Morgunblaðið - 20.09.2009, Qupperneq 43
Auðlesið efni 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2009
Kristján Guðmundsson
myndlistarmaður fékk
Carnegie-verð-launin og
afhenti Margrét Þórhildur
Danadrottning listamanninum
þau við hátíð-lega athöfn í
Kunsthal Charlotten-borg í
Kaupmanna-höfn. Verð-launin
eru þau virtustu hvað
sam-tíma-mynd-list á
Norður-löndunum varðar.
Verð-launa-féð er ein milljón
sænskra króna. Sýningin mun
fara um Norður-löndin og til
fleiri landa, þar á meðal til
Bretlands.
Þegar blaða-maður spyr
hvort hann sé hrærður segir
hann nei, með semingi, en
gengst þó við þakklætinu. En
þetta muni þó ekki hafa nein
áhrif á hann, þannig. „Þetta
breytir engu … svoleiðis.
Hefur a.m.k. engin áhrif á
mynd-listina mína. Ég held
bara mínu striki. Þetta er
svona eins og að fá fimm ára
starfs-laun eða eitthvað slíkt.
Ég get haldið áfram að vinna,
keypt efni og borgað
reikningana …“ segir Kristján.
„Það var ein-hver kona
hérna með henni, þær voru að
dedúa eitthvað í kringum
verkin. Jú, jú, hún spurði mig
aðeins út í þetta. Ég held að
henni hafi litist alveg
ágætlega á. Drottningar
ráðast ekki á lista-menn, og
Margrét er geðþekk – eins og
ég hafði reyndar heyrt að hún
væri.“ Þannig lýsir Kristján
kynnum sínum af Margréti
Dana-drottningu.
Verð-launin voru fyrst veitt
árið 1998 og hafa Íslendingar
tekið við þeim tvisvar áður.
Árið 2005 fékk Eggert
Pétursson önnur verðlaun og
Hreinn Friðfinnsson fékk
önnur verðlaun árið 2000. Í ár
voru 23 listamenn tilnefndir
en fulltrúar Íslands voru þeir
Kristján og Egill Sæbjörnsson.
Kristján fékk Carnegie-verð-launin
Scanpix
„Mér líður betur og ég er byrjuð að
borða pínu,“ segir Alexandra Líf
Ólafs-dóttir sem er nú óðum að ná sér
eftir bein-mergs-skipta-aðgerð sem
hún gekkst undir fyrir fjórum vikum
vegna MDS-krabba-meins.
Foreldrarnir, Ólafur Páll Birgis-son
og Kolbrún Björns-dóttir, hafa skipst á
að vera hjá Alexöndru Líf en hún er nú
laus úr algjörri einangrun.
„Hún varð svo glöð þegar mamma
hennar mátti knúsa hana
almennilega og koma við hana án
þess að vera með hanska og grímu,“
segir Ólafur Páll, faðir Alexöndru Lífar.
Hann segir þau hjónin bjart-sýn og
að Alexandra Líf hafi verið nokkuð
hress undan-farna daga. Þó verði að
fara varlega vegna sýkingar-hættu.
Tón-leikar voru haldnir til styrktar
Alexöndru Líf og fjölskyldu og þar
söfnuðust rúmlega fimm milljónir.
Alexandra Líf segir að tón-leikarnir
hafi verið teknir upp og að fjölskyldan
ætli að horfa á þá þegar hún verður
komin heim af spítalanum.
Fékk að knúsa mömmu
Borgar-stjórn Reykjavíkur stað-festi
samning um sölu á 32% hlut
Orku-veitu Reykjavíkur (OR) í HS orku
til kanadíska fyrir-tækisins Magma
Energy á miklum hita-fundi. Var
samningurinn stað-festur með átta
atkvæðum meiri-hlutans gegn sjö
atkvæðum minni-hlutans.
Fjöldi fólks var saman-kominn á
pallana í borgar-stjórnar-salnum í
Ráð-húsinu en hópur er kallar sig
Vaktin hafði hvatt til mót-mæla á
pöllunum. Lög-reglan hafði verið
kölluð á staðinn og eftir að
salernis-rúllu var kastað niður af
pöllunum um það leyti sem
atkvæða-greiðslu um málið lauk var
einn maður hand-tekinn og tveir til
við-bótar sem reyndu að stöðva
hand-tökuna.
Salan á
HS orku
sam-þykkt
Morgunblaðið/Heiddi
Íslenska kvenna-lands-liðið í knatt-spyrnu
vann sinn stærsta sigur í sögunni er það
tók á móti Eistum í undan-keppni HM á
Laugardals-velli. Loka-tölur urðu 12:0
eftir að staðan hafði verið 7:0 í hálf-leik.
Margrét Lára Viðarsdóttir og Hólmfríður
Magnúsdóttir gerðu hvor um sig þrjú
mörk og varnar-maðurinn og fyrir-liðinn
Katrín Jónsdóttir gerði tvö. Tvö mörk til
við-bótar litu dagsins ljós fyrir leik-hlé er
Edda Garðarsdóttir skoraði annað
þeirra með glæsilegu vinstri fótar skoti
frá vítateig.
Íslenska liðið réð gjörsamlega gangi
mála allan fyrri hálf-leikinn og stelpurnar
héldu uppteknum hætti í þeim síðari og
Hólmfríður, sem hafði átt fjöl-mörg færi
og fullt af skotum, braut ísinn á 49.
mínútu með fyrsta marki sínu. Sara bætti
við og síðan komu tvö til við-bótar frá
Hólmfríði áður en Rakel Hönnudóttir
gerði síðasta markið og var það virkilega
gaman fyrir hana þar sem hún kom inn í
byrjunar-liðið og átti fínan leik.
Markamet í Laugardalnum
Ein-staklingum sem eru á
van-skila-skrá hefur fjölgað
hratt frá banka-hruninu. Þeim
mun hins vegar fjölga enn
hraðar á næstu tólf
mánuðum verði ekkert að
gert, sam-kvæmt spá-líkani
Credit-info. Flestir þeirra sem
eru á van-skila-skrá og
Credit-info telur lík-legt að
lendi þar á næstunni eru frá
30 ára og upp í 49 ára og
með börn á fram-færi sínu.
Magnús Norðdahl,
deildar-stjóri lög-fræði-deildar
ASÍ, segir að það sé ekki eftir
neinu að bíða með að grípa til
að-gerða fyrir þann hóp
heimila sem kominn er í
alvarleg greiðslu-vandræði.
Vanskil
aukast
hratt