Morgunblaðið - 20.09.2009, Page 33
Umræðan 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2009
Sverrir Kristinsson,
framkvæmdastjóri,
lögg. fasteignasali
Guðmundur
Sigurjónsson,
lögfræðingur,
lögg. fasteignasali
Þorleifur St.
Guðmundsson,
lögg. fasteignasali
Kjartan Hallgeirsson,
lögg. fasteignasali
Geir Sigurðsson,
lögg. fasteignasali
Hilmar Þór
Hafsteinsson,
lögg. leigumiðlari,
lögg. fasteignasali
Magnús Geir
Pálsson,
sölumaður
Þórarinn M.
Friðgeirsson,
lögg. fasteignasali
Jóhanna
Valdimarsdóttir,
gjaldkeri
Elín Þorleifsdóttir,
ritari
Reykjavík
Frá 1957
Elsta starfandi fasteignasala landsins
S : 5 8 8 9 0 9 0 • S í ð u m ú l a 2 1 • 1 0 8 R e y k j a v í k w w w. e i g n a m i d l u n . i s
BOLLAGARÐAR - EINSTÖK EIGN
LANDAKOTSTÚN - SÉRHÆÐ
Vorum að fá til sölu 6 herb. 135 fm sérhæð í þríbýlishúsi við Hávallagötu og Landakotstún.
Hæðin skiptist m.a. í tvær saml. stofur, 4 herb., eldhús, bað o.fl. Sérinng. Sér hiti. Fallegur
garður til suðurs með miklum gróðri. V. 39,9 m. 5066
Vorum að fá í sölu einstaklega glæsilegt 319 fm einbýlis-
hús á einni hæð við Bollagarða á Seltjarnarnesi. Húsið
skiptist m.a. í stofu, borðstofu, garðstofu, sjónvarpshol,
fjögur rúmgóð herbergi, baðherbergi, snyrtingu og fl. Hús-
ið hefur allt verið standsett á sérstaklega glæsilegan hátt m.a. innréttingar, gólfefni, tæki og
lagnir. 4091
HRINGBRAUT 110 - VESTURBÆR
Fallegt 221,3 einbýlishús sem er kjallari, 2 hæðir og ris. Sérstæður 28,8 fm bílskúr fylgir eign-
inni. Samtals er húsið og bílskúrinn 250,1 fm að stærð. Lóðin er gróin með gróðri og hellu-
lögn. Húsið er hvítmálað og virðist í góðu ástandi. V. 43,0 m. 5054
OPIÐ HÚS Á MORGUN (MÁNUDAG) FRÁ KL. 17:00-18:00
OPIÐ HÚS
MIÐLEITI 12 - GLÆSILEG ÍBÚÐ MEÐ ÚTSÝNI
Glæsileg 5-6 herb. 145 fm endaíbúð á 2.hæð í litlu fjölbýli, ásamt 25,4 fm stæði í lokaðri
bílageymslu. Íbúðin sem er öll hin vandaðasta og skiptist þannig: Neðri hæð, hol/gangur, 2
góð herb., eldhús, baðherb., stofa og borðstofa. Á efri hæð er sjónvarpsherb., og svefn-
herb. Gólfefni: Massíft parket er á allri íbúðinni nema baði, en það er flísal. V. 42,0 m. 4766
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 17:00 - 18:00
Vantar einbýlishús
í Fossvogi
Traustur kaupandi óskar eftir 300-
400 fm einbýlishúsi í Fossvogi.
Sttaðgreiðsla í boði fyrir rétta eign.
Allar nánari upplýsingar veitir Kjartan
Hallgeirsson í síma 824-9093.
Árakur 2 og 4 - Garðabær Einstak-
lega glæsileg fullbúin 5 herbergja 232 fm rað-
hús í þessu nýja hverfi. Húsin skiptast í and-
dyri, bílskúr, 2 baðh., 2 stofur, eldhús, 3
svefnh., þvottah. og geymslu. Mögulegt að
hafa allt að 5 svefnherbergi. Einnig er mögu-
leiki á að fá húsin styttra á veg komin, þ.e. tilb.
til innréttinga. V. 51,6 m. 7824
OPIÐ HÚS Á MORGUN (MÁNUDAG)
FRÁ KL. 17:00 - 18:30
Háteigsvegur - nýleg íbúð Nýleg og
rúmgóð 3ja herbergja 109,6 fm íbúð á 1. hæð
í mjög góðu lyftuhúsi í miðbæ Reykjavíkur.
