Morgunblaðið - 20.09.2009, Side 30

Morgunblaðið - 20.09.2009, Side 30
30 Gull MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2009 Gull Magnús hefur keypt töluvert af gulli af einstaklingum. Viðskipti Viðskiptavinur biður Magnús um verðmat. Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Í nýlegu húsi við Pósthússtræti er Magnús Steinþórsson gullsmíðameistari með að- stöðu, þar sem hann metur og kaupir gull af einstaklingum. „Ég tek ekki við hverju sem er, hvorki þýfi, merkilegum gripum né gulli úr tönnum,“ segir hann og legg- ur áherslu á að hann ráðleggi fólki hvað það eigi að gera við gullið sitt. „Oft bendi ég því einfaldlega á að þetta selji það ekki vegna skemmti- legrar smíði eða einhvers annars. Sumt handbragð verður einfaldlega að varðveita.“ Stundum heyrast frásagnir af því að gullsmíðameistarar hafi „stolið“ handverki annarra og reynt að líkja eftir því. Magnús segir að auðvitað séu ekki til ótakmarkaðar útfærslur af skartgripum og því verði margt líkt en tveir handgerðir hlutir verði samt aldrei eins. „Þú færð aldrei tvo hluti eins í gamla handverkinu en steypa má marga eins hluti.“ Fólk vill losna við gullið sitt af margvíslegum ástæðum. „Það var kona hjá mér um daginn sem sagði að enginn vildi gullskartgripi sína, börn- in vildu ekki peningana sem hún fengi fyrir gullið og því ætlaði hún bara að eyða þeim í einhverja vit- leysu,“ segir Magnús. Meistarinn er með sérstakt tæki sem greinir steina og sker úr um hvort um demanta sé að ræða eða ekki. Á meðan Morgunblaðið kynnir sér starfsemina koma nokkrir við- skiptavinir og þar á meðal kona, sem biður Magnús um að meta verðgildi ýmissa hluta. Að lokinni nákvæmri skoðun segir hann að hún fái 56.000 krónur fyrir gullarmband og 15% meira í Bretlandi. Rússneskt dömu- vindlaveski úr gulli, meira en 50 ára gamalt, reynist við skoðun vera 14 karata og samkvæmt verðskránni er það 176.000 króna virði. „Það er ágætt verð á gulli um þessar mundir en það getur lækkað eins og annað,“ segir Magnús. Rólegt í demöntunum eftir hrun Magnús hefur marga fjöruna sopið og hefur verið óhræddur við að fara ótroðnar slóðir. „Eftir hrunið hefur verið mjög rólegt í skartgripasölu,“ segir hann um þá ákvörðun sína að fara út í að kaupa gull og bræða með endurvinnslu í huga. Samfara þessari sölu rekur hann netfyrirtækið demantar.is ásamt Margréti Ragnarsdóttur, eiginkonu sinni, þar sem hann selur skartgripi, oftast sérsmíðaða demantsskartgripi, en viðskiptin eru fyrst og fremst í Bretlandi og Belgíu, þar sem fyr- irtækið er skráð og þau eru með að- stöðu. „Eftir að ríka fólkið hvarf í kjölfar hrunsins hægðist heldur bet- ur um í demöntunum,“ segir hann, en Magnús er meðeigandi verkstæðis í Antwerpen í Belgíu. „Þetta er eitt fullkomnasta skartgripaverkstæði í Evrópu og þar er hægt að búa til allt sem viðskiptavinum dettur í hug,“ heldur hann áfam. Stendur upp og nær í nokkra gripi máli sínu til stað- festingar. Gullið hefur loðað við Magnús frá því hann var í vörninni í gullaldarliði Breiðabliks í fótbolta. Um svipað leyti fór hann að læra hjá föður sínum, Steinþóri Sæmundssyni gullsmíðameistara, og vann síðan hjá fyrirtæki hans og félaga hans, Stein- þóri og Jóhannesi. 