Morgunblaðið - 20.09.2009, Page 34

Morgunblaðið - 20.09.2009, Page 34
34 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2009 NÆR 11 þúsund kjósendur skoruðu á forseta Íslands að synja staðfestingar lögum um ríkisábyrgð vegna Icesave- samninga. Tæp 5% kjósenda. Eins og bú- ast mátti við lagði langstærstur hluti þeirra nafn sitt við áskorunina eftir að Alþingi samþykkti ríkisábyrgð- arfrumvarpið á föstudegi og þar til forsetinn, Ólafur Ragnar Gríms- son, tók á móti henni á Bessastöð- um á mánudegi, 31. ágúst. Ólafur sagði að hann teldi brotið blað með því forseti Íslands tæki formlega á móti slíkri áskorun. Það hefði ekki gerst áður. Forset- inn kvaðst þannig vilja sýna virð- ingu lýðræðislegri viðleitni al- mennra borgara á viðsjárverðum tímum. Ekki þarf að efast um það. Líklegt er að með þessu hafi for- setinn einnig viljað undirstrika að 26. grein stjórnarskrár Íslands sé gild samkvæmt orðanna hljóðan. Allflestum var það raunar þegar ljóst, að frátöldu Morgunblaðinu og ef til vill einum málsmetandi fræðimanni. En líka má túlka gerðir forsetans þannig að hann hafi viljað leggja áherslu á rétt- mæti þess að synja fjölmiðlalögum staðfestingar árið 2004. Hafi verið rétt að synja fjöl- miðlalögunum staðfestingar hafi verið rétt að synja einnig staðfest- ingar umræddum lögum um rík- isábyrgð. Fyrir því eru sömu rök. Í báðum tilvikum má ætla að gjá hafi myndast milli þings og þjóðar og bæði málin vörðuðu gríðarlega hagsmuni almennings. Forsetinn tók ekki undir sjónarmið um að ríkisábyrgðin væri á einhvern hátt sambærileg við mál sem und- anþegin eru þjóðaratkvæðagreiðslu í dönskum lögum, rútínumál á borð við fjárlög eða fullnustu al- þjóðasamþykkta. Icesave-málið væri einstakt. Forsetinn minnti reyndar á í því sambandi að hér gilti íslensk stjórnskipan en ekki dönsk. Fráleit var einnig sú hugmynd að þjóð- aratkvæðagreiðslu um ríkisábyrgð vegna Ice- save-samninga mætti túlka þannig að Ís- lendingar hygðust í framtíðinni greiða at- kvæði um hvort þeir borguðu skuldir sínar eða ekki. Þeir sem ákafast predikuðu að samþykkja bæri rík- isábyrgðina um- svifalaust og án fyr- irvara, stilltu málinu gjarnan upp þannig að það snerist einfaldlega um hvort Íslendingar vildu standa í skilum eða heita vanskilamenn. Sá málatilbúnaður var óheið- arlegur eða í besta falli vanhugs- aður. Málið var ekki þannig vaxið að allir sem voru á móti vildu ein- faldlega neita að borga. Andstaðan við ríkisábyrgðina var og er af margvíslegum toga. Áskorunin sjálf tók enga afstöðu til Icesave- frumvarpsins, hvorki með né á móti, en „hin eina rétta nið- urstaða“ er sú sem sæmileg sátt getur orðið um í samfélaginu. Burt séð frá því hvort rétt var að fallast á ríkisábyrgðina eða ekki, er ljóst af ákvörðun forseta Íslands, að 26. grein stjórnarskrár- innar dugir ekki til. Þjóðin þarf að fá sjálfstæðan rétt til að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu. Al- menningur þarf að geta gripið inn í og komið í veg fyrir að stjórn- málamenn beri hagsmuni hans fyr- ir borð eða stýri samfélaginu í þrot. Almenningur þarf að geta borið hönd fyrir höfuð sér, og fá almennt meiru ráðið um samfélag sitt. Á Ítalíu og í Sviss getur 1% kjósenda knúið fram þjóð- aratkvæðagreiðslu um mál. Kjós- endur í sambandslöndum Þýska- lands geta knúið fram þjóðaratkvæðagreiðslu. Sama er að segja um mörg svonefnd nýfrjáls ríki. Fámenni og einsleitni gera Ís- land sérstaklega vel fallið til að viðhafa þjóðaratkvæðagreiðslu. Sú hugmynd er hættuleg að al- menningur leggi í blindni traust sitt á stjórnmálamenn og flokka þeirra. „Græði á daginn og grilli á kvöldin.