Morgunblaðið - 20.09.2009, Qupperneq 37
Minningar 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2009
Fallinn er frá vinur
minn og félagi, Sigurður Karlsson,
aðeins 64 ára. Hann glímdi við
skelfilegan sjúkdóm síðustu árin,
vann margar orrustur, en játaði sig
að lokum sigraðan og kvaddi lífið
með reisn eins og hann hafði lifað
því.
Sigurður, eða Siggi Kalla eins og
hann var jafnan kallaður, var enginn
meðalmaður. Hann var sannkallaður
höfðingi, það var aldrei lognmolla
eða leiðindi þar sem Siggi var. Þétt-
ur á velli og þéttur í lund, hann var
hrókur alls fagnaðar á vinamótum.
Hann hafði forkunnarfagra tenór-
rödd og söng áratugum saman með
Karlakór Selfoss og söng gjarnan
einsöng með kórnum bæði á tón-
leikum og inn á geisladiska.
Þó Siggi væri ekki langskólageng-
inn var hann vel menntaður, talaði
kjarngóða íslensku og rithönd hans
var svo falleg, að vakti hvarvetna at-
hygli.
Siggi stofnaði verktakafyrirtækið
Verktækni og var eftirsóttur til allra
verka sem félagið tók að sér. Hann
var mjög kröfuharður við sjálfan sig,
en vinsæll af starfsmönnum og við-
Sigurður Snorri Þór
Karlsson
✝ Sigurður SnorriÞór Karlsson
fæddist 11. ágúst 1945
á Hofsstöðum í Staf-
holtstungum. Hann
lést á lungnadeild
Landspítalans 10.
september síðastliðinn
eftir erfið veikindi.
Útför Sigurðar
Snorra Þórs Karls-
sonar var gerð frá Sel-
fosskirkju laugardag-
inn 19. september sl.
skiptavinum sem af-
burða skemmtilegur
og heiðarlegur félagi.
Siggi var lánsamur
maður, hann eignaðist
fjóra syni með eigin-
konu sinni, Kristínu.
En leiðir þeirra skildi.
Seinna kom svo Ing-
unn inn í líf hans og
bókstaflega lýsti upp
tilveruna. Þau voru
eins og sköpuð hvort
fyrir annað, samhent í
einu og öllu. Þau
byggðu sér hús á
bakka Ölfusár. Húsið er háreist og
hæfði þeim vel. Þau ferðuðust sam-
an víða og kunnu að njóta þess sem
lífið gaf.
Á síðustu árum, eftir að Siggi
veiktist af MSA-sjúkdómnum, hef
ég þakkað Guði fyrir Ingunni, sem
elskaði vin minn skilyrðislaust og
hélt í hönd hans allt til lokadags.
Kynni okkar Sigga hófust árið
1979 og þróuðust strax upp í órjúf-
andi vináttu. Við unnum saman, átt-
um flugvél saman og ferðuðumst
bæði innan lands og utan. Samveru-
stundirnar urðu óteljandi bæði í leik
og starfi. Þær verða ekki tíundaðar
frekar hér, en fyrir þær er ég afar
þakklátur.
Sigurður Karlsson var drengur
góður og mun ég ávallt minnast
hans þegar ég heyri góðs manns
getið.
Farðu í friði, fóstbróðir minn og
vinur, til þeirra starfa sem þú hefur
verið kallaður til. Guð gefi Ingunni,
Bellu mömmu, sonum hans og að-
standendum öllum styrk og kraft til
að takast á við sorgina.
Bjarni Jónsson.
Fallinn er frá á Selfossi mikill
framkvæmdamaður og öðlingur,
Sigurður Karlsson. Selfoss er fá-
tækari að gengnum sterkum per-
sónuleika og mikilvirkum þáttak-
anda í mótunarskeiði bæjarins.
Atvinnulífið er fátækara en ekki síð-
ur menningar- og mannlífsflóran,
því hin hlið þessa vinar okkar var
langt yfir hinn efnislega heim hafin.
Söngurinn, flugið og þátttaka í ýms-
um viðburðum og gleðistundum.
Siggi var tilfinningamaður sem
fagnaði tímamótum og sigrum og
naut sín meðal fólks. Að sama skapi
bar hann hag lítilmagnans fyrir
brjósti og þeirra sem urðu fyrir
áföllum.
