Morgunblaðið - 20.09.2009, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 20.09.2009, Qupperneq 22
22 Hornstrandir MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2009 Efir Pétur Blöndal pebl@mbl.is S tígurinn heim að húsi Guðmundar Ketils Guð- finnssonar í Reykjarfirði liggur um kríuvarp; þær gera ekki upp á milli gesta og heimamanna, banka í hausinn á þeim öllum. En viðtökurnar eru vinalegri hjá Katli, sem býður blaða- manni upp á nýlagað kaffi af gas- eldavél. Í eldhúsinu eiga allir munir sér sögu. Á veggnum hangir „gamla klukkan hennar ömmu úr eldhúsinu á Ísafirði“, gamli olíulampinn og jafnvel hitabrúsinn „er frá Maríu Maack, sem hún gaf gömlu hjón- unum. Svo smíðaði pabbi matar- borðið“, segir Ketill og lítur í kring- um sig, „fyrir utan innréttingarnar og húsið allt eins og það lagði sig náttúrlega“. Með riffil og krakka Ketill ólst upp í Reykjarfirði á Ströndum til tólf ára aldurs, þá flutt- ist fjölskyldan til Bolungarvíkur við Djúp. En þau áttu húsið áfram í Reykjarfirði og vöndu komur sínar þangað á sumrin. „Eftir að ég flutti héðan hef ég komið á hverju einasta sumri í Reykjarfjörð, utan eitt ár, en það sumar var pabbi veikur,“ segir hann. Móðir hans Guðríður Björg Júl- íusdóttir, alltaf kölluð Gauja, og pabbinn Guðfinnur Jakobsson, kall- aður Finni, komu með Ketil á fyrsta árinu til Reykjarfjarðar. Finni er bróðir Ragnars Jakobssonar, sem enn býr í Reykjarfirði á sumrin, völ- undarsmiður og fyrrverandi fygl- ingur í Hornbjargi. „Ragnar sagði mér í fyrra að ég hefði komið á öxlinni á pabba og á hinni hefði komið riffill sem ég á núna,“ segir Ketill. „Ég átti í erf- iðleikum með að fá hann skráðan, því hann er hálfsjálfvirkur, en það hafð- ist fyrir rest. Hann er ágætur, en illa farinn. Ég er að gera við skiptibún- aðinn og vil hafa hann í lagi, án þess að ég ætli að vera úti á svölum árið um kring að skjóta hrafna.“ Ketill fæddist árið 1947 og bjó með foreldrum sínum í Reykjarfirði þar til búsetu var hætt árið 1959. „Við vorum aðeins tveir bræðurnir allt árið, en svo komu sumarkrakkar. Ég man ekki eftir mér öðruvísi en það væri sundlaug. Hún er byggð ár- ið 1938 og mér fannst einkennilegt að ekki væri sundlaug á hverjum bæ.“ Síðustu tvö árin fór Ketill í skóla í Bolungarvík við Djúp. „Ég þótti sjálfsagt skrýtinn þegar ég kom í fjölmennið, en ég fann ekkert fyrir því,“ segir hann. „Ég var tíu ára þeg- ar ég byrjaði í skólanum og kunni þá að lesa. Við sem bjuggum í sveitinni byrjuðum seinna en aðrir. Ég bjó hjá bróður mömmu fyrsta veturinn, en þann næsta hjá systur hennar.„ – Voru það ekki viðbrigði að fara að heiman svo ungur? „Jú, en sjáðu til, þetta gerist ekki óvænt einn daginn, heldur hefur ver- ið stefnt að þessu árum saman. Þeg- ar manni er kennt að lesa, þá er það vegna þess að þetta stendur til, og maður er ekki vakinn einn morg- uninn: „Jæja vinur, nú þarft þú að fara í skólann.“ Þannig að þegar haustið kemur og ég er að verða tíu ára, þá veit ég að ég fer að heiman og það var bara eðlilegt á þessum af- skekktu stöðum.“ – Af hverju fluttuð þið burt? „Mamma var orðin svekkt á þessu. Hún vildi ekki vera hér vetr- arlangt ef við værum báðir synirnir farnir í skóla. Þau fluttu árið 1959, en bróðir minn hefði þó ekki þurft að byrja í skóla fyrr en árið eftir, því hann var aðeins níu ára. En Ragnar og Lilla bjuggu hér líka og þau vildu alveg eins fara strax.“ Ekki upp á aðra kominn Í óbyggðum við ysta haf skiptir tíminn engu máli. Nema í eldhúsinu hjá Katli, því þar er tifið svo hávært í eldhúsklukkunni. Hann er verklegur með blýantinn á bakvið eyrað; ef- laust notaði pabbi hans líka blýant á sínum tíma, sem tók heljarstökk á túninu og þekkti aldrei annað en bakið og skrokkinn á sér sem flutn- ingstæki – snerti aldrei bíl eftir að hann flutti vestur. Systkin Finna voru þrettán og Menn höfðu sínar kýr og kindur Morgunblaðið/Pétur Blöndal Kirkjugarðurinn Forfeður og formæður Ketils hvíla í kirkjugarðinum í Furufirði, þar sem hann gerir upp bænhúsið. Guðmundur Ketill Guðfinnsson hefur varið öllum sumrum utan einu í Reykj- arfirði og bjó þar fyrstu tólf árin. Það sem vantar upp á stórbrotna náttúruna á Ströndum smíðar hann sjálfur, eins og tíðkast hefur mann fram af manni. Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Golfveisla á Spáni frá aðeins kr. 149.900 Heimsferðir bjóða frábært sértilboð á golfferð á hið frábæra golfsvæði Nuevo Portil rétt við borgina Huelva í Andalúsíu á Spáni. Flogið er í beinu flugi með Icelandair til Sevilla en þaðan tekur aðeins um klukku- stund að aka til Huelva. Gist er á Hotel AC Nuevo Portil **** sem er einstaklega fallegt og gott hótel sem staðsett er við golfsvæðið á Nuevo Portil. Hótelið býður frábæran aðbúnað og fjölbreytta þjónustu. Hálft fæði er innifalið, þ.e. morgun- og kvöldverður. Nánari upplýsingar á www.heimsferðir.is. 3. okt. – Vikuferð frá kr. 149.900 10. okt. – 12 daga ferð frá kr. 199.900 Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Ath. aðeins örfá sæti og takmörkuð gisting í boði á þessu verði! NÝTT Ótrúlegt kynningartilboð!Frábært golfsvæði - Nuevo Portil Verð frá kr. 149.900 Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli í 7 nætur með hálfu fæði. Innifalið: Flug, skattar, gisting á Hotel AC Nuevo Portil ****, ótakmarkað golf, ferðir til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn. Aukalega í 12 nátta ferð 10. október kr. 50.000. 26. sept. – 7 nætur – UPPSELT 3. okt. – 7 nætur – Örfá sæti 10. okt. – 12 nætur – Örfá sæti Nú er tími haustlaukanna Niður núna - upp í vor! Skútuvogur - Grafarholt - Akureyri - Dalvík - Selfoss Egilsstaðir - Reykjanesbær - Kringlan - Smáralind www.blomaval.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.