Íbúðin hefur verið öll nýlega standsett og hús-
ið einnig. Sérþvottahús í íbúðinni. V. 21,9 m.
5053
Aðalstræti í hjarta borgarinnar.
Mjög góð velskipulögð 62 fm 2ja herbergja
íbúð á 5.hæð í nýlegu (byggt 1990) lyftuhúsi
við Ingólfstorg í hjarta borgarinnar. Rúmgóð
stofa. Parket og flísar. Mjög gott útsýni. Sval-
ir. Frábær staðsetning. 5063
BREKKUSMÁRI - GLÆSILEGT ÚTSÝNI
Vel staðsett 208 fm endaraðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Glæsilegt út-
sýni er úr húsinu. Lóðin er fullfrágengin, hellulögð aðkoma og til suðurs er timburverönd með
skjólveggjum en með vesturhliðinni er önnur verönd. V. 55,0 m. 4430
UNUFELL - GLÆSILEG ÍBÚÐ MEÐ ÚTSÝNI
Einstaklega falleg og mikið endurnýjuð 4ra herbergja 97 fm íbúð á 4. hæð við Unufell. Sam-
eign mjög falleg og endurnýjuð. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð, m.a. gluggar, gler og
innréttingar, fallegur linolium dúkur á gólfum. Mjög góð staðsetning, skólar í næsta nágrenni
og stutt í helstu þjónustu. V. 18,9 m. 5052
SMÁRATÚN - FLOTT HÚS Á GÓÐUM STAÐ
Fallegt frábærlega velstaðsett 219 fm einbýlishús /endaraðhús í lokuðum botnlanga á fínum
stað á Álftanesi rétt við grunnskóla, sundlaug og íþróttamiðstöð. Flott hönnun. Gott stofu
og eldhúsrými. ca 80 fm timburverandir, heitur pottur og flottur garður. Tvennar svalir. V.
45,0 m. 5064
VORSABÆR
- TVÆR ÍBÚÐIR MIKIÐ ENDURN. HÚS.
Mjög gott ca 290 fm hús á grónum stað í Árbænum. Húsið hefur verið mikið endurnýjað
og eru tvær íbúðir í húsinu í dag. Vandaðar innréttingar. Parket. Húsið er klætt að utan með
STENI og er lóðin mjög góð, ræktuð. Nýlegur mjög góður bílskúr með hárri innkeyrsluhurð.
V. 57,0 m. 5045
OPIÐ HÚS
OPIÐ HÚS
Í MORGUN-
BLAÐINU 2. sept. sl.
birtist grein með fyr-
irsögninni „Útlend-
ingar tilbúnir að greiða
hærra verð – segir
strandveiðar vera sóun
á verðmætum“. Þarna
segir skoðun sína upp-
lýsingafulltrúi LÍÚ,
Sigurður Sverrisson, til
andsvara Jóni Steini
Elíassyni, formanni
SFÚ, Samtaka fiskframleiðenda og
útflytjenda, en Jón segir í blaðagrein
föstudaginn áður: „Strandveiðar í
sumar eru það jákvæðasta í íslensk-
um sjávarútvegi í langan tíma.“
Áfram heldur talsmaður LÍÚ og seg-
ir að verið sé að færa afla og tekjur
frá alvöru útgerðum og sjómönnum
til frístundaveiðimanna og að verð á
íslenskum fiskmörkuðum hafi hrunið
meðan á þessu stóð en hækkað strax
eftir að þessu lauk. Hann segir mark-
mið útvegsmanna að ná hámarks-
arðsemi úr aflanum og að erlendir
kaupendur séu tilbúnir að greiða
hærra verð en íslenskir fiskverk-
endur, sem þýði að sjómenn fái hærri
laun. Í lokin kemur Sig-
urður með þessa spurn-
ingu til lesenda Morg-
unblaðsins: „Hverju
skilar það að gera út
500 báta, sem engin
þörf er fyrir, í nokkra
daga á ári?“
Undirritaður vill
gjarnan bregðast við
þessari spurningu.
Vissulega getur sú
staða sífellt verið uppi
að erlendar fiskvinnslur
geti borgað hærra verð.
Skoðum tilbúið dæmi.