Drengurinn frá Kjartansstöðum í
Flóa hóf lífsbaráttuna á sjöunda ára-
tugnum. Hann vann sveitastörfin
heima við, fór á sjó og í bygging-
arvinnu á sumrin. Ljóst var að þar
fór maður sem vildi skapa sinn eig-
inn grundvöll. Hann vildi ekki vera
undir annarra vald settur og viljinn
til eigin athafna var sterkur. Verk
hans blasa hvarvetna við í okkar
bæjarfélagi, þau voru unnin af vand-
virkni, ósérhlífni og dugnaði.
Ég leit upp til hans barnungur,
kynntist honum eftir að Steypuiðjan
varð til og hann hóf meðal annars að
flytja steinsteyptar framleiðsluvör-
ur fyrrverandi vinnuveitanda síns á
markað um það leyti sem hann hóf
eigin rekstur. Vinnusemin og traust-
ið var í öndvegi í bland við glettni og
gamansemi.
Samvinna og vinátta föður míns
og hans varð nánari við stofnun
Flugklúbbs Selfoss 1974 og bygg-
ingu Selfossflugvallar. Þar var hinn
óhræddi fórnfúsi verktaki mættur á
svæðið öllum fremri að áræði og
bjartsýni. Siggi var meðal fyrstu
brautryðjenda Selfossflugvallar og
vann frá upphafi mikið starf fyrir
flugklúbbinn. Hann náði góðum tök-
um á fluglistinni eins og svo mörgu
öðru sem lék í huga hans og hönd.
Þau eru mörg verkefnin sem hann
vann fyrir fyrirtæki okkar í gegnum
árin og áhugi hans var ósvikinn á
þróun þess.
Hann átti mikil viðskipti við okkur
hjá Steypuiðjunni og seinna Set. Ef
eitthvað þurfti að ræða hófust símtöl
hans á orðunum: „Steini minn“ af
gömlum vana við Steypuiðjubarnið.
Frásagnarlist, rökræða og gam-
ansemi var honum eðlislæg. Sögur
af stráknum heima á Kjartansstöð-
um, óhörðnuðum unglingi og fyndni
á eigin kostnað varð oft þráður
skemmtilegra og oft ótrúlega vel
fléttaðra sagna sem glöddu áheyr-
endur.
Dægurmálin og viðhorf hins vinn-
andi manns og trúin á frelsi til at-
hafna var samofið sterkri réttlæt-
iskennd. Hann hafði ákveðnar
skoðanir á mönnum og málefnum og
ekki alltaf viðteknar eða hefðbundn-
ar. Með sérstökum áherslum, fersk-
um blæ og einstaklega skemmtilegu
orðfæri og fasi var honum eiginlegt
að fá fólk til að staldra við og sjá
hlutina í nýju samhengi.
Við verðum að horfast í augu við
sífelldan breytanleika tilverunnar
þar sem einstaklingar koma, hafa
misjafnlega langa viðdvöl og hverfa
á braut. Að minnast Sigurðar Karls-
sonar sem lét svo margt gott af sér
leiða er góður skóli til að læra að
meta lífsgildin. Þannig eigum við
umfram allt að minnast hans. Ég
votta öllum hans nánustu samúð
mína og fjölskyldunnar á þessum
erfiðu tímamótum.
Bergsteinn Einarsson.
Mig langar að minnast góðs fé-
laga og vinar í örfáum orðum.
Kynni mín af Sigga Kalla hófust
fyrir rúmlega 20 árum, þegar við
feðgar vorum að leita að húsnæði
fyrir litla fiskverkun, þú varst fljót-
ur að redda þeim málum og innan
mánaðar vorum við komnir á stað
með starfsemina í helmingnum af
iðnaðarhúsi þínu á Eyraveginum.
Þú sýndir okkur hvers þú varst
megnugur þegar við misstum fyr-
irtækið í bruna 22. nóv. 1991. Þá
varst þú mættur daginn eftir til að
rífa niður og byggja upp og 21. des.
1991
hélst þú okkur veislu eins og þér
var einum lagið og afhentir mér lykil
að nýju húsnæði á sama stað, þar
sem við erum enn í dag.
Þær voru ófáar stundirnar sem
við áttum á kaffistofunni í Verk-
tækni, fyrirtækinu þínu, þar sem við
ræddum heimsmálin og línurnar
voru lagðar fyrir framtíðina.