1973 stofnuðu bræðurnir Magnús og Sigurður eigið fyrirtæki, Gull og silfur, sem Sig- urður rekur við Laugaveginn. „Um 15 árum síðar keypti ég kastalann við Torquay á Englandi og hóf hótel- og veitingarekstur,“ rifjar hann upp. Á slóðum Agöthu Christie Hótel Torquay var til húsa í kast- alanum sem Agatha Christie gerði ódauðlegan í sögum sínum, en hún fæddist í Torquay og ólst upp í ná- grenni við þessa byggingu sem hafði svo mikil áhrif á hana. Hún hafði líka áhrif á Magnús við fyrstu sýn. „Ég hef alltaf verið tilbúinn að taka áhættu og þegar ég fór fyrst þarna suður eftir heillaðist ég af kastal- anum og umhverfinu, fór í næsta banka og sló fyrir staðnum. Ég byrj- aði á því að fá mér Rolls-Royce- bifreið sem hluta af pakkanum, bauð bankastjóranum í bíltúr og hádeg- ismat og hann féllst á að veita mér lánið í kjölfarið. Ég lagði út frá því að ferðamenn vantaði á svæðið og ég gæti komið með Íslendinga og aðra Norðurlandabúa í kippum. Skömmu fyrir aldamótin urðu breytingar á fjölskylduhögum og við seldum allt saman.“ Andi Agöthu Christie sveif yfir vötnunum, að sögn Magnúsar, og hann vildi virkja þennan anda en fékk ekki meðbyr hjá ráðamönnum. „Ég vildi tengja nafn Torquay við nafn hennar og vekja þannig athygli á svæðinu en það var ekki skilningur á því hjá Bretunum. Í Bandaríkjunum eru sérstakir Agatha Christie- klúbbar með tugi eða hundruð þús- unda meðlima og ég vildi höfða til þessa fólks og fá það í heimsókn. Ég lagði þetta til við ferðamannaráðið og þeim þótti þetta fáránleg hugmynd.“ Magnús segir að hótelreksturinn hafi blásið miklu lífi í atvinnulífið á svæðinu. „Þetta var allt steindautt þegar við komum, en með okkur komu reglulega stórir hópar af Ís- lendingum og þeir voru bestu kúnn- arnir í búðunum. Verslunareigendur létu mig alltaf vita af nýjum vörum og báðu mig um að skila því til íslensku gestanna að þeir fengju góðan afslátt. Það var mikið um hópa, sauma- klúbba, golfhópa og skipsáhafnir, og þeir hreinlega tæmdu búðirnar. Leigubílstjórarnir höfðu líka mikið að gera og þegar við seldum og fórum var slegið upp mikilli veislu til að þakka okkur fyrir viðskiptin. En nú er þetta farið í sama horf og það var áður en við fórum út í reksturinn.“ Eftir hótelreksturinn ákvað Magn- ús að sérhæfa sig í demöntum og fór til Antwerpen. „Ég er eini Norðurlandabúinn sem er félagi í Demantaklúbbi Antwer- pen, virtasta demantaklúbbi í heimi, en félagsmenn eru nánast eingöngu gyðingar,“ segir hann. „Gyðingar stjórna nánast öllum demanta- markaði heimsins og um 80 til 90% af öllum demöntum fara fyrst í gegnum Antwerpen. Árlega sækja 500 manns um inngöngu í klúbbinn og fjórir eru teknir inn. Börn og barnabörn fé- lagsmanna ganga fyrir og því er nán- ast vonlaust að komast inn fyrir dyrnar. Það sem bjargaði mér var að ég var í 50 manna úrtaki sem var val- ið til þess að fara í viðtöl. Ég komst í gegnum fyrstu síuna og var þar með kominn í 15 manna hóp. Annað við- talið kom mér í fimm manna úrtak og þá var ég settur fyrir framan hóp eldri gyðinga, sem spurðu mig spjör- unum úr. Einn spurði hvers vegna þeir ættu að veita mér inngöngu í þennan fræga klúbb og ég sagði svar- ið einfalt. Sárafáir heyrðu hvað ég sagði enda heyrnin farin að gefa sig hjá þeim. „Hverju svaraði hann?“ spurði einhver. „Hann sagði að svarið væri sáraeinfalt,“ svaraði annar háum rómi. Þá hækkaði ég róminn og Alltaf með gull í hö Undanfarna mánuði hefur Magnús Stein- þórsson gullsmíða- meistari auglýst að hann kaupi nýlegt, gamalt og illa farið gull, gullpeninga og gullskartgripi, en gullið endurvinnur hann í skartgripi. Morgunblaðið/Árni Sæberg Gull Magnús Steinþórsson gullsmiður og Margrét Ragnarsdóttir, eiginkona hans, með sýnishorn af framleiðslunni. Greining Verðgildið metið á nákvæman hátt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.