Morgunblaðið - 20.09.2009, Blaðsíða 41
lækningastofu Pálma Möller í Þing-
holtsstræti 11. Hafði Pálmi þá rekið
þar stofu frá árinu 1948. Fékk hann
mig til liðsinnis við sig og voru kaup-
in gerð. Með þessu hófst nýr kafli í
samvinnu okkar sem stóð í 7 ár. Er
ég þakklátur Þorgrími fyrir að hafa
fengið mig til liðs við sig, enda er ég
búinn að vera starfandi þar síðan.
En einmitt í ár eru 50 ár frá opnun
stofunnar okkar.
Á þessum árum var ekki auðvelt
að afla fjár til hvers konar fram-
kvæmda, auk stofukaupa þurfti að
breyta og bæta húsnæðið, kaupa ný
tæki og verkfæri. En með sameigin-
legu átaki tókst þetta. Þessi fyrstu
ár í baráttunni við Karíus og Baktus
voru góð, ekki síst vegna okkar góða
samstarfs. Starfið var ólíkt
skemmtilegra með félaga eins og
Þorgrím sér við hlið. Þorgrímur var
hinn besti félagi, aflaði sér vinsælda
með myndugri framkomu og ávallt
var fagmennska, kímni og léttleiki í
fyrirrúmi.
Minnist ég margra góðra stunda
með honum bæði í leik og starfi,
hann hafði einstaklega góða frá-
sagnargáfu, fróður um flesta hluti
og hrókur alls fagnaðar í hópi koll-
ega og vina. Tónlist, myndlist og
reyndar allt sem tengdist listum var
honum hugleikið. Einnig dáðist ég
að því hve gott hann átti með að um-
gangast börn og unglinga, enda
hændust þau að honum.
Eftir að samvinnu okkar í Þing-
holtsstræti lauk, aflaði hann sér
framhaldsmenntunar í Noregi, hóf
síðan störf á eigin stofu á Bókhlöðu-
stíg, en gegndi jafnframt starfi
tryggingatannlæknis hjá TR. Var
starf Þorgríms hjá TR þó ekki auð-
velt né öfundsvert. Ég lærði margt
af Þorgrími og minningin um góðan
vin og félaga mun ávallt lifa. Við
hjónin vottum Huldu, Önnu og öllum
ættingjum innilega samúð.
Guðmundur Árnason.
Við Þorgrímur Jónsson kynnt-
umst í 2. bekk Menntaskólans á Ak-
ureyri haustið 1942. Urðum við fljótt
góðir málvinir og áttum vel saman.
Vegna veikinda var reglubundið
skólanám Þorgríms rofið í 5. bekk.
Las hann eftir það utanskóla, en
lauk þó stúdentsprófi með okkur
gömlum bekkjarsystkinum vorið
1947. Hann var alltaf einn af okkur,
tryggur sambekkingur og góður fé-
lagi.
Við Þorgrímur drógumst hvor að
öðrum fyrir það að ýmis áhugamál
okkar voru lík, umhugsunarefnin
svipuð. Þetta var einhvers konar
húmanismi, hneigð til að grúska í
listum og bókmenntum, þótt hvor-
ugur græfi sig fastan í þá gröf þegar
frá leið. Þegar út í lífið kom gekk
hvor sína leið, starfsvettvangur ger-
ólíkur og viðfangsefnin eftir því. En
hvenær sem við hittumst stopult síð-
ar á ævinni og tókum tal saman, urð-
um við aftur ungir menntavinir og
elskir að húmanískum hugsjónum!
Fljótt veitti ég því athygli, að Þor-
grímur, 16 ára unglingur, „krakki“
eins og nú er sagt – virtist þaullesinn
í listasögu, einkum sögu sjónlista,
málaralistar og húsagerðarlistar.
Með skynsamlegu tali sínu tókst
honum að beina áhuga mínum fyrir
alvöru að menningarsögu þjóðanna,
a.m.k. hins vestræna heims, ofan á
þá stjórnmálasögu sem linnulaust
var troðið í okkur og ég var upp-
fullur af. Ekki nóg með það, hann
stakk því að mér og sannfærði mig
um, að ný „myndlistarstefna“, mód-
ernismi, væri að ryðja sér til rúms á
Íslandi, enda virt stefna erlendis,
viðtekin í framsæknum listaheimi!
Orðið „módernismi“ heyrði ég því
fyrst af vörum jafnaldra míns, 16 ára
gamals Reykvíkings, veturinn 1942-
43. – Hitt er annað mál að módern-
ismi er nú, 2009, „saga blot“ og
bannsettur póstmódernismi kominn
í staðinn, nema þetta sé allt sama
tóbakið! Þetta ræðum við Buddi,
þegar við hittumst uppi í eilífðinni,
spurninguna um „ismana“ sem
komu og fóru, koma og fara.