Alltaf varst þú tilbúinn að hjálpa.
Ef einhver var með bilaðan bíl eða
vildi smíða sér kerru, þá var verk-
stæðið þitt á Eyraveginum öllum op-
ið.
Sama má segja um heimilið ykkar
Ingunnar, glæsilegt og gestrisnin í
fyrirrúmi.
Ferðin okkar á Brúna er og verð-
ur ógleymanleg, þegar þú ákvaðst
að bjóða okkur strákunum til Lond-
on á fótboltaleik. Já, þetta voru
skemmtilegir tímar.
Ég stikla hér á stóru af okkar
kynnum, Siggi minn. Það voru for-
réttindi að fá að kynnast þér, gest-
risni þinni og góðvild mun ég aldrei
gleyma.
Elsku Ingunn, Dagur, Áki,
Snorri, Gauti, og Tóti.
Ég sendi ykkur og fjölskyldum
ykkar mínar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Guðmundur Hansson.
Siggi Kalla. Kynni okkar voru
stutt en góð. Þessi merkis- og heið-
ursmaður heillaði mig með fram-
göngu sinni, krafti og lífsskoðun. Við
fyrstu kynni stjórnaði hann malbik-
un á innkeyrslu og bílastæðum fyrir
framan hús mitt og nokkurra ná-
granna. Verksvitið og vinnuhraðinn
vakti athygli og aðdáun. Og verkið
að lokum gallalaust. Þá var þessi
stóri og sterklegi maður orðinn
sjúkur og fæturnir hlýddu honum
ekki. Við áttum nokkur orðaskipti
og skömmu síðar komnir í flugferð
yfir ofanverða Rangárvelli. Hann
þekkti hvern bæ, hvern tind og
hvert fjall. Síðan tóku við ökuferðir
og samræður. Hann sagði mér
margt um Selfoss og líf sitt.
Siggi Kalla skilur eftir skýra
mynd af elju- og dugnaðarmanni,
rausnarlegum höfðingja, sem setti
svip á allt umhverfi sitt. Slíkir menn
eru hverju samfélagi dýrmætir og
kynni af þeim eru mannbætandi. –
Samúðarkveðjur sendi ég fjölskyldu
hans.
Árni Gunnarsson.
Látinn er langt fyrir aldur fram
góður vinur minn og samferðamað-
ur Sigurður Karlsson. En Siggi
Kalla eins og hann var gjarnan kall-
aður var stór og sterkbyggður karl-
maður sem lét mikið að sér kveða í
okkar samfélagi. Hann var virkur
þátttakandi og lét verkin ávallt tala.
Hann lét fátt sér óviðkomandi og
hafði skoðanir á öllum hlutum enda
gaman að rökræða við hann um
landsins gagn og nauðsynjar. Hann
var greiðvikinn og hjálpsamur og
mátti sjaldan aumt sjá.
Þeir sem kynntust Sigga Kalla
fundu fljótt að hann var
góðmenni með stórt rúm í sínu
hjarta. Hann var lífsglaður maður
með góðan húmor og skemmtileg til-
svör sem kættu menn. Leiðir okkar
lágu fyrst saman á unglingsárum,
þegar Siggi Kalla var nýkominn með
bílpróf. Við strákarnir á Selfossi
nutum góðs af því þegar Siggi kom
akandi á nýjum Land Rover-jeppa
sem gat tekið allt að tíu manns í
sæti. Það voru skemmtilegar minn-
ingar sem við rifjuðum oft upp í
góðu tómi. Í kringum sveitarstjórn-
arkosningarnar 1970 lágu leiðir okk-
ar saman að nýju, en þá tókum við
þátt í framboði Gábista á Selfossi.
Áfram liggja leiðir okkar saman
gegnum syni okkar, en Siggi eign-
aðist fjóra syni og ég einnig. Þeir
hafa verið vinir og félagar í gegnum
tíðina. Í nokkra áratugi hefur Siggi
Kalla verið viðskiptavinur á rakara-
stofu minni og sett svip sinn á and-
rúmsloftið þar. Þegar Siggi kom í
klippingu upphófust miklar umræð-
ur, sem flestir tóku þátt í, var hann
þá ekki alltaf tilbúinn að koma í stól-
inn þegar að honum kom.