“ Íslensk stjórnmál miða að illa upplýstum kjósendum og of- ríki peninga- og flokkshagsmuna. Rökrétt niðurstaða þess liggur nú fyrir og hulunni er svipt frá aug- um landsmanna. Vanhæfni og spilling eru merki íslenskra stjórn- mála í huga flestra. Samt á enn upp á pallborðinu sú lífseiga af- staða gegn lýðræði að almenningi sé ekki treystandi til að gera sjálf- ur út um mikilvægustu mál sín. Hann muni láta lýðskrumara af- vegaleiða sig og kjósa gegn hags- munum sínum. Farsælast sé að fólk láti hina gamlagrónu „lands- feður“, stjórnmálaflokkana, ákveða hvað því sé fyrir bestu. Hið hlá- lega er að meintir lýðskrumarar eru einmitt þessir sömu gam- algrónu „landsfeður“. Trúin á þá hefur algerlega bilað en situr samt föst. Jafnvel þótt þjóðin standi í miðjum rústum forsjár þeirra og ofríkis. Er þjóðin munaðarlaus? Lýðskrum þrífst þar sem lýð- ræði er vanrækt. Hættan stafar því af íslensku stjórnmálakerfi. Ekki þjóðinni. Ekki fólkinu sem byggir landið og á mest undir því að stjórnað sé af viti. Almenningur Íslandi getur vel áttað sig á hvað honum sjálfum er fyrir bestu þeg- ar afdrifaríkustu mál samfélagsins eru annars vegar. Almenningur er miklu líklegri til þess og færari um það en stjórnmálamenn. Tvö frumvörp um þjóð- aratkvæðagreiðslu liggja fyrir Al- þingi. Annað gamaldags stjórn- arfrumvarp, og svo frumvarp þingmanna Borgarahreyfing- arinnar. Hið fyrra er óhætt að leggja til hliðar en hið síðara má bæta, og stíga eitt lítið skref í átt til aukins lýðræðis. Íslensk stjórn- mál þarf svo auðsjáanlega að hugsa upp á nýtt. Frá grunni. Vandséð er hvernig það getur orð- ið, en það verður að gerast. Lýðræði, forsetinn og 26. greinin Eftir Hjört Hjartarson » Þjóðin þarf að fá sjálfstæðan rétt til að knýja fram þjóð- aratkvæðagreiðslu. Hjörtur Hjartarson Höfundur var talsmaður „Í okkar hendur“ áskorunar á vefsíðunni kjosa.is SAMTÖK um sjálf- stætt líf, SSL (e. In- dependent Living movement), voru stofnuð hér á landi á þjóðhátíðardaginn 17. júní 2009 af hópi fatl- aðs fólks, en Sjálfs- björg, ÖBÍ og Þroskahjálp hafa stutt við framtakið ásamt starfsfólki í fötlunarfræðinni við Háskóla Ís- lands. Stofnfundurinn var haldinn á Hótel Borg við Austurvöll þar sem samþykkt voru lög félagsins og kosin stjórn. Að stofnfundi loknum var heilsað upp á afmæl- isbarnið Jón Sigurðsson; styttuna á Austurvelli. Markmið félagsins er að val- defla og styðja fatlaða ein- staklinga samkvæmt hug- myndafræði um sjálfstætt líf, efla lífsgæði fatlaðs fólks, vinna að rétti einstaklingsins til að hafa stjórn á eigin lífi er aðrir sam- félagsþegnar taka sem gefnu. Fé- lagið á að gæta réttar ein- staklingsins til fullrar þátttöku og jafnræðis í samfélaginu, að hafa stjórn á eigin aðstoð og þar með sínu lífi. Félagið er hluti af hinni al- þjóðlegu Independent Living-hreyfingu, al- þjóðlegri borg- arahreyfingu fólks með fötlun. Upphafið má rekja til réttindabaráttu fatlaðs fólks í Kali- forníuháskóla í Berkeley í Bandaríkj- unum, sem á sjöunda og áttunda áratug síð- ustu aldar barðist fyr- ir því að lifa sjálf- stæðu lífi og fá þá þjónustu/aðstoð sem til þess þyrfti. Gagnrýnin beindist að því hversu mikil völd heilbrigðisstarfsfólk