Morgunblaðið - 20.09.2009, Page 38

Morgunblaðið - 20.09.2009, Page 38
38 Minningar MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2009 ✝ Okkar ástkæra frænka, BIRNA BJÖRNSDÓTTIR, til heimilis á Laugarnesvegi 40, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni þriðjudaginn 8. september. Útförin fer fram frá Áskirkju mánudaginn 21. september kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög. Fyrir hönd aðstandenda, Sigríður Antoníusdóttir, Jón Antoníusson, Jóhann Antoníusson, Erlingur Antoníusson, Björn Benediktsson, Haraldur Benediktsson, Guðrún J. Michelsen, Anna S. Björnsdóttir, Jóhanna Björnsdóttir og fjölskyldur. ✝ Faðir okkar, EGGERT BREKKAN læknir, lést í Uppsölum miðvikudaginn 16. september. Útförin fer fram í kyrrþey. Einar Brekkan, Estrid Brekkan, Eggert Friðrik Brekkan. ✝ Ástkær móðir okkar, fósturmóðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR, Hrafnistu, Reykjavík, lést fimmtudaginn 17. september. Guðmundur I. Kristófersson, Ósk Davíðsdóttir, Guðríður Kristófersdóttir, Hallgrímur Jónasson, Sigurður Kristófersson, Hjördís Árnadóttir, Ingveldur Þ. Kristófersdóttir, Helgi Már Guðjónsson, Hannes Kristófersson, Guðríður Ólafsdóttir, Helgi Kristófersson, Guðrún Eysteinsdóttir, Valgerður Eygló Kristófersdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur sambýlismaður minn, bróðir okkar og mágur, ÆGIR BENEDIKTSSON, Sóltúni 11, Reykjavík, lést laugardaginn 5. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát hans. Sigríður H. Arndal, Ingibjörg Benediktsdóttir, Benedikt Elinbergsson, Árdís Benediktsdóttir, Sigurður Jónsson. ✝ Ástkær sonur minn og faðir okkar, SVANBERG TEITUR INGIMUNDARSON vélstjóri, Klapparstíg 5, Keflavík, lést á krabbameinsdeild Landspítalans mánudaginn 14. september. Jarðarförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 23. september kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Fyrir hönd aðstandenda, Jóna Hjaltadóttir, Hafþór Ingi og Sóley Ingunn Svanbergsbörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, JÓHANNES S. SIGVALDASON pípulagningameistari, Sóltúni 13, andaðist á Droplaugarstöðum fimmtudaginn 10. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Aðstandendur vilja færa starfsfólki Droplaugarstaða þakkir fyrir einlæga umhyggju og mikla alúð. Kristbjörg Ólafsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HÓLMFRÍÐUR H. LÖVE, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund sunnu- daginn 6. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Grundar, deild A-3, fyrir frábæra umönnun sl. fimm ár. Agnes Löve, Reynir Jónasson, Guðlaug Freyja Löve, Sigurður Þ. Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Systir okkar og mágkona, HJÖRDÍS KRISTÍN HJÖRLEIFSDÓTTIR, lést á líknardeild Landspítala Landakoti miðviku- daginn 9. september. Útför verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 21. september kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknar- félagið Karitas. Gerður Hjörleifsdóttir, Ásgeir Hjörleifsson, Hjördís Sigurðardóttir. Við fráfall Kristínar Eiríksdóttur verða skilin endanleg. Í nokkur ár hafði hún vissulega verið fjar- læg okkur sem þekktum hana. En nú er kveðjustundin runnin upp og þá er gott að geta yljað sér við góðar minningar. Ég var í hópi þeirra fjöl- mörgu ættingja Bjarna sem ávallt áttu öruggt athvarf á heimili þeirra Kristínar. Þar var oft þröngt setinn bekkurinn en hjartarýmið var alltaf nóg og veitt af rausn. Þar áttu marg- ir góðar stundir. Milli Bjarna og hinna fjölmörgu systkina hans voru náin tengsl, ekki síst milli Þorbjarg- ar móður minnar og Bjarna en hún var næst honum í aldri. Miklir kær- leikar voru með fjölskyldunum og þau fjögur, mamma og pabbi, Krist- ín og Bjarni ferðuðust mikið saman, jafnt innanlands sem utan. Þessa vináttu eignaðist ég líka. Og milli okkar Kristínar myndaðist djúp vin- átta þar sem ég var aðeins þiggjand- inn. Í öllum skilningi var hún veit- andinn. Þar var ég í hópi fjölmargra enda ræktarsemi hennar við brugð- ið. Kristín var falleg kona, sérlega vel eygð, nokkuð hávaxin, þéttvaxin og bar með sér mikla reisn. Hún var ákaflega háttvís í allri framgöngu en um leið