MA-stúdentar 1947 sakna vinar í
stað þegar Þorgrímur Jónsson er
fallinn frá. Ástvinum hans eru færð-
ar samúðarkveðjur gömlu bekkjar-
systkinanna og samstúdentanna.
Ingvar Gíslason.
Minningar 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2009
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Yvonne Tix
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu elskulegum
manninum mínum, föður og afa,
EINARI STRAND,
Hraunbæ 49,
Reykjavík,
hjálpsemi í veikindum og fjölskyldunni samúð og
hlýhug við andlát hans og útför.
Virðing ykkar við Einar helgar minninguna um
hann.
Erla Strand,
Einar Þór Strand,
Ágúst Níls Einarsson Strand,
Ásgerður Erla Einarsdóttir Strand,
Ingibjörg Helga Ágústsdóttir.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýju við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
EGGERTS SNORRA SÍMONSEN.
Brynja Símonsen,
Ottó W. Eggertsson, Rut Guðmundsdóttir,
Sigrún B. Eggertsdóttir,
Hafdís L. Eggertsdóttir, Magnús G. Gunnarsson,
Þórunn M. Eggertsdóttir, Böðvar B. Þorvaldsson,
afabörn og aðrir aðstandendur.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
FRIÐRIKU MARGRÉTAR GUÐJÓNSDÓTTUR,
dvalarheimilinu Dalbæ,
Dalvík.
Starfsfólki Dalbæjar eru færðar sérstakar þakkir
fyrir góða umönnun.
Anna Jóna Friberg,
Elsa Björg Friðjónsdóttir, Bjarni Oddsson,
Sveinbjörn Friðjónsson, Sigrún Árnadóttir,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, bróður, mágs og afa,
HARÐAR HALLDÓRSSONAR,
Furugrund 54,
Kópavogi.
Þórdís Sigtryggsdóttir,
Eiríkur A. Harðarson,
Haukur Harðarson,
Sigtryggur Harðarson, Katrín Helga Reynisdóttir,
Vildís Ósk Harðardóttir, Steindór Guðmundsson,
Svanur Halldórsson, Jóhanna Jóhannsdóttir
og barnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
BRAGI JÓNSSON
flugvélstjóri,
Strikinu 8,
Garðabæ,
andaðist á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut
laugardaginn 12. september.
Útförin verður gerð frá Garðakirkju miðvikudaginn
23. september kl. 13.00.
Lilja Bragadóttir, Sigþór Hákonarson,
Hartmann Bragason,
Örn Bragason,
Ásdís Bragadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hrafnhildur Þórólfsdóttir
✝ Hrafnhildur Þór-ólfsdóttir fædd-
ist í Stórutungu í
Bárðardal þann
15.12. 1933. Hún lést
á Heilbrigðisstofnun
Þingeyinga þann
31.7. 2009.
Foreldrar hennar voru Anna Guð-
rún Sveinsdóttir, f. 2.9. 1908, d.
27.3. 2001 og Þórólfur Jónsson, f.
4.11. 1905. d. 16.5. 1991. Systkini
hennar eru: 1) Aðalsteinn Þórólfsson,
f. 31.5. 1928. Kona hans er Guðrún
Jóna Jónmundsdóttir, f. 6.2. 1934.
Þau eiga 7 börn, 29 barnabörn og 5
barnabarnabörn. 2) Jón Sveinn, f.
18.12. 1929. Kona hans er Sigríður
Baldursdóttir, f. 5.4. 1933 og eiga
þau 8 börn, 24 barnabörn og 10
barnabarnabörn. 3) Þórdís Vilborg
Þórólfsdóttir, f. 4.3. 1932, d. 24.8.
1984. Maður hennar var Stefán Egill
Jónsson, f. 10.10. 1927. Þau eiga 8
börn, 19 barnabörn og 9 barna-
barnabörn. 4) Ragnheiður Þórólfs-
dóttir, f. 24.4. 1936. Maður hennar
er Guðni Þór Magnússon, f. 7.11.
1936, þau eiga 6 börn, 19 barnabörn
og 4 barnabarnabörn. 5) Gunnar
Þórólfsson, f. 13.3. 1938. Kona hans
er Þorgerður Kjartansdóttir og eiga
þau 4 börn, 15 barnabörn og 1
barnabarnabarn. Hrafnhildur giftist
þann 10.2. 1972 Hermanni Sigurðs-
syni, f. 28.11. 1933, frá Ingjalds-
stöðum í Reykjadal. Foreldrar hans
voru Kristín Elín Gísladóttir, f. 1.6.
1908, d. 28.3. 1975 og Sigurður Har-
aldsson, f. 29.5. 1899, d. 15.12. 1980.
Hrafnhildur og Hermann ættleiddu
Olgu Hermannsdóttur innheimtufull-
trúa sem fædd er 4.1. 1973. Hún er
dóttir Oktavíu Halldóru Ólafsdóttur
leikskólaliða, f. 4.10. 1954 og Birgis
Bernódussonar sjómanns, f. 4.4.