Frásagnastíll Sigga var áhuga-
verður og skemmtilegur og fékk
menn til að leggja við hlustir. Hann
var afkastamikill verktaki sem skil-
aði mörgum verkum vel og vand-
lega. Eitt sinn sagði hann okkur frá
því að ef hann hætti verktakastörf-
um væru það tvö fyrirtæki sem hann
vildi eignast, það er MBF (Mjólk-
urbú Flóamanna) eða Pylsuvagninn
á Selfossi. Taldi hann það vel rekin
fyrirtæki. En svona eru örlögin, á
vissan hátt varð Sigga að ósk sinni,
fyrir um það bil tíu árum kynnist
Siggi henni Ingunni sinni í Pylsu-
vagninum. Þau kynni leiddu af sér
hamingju þeirra á milli og margar
góðar samverustundir.
Aftur liggja leiðir okkar náið sam-
an en Ingunn er í saumakúbbi með
konu minni og við karlarnir með
okkar félagsskap. Í veikindum sín-
um hefur Siggi barist hetjulega, sem
dæmi um vilja hans kom hann á Sel-
foss föstudaginn 4. sept. sl. fárveik-
ur til að fá sér klippingu og horfa á
Selfossliðið í knattspyrnu sigra Aft-
ureldingu og tryggja sér úrvals-
deildarsæti að ári. Eftir leikinn tal-
aði hann strax um næsta ár í
fótboltanum, þannig var hugurinn.
Að endingu þakka ég þér, Siggi
minn, öll þau góðu kynni sem við
höfum átt í gegnum árin og við kona
mín fyrir allar góðu samverstund-
irnar með ykkur Ingunni bæði til
sjós og lands. Fjölskylda mín sendir
öllum aðstandendum samúðarkveðj-
ur. Við biðjum góðan Guð að varð-
veita Sigurð Karlsson sem setti svo
sannanlega svip á samfélagið okkar.
Björn Ingi Gíslason.
Fleiri minningargreinar um Sig-
urð Snorra Þór Karlsson bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
✝
Ástær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÓSKAR ERLENDSSON,
Hraunholti 5,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn
22. september kl. 13.30.
Elvar Óskarsson, Fjóla Björk Karlsdóttir,
Erlendur Ari Óskarsson, Arna Bryndís Baldvinsdóttir
og barnabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og
langalangafi,
GARÐAR SKAGFJÖRÐ JÓNSSON
fyrrverandi skólastjóri á Hofsósi,
andaðist miðvikudaginn 16. september.
Útförin fer fram föstudaginn 25. september
kl. 13:30 frá Akureyrarkirkju.
Sigríður Garðarsdóttir, Hafsteinn Skaftason,
Erla Erlendsdóttir, Árni Guðmundsson,
afabörn, langafabörn og langalangafabörn.
✝
Bestu þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar
ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
EYGLÓAR MARKÚSDÓTTUR
Álfaskeiði 43,
Hafnarfirði
áður bónda á Ysta Bæli.
Sveinbjörn Ingimundarson,
Örn Sveinbjarnarson, Guðrún Ólöf Guðmundsdóttir,
Sigurður Ingi Sveinbjarnarson,
Markús Sveinbjarnarson, Selma Filippusdóttir,
Ingimundur Sveinbjarnarson, Guðrún le Sage de Fontenay,
Hrafn Sveinbjarnarson, Anna Dóra Pálsdóttir,
Ester Sveinbjarnardóttir, Magnús Sigurðsson,
Helga Sif Sveinbjarnardóttir, Haukur Örn Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær faðir, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
STEFÁN EGILSSON,
Kirkjuvegi 11,
Keflavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Garði,
fimmtudaginn 17. september.
Ástdís Björg Stefánsdóttir, Sveinbjörn S. Reynisson,
Alma V. Sverrisdóttir, Egill Jónsson,
Sigurður J. Kristinsson, Sólborg Bjarnadóttir,
Kristinn Kristinsson.
✝
Innilegustu þakkir færum við öllum þeim sem veittu
okkur stuðing og sýndu samúð sína vegna
veikinda og andláts okkar elskaða,
INGVA SIGURÐAR INGVARSSONAR.
Hólmfríður G. Jónsdóttir
og fjölskylda.