Morgunblaðið - 20.09.2009, Qupperneq 42
42 Krossgáta
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2009
LÁRÉTT
1. Það í ljóranum sem er ekki gaman að fá.
(12)
5. Brutuð tánögl einhvern veginn á
arkarbroti. (12)
7. Fiskur sænsks óperusöngvara. (5)
9. Óvær fær angur fyrir óp (8)
10. Skál í Norður-Ameríku er strik. (7)
13. Kartöflumús í kynnum við tónlist? (5)
15. Vindur herbergja er mikil viðskipti. (7)
18. Verðlagt náði að verða auðvelt. (12)
20. Með aura reynir að sjá dýr. (6)
21. Óður til turna hjá börnum. (6)
22. Náðir í veikir. (6)
25. Vísan fyrir einn. (6)
26. Vera í ruglingi án gleði. (6)
27. Blaðaútgáfan undir farginu. (7)
29. Barstu einhvern veginn áhald. (6)
30. Vél sem á að botna í loftstraumum. (9)
31. Ristlar ljúka þar við haf. (10)
LÓÐRÉTT
1. Elín gat uppgötvað límkennt efni. (7)
2. Maður sem fær lögaura. (4)
3. Karamellur sem færa dugnað. (6)
4. Sjóliði virti blóm. (6)
5. Fljót neytir ekki matar með þeim
sem eru ekki lausar. (7)
6. Maður sem verndar suðurafrískan
gjaldmiðil. (7)
8. Þvæla um endaðan apríl í tvöfaldri
gráðu. (5)
11. Borðaði varla hálft akarn í megrun. (4)
12. Krókur fyrir mikla er með aðföngin
í byssurnar. (9)
13. Man fram og til baka viðsnúna
tó á skemmtun. (8)
14. Bókarbrot innheldur bæði víl og óp. (6)
16. Gengur saman fyrir fugla núna. (3,7)
17. Frjáls og ekki gömul í lauslæti. (7)
19. Málmmaður er fyrir verksmiðjur. (5)
22. Sniðmát býr til miðlunarvatn. (8)
23. Glámur dettur úr lestrarútgáfum
vegna hollustu. (8)
24. Það er sagt að mynd verði að
mistökum. (6)
28. Ekki með neinum hjá manni. (5)
VERÐLAUN eru veitt
fyrir rétta lausn kross-
gátunnar. Senda skal
þátttökuseðilinn með
nafni og heimilisfangi
ásamt úrlausninni í um-
slagi merktu: Krossgáta
Morgunblaðsins, Há-
degismóum 2, 110
Reykjavík. Frestur til
að skila úrlausn kross-
gátu 20. september
rennur út næsta föstudag. Nafn vinningshaf-
ans birtist sunnudaginn 27. september.
Heppinn þátttakandi hlýtur bók í vinning.
Vinningshafi krossgátunnar 13. september
sl. er Regína Vigfúsdóttir. Hún hlýtur í verð-
laun bókina Ljósaskipti eftir Stephenie
Meyer. Forlagið gefur út.
Krossgátuverðlaun
Nafn
Heimilsfang
Póstfang
Guðrún Kolbrún
„Kolla“ Jónsdóttir er
áttræð í dag, sunnu-
daginn 20. september.
Hún er ekkja Sigurð-
ar Árnasonar sem
kenndur var við Teppi
en hann lést fyrir ára-
tug. Þau höfðu búið í
Mazatlan í Mexíkó í
tvo áratugi. Eftir lát
Sigurðar sneri Kolla
heim á ný eftir dvöl-
ina í Mexíkó þar sem
hún rak hótel með
eiginmanni sínum,
Marcos Suites.
Kolla er fædd í Vestmannaeyj-
um, af hinni kunnu Grafarætt,
dóttir Jóns Bjarnasonar frá Ár-
múla í Ísafjarðardjúpi og Árnýjar
Friðriksdóttur í Gröf, systur Ben-
ónýs „Binna í Gröf“ sem var lands-
Guðrún Kolbrún
Jónsdóttir
fræg aflakló. For-
eldrar Kollu ráku
gistiheimili í Eyjum.