hlý og þegar við átti gam- ansöm. Hún klæddi sig alla tíð ein- Kristín Eiríksdóttir ✝ Kristín Eiríks-dóttir fæddist 15. mars 1916 á Hesteyri við Ísafjarðardjúp og ólst þar upp. Hún lést 4. september sl. Útför Kristínar fór fram 18. september frá Dómkirkjunni í Reykjavík. staklega fallega. Hún unni því sem fallegt var, var í eðli sínu mikill fagurkeri. Heimili hennar bar því vitni. Kristín var trú gild- um sinnar kynslóðar. Hún helgaði líf sitt heimilinu og umhyggj- an fyrir Bjarna varð með árunum öllu öðru yfirsterkari. Hún dáði hann mjög, bar hann í raun á höndum sér, og fráfall hans varð henni mikið áfall. Hún minntist nokkrum sinnum á það við mig hve hún sakn- aði hans. Hann fór alltof snemma, sagði hún. Líf þeirra hafði verið gott. Þau gátu hlegið svo mikið, sagði Kristín dóttir þeirra mér einu sinni þegar hún sagði mér frá lífi foreldra sinna. Kristín trúði því staðfastlega að síðar hitti hún Bjarna sinn á grænum grundum. Megi henni verða að ósk sinni. Sá sem eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir. (Hannes Pétursson.) Kristín Eiríksdóttir lifir í minn- ingum okkar sem sakna vinar í stað. Faðir minn, Jón Einarsson, þakkar samfylgd sem varði í 65 ár og aldrei bar skugga á. Gleðistundirnar voru margar. Og í mínum huga er mér virðing og þakklæti efst í huga á þessari kveðjustund, innilegt þakk- læti. Örlögin spinna sinn vef á ýmsan hátt og víst er að enginn ræður sín- um næturstað. Þær dætur Eiríks Benjamínssonar og Elísabetar Hall- dórsdóttur frá Hesteyri voru þrjár. Jóhanna, sú yngsta, lést tvítug að aldri, en Martha, þeirra elst, lifði Kristínu systur sína í nokkrar klukkustundir. Báðar náðu þær mjög háum aldri. Þær systur voru um margt ólíkar. En svo fór að þær fylgjast að nú síðasta spölinn fallegu systurnar tvær frá Hesteyri. Öllum ástvinum votta ég samúð mína. Margrét Jónsdóttir. Nú eru kaflaskil í langri vináttu tveggja fjölskyldna, þegar Kristín Eiríksdóttir er fallin frá. Upphafið má rekja langt aftur, allt til þess er Bjarni Vilhjálmsson, seinni eigin- maður Kristínar, og Ragna Jóns- dóttir, móðir okkar systkina, sem unglingar frá Norðfirði settust á skólabekk fyrir um það bil áttatíu árum í Menntaskólanum á Akureyri. Þar fyrir var Ragnar Jóhannesson, faðir okkar. Vináttuböndin styrktust enn frekar þegar Kristín kom til sögunnar, og þetta unga fólk hófst handa við að stofna heimili sín í Reykjavík í byrjun seinna stríðs. Mikill samgangur var milli fjöl- skyldnanna tveggja sem ekki minnkaði að ráði þó svo að foreldrar okkar flyttust tímabundið upp á Akranes. Það þótti alltaf sjálfsagt að líta inn hjá þeim Bjarna og Kristínu í Lönguhlíðinni og svo seinna meir í Grænuhlíðinni. Þegar um hægðist í lífsbaráttunni tók við önnur barátta en það var bar- áttan við spilaborðið. Þetta fólk, sér- staklega þau Bjarni og Ragna, höfðu undur gaman af því að spila brids við öll hugsanleg tækifæri. Kristín var ekki með frá byrjun, hún byrjaði frekar fullorðin að spila, sennilega af því að það vantaði oft fjórða mann en náði því að verða slyngur bridsspil- ari með aldrinum, sem Rögnu þótti alltaf aðdáunarvert. Kristín var ákaflega traust og glaðlynd, sýndi okkur börnum og barnabörnum Rögnu og Ragnars alltaf mikinn áhuga svo við áttum í henni góðan félaga. Vinátta Krist- ínar og mömmu varð dýpri og ein- lægari með árunum og eftir að báðar voru orðnar ekkjur hittust þær oftar og náðu þeim trúnaðartóni sem þeim gafst kannski ekki tími til í baslinu framan af. Kristínar verður minnst í okkar fjölskyldu sem hjartahlýrrar, alúðlegrar og góðrar konu. Hin forna vinátta fjórmenninganna mun lifa áfram sem virðing og hlýhugur milli fjölskyldnanna tveggja. Við sendum afkomendum þeirra Krist- ínar og Bjarna samúðarkveðjur okk- ar. Guðrún Ragnarsdóttir. Ragnar Ragnarsson. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Engin lengd- armörk eru á greinum sem birtast á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsing- ar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningar- greinunum. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á netfangið minning@mbl.is og láta umsjónar- menn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.