1946, d. 1.3. 1979. Maður Olgu er
Friðrik Brynjarsson lögreglumaður, f.
13.4. 1973. Dætur þeirra eru: 1)
Birgitta Ósk, f. 25.2. 2004, d. 25.2.
2004. 2) Thelma Líf, f. 8.6.2005. 3)
Alexía Líf, f. 23.5. 2009. Fyrir átti
Olga soninn Sæþór Örn, f. 25.7. 1993
með Þórði Guðna Hreinssyni, f. 26.9.
1965. Hrafnhildur átti fyrir soninn
Gunnþór Hákonarson, verkstjóra hjá
Akureyrarbæ, f. 31.5. 1956. Faðir
hans er Hákon Magnús Magnússon,
f. 11.9. 1933 d. 25.12. 1999. Kona
Gunnþórs er Margrét Arngrímsdóttir,
starfsmaður Íslandspósts, f. 26.10.
1953. Dóttir þeirra er Hrafnhildur
starfsmaður íslandspósts f. 27.6.
1982. Hrafnhildur á einn son, Berg-
svein Mána Sigurðsson, f. 23.4.
2000, með Sigurði Jóhannssyni, f.
21.11. 1982.
Hrafnhildur vann mest við matseld
fyrstu árin og þá mest á Silungapolli,
Menntaskólanum á Akureyri og
nokkur ár á Laugum í Þingeyjarsýslu
og í Barnaskólanum í Bárðardal.
1974 fluttu þau hjónin til Húsavíkur
og fór hún þá að vinna á leikskól-
anum þar og vann þar út sinn starfs-
aldur.
Útförin fór fram þann 7.8. 2009.
Meira: mbl.is/minningar
Minningar á mbl.is
Hrafnhildur Vera Rodgers
✝ Hrafnhildur VeraRodgers var
fædd í Reykjavík 16.
apríl 1944. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu í
Holtsbúð í Garðabæ
þann 8. september
2009.
Foreldrar hennar voru Kristín Ermen-
reksdóttir, afgreiðsludama í Reykjavík,
f. 19.1. 1919 og James Michael Rodgers,
ofursti í flugher Bandaríkjanna, f. 18.11.
1907, d. 22.12. 1973. Systkini Hrafnhild-
ar eru Ingunn Einarsdóttir húsmóðir, f.
10.5. 1952, býr í Kaupmannahöfn og
Michael Anthony Rodgers, Bandaríkj-
unum. Þann 4.6. 1965 giftist Hrafnhild-
ur Arnóri Sveinssyni bifvélavirkja, f.
1.11. 1943. Foreldrar hans voru Sveinn
V. Ólafsson hljóðfæraleikari, f. 6.11.
1913, d. 6.9. 1987 og Hanna Sigur-
björnsdóttir, f. 4.6. 1915, d. 9.11. 2007.
Börn Hrafnhildar og Arnórs eru: 1)
Kristín Björk, f. 1964, maki Sveinbjörn
Hrafnsson. Þau skildu. Börn þeirra eru
Arnór Finnur, f. 1994 og Hrafndís, f.
1996. 2) Sveinn Ólafur, f. 1967, maki
Sandra Berg Cepero, börn þeirra eru
Númi, f. 1997 og Tara, f. 2002. 3)
Hanna María, f. 1969, maki Jón Örn
Kristinsson, börn þeirra eru Kristlaug
Vera, f. 1996, Markús Hávarr, f. 1998 og
Bessi Thor, f. 2005. 4) Ingunn Ásta, f.
1974, dóttir hennar er Hrafnhildur Vera,
f. 1996. 5) Arnar Arnórsson, f. 1979. 6)
Pétur Arnórsson, f. 1979, sambýliskona
hans er Ingibjörg Ylfa Ólafsdóttir.
Hrafnhildur gekk í barnaskóla Mið-
bæjarins og fór þaðan í Gagnfræða-
skóla Vesturbæjar.
Fyrstu árin sín bjó hún að Laugavegi
42, en flutti síðan í Garðastræti 15
(Unuhús) með móður sinni og ömmu.
Hún vann við ýmis störf svo sem að-
hlynningu á sjúkrahúsi, afgreiðslu í
bókabúð og Sundlaug Breiðholts sam-
fara húsmóðurstörfunum sem voru
drjúg á stóru heimili en þau hjón bjuggu
lengst af í Breiðholti.
Útför Hrafnhildar fór fram í kyrrþey
þann 17. september síðastliðinn.
Meira: mbl.is/minningar
Ingibjörg
Elín Aðal-
steinsdóttir
✝ Ingibjörg Elín Að-alsteinsdóttir var
fædd 19. apríl 1927.
Hún lést 10. sept-
ember 2009 á Dval-
ar- og hjúkr-
unarheimilinu Grund.
Útför Ingibjargar
Elínar fór fram frá Neskirkju 17. sept. sl.
Meira: mbl.is/minningar