyrir því hvað maður getur þolað miklar svívirðingar,“ segir hann.
Bann Emmanuel
Adebayor þarf að
taka út þriggja leikja
bann hið minnsta
vegna uppátækja
sinna um síðustu
helgi.