Eftir skilnað for-
eldra sinna fór Kolla
í fóstur að Syðri-
Hömrum í Ása-
hreppi í Rangár-
vallasýslu hjá Sig-
urði Sigurðssyni og
dóttur hans Elínu
Sigurðardóttur.
Eftir fermingu lá
leiðin til Reykjavík-
ur. Kolla bjó hjá
Ragnhildi systur
sinni um tíma og Árnýju móður
sinni og sambýlismanni hennar,
Árna Sigfússyni bakarameistara.
Þá dvaldi hún ár í Danmörku þar
sem hún kenndi íslensku börnum
Högna Björnssonar læknis og
Huldu konu hans. Þá starfaði hún
á Ritsímanum og í skóverslun
Björns Ófeigssonar. Árið 1950
gengu Kolla og Sigurður í hjóna-
band en hann var þá að ljúka
námi við Vélstjóraskóla Íslands.
Sigurður stundaði farmennsku en
kom í land eftir að hafa keypt ný-
móðins upphitað matarborð í Am-
eríku og setti upp matstofu í
Hafnarstræti sem hann rak í
fimm ár. Sigurður var fæddur á
Akranesi 1924, sonur Árna B. Sig-
urðssonar háskera og Þóru Ein-
arsdóttur Möller.
Börn þeirra Sigurðar og Kollu
eru: Árni Benóný, fæddur 1950,
Sigurður Þór, fæddur 1952, Þóra
Kolbrún, f. 1954, Rut, f. 1960 og
1972 fæddust tvíburarnir Snorri
sem lést 1973 og Sturla. Siggi í
Teppi var þjóðkunnur athafna-
maður, festi kaup á teppaverslun
og setti síðar upp teppagerð inn
við Súðarvog af miklum stórhug.
Með EFTA-aðild 1971 breyttust
skilyrði íslensks iðnaðar svo senn
voru dagar innlendrar teppagerð-
ar taldir. Árið 1979 héldu þau
hjón til Mazatlan á vesturströnd
Mexíkó, ráku hótel við ströndina
þar til Sigurður féll frá í maí 1999.
Ég átti því láni að fagna að
kynnast Kollu þegar ég var ung-
lingur í félagskap með frænda
mínum, Árna Benóný. Við gengum
í Réttarholtsskóla og ég var all-
tíður gestur á heimili þeirra við
Suðurgötu. Kolla stýrði stóru
heimili af miklum myndarskap,
hjartahlý, brosmild og sýndi ung-
lingnum ávallt mikla vinsemd. Svo
vel leið unglingnum á Suðurgöt-
unni að jafnvel dúndrandi músíkin
í Glaumbæ náði á stundum ekki að
toga hann í glauminn hinum megin
við Tjörnina. Siggi í Teppi var
höfðingi af gamla skólanum. Við
vinir Árna fundum sterka nærveru
þjóðsagnapersónunnar Sigga í
Teppi þó við sæjum hann ekki oft.
Árni hefur dvalið langdvölum í út-
löndum þar sem hann á velgengi
að fagna, fastur fyrir með ríka
réttlætiskennd og stundar við-
skipti á sinn hljóðláta hátt fjarri
skarkala fjölmiðla.
Ég sendi Kollu bestu kveðjur
með þakklæti fyrir allt gamalt og
gott.
Hallur Hallsson.
AFMÆLI
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda efni
til Morgunblaðsins – þá birtist val-
kosturinn Minningargreinar ásamt
frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Greinar, sem berast eftir að útför
hefur farið fram, eftir tiltekinn skila-
frests eða ef útförin hefur verið gerð
í kyrrþey, eru birtar á vefnum,
www.mbl.is/minningar. Æviágrip
með þeim greinum verður birt í
blaðinu og vísað í greinar á vefnum.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög.
Minningargreinar