Ákveðið magn berst að landi á mán-
uði. Íslenska fiskvinnslan ræður við
að greiða 9,5 milljarða sem hráefn-
isverð án þess að fara í þrot en sú
evrópska e.t.v. 10,5 milljarða og fær
því allan fiskinn. Þrátt fyrir að ís-
lenska fiskvinnslan hefði breytt þess-
um 9,5 milljörðum í 15 milljarða í
gjaldeyri fyrir íslenska þjóð dugar
það engan veginn því samkvæmt
LÍÚ-kenningu Sigurðar á samkvæmt
þessu allur fiskur að fara óunninn á
erlendan markað. Sigurður gefur hér
sterklega til kynna að strandveið-
arnar hafi að mestu farið á íslenskan
markað og í íslenska fiskvinnslu. Þar
með er spurning hans komin hring-
inn og svarar sér sjálf. Það skilar því
Sigurður, að þjóðin fær miklu meiri
gjaldeyri.
Þar sem Sigurður er að lofa út-
vegsmenn fyrir það að standa vörð
um hátt verð til sjómanna vil ég upp-
lýsa hann um að þar sem veiðar og
vinnsla fara saman, þ.e. útgerð-
armaður selur til eigin vinnslu, er
stuðst við viðmiðunarverð verðlags-
stofu skiptaverðs sem er verulega
lægra en það verð sem greitt er á ís-
lenskum fiskmörkuðum, sennilega
allt að 20% lægra. Þetta þýðir með
öðrum orðum að þær vinnslur í land-
inu sem vinna úr svokölluðum eigin
afla fá fimmta hvern dag frítt í hrá-
efnisöflun miðað við þá sem kaupa
allt á fiskmörkuðum. Oft hefur ís-
lenskt fiskverkafólk horft öfund-
araugum á eftir fiskinum óunnum í
gámum á erlendan markað. Allar til-
raunir í þá veru að beina fiski til
vinnslu hérlendis hafa enn sem komið
er verið gagnslausar. Erlendir kaup-
endur geta keypt fisk hér á mörk-
uðum þar sem fiskurinn er tiltölulega
nýr en íslenskir kaupendur síður á
mörkuðum erlendis þar sem fisk-
urinn er orðinn mörgum dögum eldri.
Nú virðist mér sem enn þrengi að
íslenskum fiskmarkaði og viss ögur-
stund sé að renna upp í þessum mál-
um. Kannski hefur LÍÚ-maðurinn
bara rétt fyrir sér og kannski á ís-
lensk fiskvinnsla engan rétt á sér og
allur afli ætti að fara óunninn utan.
Sumar útgerðir senda t.d. allan afla
sinn alltaf til vinnslu erlendis og er al-
veg nákvæmlega sama hvað íslenskri
fiskvinnslu líður. Þegar talsmenn út-
gerðar eru farnir að tala eins og þeir
eigi allan fiskinn í kringum landið og
láta eins og íslensk atvinna komi
þessu máli bara ekkert við eru þeir
að skjóta sig í fótinn og gera kröfuna
um fyrningu aflaheimilda enn hávær-
ari.
Og að lokum; hvor er líklegri til að
standa undir íslenska velferð-
arkerfinu, spítölum, atvinnuleys-
isbótum o.s.frv.; íslensk fiskvinnsla
eða bresk?
Upplýsingafulltrúa LÍÚ svarað
Eftir Þorstein Má
Aðalsteinsson »Hvor er líklegri til að
standa undir ís-
lenska velferðarkerfinu,
spítölum, atvinnuleys-
isbótum o.s.frv.; íslensk
fiskvinnsla eða bresk?
Þorsteinn Már
Aðalsteinsson
Höfundur er fiskverkandi hjá
Norðurströnd ehf. á Dalvík.
Miðvikudagsklúbburinn
Miðvikudaginn 18. september var
spilaður eins kvölds tvímenningur
með þátttöku 22 para.
Mikil barátta var um efstu sætin
en að lokum stóðu Birkir J. Jónsson
og Jóhann Stefánsson uppi sem sig-
urvegarar með +65 sem jafngildir
61,6% skor.
Efstu pör voru:
Birkir J. Jónsson – Jóhann Stefánss. 65
Hanna Friðriksd. – Inga L. Guðmundsd. 48
Kristmundur Einarss. – Hafliði Baldurss. 45
Jón Hákon Jónss. – Bragi Bjarnas. 43
Ragnh. Nielsen – Hjördís Sigurjónsd. 43
Miðvikudagsklúbburinn spilar öll
miðvikudagskvöld í húsnæði BSÍ,
Síðumúla 37, og hefst spilamennska
kl. 19.
Spilarar með litla reynslu af
keppnisbrids eru sérstaklega vel-
komnir.
Keppnisstjóri er Sveinn Rúnar Ei-
ríksson.Heimasíða félagsins er
www.bridge.is/mid.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Yfir 33.000 heimsóknir á viku