hafði yfir daglegu lífi fatlaðs fólks. Það mót- mælti þessu með þeim rökum að fatlað fólk væri ekki sjúkt og þyrfti ekki á umönnun heilbrigð- isstarfsfólks að halda. Baráttan hafði áhrif, og ákveðið var að setja upp nýtt fyrirkomulag á aðstoð við fatlaða stúdenta á háskólasvæðinu sem fólst í því að nemendurnir skilgreindu sjálfir þarfir sínar, hversu mikilli og hvers konar að- stoð þeir þyrftu á að halda og hve- nær og hverjir veittu aðstoðina. Þátttaka þeirra í háskólalífinu jókst og frammistaða þeirra í námi var mun betri. Hug- myndafræði um sjálfstætt líf fór að breiðast út til annarra landa og hafa samskonar samtök verið stofnuð víða um heim. Í Svíþjóð var haldið upp á 25 ára afmæli samtaka um sjálf- stætt líf í nóvember á síðasta ári. Hægt er að nálgast upplýsingar á ensku á www.independ- entliving.org. Það var orðið löngu tímabært að fatlaðir Íslendingar tækju málin í sínar hendur og ynnu að raunverulegu sjálfstæði og full- veldi yfir sínu eigin lífi. Loksins erum við að komast á kortið! Í tilefni af stofnun SSL var félags- og tryggingamálaráðherra, Árna Páli Árnasyni, færð gjöf (torf á silfurbakka) ásamt bréfi hinn 19. júní sl. til þess að vekja athygli ráðuneytisins á: AÐ HLUSTA Á GRASRÓTINA! Frelsisaksturinn 2009 – Kröfur Hinn 16. september sl. hittust yfir 400 frelsisökumenn frá meira en 20 löndum og fóru að húsi Evrópuþingsins í Strassborg í Frakklandi. Þangað komu þeir ýmist gangandi, akandi, leiddir af aðstoðarmönnum eða hjálp- arhundum. Þó að fólk glími við mismunandi fötlun á það sér sameiginlegt markmið: Sjálfstætt líf. Hópurinn afhenti forseta Evrópuþingsins eftirfarandi kröfur: 1. Við skorum á Evrópusam- félagið að tryggja að sjálfstætt líf verði þungamiðjan í stefnu- mótun í málefnum fatlaðs fólks hjá Evrópusambandinu, eins og tjáð er í áætlun ESB fyrir fólk með fötlun, aðgerðaáætlun fyrir fólk með fötlun og í 19. grein sáttmála SÞ um réttindi fólks með fötlun. 2. Við hvetjum Evrópusam- félagið til að halda áfram að að- stoða við þróun á samfélagslegri þjónustu til að ná að afstofn- anavæða alla Evrópu. 3. Við köllum eftir því að það verði litið á það sem okkar mannréttindi að fá persónulega aðstoð, til að tryggja að við njót- um okkar sjálfstæða lífs til fulls. 4. Við köllum eftir tækifæri til þess að njóta til jafns við aðra frelsis til að fara um með aðstoð persónulegrar aðstoðar. 5. Við köllum eftir því að ESB eyrnamerki 5% af þróunaraðstoð sinni til stuðnings við áætlanir til sjálfstæðs lífs í þróunarlöndum. 6. Við skorum á Evrópusam- félagið að fullgilda með öllu sátt- mála SÞ um réttindi fólks með fötlun, að skrifa undir og full- gilda viðauka við þann sáttmála og að greinar hans verði sam- tvinnaðar lögum og stefnumótun ESB. Samhliða þessu viljum við að aðildarríki verði beitt þrýsingi af stofnunum og fulltrúum ESB til að fullgilda sáttmálann í lög í hverju landi fyrir sig, eins fljótt og auðið er. 7. Við köllum eftir sérstakri tilskipun til að viðhalda og verja réttindi fatlaðs fólks um alla Evrópu. 8. Fatlað fólk og samtök okkar þurfa að koma að allri stefnu- mótunarvinnu á öllum stigum mála, hvort sem um er að ræða hugmyndafræði, undirbúning eða framkvæmd. Ekkert um okkur, án okkar. Áhugasamir um samtökin geta sent póst á sjalfstaettlif@s- imnet.is. Sjálfstætt líf – Frelsi fyrir fatlað fólk Eftir Kolbrúnu Dögg Kristjáns- dóttur » Fatlað fólk sem þarfnast aðstoðar í daglegu lífi vill sama frelsi og sjálfstæði er aðrir borgarar taka sem sjálfsögðum hlut. Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir Höfundur er formaður SSL, Samtaka um sjálfstætt líf. Í ÞRJÁTÍU kyn- slóðir og nokkrum betur hafa íslenskar kotungsfjölskyldur borið uppi líf og dauða þessarar þjóð- ar og haft betur. Flutt hafurtask sitt innar í heiðina þegar harðnar á dalnum og þraukað af harðindi með sauðkindinni og landinu. Þolgæði og þrautseigja hefur einkennt fólkið þar sem saman fór þvermóðska sauðkind- arinnar og lífsvilji. Umliðin veltiár voru ár ókunnra gilda sem óvænt höfðu haldið innreið sína í íslenskt sam- félag. Í krafti þeirra skrúfaði hver annan áfram í stöðugri við- leitni til að eignast meira, gera meira, græða meira og byggja stærra. Að lokum var gullsandi stráð yfir eftirréttinn, lengra komust menn ekki. Hrunið blasti við. Alþýða manna stóð álengdar og horfði tortryggnum augum á auðlegð og lífsmáta sem umturn- aði lífi fólks og skók samfélagið. Veltiárin eru að baki og nú reynir íslensk alþýða að fóta sig á ný og halda reisn sinni. Við er- um sjálfstæð þjóð, byggjum til- veru okkar á íslenskum að- stæðum og margvíslegum samskiptum við aðrar þjóðir á jafnréttisgrunni. Áður en veltiár- in gengu í garð byggðum við upp samskiptanet á fjölmörgum svið- um, sem gerði okkur kleift að efl- ast og þróast í takt við aðstæður hér heima og það sem landið hef- ur upp á að bjóða. Einyrkinn fluttist úr heiðinni til borga og bæja og tók þátt í uppbyggingu samfélagsins með jafningjum. Þannig þokaðist samfélagið smátt og smátt til móts við nútímann þar sem almenn velmegun og réttlæti óx jöfnum höndum í takt við hugmyndafræði þorra fólks. Það voru engir lærðir „spútn- ikkar“ sem trufluðu tilveruna. Samfélagið þokaðist fram á veg- inn í krafti vinnunnar og hug- sjónarinnar um betra líf. Nú hef- ur orðið hrun í íslensku samfélagi og hug- sjónin um betra líf í krafti heiðarlegrar vinnu er ekki lengur jafn trúverðug og hún hefur verið. Út- rásarliðum er kennt um, en það er nú samt svo að ástæður hrunsins eru ekki allar þeim að kenna. Ástæðurnar liggja ekki síður hjá gæslumönnum sam- félagsins sem brugðust hlut- verki sínu, þeim sem þjóðin kaus til að varðveita grundvöll þess. Um áratuga skeið valdi þjóðin Sjálfstæðisflokkinn sem leiðandi afl í íslenskum stjórnmálum. Kosningar eftir kosningar kaus tæpur meirihluti þjóðarinnar hann. Nú verður þjóðin að borga fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Glámskyggn varðstaða hans kostar okkur nú þau vandræði sem við glímum við í dag. Undir lok Sjálfstæðs fólks lýsir Laxness Bjarti í Sum- arhúsum sem manninum „sem sáði í akur óvinar síns allt sitt líf, dag og nótt“ (HKL, Sjálf- stætt fólk, Reykjavík 1961 bls 524). Söm er saga íslensku þjóð- arinnar. Um áratuga skeið hefur hún stritað við að vera sjálfstæð en nú vaknað upp við þann vonda draum að hafa of lengi sáð í akur skæðasta óvinar síns – Sjálfstæðisflokksins – og upp- sker því eins og til var sáð. Það er nöturleg staðreynd, en eitt- hvað til að læra af. „Að sá í akur óvinar síns“ Eftir Jón Hjartarson Jón Hjartarson »Nú verður þjóðin að borga fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Glámskyggn varð- staða hans kostar okkur nú þau vand- ræði sem við glímum við í dag. Höfundur er forseti bæjarstjórnar Árborgar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.